Öfugmæli.

 

Öll embætti, hversu mæt þau annars eru, geta lent í klóm hagsmunaaðila, og hætta því að gegna hlutverki sínu, verða svona Leppar og Skreppar þeirra hagsmuna sem þau þjóna.

 

Í dag er það öfugmæli að kalla Aðalstein Leifsson; ríkissáttasemjara, og tillögu hans; miðlunartillögu.

Aðalsteinn gengur erinda annarra, ekki þess embættis sem honum var trúað fyrir, og meint miðlunartillaga hans er grímulaust tilboð Samtaka Atvinnulífsins sem Efling hafði þegar hafnað.

 

Rök Aðalsteins halda ekki vatni, þau eru vanvirðing við bæði skynsemi sem og hlutverk og tilgang embætti hans.

Hann segir deiluna komna í hnút vegna þess að menn nýttu aðeins mínútu til að spjalla saman.  Ef hann er ekki skyni skroppinn þá veit hann að slíkt er aðeins eðlilegt í átakaferli þegar menn skekja skildi og hrópa ókvæðisorð að hvorum öðrum, svona bara uppá pepp og móralinn.

Efling hefur ekki einu sinni fengið samþykki félagsmanna sinna fyrir takmörkuðu skæruliðaverkfalli sínu, hvað þá að félagið hafið boðað til allsherjarverkfalls.

Sem þjálfaður samningamaður á Aðalsteinn að vita að deilan er ennþá í gerjun, á eftir að springa út, og þá á hún eftir að þroskast, aðeins þá kemur í ljós styrkleiki verkfallshótunar Eflingar sem og vilji atvinnurekanda að standast þá hótun.

 

Auðvita veit Aðalsteinn þetta, hann er enginn heimskingi þó hann kjósi að spila sig slíkan, en þeir sem ganga erinda annarra grípa oft til undarlegra röksemda til að réttlæta erindarekstur sinn.

Öllu alvarlegra er þegar Aðalsteinn missti út úr sér að hann hefði viljað að félagar Eflingar fengju að greiða atkvæði um tilboð Samtaka atvinnulífsins, eins og það væri hans hlutverk að meta slíkt.

 

Þetta er ekki heimska, þetta er aðför, og hann má ekki komast upp með hana.

Ekki frekar en ríkislögreglustjóra að banka upp hjá fólki og leggja undir sig eigur þess í krafti embættis síns, og þegar fólk neitar, þá beiti hann valdboði  til að knýja fram rupl sitt.

 

Í þessu tilbúna dæmi eiga undirmenn ríkislögreglustjóra og dómstólar að neita embættisvaldinu, í hinu raunverulega dæmi á Efling ekki að virða Aðalstein viðlits eftir að ljóst var að hann væri kominn í erindarekstur.

Og væri einhver döngun hjá öðrum í kerfinu þá myndu þeir hundsa beiðnir hans um inngrip lögreglu og dómsstóla.

Umgangast hann eins og Persona non grata eins og hann er í dag.

 

Vilji sá sem Aðalsteinn gengur erinda fyrir að félagsmenn Eflingar greiði atkvæði um lokatilboð Samtaka atvinnulífsins, þá geta viðkomandi sjálfir snúið sér til dómsstóla með þá kröfu sína.

Ekki nota embætti Ríkissáttasemjara sem millilið.

Því annað er í raun aðför að leikreglum sem ætlast er til að allir virði.

Bein eyðilegging á því embætti sem Aðalsteinn Leifsson gegnir.

 

Þó menn telji mikla ógn stafa af þeirri hógværu kröfu Eflingar að fólk geti lifað mannsæmandi lífi af launum sínum, þá hljóta þessir sömu menn, þessir sömu hagsmunaaðilar, að hafa önnur úrræði til að brjóta þessa ósvífni á bak aftur en að fórna samningakerfinu á vinnumarkaðnum sem hefur reynst honum svo vel.

Því öfugmæli Aðalsteins ganga af því kerfi dauðu séu þau knúin fram með valdboði.

 

Það er stór fórn til að stöðva eina manneskju.

Jafnvel þó hún berjist fyrir réttlæti.

 

I have a dream.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Launareiknivél ríkissáttasemjara komin í loftið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krókódílatár Starfsgreinasambandsins.

 

Allir vita sem eitthvað hafa komið nálægt verkalýðsbaráttu, sem og reyndar allir sem hafa heilbrigða skynsemi til að bera, jafnvel dugar að vera bara ekki mjög vitlaus, vita að inngrip Ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka Atvinnulífsins er bein aðför að eina vopni verkalýðshreyfingarinnar.

Verkfallsréttinum.

Rétti, sem tók bláfátækt verkafólk síðustu alda áratugi með jafnvel blóðugri baráttu í sumum löndum, að öðlast.

 

Verkalýðshreyfingin gefur þann rétt ekki eftir baráttulaust, ekki nema hún sé ofurliði borin af skriðdrekum og vélbyssum vopnaðra hermanna.

Ætli menn að vega að þessum rétti með krókaleið laganna, þá á verkalýðshreyfingin að mæta þeim ólögum af fullum þunga.

Lýsa því yfir að sátt sé rofin, og hún verði ekki aftur nema að leikreglunnar séu virtar.

 

Sjaldan hef ég skrifað færslu með eins djúpum trega eins og um þessi krókódílatár Starfsgreinasambandsins.

Þetta fólk veit ekki lengur í hvaða liði það er.

Kveðja að austan.


mbl.is Dómstólar skeri úr um lögmæti tillögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grillir í brúðuleikstjórann.

 

Ef Halldór Benjamín er svona viss að Eflingarfélagar vilji SGS samninginn, þá veit hann líka að þeir samþykkja ekki verkfallsboðun samninganefndar félagsins, svo einfalt er það.

Það er ekki hans hlutverk að beita bolabrögðum til að fá þann samning til atkvæðagreiðslu.

Og hann á ekki að vera svo mikill auli að vita ekki að séu leikreglur ekki virtar, þá eru forsendurnar fyrir þeim brostnar, og við tekur vargöld og vígöld.

 

Að fórna Ríkissáttasemjarar voru mikil mistök.

Kveðja að austan.


mbl.is Telur félagsfólk Eflingar vilja SGS-samninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju á Efling að starfa með erindreka??

 

Manni sem lætur nota sig til óhæfuverka??

Ég bara spyr.

 

Aðalsteinn Leifsson hefur vanvirt embætti Ríkissáttasemjara.

Í dag gengur hann erinda atvinnurekanda líkt og ofbeldismennirnir sem bandarískir atvinnurekendurnir nýttu til að lemja á verkamönnum í átökum kreppuáranna á síðustu öld.

Nema hann er aðeins fínni og í stað þess að nota vöðvaaflið, þá misnotar hann lögin um embætti sitt.

 

Með þessum manni á enginn að starfa og verkalýðshreyfingin, ekki bara Efling, á að senda skýr skilaboð til stjórnvalda að embætti Ríkissáttasemjara er dautt þar til Aðalsteinn er látinn víkja.

Allt annað er óeðlilegt, samsinnun eða samdaunun með lagaofbeldi manns sem gengur erinda.

 

Þetta er ekki spurning, þetta er ekki val, þetta er nauðsyn.

Sjálfar leikreglur vinnumarkaðarins eru undir.

 

Þær þarf að verja.

Kveðja að austan.


mbl.is Ekkert bólar á skrá Eflingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikbrúðan.

 

Eitt er að Samtök Atvinnulífsins með öllum sínum kostuðu vinnumönnum og skítadreifurum, í vanheilögum bandalagi með Góða fólkinu, standi fyrir forkastanlegri rógsherferð gegn persónu og forystu Sólveigu Önnu, líkt og allur urgur í vinnandi fólki um alla Evrópu sé henni að kenna en ekki bágum kjörum fólks sem nær ekki endum saman.

Annað er þegar ríkissáttasemjari grípur beint inní atburðarrásina og gengur annað hvort erinda stjórnvalda eða atvinnurekenda til að knésetja kjarabaráttu Eflingar.

Það er eins og menn treysti ekki lengur sínum eigin skítameðulum og því sé ríkissáttasemjara fórnað, trúverðugleik hans og hlutleysi að engu gert, bara ef það tekst að stöðva Sólveigu Önnu og réttlætisbaráttu hennar.

 

Munum, að það er ekki hægt að rífast við þessi orð Sólveigu Önnu; "Það er einkenni siðmenntaðra samfélaga að fólk geti séð fyrir sér með þeirri vinnu sem það ástundar".

Þau er grundvallarforsenda siðmenningarinnar, geirnegld í kristnum siðaboðskap; að verðugur sé verkamaður launa sinna.

 

Það er fölsk þjónusta sem byggist á launum sem ekki er hægt að lifa af mannsæmandi lífi.

Fæði, klæði, húsnæði.

 

Láglaunastefna er eitt, hungurlaunastefna er annað.

Og ef svo er komið í samfélagi okkar að ekki er hægt að veita grunnþjónustu ríkis og sveitarfélaga nema með innflutningi á fátæku fólki sem tekur því sem næst öllum kjörum sem er í boði, því þau eru samt langt um betri en þau sem bjóðast heima fyrir, að þá verðum við að hugsa hlutina uppá nýtt.

Því það er ein birtingarmynd þrælahalds.

 

Og ef heilu atvinnugreinarnar segjast ekki getað rekið sig nema við slíkum innflutningi og slíkri hungurlaunastefnu, þá mega þær einfaldlega missa sig.

Því þá byggist velmegun okkar á svipuðum grunni og auður hvítra plantekrueiganda í Suðurríkjunum í gamla daga.

Gegnrotinn í gegnrotnuðu samfélagi.

 

Að fórna ríkissáttasemjara fær þar engu breytt.

Hið frjálsa flæði Góða fólksins um lægstu laun, um hungurlaun, er komið á Endastöð.

 

Höggvi menn Sólveigu Önnu, þá sprettur aðeins upp ennþá herskárra baráttufólk.

Og þá hafa menn engan hlutlausan aðila sem menn geta treyst.

Jafnvel þó Aðalsteinn víki því embættið sem slíkt er rúið trausti.

 

Er Sólveig Anna virkilega svona skerý??

Kveðja að austan.

 


mbl.is Telur sér stætt áfram óháð niðurstöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkamaður gíslar Nató.

 

Erdogan Tyrklandsforseti er einræðisherra af nýja skólanum.

 

Hann nýtti sér lýðræðið til að komast til valda, og hann nýtir sér síðan stofnanir þess eins og dómstóla til að halda þeim völdum.

Í stað þess að falsa niðurstöður kosninga líkt og einræðisherrar af gamla skólanum gera sbr Lúkasjenkó forseti Hvíta Rússlands, þá nýtir hann sér dómstóla landsins til að fangelsa þá stjórnmálamenn sem ógnað gætu honum í kosningum.

 

Erdogan varð einræðisherra þegar hann skipulagði sjálfur meinta valdaránstilraun hersins gegn sér, hrekklausir herforingjar voru plataðir til að senda nokkur ungmenni úr hernum út á götur Ankara, þeim sagt að þeir væru að vernda ríkisstjórnina gegn yfirvofandi valdaráni.

Á sama tíma voru síðan sendar flugvélar til að skjóta á dvalarstað hans, en hann ekki sagður heima því Pútín af öllum mönnum hafi átt að hafa varað hann við.

Ótrúverðugari atburðarrás er vart hægt að hugsa sér, en þegar í kjölfarið einhverjum klerki, sem ógnaði völdum Erdogans innan íslamska miðaldaheimsins, og hann hafði hrakið í útlegð til Bandaríkjanna, var kennt um hið meinta valdarán, og í kjölfarið voru tugþúsundir handtekin, þá var ljóst að hið raunverulega valdarán var valdarán Erdogans á lýðræðisstofnunum Tyrklands.

Fólk sem laut ekki valdi hans innan hers, dómstóla, menntastofnana, var handtekið, pyntað og síðan dæmt í sýndarréttarhöldum sem jafnvel Stalín hefði talið vafasöm.

En vestræn ríki létu yfir sig ganga og fjölmiðlar spiluðu með.

 

Tyrkland breyttist úr lýðræðisríki í einræðisríki, og smán saman var ljóst að hryðjuverkamaður stjórnaði því.

Meðal afreka Erdogans var að skipuleggja nokkur mannskæð sprengjutilræði í borgum Tyrklands, einhverjum Kúrdum kennt um, sönnunin átti að vera að við húsleit heima hjá þeim fundust skjöl sem áttu að hafa tengt viðkomandi við stjórnmálasamtök Kúrda. 

Hvað er á milli eyrnanna á fólki, sem trúir að sá sem ætli sér að fremja hryðjuverk skilji eftir nafn og kennitölu meintra stjórnenda sinna, má alveg íhuga, en þegar Erdogan nýtti sér þessar sprengingar til að hefja gjöreyðingarstríð gegn Kúrdum, með sprengjuárásum, morðum, nauðgunum, pyntingum, þá getur enginn verið svo einfaldur að sjá ekki fingraför hans og tilgang.

 

Alvarlegustu glæpir Erdogans eru samt líklegast beinn stuðningur hans við hugmyndafræðilega samherja sína í Ríki Íslams.

Hvernig ráðafólk á Vesturlöndum, þar á meðal núverandi og fyrrverandi utanríkisráðherrar Sjálfstæðisflokksins, gátu setið til borðs og skálað við Erdogan, eftir að ekki var lengur hægt að líta undan þegar ómennska íslamista í Sýrlandi var afhjúpuð, afhjúpun sem þeir sjálfir sáu um að dreifa samviskusamlega á víðáttum alnetsins, er eitt af leyndarmálum mannshugans sem vísindafólk á ennþá eftir að afhjúpa.

En að líða Erdogan að skjóta skjólhúsi yfir leifunum að hersveitum ómennanna, og nýta þær síðan til hefndarinnrásar á yfirráðasvæði Kúrda í Sýrlandi, er óskiljanlegt, á pari við að horfa í hina áttina þegar ljóst var hvað átti sér stað í meintum vinnubúðum nasista.

Reyndar má líka spyrja hvar voru femínistar þessa heims þegar fréttir bárust af misþyrmdum líkum herkonum Kúrda, kynferðislegar misþyrmingar, afskorin brjóst, var meinið kannski að það var allt skjalfest og staðfest, en ekki slúður sem drífur áfram byltingar þeirra í dag??

 

Orðið óskiljanlegt nær hins vegar ekki yfir hvernig þessi hryðjuverkamaður er gerður að hetju þegar hann þóttist hafa milligöngu milli vinar síns Pútíns og umheimsins um að korni yrði skipað út frá höfnum Úkraínu

Eða að hann skuli ennþá sitja til borðs með leiðtogum heimsins í stað þess að gista fangaklefa í Haag bíðandi eftir dómi vegna glæpi gegn mannkyninu.

 

Og að hann og Litli Pútín skulu hafa neitunarvald hjá varnarbandalagi lýðræðisríkja, það getur aðeins vakið upp spurningar um, hvað býr í raun að baki þessa stríðs í Úkraínu??

Hverjum hagsmunum er í raun verið að þjóna??

Því orðum er hægt að stjórna, en gjörðir afhjúpa alltaf.

 

Sagan um Erdogan er dæmisaga þar um.

En hvað segir hún í raun??

 

Efa samt að Hamlet sæi nokkurn efa þar um.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Óvissa uppi um inngönguna í NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju mun Biden svara??

 

Nýja trúnaðarskjalamálið í Washington vindur upp á sig.

Eftir að fleiri staðir sem tengjast Biden í gegnum tíðina eru tékkaðir, þá finnast trúnaðarskjöl, stundum fá, stundum fleiri.

 

Á sama tíma hefur furðuleg þögn grafið um sig hjá fólkinu sem lét sem hæst þegar Trump greyið var staðinn að því að flytja trúnaðarskjöl í sendibílaförmum til híbýla sinna.

Það er eins og mætti halda að það skipti máli hver felur og hver ekki, ekki sé verið að fordæma meintan glæp, heldur að ná höggstað á andstæðing.

Leikreglur lýðræðisins skipti litlu, en kaldar refjar skítugrar valdabaráttu mestu.

 

En það var ekki erindið með þessum fáum orðum mínum.

Heldur spurningin; Hverju mun Biden svara þegar hann verður spurður um nýjasta fundinn?

 

"Ég man það ekki".

Og það munu allir trúa honum.

 

Svo illa er komið  fyrir vestrænni forystu.

Á tímum þegar sjálf framtíðin er undir.

 

Hvernig gat þetta gerst??

Kveðja að austan.

 


mbl.is Fleiri trúnaðarskjöl fundust á heimili forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur, vertu ekki gunga.

 

Segðu núna einu sinni alveg satt, ekki hlut-satt, eða næstum því satt.

Þú varst í ríkisstjórn sem var mesta helfararíkisstjórn á friðartímum í nútímasögu Vesturlanda. Aldrei hafa hlutfallslega fleiri íbúar eins lands verið hraktir af heimilum sínum, eða látnir sæta búsifjum árangurslausra fjármuna en í þeirri ríkisstjórn sem þú sast í.

 

Aðeins ógnarstjórn nasista vó dýpra af þegnum sínum, og það var vegna kynþáttahyggju, og þá voru ógnartíma ófriðar, í Þýskalandi lauk í raun aldrei fyrri heimsstyrjöldinni fyrr en 1945, með ósigri ógnaraflanna.

Almenningur á Íslandi kaus ykkur hinsvegar í burtu í þingkosningunum 2013, og ennþá búa kjósendur Norðurlands Vestra við brennimark hinnar algjöru smánar, að haldið lífi í Samfylkingunni, þegar sá flokkur átti hvergi heima nema á öskuhaugum sögunnar.

 

Þú hins vegar Ögmundur varst um margt sértækur, þú varst eins og norsku andspyrnumennirnir sem þóttust gagna erinda hernámsliðs nasista, en unnu allan tíma í þágu lands og þjóðar, frá fyrsta degi var augljóst að þú vannst gegn hernámi erlendra og innlendra hrægamma, án þín hefði margt orðið verra.

Svo hafði þú manndóm að hefja ferlið sem endaði með réttlæti í Geirfinnsmálinu.

 

Þess vegna Ögmundur Jónasson þolir þú sannleikann.

Allan sannleikann.

Segðu hann.

Kveðja að austan.

 

PS.  Allt ærlegt fólk veit að það var rangt að ákæra Geir, og það hafa þegar margir stuðningsmenn Helfararíkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur viðurkennt og játað sekt sína, og beðist afsökunar, og verið fólk af meiri.


mbl.is Ögmundur: Rangt að ákæra Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúðan talar og talar.

 

Skammast og skammast, og engin skal efast um að hún meini vel.

Nema að hún missti allan sinn trúverðugleik þegar hún þáði far með auðkýfing á skútu hans yfir Atlantshafið.

Skilaboðin skýr, ef þið þekkið ekki auðkýfinga, þá skulið þið ekki ferðast.

 

Samt er ennþá aumara hjá þessu blessuðu barni, sem og öðrum börnum sem fjölmiðlar hinna ofurauðugu hampa, man ekki alveg hvað þessi börn heita á Íslandi, líklegast Ungt fólk eitthvað, er að þau þjóna svo algjörlega gjörsamlega Hagfræði Andskotans, sem leggur óbærilegar kvaðir á fyrirtæki og almenning Vesturlanda, til þess eins að minna mengandi framleiðsla er flutt  í stórverksmiðjur hinna Ofurríku í Kína.

Með þeim afleiðingum, að eftir allan barnagrátinn sem vissulega er ekki íssjú í málinu, þá hefur heildarmengun heimsins margfaldast, frá minna mengandi Vesturlöndum í hið mengandi kolahagkerfi Kína sem og annarra þrælabúða Glóbal auðsins.

 

Og þó þetta séu börn, heimsk börn, þá skulum við ekki ætla þeim þá víðátta heimsku að þau skilji ekki hvað Höndin sem fæðir þau, stendur fyrir, og hver afleiðing stefnu hennar er.

Því það er jú líf þeirra sem er undir, ef Hagfræði Andskotans, hagfræði hinna Ofurríku, sem kennd er við hjáguðinn Mammon og dagsdaglega er kölluð Nýfrjálshyggja, stjórnar vörnum siðmenningarinnar gegnn hlýnun jarðar,þá verður ekki önnur kynslóð, nema þá sú villimennska sem mun dafna eftir Hrun siðmenningarinnar.

 

Samt eru til blaðamenn, líklegast blaðakonur, sem örugglega eiga börn og dreymir um að verða ömmur, sem spila með brúðunum, sem hafa aðeins eitt hlutverk.

Og það hlutverk er ekki að ýta undir samviskubit okkar að við séum leiksopar hinna grimmu afla sem markvisst hafa hlutlausað varnir siðmenningarinnar.

Það hlutverk er miklu alvarlegra.

 

Sem er að við trúum að það sé eitthvað verið að gera.

 

Þegar æ stærri hluti heimsins er að verða óbyggilegur vegna loftslagshamfara, þá röfla leiðtogar okkar sem eru í vasa auðsins, þrælar hugmyndafræði Andskotans, út í eitt, og þegar það röfl getur ekki kæft Örvæntingu þess fólks sem ól líf, sem það vill að lifi af, þá eru brúðurnar kallaðar til.

Í trausti þess að fólk sé svo heimskt að það haldi að fólk sem mengar óverulega á heimsgrundvelli, geti bjargað heiminum með því að fara aftur á steinöld.

Eða til vara að allir eigi auðvini eins og hún Gréta, og geti því ferðast um á vængjum vinda, sem fyrir daga gufuvélarinnar voru kenndir við segl og seglskip.

Við handafl, við hesta, og já, vindmyllur, heim sem átti erfitt með að fæða og klæða brotabrot af þeim mannfjölda sem byggir jörðina í dag.

 

Og munum að sökin er ekki Grétu, eða sambærilegra brúða eða kjölturakka hinna Ofurríku, heldur þeirra sem kóa með.

Þeirra sem skrifa svona frétt án þess að segja "hvaða helv. kjaftæði er þetta", eða rísa upp gegn hinum forheimsku stjórnmálamönnum Góða fólksins sem gera DúDú fuglinn að ofurgreindu vitsmunaveru í samanburði við Góða fólkið.

 

Hvað heitir þetta aftur??, aflátsbréf loftslagssóða sem auðfyrirtæki eins og Landsvirkjun selur dýrum dómi, loftslagsskattar og kolefnisskattar sem knýja alla framleiðslu til Kína, eða eigum við að minnast á algjöran fávitahátt íslenskra stjórnvalda???

Sem ætla að rafvæða Ísland fyrir 2030 eða eitthvað, án þess að hafa byggt einu einustu virkjun frá 2002, eða knýja með skattaofbeldi á rafmagnsvæðingu samgöngutækja án þess að hafa lagt krónu frá því á síðustu öld í að endurnýja raflínur landsins, hafa ekki einu sinni vit á að byggja upp varaafl á landsbyggðinni svo hægt sé að setja björgunartæki, hvort sem það eru vinnuvélar eða tæki lögreglu eða björgunarsveita í samband, þegar hamfaraveður loftslagshlýnunnunnar dynja á landi og landsmönnum.

 

Eða eigum við að tala um hvað þetta fólk er innilega tvöfalt eða þrefalt, svo orðin skinhelgi eða hræsni ná ekki á nokkurn hátt að lýsa stefnu þess, að það keyrir á hagvöxt ferðamannaiðnaðarins.

Mengandi skemmtiferðaskip, flugvélar sem menga orðið meira en allur almenningur og megnið af atvinnulífi landsins, viðbrögðin er að hækka kolefnisskatta á landsbyggðina, sérstaklega skatta á fátækari hluta hennar, og segja svo, vissulega þá minnkuðum við koltvísýringin um 0,1%, þó það skipti engu máli þá sýnir það vilja okkar í verki.

 

Gréta er þó barn, Leppur auðs og auðmanna, hefur ekki vitsmuni til að sjá hvernig Hagfræði Andskotans misnotar hana.

En hvað afsakar íslensk stjórnvöld??

Það er ekki þannig að það þurfi ekki að gera eitthvað.

 

En Höndin sem fæðir.

Höndin sem grefur gröf Framtíðar barna okkar.

Hún á og hún stjórnar.

 

Eins og enginn eigi framtíð sem þarf að verja.

Líf sem var alið og biður um það eitt að mega ala af sér nýtt líf.

 

Því upphaf og endir alls eru við.

Við sem ólum Líf sem við sórum að vernda.

 

En þegjum.

Spilum með.

 

Erum ekki brúður.

En högum okkur sem slíka.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is „Fáránlegt“ að hlusta á þetta fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er gjaldskráin??

 

Sem almenningur greiðir með sköttum sínum vegna almennar heimsku og fávitaháttar meintra menntaðra opinbera starfsmanna?

Og þá er ég ekki að tala um síendurtekna myglu í opinberum byggingum, nýjum opinberum byggingum, sem sísjúga fjármagn frá nauðsynlegum nýbyggingum, til að bæta út og gera illa byggt húsnæði nothæft.

Sem og ég er ekki í raun að vísa í þekkt vitsmunaleg afglöp hinna nýráðnu meintra verkfræðinga hjá Vegagerðinni sem töfðu lífsnauðsynlegar vegaframkvæmdir í botni Berufjarðar með því að sturta efni í sjóinn, og játuðu að lokum að í  menntun þeirra hjá HÍ hefði gleymst að fræða þau um áhrif strauma í botni fjarða.

 

Ég sem Norðfirðingar vísa aðeins í snjóflóðagarðinn sem var reistur, áður en augljóst snjóflóð drap næstum fjölda verkamanna við gagnamuna Norðfjarðargagnanna, og þakka fyrir að í menntun verkfræðinga Vegagerðarinnar  er kúrs sem krefur þá um að fylgjast með fréttum um afleiðinga vanhugsunar þeirra eða rangra hönnunar.

 

Samt skal ég játa að ég vildi að þetta menntaða fólk væri ekki svo heimskt, að það hefði hannað göng, án vegskála, á þekkt óveðurssvæði Norðvestanáttarinnar, með þeim afleiðingum að í núverandi veðurfari hlýnandi heims, þá eru meiri líkur að ökumenn séu fastir við gagnamunnann Eskifjarðarmegins,en var á sjálfu Oddsskarðinu þó muni um það bil 600 metrum á hæðinni milli þessara tveggja gagna.

Ég hefði samt ekki spurt um gjaldskrána á þessari heimsku eða faglegum fávitahátt, snjóflóðið sem næstum drap fjölda tékknesku verkamannanna, við því var brugðið með mini-mini vörn, sem allavega hefur bjargað mannslífum síðan.

 

Þessi  frétt fékk mig samt til að hugsa um faglega heimsku, og hver er ábyrgð hins meintra menntaðra fræðinga sem líklegast bulla út í eitt, til að kóvera þá vísvitandi stefnu Rarik, eftir að fyrirtækið var frjálshyggjuvætt, að gjörhundsa viðhald á raftstöð bæjarins, svo eftir að árin liðu, og enginn fagmenntaður vélvirki fékk laun til að koma inní rafstöðina (gleymum aldrei aldrei bónusunum sem algjörlega vanhæfir stjórnendur Ohf Rarik fengu greiddir) og því á ákveðnum tímapunkti, eftir að hafa bjargað byggðarlagi mínu ítrekað, þá kveikti hún í sér, því líklegast hafði enginn gáð að því að hreinsa skorsteina rafstöðvarinnar.

Þeir sem ábyrgðina báru, og voru eftir Ohf væðingu þessa ríkisstofnunar, og ef það hefði verið rannsakað höfðu greitt samviskusamlega framlög í kosningasjóði Nýfrjálshyggjuflokkanna, launaðir með ríkulegum bónusum, starfslokasamningum samtryggingarinnar, eða öðru sem þetta gjörsamlega siðblinda, vanhæfa fólk ber á ábyrgð á, þeir bera samt sem ekki ábyrgð á þessari Ófrétt, því þeir voru eins og þeir eru, skilgetin afkvæmi Nýfrjálshyggju Sjálfsstæðisflokksins sem samstarfsflokkar hans létu óáreitt.

 

Vandinn er miklu djúpstæðari en það, og snertir hið meinta menntaða fólk okkar, sem hefur tekið sér alræðisvald yfir öllu okkar þjóðfélagi, og getur ekki einu sinni sinn brýnustu þjónustu samfélags okkar, án þess að vanhæfni þess margfaldar alla kostnaðarliði  líkt og samfélag okkar sé vel stjórnað, og hinir gígantísku fjármunir sem við eyðum í hin og þessi brýn úrlausnarefni, snerti í raun það sem við vildum eyða í.

Svo dæmi sé tekið er einhver svo heimskur að trúa Dagískunni þegar hún sagðist hafa eytt einum og hálfum milljarði í úrræði fyrir heimilislaust fólk í Reykjavík, svona í ljósi þess að fyrstu viðbrögð þessa hámenntaða fólks var að vísa skjólstæðingum Neyðarskýla borgarinnar út á gaddinn og óveðrið, og það þurfti fjölmiðlaumfjöllun til að þetta fólk, sem þegar hafið sogið til sín megnið af fjármunum borgarinnar í þennan málaflokk, lýsti því yfir, að það væri ekki í stefnu Dags, og Einars, að láta heimilislausa krókna úti í vetrarstormum.

 

Enn og aftur, hvað kemur það gjaldskránni við??

Hvernig getur fólk bullað svona fyrir borgun??

Sérstaklega þegar við höfum í huga að arðrán Nýfrjálshyggjunnar á innviðum Rarik var fyrir þess tíð, flest varla búin að læra að skeina sig, mæður og feður lutu höfði í auðmýkt yfir snillingnum sem fann upp Pampers bleyjuna.

 

Ekkert varaafl, og línurnar halda!!

 

Samt hafa allir þessi menntuðu krakkar ekki vottorð um að þau kunni að tannbursta sig skammlaust, eða reima á sig skóna.

En þegar vel er greitt (ekki ætla ég þeim hina algjöru heimsku), þá fullyrða þau að þegar vel er greitt að þá virki meint hringtenging því aldrei muni það gerast að tengistöðin á Eskifirði, þar sem hin meinta hringtenging á upphaf sitt og endi, slái út, hvað þá að álver Alcóa á Reyðarfirði slái út þessum línum.

 

Samt spyr maður sig, hvað þarf mikinn pening, því munum að enginn er svona heimskur, til að meint menntað fagfólk láti svona vitleysu út úr sér, að viti ekki til, að hafi ekki neina vitneskju um, að línur slái út og í kjölfarið glími byggðir við rafmagnsleysi.

Jafnvel dögum saman líkt og var eftir óveðrið mikla 2019 í Vestur Húnavatnssýslu.

 

Þá var lærdómur stjórnvalda að efla varaafl.

Í dag er sá lærdómur gleymdur, og í dag spilar meint menntað fólks sig fífl, sem er grunnforsenda þessarar fréttar.

Það fær samt ekki mikið borgað, heldur kannski vinnu sinni þrátt fyrir augljósa vanhæfni, sem og vankunnáttu.

 

En hvað með fórnarlambið, sjálft bæjarfélag mitt, alla þá þjónustu sem þar er veitt, eða ofurhagnaðarfyrirtækið Síldarvinnsluna???

Veit ekki, en það eina sem ég veit, er að laun forsvarsmanna bæjarfélagsins eða fyrirtækisins, eru af þeirri stærðargráðu, að nokkrir mánuðir hefðu hugsanlega getað bjargað hinu lífsnauðsynlega varaafli í bænum mínum.

Ekki að ég sé að gera lítið úr laununum, en ég hélt að þeim fylgdi sú ábyrgð að verja byggðarlagið gegn aðförum forheimskum stjórum bónusa Ohf væðingarinnar, eða bregðast við svona augljósu rugli meintra verjanda gjaldskráar hinna vanhæfu meintra sérfræðinga.

 

Því þetta átti aldrei að vera frétt.

Hvað þá að örgamall bloggari að austan gæti ekki þagað yfir mannanna heimsku.

Ekki að mannanna heimska sé eins og hún er, en að þiggja laun sín, gera svo ekkert, það er eiginlega svo fáheyrt að jafnvel má ræða um launasvik.

 

Því þrátt fyrir allt bera aðrir ábyrgðina en þau sem kunna ekki að byggja hús, eða leggja vegi.

Það fólk er alltaf skjöldur gagnvart þeim sem við treystum, og borgum ofurlaun sem aðeins eiga sér samsvörun í launakjörum bæjar/borgarstjóra í borgum og bæjum tugmilljóna eða ekki hundruð milljóna, sem og þeim forstjórum sem miða laun sín alltaf við topp 500 á einhverjum Bilbord lista, án þess að ég kunni að stafa það orð.

 

Þetta hálaunafólk var ekki skjöldur í mínu byggðarlagi, það horfði í hina áttina þegar Ohf-effið eyðilagði varaafl sem hafði þjónað byggð minni í yfir um 70 ár.

Samt talar það ekki Dagísku, ég get alveg vottað að stjórarnir tveir kunna bæði að reima skó og hnýta bindishnút.

 

Það var grasrótin sem mótmælti.

Það var grasrótin sem vakti þau viðbrögð sem Austurfrétt byggði sína skynsemisfrétt á.

Ólaunuð grasrót annarsvegar, hinsvegar mjög vel launaðir stjórar, svo það nægði næstum til að fæða og klæða alla munaðarleysingja í Kenía.

Sú ábyrgð er þung, og eitthvað þurfa menn til að réttlæta laun sín.

 

Til dæmis að mæta ógnarafli Nýfrjálshyggjunnar, forheimsku og sígræðginnar í Reykjavík, að vanhæft fólk, meint vel menntað fólk, geti ekki rutt götur borgarinnar eftir smá sjó, en það  eigi ekki að vega að lífi og mannlífi landsbyggðarinnar sem þurfi alltaf á varaafli að halda, afneitun á því sé afneitun á Íslandi í dag.

Samt mallar kerfi vanhæfninnar, og stjórarnir þiggja sín laun, út í eitt.

 

Við því þurfum við að bregðast, og eigum að segja aðeins eitt.

Nei.!!!

 

Fíflin, þó menntuð séu, eiga ekki að stjórna lífi okkar, framtíð okkar.

Og fjandinn hafi það, það  er hægt að byggja hús án myglu.

Kveðja að austan.


mbl.is Senda varaaflvélar frá Neskaupstað til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 589
  • Sl. viku: 3874
  • Frá upphafi: 1454102

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 3347
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband