Heimur á heljarþröm.

 

Hundsar allar aðvaranir.

Lætur hið skítuga fjármagn Wall Street hefta allar neyðaraðgerðir.

Heldur að flokkun á rusli sé bót allra meina.

 

Börnin okkar munu erfa hrun siðmenningarinnar.

Kveðja að austan.


mbl.is Loftslag að nálgast nýjan veruleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þagnarmúrinn er að bresta.

 

Þökk sé heiðurspiltunum í Indefence.

Þeir voru þungt lóð í varnarvog þjóðarinnar þegar þegar ráðmenn okkar lyppuðust niður gegn hótun og ofríki breta í ICEsave þjóðinni, og þeir tala núna þegar aðrir þegja.

Sem sýnir að jafnvel þótt fjármagnið sé mikið þá er ekki hægt að kaupa alla.

 

Þeir þegja núna skriflepparnir á Baugsmiðlunum sem áður voru sígjammandi um allar gjörðir ríkisstjórnarinnar, jafnt misgjörðir sem góðgjörðir.

Þeir þegja núna hinu áður sjálfstæðu pennar Sjálfstæðisflokksins sem gátu ekki unað þeim Steingrími og Jóhönnu að selja þjóð sína fyrir aur.

En þeir þegja ekki í Indefence.

 

Þeir tala og núna er seðlabankastjóri hræddur.

Það hefur einhver bent honum á að óvart hafi seðlabankinn notað sama rökstuðninginn og ekki hélt vatni í ICEsave.

Sömu orðalepparnir, sama orðagjálfrið, sama bjána hagvaxtarspáin.

 

Og nú þarf tíma, ekki til að þétta hinn hripleka rökstuðning því hann mun aldrei fá falið þá einföldu staðreynd að til að vogunarsjóðirnir fái komið herfangi sínu úr landi þá þarf seðlabankinn að halda þjóðinni í ískrumlum vaxtaokursins, heldur til að gefa hinu skítuga fjármagni ráðrúm til að toga í þagnarspotta með evrum sínum og dollurum.

Að Indefence verði þagað í hel á Alþingi.

 

Sem skiptir ekki máli.

Brestur í þagnarmúr er þess eðlis að hann verður ekki límdur saman. 

Hann gliðnar og að lokum brestur allt.

 

Spurningar eru spurðar.

Svara er krafist.

 

Og það sem verra er, það er fyrir ránsmennina, að kliður að niðurbældu kvaki kjúklingsins er farinn að heyrast úr skúmaskotum stjórnmálanna.

Aur í vasann í dag er brennimark þjóðníðingsins á morgun.

Einföld staðreynd, slík eru alltaf endalok landsölumanna.

Kvak, kvak, kvakkvakkakkvakk, kvakvak kvak.

 

Flóttin er að bresta.

Aumingja seðlabankastjóri, hann lifði af ICEsave því einn af félögum hans í plottinu varð fjármálaráðherra, en hann lifir ekki Ránið eina.

 

O,nei.

Og vafningar munu rekjast.

 

Upp.

Kveðja að austan.


mbl.is Fresta fundi fyrir seðlabankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hvaða heimi lifir hin ofsótta?

 

Sú hugsun hvarflaði að mér þegar ég renndi yfir harmakvein niðurskurðarböðulsins í þessari frétt.

Við hverju býst manneskja, sem fékk völd sín meðal annars vegna gagnrýni formanns hennar á hinu dauðu hönd niðurskurðarins, þegar hún heldur áfram að höggva í þágu hins skítuga fjármagns þegar hennar hlutverk var að hlúa að, bæta, byggja upp.

Bjóst hún við þakklæti fórnarlamba hennar??

Það er eins og að niðurskurðarböðullinn gleymi að pólitískir andstæðingar hennar sá aðeins út, en frjósemi þess sem sáð er í, ræðst af hennar verkum og hennar framgöngu.

 

Og hvað er að því að vera umdeildur, að vera skotspónn.

Ekki virðist það ergja systurflokkssystur hennar í Frakklandi, frú Le Pen.  Sú ágæta kona þrífst í brimrótinu, gerir í því að ergja og æsa, og uppsker hugsanlega forsetaembætti í næstu kosningum.

Hún grætur það ekki á torgum. 

Enda ekki ofsótt, heldur sigursæl.

 

Og líklegast er það vandi Vigdísar Hauksdóttur í hnotskurn.

Hún er ekki í þessum heimi.

Hún er í heimi þar sem hennar góða sjálf blómstrar, lætur gott af sér leiða, þar sem hún vill vel, og berst í þágu hins góða (samanber orð hennar um heilbrigðiskerfið).

Verkin tala, og fuglarnir syngja.

 

Svo vaknar hún á morgnana, í andheiminn þar sem hún er umflotin neikvæðri umræðu.

Ofsótt jafnt innan flokks sem utan, sætir atlögum, fellur jafnvel í valinn áður en kveldar.

Það er ekki von þó eitthvað bresti í svona tvískiptri veröld.

 

Hún á alla mína samúð.

En hóflega þó.

Kveðja að austan.

 

 

 

 


mbl.is Ósýnilegur her neikvæðrar umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misskipting miðalda er handan við hornið.

 

Og börn okkar munu upplifa ánauð ef við spyrnum ekki við fótum.

Ef við höldum áfram að sætta okkur við fjármálabraskið, vaxtaokrið, auðlindaeinokunina.

 

Það er ekki bráðum, það er núna sem við þurfum að snúa bökum saman og reka illþýðið af höndum okkar.

Endurheimta landið okkar, endurheimta efnahagslífið úr höndum fjármálabraskara.

Og reka vogunarsjóðina úr landi, án þess að þeir hafi með sér krónu af illa fengnu fé.

 

Um áramótin á að afhenda þeim þjóðina sem mjólkurkú.

Enginn segir orð, nema landvarnarfólkið í Indefence.

 

Finnst okkur það boðlegt.

Finnst okkur það lýsa foreldraást eða foreldrakærleika.

 

Að aumingjaskapur okkar verði ánauð barna okkar.

Ég bara spyr,.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Ríkustu 5% eiga 46%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirrtur ráðherra fattar ekki samtíð sína.

 

Fattar ekki gildi náttúrunnar.

Fattar ekki hvernig fólk bregst við ofríki og kúgun ráðandi auðstétta.

 

Fattar ekki að fólk ver það sem því er kærast.

Og fólk nýtir þá miðla sem virka.

 

Ein af mörgum vísbendingum af hverju Sjálfstæðisflokkurinn er deyjandi flokkur.

Langt kominn með að verða steingerður þurs sem fólk sér og segir af tröllasögur.  Um að einu sinni hafi blóð leikið um æðar steinsins, hann hafi ríkt og ráðið, haft kraft og styrk til að ráða því sem hann vildi ráða.

En börnin trúa ekki því þau sjá bara steininn.

Enda kýs ekki ungt fólk flokkinn, styrkur hans sækir í deyjandi fólk.

 

Þú rífst ekki við tímann.

Spyrjið bara Stalín.

Og stalínísk stóriðjustefna og virkjanabrjálæði er þurs liðins tíma.

 

Enginn saknar, engin ber sér á brjóst til að verja.

Nema Ragnheiður, og nokkrar aðrar tímaskekkjur.

 

In memoryum.

In memoryum.

Kveðja að austan.


mbl.is Samstarf og samtal í stað herlúðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alræðisstjórnir þurfa líka að hlusta.

 

Þegar heimsbyggðin bankar uppá og segir; "SVONA GERIR MAÐUR EKKI".

Þess vegna eru andófsmenn víða látnir lausir, slakað á kúgun og pyntingum, hætt að ráðast í framkvæmdir sem valda óafturkræfum umhverfisspjöllum.

Þess vegna er ekki herforingjastjórn lengur í Burma.

Þær neyðast til að hlusta því annað er slæmur bissness.

 

Það er enginn Eyland lengur, nema kannski Norður Kórea, og já hugsanlega spurning hvort þeir félagar, Bjarni og Sigmundur, hafi dagað upp sem steingerð nátttröll og telji sig ekki þurfa að hlusta, að þeir megi eyðileggja eitt af djásnum heimsins, ef það færir þeim og þeirra kostunaraðilum aur í vasann.

Geti því hundsað umheiminn ef þeim býður svo við.

 

Á það mun reyna því umheimurinn mun ekki þegja.

Ákallið var það sterkt, heyrist það víða.

Og tilefnið ærið.

 

Þarft framtak hjá þeim Björk og Andra Snæ.

Mættu þau endurtaka leikinn áður en vogunarsjóðum verður afhent allan umfram gjaldeyri landsins.

 

Það rán gæti líka verið óafturkræft.

Ekki fyrir náttúruna, heldur þjóðina.

Fólkið í landinu, tilverugrundvöll hennar og sjálfstæði.

 

Og þjóðarvernd er líka náttúruvernd.

Því buguð þjóð í vasa hins skítuga fjármagns er einskis spurð.

Náttúruauðlindir hennar mergsognar.

 

Og þá er ekki spurt um náttúruvernd.

Kveðja að austan.


mbl.is „Það er ekki til nein álfaorka“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjónninn þjónar.

 

Og passar uppá að ekki króna sem á bakhjarl í raunverulegum verðmætum, komi í ríkiskassann.

 

Er fólk ekki farið að kveikja á hinni æpandi þögn??

Sáttinni miklu, bræðralaginu eina milli áður stríðandi fylkinga??

 

Hvað skýrir þessa þögn??

Hvað skýrir þessa samkennd?? 

 

Og aðgerðarleysi okkar á meðan þjónarnir þjóna.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Fái nauðasamning fyrir áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Háir vext­ir væru nauðsyn­leg­ir þegar höft­um verður aflétt."

 

Er boðskapur þjóna fjármagnsins.

 

En af hverju er það svo???

Af hverju þarf einstaklingurinn og fyrirtæki hans að bera kostnaðinn við fjármalbrask og spákaupmennsku??

Búum við ekki í lýðræðisríki þar sem atkvæði hinna örfáu eru aðeins brotabrot af atkvæðum fjöldans??

 

Hvers vegna erum við þá rænd í dagsljósinu, fyrir opnum tjöldum??

 

Háir vextir eru ekki náttúrulögmál.

Þeir eru mannanna verk, og þjóna aðeins hinum örfáu.

 

Gleymum því aldrei.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Már: „Sitjum á viljugum fola“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fávitavæðing frjálshyggjunnar nær nýjum hæðum.

 

Í bandarískum stjórnmálum.

Ekki að bullið sé nýtt, það hefur aldrei áður hlotið svona mikinn hljómgrunn.

Aldrei komist á toppinn skoðanakönnunum fyrr.

Ekki það að sagan sé ný, forheimskan gekk frá vöggu lýðræðisins í Aþenu forðum daga.

 

En í dag er þetta ekki fyndið, ógnirnar sem steðja að framtíð barna okkar er það alvarleg, að kostun auðsins á fávitum í bandarískum stjórnmálum er grafalvarlegt mál.

Í annarri frétt hér á Mbl.is er fjallað um nornaveiðar þeirra gagnvart vísindamönnum sem voga sér að fara gegn hagsmunum kolefnaiðnaðarins i loftslagsmálum;

 

"Um miðjan októ­ber notaði vís­inda­nefnd­in, sem re­públi­kan­inn Lam­ar Smith frá Texas veit­ir for­mennsku, ný­fengn­ar heim­ild­ir til að gefa út stefn­ur til að krefja haf- og lofts­lags­stofn­un­ina NOAA um gögn sem ná yfir sjö ára tíma­bil sem tengj­ast lofts­lags­at­hug­un­um stofn­un­ar­inn­ar. Stofn­un­in hef­ur neitað að verða við því. Til­efnið er rann­sókn sem birt­ist í vís­inda­tíma­rit­inu Science í sum­ar en niður­stöður henn­ar bentu til þess að „hlé“ á hnatt­rænni hlýn­un síðustu tvo ára­tugi sem kenn­ing­ar hafa verið um hafi í raun ekki átt sér stað. Hlýn­un jarðar hafi verið nán­ast sú sama á hverj­um ára­tug frá miðri síðustu öld. Við rann­sókn­ina leiðréttu vís­inda­menn NOAA meðal ann­ars þekkt­ar kerf­is­læg­ar skekkj­ur í mæl­ing­um á hita­stigi."

 

Sannleikann á að þagga niður með öllum ráðum.

Líkt og tóbaksiðnaðurinn gerði í svo mörg ár varðandi skaðsemi reykinga.

Nema núna er ekki líf reykingarmanna í húfi, heldur sjálf framtíð okkar hér á jörðu.

 

Bandaríkin eru það áhrifamikil í hinum vestræna heimi að það er ekki hægt að hundsa þessa fávitavæðingu.

Hún snertir okkur öll.

Og ekki hvað síst, þá er hún smitandi, það sem auðnum tekst þar, er líka reynt hjá okkur.

 

Sjálfstæðisflokkurinn er ekkert eyland.

Gleymum því ekki.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Pýramídarnir „korngeymslur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kerfið ákærir fórnarlambið.

 

Til að réttlæta niðurskurðinn, frjálshyggjuna.

Eyðingu fjármagns á innviðum samfélagsins.

 

Undirmönnun, óhóflegt vinnuálag.

Er aðeins ávísun á mistök, og sum mistök hafa alvarlegar afleiðingar.

 

Snatar kerfisins bregðast við kalli húsbónda síns og ákæra, fá umbun, fá hærri laun.

En Dante veit nákvæmlega hvert þeirra endurgjald verður þegar æðri dómur dæmir.

 

Spurningin er aðeins hvort dómararnir séu samsekir frjálshyggjunni, samdauna eyðingu fjármagns á innviðum samfélagsins.

Spurninguna um samkennd meðal hjúkrunarfólks hefur þegar verið svarað.

Fórnarlambið er berskjaldað gagnvart Snötum fjármagnsins.

 

Og niðurskurðurinn gengur á meðan starfsfólk sættir sig við undirmönnun, sættir sig við óhóflegt vinnuálag.

Starfsmaður í dag, fórnarlamb á morgun.

Einföld tenging sem hvarflar að fáum.

 

Á meðan er dansað í Hruna.

Kveðja að austan.


mbl.is Ræðan ekki í samræmi við ákæru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2025-09-19 at 16-13-03 Bandaríkin beittu aftur neitunarvaldi
  • Screenshot 2025-09-19 at 16-13-03 Bandaríkin beittu aftur neitunarvaldi
  • Screenshot 2025-09-19 at 16-13-03 Bandaríkin beittu aftur neitunarvaldi
  • Screenshot (5956)
  • Screenshot (5957)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.10.): 114
  • Sl. sólarhring: 504
  • Sl. viku: 3806
  • Frá upphafi: 1493086

Annað

  • Innlit í dag: 101
  • Innlit sl. viku: 3099
  • Gestir í dag: 101
  • IP-tölur í dag: 100

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband