Mennskan 0 - Glæpir gegn mannkyni 1

 

Og kannski er háðungin algjör að sóknaraðilinn sem réttlætir tilhæfulaus morð á óbreyttum borgurum, dráp á heilum fjölskyldum, á sem viðbjóðlegasta hátt, á morðum og nauðgunum, limlestingum, á öllu því sem alþjóðalög hafa skilgreint sem Glæpi gegn mannkyni, að það eru núverandi stjórnvöld í Suður Afríku.

Þar sem spillingin er svo algjör, að mútuþægir ráðherrar sem þiggja laun frá glæpasamtökum, bera beina ábyrgð á orkuskorti í landinu.

Fólk sem ætti að sæta rannsókn, vogar sér að ákæra aðra.

 

Alþjóðadómstólinn í Hag náði ekki að tækla Glæpi gegn mannkyni, hann hins vegar bað stríðandi fylkingar að reyna ekki að stuðla að þjóðarmorði.

Pútín var sem sagt sýknaður, líklegast Hitler líka, allir þeir sem hafa ráðist á önnur lönd, drepið, myrt, nauðgað, og til viðbótar sem Hamas og bræðralag Íslamista ber ábyrgð á, að limlesta, að brenna börn lifandi, allan þann viðbjóð sem mannkynssagan hefur hingað til fordæmt.

Sem óeðli, einhvern sjúkleika sem ber að vinna gegn.

 

Haag hefur aldrei lagst lægra.

 

Að fordæma ekki Glæpi gegn mannkyni.

Það er eins og rétthugsunin sé án siðar og mennsku.

 

Á meðan olíugróðinn fjármagnar, þá skal lúta höfði.

Hver veit hver verður hálshöggvinn næst??

 

Ekki Ég segir Góða fólkið.

En er það svo.

Kveðja að austan.


mbl.is Komi í veg fyrir þjóðarmorð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Game over

Það leggur enginn fram vantraust á ráðherra sem glímir við krabbamein.

Þar liggja mörk, og þau ber að virða.

 

Megi guð og gæfa fylgja Svandísi í stríði hennar við hinn illvíga andstæðing.

Megi hún hafa sigur.

Batakveðjur að austan.


mbl.is Svandís í veikindaleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mogginn og stuðningurinn.

 

Yfirlýsing Hamas samtakanna frá því í gær þar sem samtökin réttlæta morðárás sína á Ísrael þann 7. október, felur í sér tímamót því í fyrsta skiptið játa samtökin að mistök hafi átt sér stað.

Glæpirnir gegn mannkyni voru sem sagt mistök.

 

Þessi viðurkenning virðist hafa skilað sér inná fréttastofu RUV, því í fyrsta skiptið frá því að fréttastofan tók afstöðu með Hamas í stríðinu sem samtökin hófu, þá er það tekið fram að sum fórnarlömb Hamas hafi verið drepin á hrottalegan hátt.

Hrottalegt er væg lýsing á Glæpum gegn mannkyni, ungabörn bútuð niður í rúmum sínum, önnur aðeins eldri brennd lifandi, konum og unglingsstúlkum nauðgað, þær limlestar, síðan aflífaðar eins og hverjar aðrar skepnur.

En sinnaskipti engu að síður, hvort sem útvarpsstjóra hafi ofboðið stuðninginn við Glæpi gegn mannkyni og fengið sálfræðing til að útskýra fyrir fréttafólki að slíkt gerir aðeins fólk sem er sjúkt á sál og sinni, eða að fréttamenn hafi sjálfir áttað sig á alvarleik þess að styðja hryðjuverkasamtök sem hafa gerst sek um Glæpi gegn mannkyni.

Það eru jú til lagabálkar sem banna slíkan stuðning.

 

Blaðamenn Morgunblaðsins, eða allavega hluti þeirra, eru hins vegar ósnortnir af slíkri iðrun eða bakþönkum.

Þeir geta ekki þaggað niður sannleikann um voðverk Hamas, því meir að segja UN Women þurfti að viðurkenna að gyðingakonur væru líka konur og nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur lýst því yfir nægar sannanir væru um að voðaverkin væru Glæpir gegn mannkyni.

En voðafólkið er hægt að styðja á annan hátt.

 

Fólk sem telur Glæpi gegn mannkyni réttlætanlega í stríði, réttlætir viðbjóð með vísan í einhverja kúgun, er í raun á sama plani og þeir sem viðbjóðinn fremja.

Það er mannlegur viðbjóður, og við eigum að feisa það fólk, fordæma.

Heimurinn er fullur af þjóðum og þjóðarbrotum, þjóðfélagshópum, minnihlutahópum, sem upplifa sig kúgaða, og réttlæting á voðaverkum eins hóps, er réttlæting á voðaverkum þeirra allra.

Þess vegna berjast mannréttindasamtök gegn slíkum voðaverkum, stríð eru eitt og stríð drepa, en nauðganir, limlestingar, að myrða fólk á sem hroðalegasta hátt, eru annað, og mannréttindasamtök hafa náð því í gegn að slíkir glæpir, séu skilgreindir sem Glæpir gegn öllu mannkyni.

 

Mannlegur viðbjóður, sem hefur fest rætur hér á Íslandi, dreifði blaðsneplum yfir gesti Kringlunnar í gær.

Eitthvað sem venjulegt fólk virðir ekki viðlits, enda er venjulegt fólk ekki sjúkt á sál og sinni og styður ekki voðamenni sem brytja niður ungabörn, brenna börn lifandi, nauðga og limlesta unglingsstúlkur sem sóttu friðar og ástartónleika.

 

Viðbjóðurinn fékk hins vegar athygli Morgunblaðsins, og samviskusamlega birtir blaðið yfirlýsingu viðbjóðsins, og með stórum stöfun birtir það nöfn þeirra fyrirtækja sem hinn mannlegi viðbjóður vill slaufa.

Sökin, að gyðingum sem Íslamistar hafa ekki ennþá náð að drepa, eiga eða stýra viðkomandi fyrirtækjum.

Og til að bíta höfuð af skömminni þá fylgir fréttinni myndband þar sem linsunni er beint af nöfnum fyrirtækjanna, svo nöfn þeirra fari örugglega ekki framhjá þeim sem lesa fréttina.

 

Mannlegur viðbjóður er alltaf örminnihluti hjá hverri siðaðri þjóð þó hann eigi sér alltaf einhverja viðhlæjendur.

En hann nær ekki eyrum almennings, blaðsneplarnir sem upphófu Glæpi Rauðu Khmreanna gegn mannkyni voru aðeins lesnir af örminnihluta, Þjóðviljinn tók kannski undir en enginn borgarlegur fjölmiðill.

 

Það eru því mikil vatnaskil að lesa þessa frétt á Mbl.is.

Að sjá hvernig blaðið rýfur þagnarmúrinn og gengur erinda mannlegs viðbjóðs í stríði hans við mennskuna.

Hvernig blaðið tekur afstöðu með voðafólki og morðingjum.

Ekki í leiðurum heldur í fréttaflutningi.

 

Það er til fólk sem réttlætir svona stuðning við voðaverk Íslamista með vísan í mannfallið á Gasa.

Þau átök þarf að stöðva, en það er ekki gert með því að styðja þann aðila sem hóf það stríð, með því að réttlæta voðverk hans, eða horfa framhjá þeirri staðreynd að mannfallið á Gasa er vegna þess að voðamennin verjast innan um óbreytta borgara.

 

Sem og það er ekki hægt að líta framhjá þeirri staðreynd, að ef mannkynið sættir sig við Glæpi gegn því, þá er út um það, endanlega.

Lærdómurinn af Seinna stríði orðinn að engu.

 

Voðaverk Hamas er einn hlekkur í langri keðju voðaverka Íslamista um allan heim.

Stuðningur við þau er um leið réttlæting á öllum fyrri voðaverkum Íslamista, sem og þeim sem eiga eftir að koma.

 

Það er vegferð Morgunblaðsins í dag.

Hvort sem hún er með vilja ritstjóra eður ei.

 

Smán blaðsins er sú sama.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Hvöttu gesti til að sniðganga ísraelsk fyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nefnd sér­fræðinga á veg­um Sam­einuðu þjóðanna"

 

Segir loksins, tekur loksins afstöðu með mennskunni;

"Að miðað við fjölda fórn­ar­lamba og vand­leg­an und­ir­bún­ing árás­ar­inn­ar ásamt sí­vax­andi fjölda sönn­un­ar­gagna um nauðgan­ir og lim­lest­ingu kyn­færa mætti leiða lík­ur að því að árás Ham­as-liða 7. októ­ber í fyrra teld­ist glæp­ur gegn mann­kyni".

 

Nauðganir og limlestingar kynfæra, sem eru framkvæmd samkvæmt fyrirfram leiðbeiningum herstjórnar Hamas er Glæpur gegn mannkyni.

Nauðvörn þess ríkis sem verður fyrir slíkum glæp, er það hins vegar ekki á meðan þeir sem fyrirskipuðu þessa glæpi, halda áfram árásum sínum á það, sem og verjast heiftarlega innan um óbreytta borgara þegar ráðist er á þá.

Árásir Ísraela eru aðeins stríðsglæpir ef og þegar nauðgarar Hamas leggja niður vopn, og árásir á byggðir Gasa héldu áfram.

 

Á það hefur ekki reynt, en þetta er grundvallaratriði alþjóðlegra réttarreglna, sem og að flest vestræn ríki hafa lög sem banna stuðning við hryðjuverkasamtök, hvað þá stuðning við Glæpi gegn mannkyni.

Slík lög myndu ná yfir ríkisfjölmiðil okkar sem hundsar Glæpi Hamas gegn mannkyni, en lýgur stríðsglæpum upp á réttmætar varnaraðgerðir Ísraela gegn árásaraðilanum.

 

Slík lög myndu líka ná yfir tjaldbúana við Austurvöll sem upphefja þessa Glæpi gegn mannkyni, sem og viðbjóðinn sem gengur reglulega niður Laugarveginn til stuðnings honum.

Nema slík lög virðast ekki hafa verið sett á Íslandi, þess vegna hafa þeir starfsmenn Rúv sem bera ábyrgð á stuðningi við Glæpi gegn mannkyni verið reknir, viðbjóðurinn sem styður morð, "nauðgan­ir og lim­lest­ingu kyn­færa" ekki verið lögsóttur fyrir stuðning við Glæpi gegn mannkyni, eða tjaldbúarnir við Austurvöll reknir úr landi.

Og stuðningurinn við Glæpi gegn mannkyni er svo algjör hjá Góða fólkinu, að það vinnur að því hörðum höndum að breyta Íslandi í griðastað stuðningsfólks Hamas og þess viðbjóðs sem samtökin standa fyrir.

 

Enginn andæfði fyrr en Bjarni Ben breyttist úr mús í mann og mótmælti hryðjuverkavæðingu Góða fólksins hjá Reykjavíkurborg, ásamt því að kalla eftir andspyrnu gegn mannsals- og flóttamannaiðnaðinum.

Stjórnmálamaðurinn sem ekki var einu sinni orðinn orðin ein, reis þannig upp eins og fuglinn Fönix.

Nema um sýndarmennskuna eina hafi verið um að ræða, það veit aðeins tíminn.

 

Viðbjóðurinn fékk klapp hjá Gísla Marteini, ekki í fyrsta sinn (nema þetta er í fyrsta sinn sem ég eyði orðum á Gísla).

Viðbjóðurinn mætti ásamt Hamasliðum á Íslandi og öskraði "drullusokkar og aumingjar" að ríkisstjórn Íslands.

Viðbjóðurinn hefur svívirt ákall mennskunnar um frið og réttlæti með því að gera friðargöngur þjóðarinnar að sérstökum stuðningsgöngum fyrir morðingja, nauðgara, sem Sameinuðu þjóðirnar segja seka um Glæpi gegn mannkyni.

Og kemst upp með það.

 

Þess vegna megum við ekki gleyma af hverju þetta fólk er Viðbjóður.

Því aðeins viðbjóður styður svona voðaverk og vísa þá í viðtengda frétt;

"á mynd­skeiði frá inn­rás­inni megi sjá unga konu liggja á grúfu á hleðslu­rými pall­bif­reiðar þar sem maður ríf­ur í hár henn­ar á meðan aðrir sem þar eru heyr­ast hrópa lofs­yrði til guðs síns, Allah.

.. líki hinn­ar ísra­elsk-þýsku Shani Louk með því fyrsta frá inn­rás­ar­deg­in­um sem komst í dreif­ingu. Er þar um að ræða mynd­skeið sem sýn­ir lík Louk, sem var 22 ára göm­ul er hún mætti ör­lög­um sín­um, borið í skrúðgöngu um göt­ur Gasa­borg­ar.

Banda­rísku fjöl­miðlarn­ir New York Times og NBC hafa til sam­ans borið kennsl á þrjá­tíu kon­ur og stúlk­ur sem Ham­as-liðar myrtu og bera áverka sem benda til kyn­ferðisof­beld­is.

.. að hann hefði komið að lát­inni konu sem hefði verið nak­in neðan mitt­is og líkið beygt fram yfir rúm. Hún hefði verið skot­in í hnakk­ann. Í leggöng­um annarr­ar lát­inn­ar konu, sem fannst á heim­ili sínu, hefði hann upp­götvað fjölda odd­hvassra hluta, meðal ann­ars nagla. lík kvenna sem báru öll merki þess að hafa verið nauðgað og voru fórn­ar­lömb­in allt frá full­orðnum kon­um niður í stúlku­börn.

"Við vor­um í áfalli [...] Lík margra ungra kvenna komu inn til okk­ar klædd aðeins blóðugum fatatætl­um og nær­föt­in voru oft al­blóðug. Teym­is­stjór­inn okk­ar sá nokkra kvenkyns her­menn sem höfðu verið skotn­ar í kyn­fær­in eða brjóst­in, Hefðu menn­irn­ir skipst á að nauðga einni kvenn­anna uns einn þeirra hefði skorið af henni annað brjóstið og hent því á jörðina þar sem menn­irn­ir hefðu svo "leikið sér með það", svo notuð séu henn­ar eig­in orð. Aðra konu hefðu þeir „tætt í sund­ur“ (e. „shredded to pieces“) og sú þriðja verið stung­in ít­rekað í bakið á meðan henni hefði verið nauðgað.

..komið að lík­um þriggja ungra kvenna sem lágu nakt­ar að neðan með sund­ur­glennta fótleggi á jörðinni. "Kveikt hafði verið í and­liti einn­ar þeirra," sagði Shumel, önn­ur hefði verið skot­in í and­litið og sú þriðja haft fjölda skotsára á neðri hluta lík­am­ans.

.. yf­ir­geðlækn­ir á Ichi­lov Tel Aviv-heilsu­gæsl­unni og grein­ir hún The Guar­di­an frá því að fjór­tán þeirra sem Ham­as-liðar héldu í gísl­ingu vik­um sam­an hlytu enn aðhlynn­ingu vegna upp­lif­ana sinna þar og hefðu marg­ir þeirra, þar á meðal börn, sætt kyn­ferðis­legri mis­notk­un eða orðið vitni að henni".

 

Þetta er aðeins úr einni frétt sem Mogginn birtir, en fyrir löngu löngu tóku breskir og bandarískir fjölmiðlar, margir hallir undir málstað Palestínu gegn Ísrael að lýsa þessum voðaverkum, og knúðu að lokum stofnanir Sameinuðu þjóðanna að bregðast við.

 

Pistlahöfundur hefur vitnað í þær fréttir, ásamt því að skoða myndbönd um ummerkin eftir morðárásirnar á samyrkjubúin.

Að sjá blóðugan barnabílstól eftir sundurskotið barn, eða alblóðugt barnarúm sem bar þess augljós merki um að sveðja hefði verið notuð til að búta í sundur ungabarn, það er eitthvað sem maður getur ekki horft á, og látið síðan eins og ekkert hafi gerst.

Það er skýring þess að ég kalla fólk sem styður svona Viðbjóð, ég hef aldrei áður upplifað megnari fyrirlitningu á nokkru fólki.

Var ég þó ekki beint vinveittur landráðahyskingu sem studdi ICEsave fjárkúgun breta og Hollendinga, eða fyrr því fólki sem skrifaði til stuðnings Pol Pot og voðaverkum hans gegn íbúum Kambódíu.

 

Sólveig Anna var mín kona, núna er hún aðeins enn ein manneskjan sem hefur afneitað mennskunni, í langri röð fyrri ómenna sem hafa vegið að manninum, mennskunni í gegnum tíðina.

Þess anga hennar sem réttlæti voðaverk með einhverri sögulegri nauðsyn, eins og einhverjar hugsjónir gætu réttlætt einhvern viðbjóð.

 

Og þegar ég sé viðtal eða mynd af Ragnari og Vilhjálmi, þá sé ég aðeins gungur, mannræfla sem höfðu ekki kjarkinn til að standa gegn þessum viðbjóð, sem nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur loksins viðurkennt að hafi gert sig seka um Glæpi gegn mannkyni.

Það er nefnilega ekki bæði sleppt og haldið, og íslensk verkalýðshreyfing er siðferðislega gjaldþrota í dag.

 

Viðbjóður er aldrei neitt annað en viðbjóður, og gungur er alltaf gungur.

Þannig er Ísland í dag.

 

Án siðferðis, án þess að þekkja muninn á réttu og röngu.

Leiksoppur voðamenna og voðafólks.

Styðjandi glæpi gegn mannkyni.

 

Og hinn Þögli meirihluti þegir.

Eins og hann eigi ekkert líf sem hann sór að vernda.

Lætur voðafólkinu eftir sviðsljósið.

 

Ég get samt ekki þagað.

Þögn er ekki í boði.

Kveðja að austan.


mbl.is Nauðguðu konu og skáru brjóst hennar af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er kominn tími til að tengja.

 

Sú fagnaðarfrétt barst í gær að tveir unglingspiltar sem komu hingað með meintum frænda sínum til landsins, og hafa síðan dvalið hjá fósturfjölskyldu sem hefur tryggt þeim öryggi og gott líf, myndu fá efnislega meðferð á ósk sinni um vernd.

Það er svo að okkur sem þjóð er illa við að sjá börn rekin út á gaddinn, eða lamað fólk sé borið út í flugvél svo hægt sé að vísa því á götuna í öðru landi.

 

Hins vegar þurfum við að spyrja okkur sem þjóð, af hverju erum við trekk í trekk að lenda í þessum aðstæðum, að láta fólk í viðkvæmri stöðu festa hér rætur og síðan fær það tilkynninguna að koma sér úr landi?

 

Margir segja að við eigum skilyrðalaust að hjálpa börnum á flótta, börnum í neyð, en einhvers staðar hljóta mörkin að liggja. 

Hvað ætli það séu mörg börn á vergangi á Gasa í dag eftir stanslausar sprengjuárásir Ísraela frá morðárásum Hamas?? Eigum við að hjálpa þeim öllum??

Hvað þá með sýrlensku flóttabörnin í Líbanon sem voru til dæmis eina fyrirvinna fjölskyldna sinna í flóttamannabúðunum þar í landi??  Eða þá öll börnin sem komast ekki í skóla í Líbanon í dag vegna hinnar djúpstæðu efnahagskreppu í landinu.

 

Þegar allt er talið erum við að tala um hundruð þúsunda barna sem búa við algjörlega óviðunandi aðstæður, bara í þessum tveimur löndum, Gasa og Líbanon.  Börn sem vilja alveg eins og drengirnir tveir bara að fá að búa við öryggi, geta stundað skóla og leikið sér í fótbolta í frístundum sínum.

Síðan eru það öll hin börnin, talin í milljónum, tugmilljónum.

 

Við örþjóð, á lítilli eyju út í ballarhafi, við getum ekki hjálpað öllu, ekki einu sinni brotabroti, en samt viljum við hjálpa.

Þá hljótum við að spyrja okkur, á hvaða forsendum hjálpum við, og hvernig nýtum við best okkar takmörkuðu fjármuni til þess??

 

Áður en við svörum því er gott að horfast í augun á raunveruleik dagsins í dag, mannsalsiðnaðurinn, human trafficking er talinn vera næst stærsti glæpaiðnaðurinn í heiminum í dag, á eftir eiturlyfjaiðnaðinum, og sá sem er í hröðustum vexti.

Flóttamannaiðnaðurinn, systuriðnaður hans skilar einnig miklu gróða fyrir glæpamenn, "Migrant smuggling is a highly profitable business in which criminals enjoy low risk of detection and punishment. As a result, the crime is becoming increasingly attractive to criminals. Migrant smugglers are becoming more and more organized, establishing professional networks that transcend borders and regions.". 

Það er sá hluti hans sem er ekki opinber, en atvinnugóðmenni og reglusmíðasnápar raka inn fjármuni með flækjustigi reglugerða, gera kerfið óskilvirkt, til samans er flóttamannaiðnaðurinn mjög arðbær sem skapar mörgum góðar tekjur.

 

Mannsalsiðnaðurinn gerir mikið út á börn, þau eru send fylgdarlaus milli landa, sækja þá um hæli og láta sig svo hverfa úr flóttamannabúðum, eða þau eru í fylgd meintra ættingja (eða raun ættingja sem hafa selt þau) sem koma þeim á áfangastað þar sem einhver viðbjóður býður þeirra.

Er þetta eitthvað sem við kveikjum á???

Allavega kannast frændur okkar á Norðurlöndum mjög vel við þennan mannlega viðbjóð.

 

Einn anga mannsalsiðnaðarins könnumst við Íslendingar vel við; "A new report has highlighted how organized crime groups are preying on Venezuelan migrants, turning the region’s biggest displacement crisis into a lucrative criminal opportunity."  Glæpasamtök stofna ferðaskrifstofur og auglýsa auðvelt aðgengi að löndum með hálfopin landamæri eins og Ísland.  Smáletrið tekur fram að greiðann þarf að borga til baka, eða eins og talsmaður slíkra glæpasamtaka sagði í viðtali við Rúv; "Það er sko ekki mannsal þó allir kjarasamningar séu brotnir, ekki ef viðkomandi samþykkir það fyrirfram".

Síðan eru það öll samtökin sem berjast fyrir opnun landamæra, allt eru þetta angar í köngulóarvef glæpasamtaka sem gera út á mannsal og smygl á fólki.

Vefirnir yfir í atvinnugóðmennin eru flóknari en við skulum segja að hagsmunirnir eru sameiginlegir.

 

Spurningin sem við þurfum að svara er því mjög einföld, hvort viljum við velja sjálf fólkið sem við hjálpum, eða hvort við ætlum, eins og við höfum gert undanfarin ár, látið glæpasamtök og glæpalýð stýra streymi flóttafólks til landsins??

Síðan þurfum við að spyrja okkur hvort við viljum nota takmarkaða fjármuni okkar (þeir eru alltaf takmarkaðir miðað við umfang vandans) til að hjálpa fólki í neyð, eða megnið af þeim til að fóðra atvinnugóðmenni og halda uppi lífskjaraflóttafólki á meðan beðið er eftir flækjukerfið afgreiði gerviumsóknir þess.

Munum að það vinnur enginn lögfræðingur kauplaust fyrir flóttamenn og laun þeirra eru tekin frá þeim fjármunum sem annars gætu hjálpað.  Flækjustig og fáránlegur málflutningur er aðeins gróðaleið samviskuleysingja.

Og þegar starfsfólk Rauða krossins bendir með hneykslun á skeggjaða unga karlmenn og segir að börn eiga njóta vafans, þá er það ekki svona heimskt, það er aurinn sem stýrir orðræðu þess.

 

Það eru ekki sjálfboðaliðar sem gæta hagsmuna lífskjaraflóttamannanna, það er fólk á fullum launum, laun sem ríkissjóður borgar en ekki frjáls framlög allra góðmenna þjóðarinnar.

Góðmennin krefjast en borga aldrei krónu.

 

Við þurfum að átta okkur á þessu.

Við þurfum að tengja.

 

Það er fólk þarna úti sem þarfnast hjálpar, fólk sem er að flýja stríð og átök, og sveltur hálfu eða heilu hungrinu í flóttamannabúðum heimsins.

Það fólk hefur ekki efni á að borga glæpalýð háar fjárhæðir til að koma sér í skjól vestrænna landa, og það fólk fær ekki þá hjálp sem við getum veitt, á meðan atvinnugóðmenni flóttamannaiðnaðarins sitja að sjálftökunni.

Aðeins samviskuleysingjar sjálftöku liðsins mæla núverandi kerfi bót.

Sem og öll samtökin sem eru angar út frá mannsals og flóttamannaiðnaðinum.

 

Það eitt og sér ætti að fólk til að tengja, skilja hvað býr að baki öllum fagurgalanum.

Upphrópunum, aðkastinu að embættisfólki sem er að framfylgja lögum landsins.

Það er ekki að hjálpa, heldur sýnast.

 

Síðan er svo komið fyrir okkur að það er fólk í okkar eigin landi sem þarfnast hjálpar samfélagsins.

Yfirspenntur húsnæðismarkaður vegna flökku- og farandaverkafólks gerir samfélaginu  næstum því ófært að koma Grindvíkingum til hjálpar á ögurstundu.

Það er ekki endalaust hægt að fjölga íbúum landsins um tugþúsunda á hverjum áratug, án þess að eitthvað bresti.

 

Og húsnæðismarkaðurinn er brostinn.

Sem og að fjármunir liggja ekki á lausu.

 

Það er því tími til kominn að tengja.

Kveðja að austan.

 


Fyndin Katrín.

 

Hún kynnir aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi, á sama tíma hefur hún lúffað eins og barinn rakki fyrir stuðningsfólki Hamas á Íslandi.

 

Stuðningsfólk Hamas á Íslandi styður kynníðinga sem þvinga konur og barnungar stúlkur til að hylja hár sitt og höfuð með slæðum.

Stuðningsfólk Hamas á Íslandi styður miðaldahyski sem aflífar homma og lesbíur á Gasaströndinni.

Stuðningsfólk Hamas á Íslandi styður miðaldahyski sem telur nauðganir og limlestingar vopn í stríði.

 

Katrín eins og geimvera kóar með.

 

Og háðung hennar er algjör þegar hún kynnir aðgerðir ríkisstjórnar Íslands gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni á árunum 2020-2023.

Er hægt að leggjast lægra í aumingjaskap og ræfilshætti??

Svo ég vitni í hápunkt tvískinnungar og hræsni, Viktoríutíma 19. aldar, rúmast tvöfeldni Katrínar innan þess aldarháttar.

Eða eru einhver mörk hve lágt fólk getur lagst í tvöfeldni sinni???

 

Katrín virkar samt sem ærleg manneskja.

Hvaða ótti og hræðsla fær hana til að kóa með skrímslum og voðafólki, afhverju stendur hún ekki með konum gegn miðaldahyskinu??

Voðaverkum þess, gegn myrkrinu sem þetta hyski vill kæfa allt mannlíf í.

 

Gott og vel.

Katrín er kjarklaus gunga með innantóm orð á tungu.

En samt, hún þarf ekki að hæða fórnarlömb miðaldahyskisins, Hamas, Ríki Íslams, eða annarra öfga sem herja á nútímann, með því að láta eins og ekkert sé.

 

Slæmt var viðtalið í gær þegar hún tuggði upp viðbrögð ríkisstjórnar sem hafði ekki frétt af gosinu í Grindavík, en þessi frétt um samantekt ríkisstjórnarinnar gegn Hams og kóurum þeirra á Íslandi, slær samt flest met veruleikafirringar.

Það er eins og Katrín sé ekki í þessum heimi.

 

Eða hún telji að raunveruleikinn sé leikrit sem hægt sé að hafa í flimtingum.

Að þegar Hamas skríllinn kallaði "aumingjar og drullusokkar", að það hafi verið gjörningur nýlistahóps sem ákvað að endurgera hita Búsáhaldabyltingarinnar.

Hrópin hafi beinst að Geir Harde og Davíð.

 

Nema í raunveruleikanum hrópaði miðaldahyskið að henni.

Á Íslandi í dag, þann 16. janúar 2024.

Og það vottar ekki fyrir fyndni í veruleikaflótta Katrínar.

 

Eins sorglegt og það er.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Kynnti aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engisprettufaraldurinn.

 

Frönsk kennslukona sagði ungum stúlkum að Frakkland væri lýðræðisríki, þær réðu því menntun sinni og framtíð, og þær væru frjálsar með klæðaburð sinn.  Fyrir það guðlast var hún afhöfðuð, öðrum kennslukonum þessa heims til aðvörunar.

Í skólum Skandinavíu er veist að ungmennum ef þau fara ekki eftir ýtrustu kröfum Íslamista um klæðaburð eða mataræði, undirliggjandi er ógn um gróft ofbeldi og kennarar tipla á tánum skjálfandi af hræðslu.

Í Afganistan var reglulega ráðist á skóla sem veittu stúlkum menntun, það sama hefur gerst í Pakistan.  Og já, þarf ekki að taka fram að tilgangur árásanna er að drepa bæði stúlkurnar og kennara þeirra.

Í Íran eru konur drepnar ef þær bera ekki kúgunartæki kynníðinga, slæðuna rétt.

Í Saudi Arabíu eru ungum stúlkum kastað í fangelsi og þar pyntaðar fyrir þann hroðaglæp að keyra bíla.

Um alla Evrópu eru ungar konur sendar til gamla landsins þar sem þær eru neyddar í hjónaband, yfirleitt með sér mun eldri mönnum. Þær sem lúta ekki feðraveldinu er grimmilega misþyrmt, sumar jafnvel myrtar, hin svokölluðu heiðursmorð eru talin sjálfsagður hluti af réttsýna Góða fólkinu sem stjórnar umræðu Vesturlanda.  Það á jú að virða framandi menningu innflytjenda.

 

Tveir Svíar mættu til Brussel til að horfa á leik með sænska landsliðinu, þeir voru skotnir. Réttdræpir vegna þess að þeir voru Svíar.

"Tveir létust og þrír til viðbótar slösuðust eftir hnífaárás á London Bridge í bresku höfuðborginni." svo ég vitni í frétt á Vísi.is. Réttdræpt vegna þess að þau áttu heima í vestrænu landi.

"Hryðjuverkin 7. júlí 2005 voru hryðjuverkaárásir, skipulagðar og framkvæmdar af Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum, sem gerðar voru þriðjudaginn 7. júlí 2005 og beindust gegn Lundúnum á Bretlandi. Um háannatíma, klukkan 8:50, sprungu þrjár sprengjur á 50 sekúnda fresti í þremur lestum neðanjarðarlestakerfis Lundúnaborgar. Fjórða sprengjan sprakk klukkan 9:47 í strætisvagni í Tavistock Square. Í sprengingunum létu 50 manns lífið og fjórir hryðjuverkamenn og slasaðist 700 manns. Þær ollu truflunum í samgöngukerfið Lundúna og fjarskiptakerfið landsins. Þær voru stærstu og mannskæðustu hryðjuverk í sögu Lundúna".

Al-Kaida samtökin eru af sama meiði Islamista og Hamas samtökin á Gasa, skera sig samt frá Hamas því samtökin eru ekki þekkt fyrir að nauðga og limlesta, aðeins drepa með morðárásum sínum.

 

Það er Ríki Íslams sem Hamas sækir hins vegar fyrirmynd sína í, hvernig á að myrða, nauðga og limlesta á sem viðbjóðslegasta hátt, skrímsli í mannsmynd sem engu eyra.

Þau hafa líka ráðist á borgara vestrænna landa, svo ég vitni aftur í Wikpedíu um mannskæðasta hryðjuverk samtakanna.

"Að kvöldi 13. nóvember 2015 hófst röð hryðjuverka í París og Saint-Denis í Frakklandi. Meðal annarra árása voru sex skotaárásir og þrjár sprengjuárásir samtímis. Sprengjur sprungu við íþróttavöllinn Stade de France í Norður-París kl. 21:16 þar sem fram fór vináttulandsleikur á milli Þýskalands og Frakklands. .. Í hverfum 10 og 11 létust margir í skotaárásum. Mannskæðasta árásin var í Bataclan-leikhúsi þar sem skotið var á áhorfendur á tónleikum þar sem bandaríska hljómsveitin Eagles of Death Metal kom fram. Nokkrum áhorfendum var haldið í gíslingu þangað til pattstaða við lögreglumenn sem stóð yfir í hálftíma leystist skömmu eftir miðnætti þann 14. nóvember.[1] 130 manns létust og hundruðir særðust.[1][2] Um það bil 80 meiddust lífshættulega.[1] Minnst 82 létust í árásinni í Bataclan-leikhúsinu".

Það var sem sagt ekki Hamas sem fann uppá því að drepa ungt fólk á tónleikum, þó vissulega hafi það verið einstakt hjá Hamas að ráðast á friðar og ástartónleika, og nauðganir og limlestingar tónleikagesta með sveðjum, var líka þeirra uppfinning.

 

Svona má lengi halda áfram að telja upp afrek Íslamista, sprengingar í lestarkerfinu á Madríd, smærri árásir um alla Evrópu.

Og þeir myrða ekki bara gyðinga og Vesturlandabúa, sami engisprettufaraldur hefur herjað á Suð-Austur Asíu, löndin sunnan Sahara, að ekki sé minnst á voðaverk Íslamista í Sýrlandi og Írak.

Svo náttúrulega morðárásirnar 7. október í Ísrael, þar sem mennskan var undir að alþjóðasamfélagið snérist gegn þessum engisprettufaraldri sem ógnar allri heimsbyggðinni með hryðju og voðaverkum sínum.

Sem alþjóðasamfélagið gerði ekki, þetta voru jú að megninu gyðingar, og svo fólk sem vann fyrir gyðinga, eða fólk sem heimsótti gyðinga.

 

Gott og vel, heimurinn er eins og hann er.

Núna er hluti af þessum engisprettufaraldri að gera hróp að ríkisstjórn þjóðarinnar.

Kallar ráðherra aumingja og drullusokka.

 

Og við látum bjóða okkur þetta.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is „Aumingjar“ og „drullusokkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við styðjum morð og morðingja.

 

Þann viðbjóð að líkamar kvenna séu notaðir sem vopn í stríði, nauðganir, limlestingar

Við styðjum allan þann viðbjóð sem mannkynssagan hefur hingað til fordæmt, því við teljum að slíkur viðbjóður sé réttlætanlegur.

Fyrir réttlætanlegan málstað því við erum ekki svo heimsk að vitum ekki að allir þeir sem drepa, nauðga, misþyrma, limlesta, hafa alltaf gert það í þágu einhvers göfugs málstaðar, því af hverju ættu menn að breytast í skrímsli??

 

Þetta ef efnislegt innihald þessa stuðnings sem Sólveig Anna, og Viðar terroristi, hann allavega terroristaði allt starfsfólk á skrifstofu Eflingar, fengu nytsama sakleysingja í heildarsamtökum íslensku verkalýðshreyfingarinnar til að samþykkja.

Skilaboð íslensku verkalýðshreyfingarinnar eru skýr, ef þú berst fyrir heilagan málstað, þá máttu nauðga konum, limlesta þau, brenna fólk lifandi, sérstaklega börn, og ef unglingar okkar eru svo naví að trúa á frið og betri heim, og nota samfélagsmiðla til að koma saman á fríðar og ástartónleikum, svona í anda Yoko og Lennon, þá segir forystufólk íslensku verkalýðshreyfingarinnar;

"Hvílík úrkynjun að trúa á frið og ást, það á að skjóta ykkur, samt fyrst helst að nauðga ykkur, limlesta, skera af ykkur brjóstin, og þá má svo skjóta ykkur".

Svo ég vísi í það sem íslensk verkalýðshreyfingin er að styðja í raun.

 

Og ef það er einhver fáviti þarna úti sem heldur að voðaverk Hamas sé einstakt tilfelli, þá fylgja samtökin langri slóð systursamtaka sinna í Írak og Sýrlandi, í Bosníu eða á Sahel svæðinu í Afríku, morð, nauðganir, limlestingar.

Þúsundir á þúsundir ofan, hryllilegra manndrápa, þar sem saklaust fólk er brennt lifandi, afhausað, og þá sem miskunn eftir nauðganir og limlestingar, er blóðslóð Íslamista, og þegar þessi skrímsli hófu hryðjuverk sín í Ísrael, þá var myrt, nauðgað og limlest, í þeirri blóðugri vissu að Ísraelríki myndi snúast til varnar og ráðast inná Gasa.

Þar földu morðingjarnir sig innan óbreytta borgara, hafa nýtt þá sem mannlega skildi, telja samborgara sína betri brynvörn en stál skriðdrekanna.

 

Því þeir treystu á fíflsku og fávisku nytsamra sakleysingja sem myndu koma óhæfuverkum þeirra til varnar.

Blóðfórn þeirrar eigin þjóðar átti að siga almenningsáliti Vesturlanda gegn fyrirsjáanlegum viðbrögðum ríkisstjórnar Ísraels.

 

Eitthvað sem hefur mistekist og hefur afhjúpað fjölda kynníðinga á Vesturlöndum, sem þvinga konur og stúlkur til að hylja sig með slæðum miðaaldasamfélaga, sem og þekkta gyðingahatara, og hve gyðingahatur er ennþá útbreitt í Evrópu.

Eftir stendur hinn þögli meirihluti sem skilur ekki þessi voðaverk, skilur ekki þessar hörmungar sem miðaldahyskið kallaði yfir þjóð sína, og hundsar algjörlega mótmælafundi kynníðingana og gyðingahatarana.

 

Reyndar hafa fréttamenn, með þaulleit, fundið eina og eina eðlilega konu, sem mætir og mótmælir, því hún sér aðeins myndir að limlestum börnum, látnum börnum, og finnst það eðlilega rangt, og því mætir hún og mótmælir með kynníðingum, fórnarlömbum þeirra sem eru konur og börn í fjötrum miðaldasamfélaga, og gyðingahöturum, ómeðvituð um þann félagskap sem hún blandar geði við.

Engin þessara kvenna, sem eftir þaulleit meðvirkra fréttamanna sem styðja að nauðganir og limlestingar kvenna séu vopn í stríði, væru tilbúnar að bjóða unglinga sína á friðartónleika, sem næstu fórnarlömb þess viðbjóðs sem Hamas er, eða börn sín til að vera bútuð með sveðju í rúmum sínum, eða bíðandi að vera brennd lifandi á meðan hinir vígmóðu vígamenn réttlætis þurftu að kasta mæðinni við snæðing eða taka símtöl; "Hæ mamma, veistu, ég er búin að drepa 10 gyðinga".

 

Það er nefnilega enginn svona sjúkur í sinni, eða geðveill.

Nema kannski forystufólk íslensku verkalýðshreyfingarinnar, það kyngir öllum þessum viðbjóð til að halda samstöðu með Sólveigu Önnu.

 

Ef það er gjaldið fyrir Þjóðasáttina hina nýju;

Stuðningur við voðamenni Íslamista, og voðaverka þeirra, frá Kúrdistan til Íraks, frá Bosníu til landanna sunnan Sahara, þá má sú þjóðarsátt eiga sig.

Því engin lífskjör, engin stöðugleiki getur byggst á blóði saklausra, á nauðgunum og limlestingum, á viðbjóðslegum morðum barna og ungmenna.

Á allri meðvirkni eru takmörk.

 

Ef þetta aumkunarverða fólk, sem er varla fólk lengur, því svona beinn stuðningur við ómennsku sviptir fólk mennsku sína, vill stöðva drápin á Gasa, þá fordæmir það voðafólk sem ábyrgðina ber.

Krefst þess að það leggi niður vopn til að hlífa saklausum á Gasa.

Í stað þess að taka afstöðu með morðum og morðingjum.

 

Lágt er risið á Vilhjálmi í dag.

Kveðja að austan.


mbl.is Verkalýðshreyfingin dregur Palestínufánann að húni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forherðing og fall Svanhvítar.

 

Svanhvít Svavarsdóttir vissi að hún var að brjóta lög þegar hún ákvað að stöðva hvalveiðar daginn áður en þær áttu að hefjast.

Hvað henni gekk til er vandséð, var þetta úthugsuð ögrun gagnvart Sjálfstæðiflokknum, jafnvel hugsuð til að sprengja ríkisstjórnina og átti þá hvalveiðabannið að fylkja andstæðingum hvalveiða að baki VG.

Eða var þetta enn ein birtingarmynd valdabaráttunnar innan VinstriGrænna?, því það þarf ekki glöggvan til að sjá formannsgenið í Svanhvíti og að hún telji sit réttborna til að leiða flokkinn.  Og þar flækist Katrín fyrir.

 

En það er þetta með að brjóta lög, það varðar víst við lög, og þó ráðherrar telji sig getað ullað framan í réttarkerfið með því að segja líkt og Svanhvít gerði svo eftirminnilega; "þið stefnið bara ríkinu, það borgar", þá eru samt ákveðin takmörk  á lögbrotum ráðherra.

Og vísvitandi lögbrot Svanhvítar Svavarsdóttur olli bæði fyrirtækju og einstaklingum fjárhagslegum miska, aðeins líkamlegur miski, ofbeldi, morð er alvarlegri en glæpir Svanhvítar Svavarsdóttur.

 

Þá hefði einhver haldið, svona öll þjóðin, að Svanhvít hefði verið búin að æfa auðmýkt sem hún gæti gripið til eftir að Umboðsmaður Alþingis hefði afhjúpað lögbrot hennar og glæpi, að hún hefði óvart gert mistök í umhyggju sinni fyrir hvölum, fengið slæma ráðgjöf (sem hún fékk ekki, þeir starfsmenn ráðuneytisins sem voru ekki undir hæl hennar vöruðu hana við), henni þætti þetta svo leitt, hún væri miður sín, bæðist afsökunar og hún skyldi  aldrei gera svona aftur. 

Bara ef hún fengi að vera ráðherra áfram.

Í þeirri auðmýkt lá vígstaða hennar og gerði það erfitt fyrir Katrínu að véla hana úr ráðherrastóli.

Katrínu segi ég því mikil má einfeldnin vera ef fólk sér ekki að Katrín líður ekki svona atlögu að ríkisstjórn sem hún leiðir, og vill halda saman.

 

Meinið er að Svanhvít Svavarsdóttir þekkir ekki þann skapgerðargalla sem auðmýkt stjórnmálamanns er, og hún brást við á þann eina hátt sem hún kann, hún reif kjaft við lögin, við Umboðsmann, við þjóðina.

"Lögin eru ófullkomin", "barn síns tíma", "ég ætla að endurskoða þau", allt þetta tókst henni að segja í fyrsta fréttaviðtali sínu eftir að álit Umboðs Alþingis lá fyrir, en óheppin Svanhvít var bara ekki að tala við Jóhönnu Vigdísi, eða litlu strákana, heldur fréttamann.

"Það breytir því ekki að þú braust lög", sagði Arnar Björnsson og rammaði inn forherðingu Svanhvítar.

 

Í þessari forherðingu er fall Svanhvítar fólgið.

Eins og Eiríkur Elís Þorláksson, deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík segir í byrjun viðtengdar fréttar; "Það gengur auðvitað ekki að ráðherra noti opinbert vald og fari gegn lögum af þeirri ástæðu að hún sé lögunum mótfallin og telji þau úrelt.".

Því margt mátt Svanhvít segja en ekki að hún hefði farið gegn lögum því hún væri mótfallin þeim, þau væru ófullkomin og það þyrfti að breyta þeim.

Leikreglum réttarríkisins var jú komið á á sínum tíma til að koma í veg fyrir slíkan geðþótta valdsmanna.

Og forsendur réttarríkisins væru brostnar ef hver einasti krimmi, bankaræningi, fjárdráttari, nauðgari, gæti borið fyrir sig fordæmi Svanhvítar, og slyppi við refsingu sína vegna þess að hann væri á móti lögunum, þau væru ófullkomin.

 

Það hefur síðan verið ótrúleg lífsreynsla að hlusta á vandræðagang stjórnmálanna í kringum þessi lögbrot Svanhvítar, það er eftir að forherðing hennar lá fyrir.

Hún er krimmi, vísvitandi krimmi, það liggur fyrir, og þá tala menn ekki um hugsanleg stólaskipti, hvort þeir verji hana vantrausti eður ei, hvort það dugi að hún segi af sér eður ei.

Eins og það sé mál stjórnmálanna að afgreiða árásir á réttarríkið.

 

Kommon, af hverju telja stjórnmálamenn sig hafna yfir lög og rétt.

Af hverju geta þeir ekki virt leikreglur réttarríkisins??

Eins og við hin.

 

Réttarríkið hefur ákveðið ferli yfir lögbrot Svanhvítar.

Réttarríkið viðurkennir ekki að ráðherra séu hafnir yfir lög og reglur þess.

 

Frekleg brot ráðherra á reglum þess kalla alltaf á afsögn ráðherra.

Og segi ráðherra ekki af sér, á Alþingi að knýja hann til þess.

Síðan þarf hinn fyrrverandi ráðherra að svara til saka fyrir lögbrot sín.

Punktur.

 

Alþingi vanvirðir því þjóðina með leikaraskap sínum.

Sem er ekki nýtt.

 

En Alþingi á ekki að komast upp með að fara gegn réttarríkinu og finna hjáleið svo Svanhvít geti áfram setið á ráðherrastól

Eða sloppið við alla ábyrgð með einfaldri afsögn.

 

Þar liggja mörkin.

Fari Alþingi yfir þau mörk, þá  hefur það unnið sér inn vanhelgi laga og réttar.

 

Vanhelgt Alþingi á ekki að sitja.

Það á að víkja.

 

Þar er ekkert val.

Kveðja að austan.


mbl.is Ráðherraábyrgð kemur til álita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vér glæpablaðamenn!!

 

Við eigum erfitt að starfa með fólki sem er svo einfalt að það heldur að við blaðamenn, við Fjórða valdið, séum bundnir af lögum hinna venjulegu, hinna dauðlegu, þeirra sem eru ekki útvaldir.

Svo ég taki aðeins saman útdrátt úr þessu kostulega viðtali Mbl.is við einn af sakborningunum í eiturbyrlunarmálinu.

Og skýringu hans á að Hjálmar Jónsson var rekinn.

 

Til að stjórn BÍ gæti starfað með skrifstofu félagsins, þá þurfti að reka einfeldninginn.

Skítt með farsæl 20 ára störf fyrir félagið, skítt með almenna viðurkenningu um að Hjálmar er gegnheill í störfum sínum, jafnvel sagt að hann hafi þann fjanda og andskota sem kenndur er við æru.

 

Skattsvikarar og eiturbyrlarar hafa nú fengið grænar bólur af minna tilefni.

Æra, heiðarleiki, að virða lög og reglur samfélagsins.

Hvaða guðlast og klám er þetta eiginlega??

 

Mogginn, greyið því Mogginn í dag nær ekki einu sinni skugganum af því blaði sem negldi tryggð mína við lestur, fyrir ætternisstapa eru gegnir ritstjórar eins og Matthías og Styrmir, alvöru blaðamenn þó þeir kannski fæstir hefðu próf frá kópý og peist femínistadeild Háskólans sem kennir sig við fjölmiðlafræði, sakna samt sárlega Agnesar og rassskellingar hennar á toppinn á allri spillingu undangenginnar ára, til dæmis ráðningu Bjarna á Svanhvíti sem sendiherra, hann, það er Mogginn, gat samt spurt, og hæðst með því að láta textann flæða.

Nakinn á berangri stendur einn af glæpablaðamönnum landsins.

Einn af þeim sem tók fullan þátt í eiturbyrlunarmálinu sem kennt er við Pál skipstjóra.

 

Já Mogginn gat þetta eftir allt saman.

Skyldulesning.

Um blaðamenn á sakabekk sem kunna ekki að verja sig.

 

Áramótaskaup hvað??

Kveðja að austan.

 

Viðauki: Þess má geta að frá því að ég las þetta viðtal við varaformann BÍ, sem vakti þau viðbrögð sem má lesa í pistli mínum hér að ofan, þá leit ég yfir Mbl.is áðan og rakst þá á frétt um grein Hjálmars Jónssonar á Vísi.is.

Það sem ég hef verið að gera grín að og setja í ákveðið samhengi, má lesa um í þessari málsvörn Hjálmars, og vísa í orð hans; "Að telja ekki fram tekj­ur til skatts í eitt ár get­ur verið mis­tök, í tvö ár kannski heimska, en í þrjú ár sam­fleytt hlýt­ur að telj­ast ein­beitt­ur brota­vilji. Í mínu ung­dæmi hétu þetta skattsvik en á ný­ís­lensku nú­ver­andi for­manns heit­ir þetta endurálagn­ing!".  Og visar í skattsvik Sigríðar Daggar.

En kjarninn er samt þessi sem Hjálmar orðar svo vel; "Nú­ver­andi formaður BÍ er illa hald­in af „ís­lensku veik­inni“, sem ég kýs að kalla svo, og felst í því að setja sjálf­um sér sérregl­ur og öll­um öðrum aðrar regl­ur. Það er þjóðarósiður. Ég veit ekki hversu oft ég hef upp­lifað það á fjöru­tíu ára ferli sem blaðamaður, að brota­menn setji í herðarn­ar og segi manni að éta það sem úti frýs, regl­urn­ar gildi um alla aðra en þá.".

Allt vitiborið fólk skilur þessi orð Hjálmars, þó það sé annar þjóðarósiður að stuðningsmenn ákveðinna stjórnmálaflokka koma þessum ósið til varnar, en kannski er von um breytta tíma.  Ennþá hef ég ekki séð neinn þann auman Sjálfstæðismann að verja skipan Bjarna á Svanhvíti Hólm sem sendiherra, skipan sem aðeins vekur upp spurningar um bólfarir viðkomandi og kverkatak í kjölfarið, allavega hefur enginn genginn formaður Sjálfstæðisflokksins reynt einarðlegar að þurrka út kjörfylgi flokksins með slíkri spillingu.

En vörn VG á krimmanum Svanhvíti Svavars slær út alla hugsanlega vörn sjálfstæðismanna á bólförum Bjarna, Sjálfstæðismenn reyna ekki að verja þessar bólfarir, en VG reynir að verja krimma, þess atferlis var skýring nútíma réttarreglna eftir ofríki háaðals og konungs á réttindum borgaranna.

Aumt er VG svo aumara er vart fundið, svo kom vörn glæpablaðamanna á skattsvikum Sigríðar Daggar.

Þetta er ekki einleikið en ég vísa í grein Hjálmars um alvöru þess máls, linkinn þarf að hægrismella því vafri minn býður ekki upp á beinan link, hægri smellurinn er samt þess virði.

 

 

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/01/11/einbeittur_brotavilji_og_skattsvik_sigridar/


mbl.is Gátu vart talað saman eftir vantraustsyfirlýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 92
  • Sl. sólarhring: 410
  • Sl. viku: 797
  • Frá upphafi: 1320644

Annað

  • Innlit í dag: 73
  • Innlit sl. viku: 689
  • Gestir í dag: 70
  • IP-tölur í dag: 67

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband