6.10.2020 | 10:06
Þegar skrattanum er skemmt.
Þá skemmtir hann sér segir forn speki.
Grunnmistökin voru upphaflega að hafa hleypt fólki inní landið án sóttkvíar og seinni skimunar.
Við erum ennþá að glíma við afleiðingarnar af því.
Málaliðarnir sem þröngir fjárhagsmunir fengu til að hamast á seinni skimun hafa núna blásið til Þórðargleði yfir því að þrátt fyrir allt tókst þeim að hindra nauðsynlega ákvörðun um sóttkví og seinni skimun í tæpa 2 mánuði.
Vegna þess að strax 15 júní var ljóst að landamærin héldu ekki með einfaldri skimun.
Smitið í dag var komið inní landið áður en gripið var til seinni skimunar, það er því faðirvori andskotans að kenna henni um líkt og málaliðarnir reyna að gera í dag.
Þeirra er ábyrgðin og þeir reyna að koma þeim Svarta Pétri á aðra.
Tilslakanirnar voru lógískar út frá þróun seinni bylgjunnar, það var óútreiknaleg hegðun veirunnar sem sprakk framan í sóttvarnaryfirvöld.
Og þá urðu mönnum á mistök númer 2, að taka nýsmitið ekki strax föstum tökum frá fyrsta degi.
Í þessu samhengi er gott að líta til andfætlinga okkar í Nýja Sjálandi, þar komst veiran framhjá landamæravörnum með frosnum matvælum.
Þá var Auckland, borg sem er álíka fjölmenn og Ísland, sett á þriðja hættustig sem þeir kenna við Restrict það er takmarkanir, sem er næsta stig fyrir neðan lokun.
Þær takmarkanir eru ósköp svipaðar og núna eru verið að grípa til hér, munurinn er sá að þar voru þær hugsaðar til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar, en hér er gripið til þeirra eftir að veiran hefur breiðst út um samfélagið.
Í dag er búið að aflétta þessum takmörkunum niður í það stig sem má kalla að hafa varann á sér, líkt og var hér i sumar.
Og heildarfjöldi smita 285, en því miður 3 dauðsföll.
Stóra spurningin er af hverju var reynsla Nýsjálendinga ekki nýtt hérna, menn vissu innst inni að gripið yrði til hertra ráðstafana fyrr eða síðar, spurningin er bara um mannlegan fórnarkostnað, alvarleg veikindi eða dauðsföll.
Og svarið við þeirri spurningu er ekki að leita hjá sóttvarnaryfirvöldum, þau gátu aldrei gert meir en bakland þeirra, stjórnvöld leyfðu.
Svörin liggja hjá þeim sem skemmta skrattanum.
Þeirra sem núna dansa trylltan dans í Þórðargleði sinni.
Þar liggur ábyrgðin.
Og þeir eiga að svara til saka ef einhver fellur.
Núna reynir á Ljósið.
Þegar Myrkrið sækir að.
Kveðja að austan.
![]() |
Segir tilslakanir innanlands skýra bylgju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2020 | 20:11
Höfuðborgin er sýkt svæði.
Og það er sjúkt að viðurkenna það ekki.
Sjúkt að fólk megi óhindrað fara þangað, jafnvel fólk sem starfar í umönnun og hjúkrun viðkvæmra hópa, og ennþá sjúkara að fólk megi óhindrað dreifa þar smiti út um allt landi.
Ef það kýs svo.
Þegar Madrid varð smituð á ný, þá voru sóttreglur hertar í Madrid en ekki í Galasíu.
Og eins bent er réttilega á í viðtengdri frétt, þá var Helsinki sett í sóttkví svo stórborgarsvæðið smitaði ekki aðra hluta Finnlands.
Orsök-afleiðing.
Við erum smáþjóð og það er ekki hægt að viðurkenna þessi einföldu sannindi.
Það er ekki hægt að beita sóttvörnum í samræmi við tilefni, og það er ekki hægt að vernda ósýkt svæði frá dreifingu smita frá sýktum svæðum.
Hvað veldur??
Er þetta skömmustu tilfinningin að hafa látið hægriöfga fólk tefja nauðsynlegar aðgerðir í um 2 vikur??
Og þá er gerð dauðaleit að bakara til að hengja.
Meikar ekki sens og sá sem meikar ekki sens í svona, hann mun ekki meika sens í öðrum álíka málum.
Til dæmis til að nýta hættustig almannavarna til að loka þeim fjölmiðlum sem beint vinna gegn sóttvörnum þjóðarinnar í þágu þröngra sérhagsmuna??
Það eru mannslíf undir og mannslíf þarf að vernda.
En skip sem mega fara á sjó með götuga björgunarbáta eru engu bættari þó brugðist sé við því neyðarástandi að skylda langferðabíla til að hafa björgunarbáta.
Það má vera að landið allt muni smitast innan ekki svo langs tíma.
En það er ákaflega auðvelt að koma í veg fyrir það með því að setja höfuðborgina í sóttkví og ferðir þangað, til og frá, verði háðar ströngum skilyrðum.
Svona líkt og var með enska landsliðið sem hingað kom, mínus vændið.
Þetta er allt hægt, en að hrópa Úlfur, úlfur, það er ekki góð aðferðafræði þegar enginn úlfur er á ferðinni.
Og svarið er þá ekki að ná í úlf og sleppa honum lausum.
Það er absúrt að ég fái til dæmis ekki að heimsækja mömmu gömlu á morgun vegna þess að boxklúbbar og brennivínsstaðir í Reykjavík leka smiti.
Og það er ennþá meira absúrt að fólk skuli hindrunarlaust geta sótt smit til Reykjavíkur án þess að gæta sóttvarna þegar það kemur aftur til baka.
Mistök voru gerð en við vitum hvaða illþýði báru ábyrgð á þeim.
Sækjum það til saka, en hengjum ekki saklaust fólk.
Látum skynsemina ráða.
Vinnum þetta saman.
Kveðja að austan.
![]() |
„Höfuðborgarsvæðið er orðið sýkt svæði“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2020 | 17:17
Við eigum í stríði
Sagði ungur hagfræðingur Kvikubanka fyrr í sumar.
Útlistaði nákvæmlega í hvaða stöðu þjóðin væri.
Vísan hennar var í að benda á að hagfræðingar frjálshyggjunnar skitu á sig þegar þeir lögðust gegn hækkun atvinnuleysisbóta, og fordæmdi um leið hægri öflin í Sjálfstæðisflokknum að leggjast gegn slíkum bótum.
Allt rétt og satt.
En þessi unga kona náði um leið að afhjúpa ráðaleysi stjórnvalda, sem vissu ekki í hvorn fótinn þau ættu að stíga.
Sem í kjarna er að þetta sé annars vegar eins og hver önnur flensa, sem of mikið hefur verið gert úr, eða að þetta sé ógn sem ræðst að lífi og heilsu þjóðarinnar, sem og efnahag hennar.
Engin slík orðræða hefur komið frá ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Hálfvelgja hefur alla tíð einkennt stuðning hennar við nauðsynlegar sóttvarnir, sem skýrir ekki aðeins hikið við að loka á smitleiðir skíðakappa frá Ölpunum, hik sem kostað líf samborgara okkar, heldur líka landamærin voru opnuð fyrir smiti, og þegar loksins var gripið til hertra aðgerða, þá var ekki styrkur til að loka á smitleiðir innanlands í tíma.
Þegar mannslíf á samviskunni, en guð og gæfa vonandi sér til þess að í þann syndakvóta sé ekki bætt.
Síst betra er að byrðum af sóttvörnum hefur ekki verið deilt jafnt á þjóðina, þær atvinnugreinar sem verst urðu úti vegna farsóttarinnar, hafa um margt upplifað sig óbættar frá garði.
Hinar meintu aðgerðir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttir hafa oft borið einkenni sýndarmennsku almannatengilsins, það hefur dugað að þær gangi uppí Exel og þar með ekki spurt um raunveruleikann.
Á þetta benti hin unga kona sem Kviku banki treysti fyrir hagfræði sinni.
En stjórnarandstaðan ekki.
Það er því með ólíkindum að þurfa að hlusta á frétt í hádegisfréttum Ruv að Þorgerður Katrín krefji ríkisstjórnina um stefnu í sóttvörnum sem hægt er að byggja næstu 10-12 mánuðina.
Þó heimskan eigi sér þá skýringu að hún sé í kapphlaupi við Sigmund Davíð að ná til hægri öfganna innan Sjálfstæðisflokksins, í þeirri einbeittu viðleitni að reyna að sá sundrungu innan ríkisstjórnarinnar á Ögurstund þjóðarinnar.
Þá er heimskan af slíku level að þjóð í stríð má og getur ekki liðið hana.
Það er ekki hægt að vinna stríð með 5. herdeild innanborðs.
Staðreynd sem bæði minnihlutinn á Alþingi sem og aðrir í þjóðfélaginu þurfa að feisa.
Sem betur fer þá lokaði Þórólfur ekki tímum hjá Kírópraktora mínum, lokunin í vor endaði með fót í hækjum, sumar og haust sem aldrei varð.
En í tímanum í dag þá las ég gamalt blað á meðan ég beið, grein í Sögunni okkar um fyrsta sigur Churchil og breskra stjórnvalda á ógnvaldi Myrkursins sem hafði lagt undir sig alla Vestur Evrópu.
Það náðist að stöðva 5. herdeildina í Bretlandi.
Valkosturinn var samvinna og falskar upplýsingar til höfuðstöðva Myrkursins, eða gálginn ella.
Þjóð í stríði mætti hafa þann lærdóm í huga.
Útburðarvæl stjórnarandstöðunnar er ekki einleikið.
Hegðun ákveðinna fjölmiðla er forkastanleg.
Í den var fólk hengt af minna tilefni.
Dauðans alvara er nógu alvarleg þó Myrkrið fái ekki að grafa undan vörnum gegn henni.
Að stuðla að útbreiðslu farsóttarinnar og ótímabærum dauða samborgara okkar.
Ríkisstjórnin talar ekki mannamál.
Hún er föst í hálfvelgju þess að verjast eða láta undan Myrkrinu.
Tónn hennar er falskur.
Þess vegna gengur veiran laus.
Og þess vegna er byrðum ekki dreift, þess vegna bera sumir skaða á meðan fjöldinn sleppur.
Það er mál að linni.
Stríð vinnast ekki án forystu.
Þetta stríð er ekki að vinnast.
Kveðja að austan.
![]() |
Segir einingu í ríkisstjórn um aðgerðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2020 | 07:54
Málefnaleg umræða.
Viðkomandi þingmanni til sóma.
Vonandi fær hann málefnaleg svör, að bregðast við ástandi eftir aðstæðum getur til dæmis aldrei kallast að elta skottið á sjálfum sér.
Svo vísað sé í andsvar sóttvarnarlæknis við hinni hóflegu bón um að sóttvarnir taki mið að raunverulegu smiti á mismunandi svæðum landsins.
Mjög mikilvægt er að hafa í huga að sóttvarnir eiga mikið undir sátt, og að fólk skynji mikilvægi þeirra.
Það er til dæmis hættan að fólk á lítt smituðum svæðum sé orðið þreytt á stífum, í þess huga tilgangslitlum sóttvörnum, loksins þegar reynir á þær, og að allir séu með.
Þetta og margt annað kallar á umræðu.
Þarfa umræðu.
Kveðja að austan.
![]() |
„Spurning hvort of harkalega sé farið fram“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2020 | 15:54
Hvað drífur þetta óeðli áfram??
Þessa sífeldu áráttu hluta ritstjórnar Morgunblaðsins að grafa undan sóttvörnum þjóðarinnar.
Og kverúlantarnir allir úr gamla frjálshyggjuarmi Sjálfstæðisflokksins.
Það berst fólk fyrir lífi sínu á Landspítalanum.
Vegna þess að kverúlantarnir náðu að knýja fram þá ógæfu að opna landið í byrjun sumars fyrir ferðamönnum, nettóágóði enginn miðað við samfélagslegan kostnað af þeirri ákvörðun.
Við erum með eitt mesta nýgengi smita í Evrópu í dag og það sér ekki fyrir endann á því.
Samt er rótin aðeins frá 2 veirustofnum, við landamærin náðist að stöðva 110 slíka stofna, jafnvel maður sem hefði löggilt vottorð um að vera fáviti, á að hafa vit og dómgreind til að skilja hvernig ástandið væri í dag ef landamærin hefðu ekki verið varin.
"Hann segir að nýgengi smita í Tyrklandi sé mun lægra en á Íslandi þrátt fyrir að landið sé opið ferðamönnum og veltir fyrir sér hvort rétt hafi verið að grípa til hertra aðgerða á landamærum Íslands.".
Hvaða rök eru þetta á móti vörnum á landamærum Íslands??
Eru bara 2 lönd í heiminum, Ísland og Tyrkland??
Það er búið að herða sóttvarnir um alla Evrópu vegna nýgenginna smita, einmitt í kjölfar þess að löndin voru galopnuð fyrir ferðamönnum.
Þaðan kom smitið, þannig urðu samfélögin sem fórnuðu svo miklu, smituð á ný.
Metfjöldi í Frakklandi í dag, og fólk farið að deyja á ný, síðasta 10 daga hafa 860 fallið.
Á Spáni er staðan ennþá alvarlegri, vikulegar er tilkynnt um hertar sóttvarnir, mannfall síðustu 10 daga 1.493.
Heimskan talar um grímuvæðingu, líkt og hún hafi dvalið á öðrum plánetum síðustu mánuði.
Og því hafi það verið uppljómun að sjá grímur á almannafæri í Tyrklandi.
Ef lífið væri svona einfalt, þá hefðu kínversk stjórnvöld ekki lokað Whuan, ef SuðAustur Asíubúar eru fremstir í einhverju þá er það notkun á andlitsgrímum.
Strax í ágúst var grímuskylda í flestum af stærstu borgum Frakklands, hefur þannig séð haft ekkert að segja ef ekki er skorið á aðrar smitleiðir um leið.
Perú nýtur þess vafasama heiðurs að vera með flest skráð dauðsföll per milljón íbúa, eða 987, samt hefur verið þar grímuskylda frá því að lokanir hófust 17. mars.
Hvað sem skýrir gott ástand í Tyrklandi, þá er það ekki grímuvæðing.
Og ekki galopin landamæri.
Hins vegar er það þekkt að farsóttir stinga sig mis alvarlega niður eftir landsvæðum.
Svarti dauði, sú alvarlega drepsótt, drap fólk víðast í Evrópu, en ekki alls staðar.
Og Svarti dauði kom í bylgjum, þau lönd eða landsvæði sem sluppu við fyrstu bylgjuna, fóru illa út úr næstu svo dæmi sé tekið.
Þá var örugglega til sú heimska sem fullyrti að stíf bænahöld og stífar brennur á gyðingum og öðrum trúvillingum, hafi bjargað viðkomandi landi.
En þá vissu menn ekki betur.
Í dag vita menn betur.
Það er ekkert sem afsakar svona frétt.
Ekkert.
Kvótagreifarnir sem fjármagna hroðann ættu að skammast sín.
Kveðja að austan.
![]() |
Lágt nýgengi í Tyrklandi og landið galopið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2020 | 12:21
Ófrétt vikunnar.
"Tveir staðir uppfylltu ekki sóttvarnareglur".
Þegar fréttin ætti að vera að tveir staðir hefðu verið sviptir rekstrarleyfi um ákveðin tíma, til dæmis 6 vikur vegna brota á sóttvarnarreglum.
Annað brot ótímabundið eða á meðan faraldurinn stendur yfir.
Vegna þess að sóttvarnir virka ekki ef amatörar fylgja þeim eftir.
Amatörar sem segja að við viljum ekki birta nafn á skemmtistöðum þar sem smit greindust, þó það sé mikilvægt í þágu smitrakninga, því hugsanlega gætum verið að brjóta einhver tilbúin réttindi.
Eða amatöra sem spyrja; "Í hvernig samfélagi viljum við lifa", þegar hann útskýrir af hverju brot á sóttkví sæti ekki tafarlausum afleiðingum.
Humbung er það fyrsta sem víkur á dauðans alvöru tímum.
Réttindi þetta, réttindi hitt, slíkt er ekki haft á orði þegar barist er fyrir tilverunni, hvorki i sjávarháska eða á stríðstímum.
Heldur treystir fólk þeim sem ábyrgðina bera til að gera það sem þarf að gera, og að það séu skýringar á því sem gert er.
Og óeðli þess sem engu getur hlýtt og stofnar með hátterni sínu öðrum í voða, er ekki liðið.
Það er gífurleg ábyrgð að leggja allar þessar hömlur á samfélagið.
Forsenda þeirrar ábyrgðar er að reglum sé framfylgt, að fórnir fjöldans séu ekki lítilsvirtar af óábyrgri hegðun fárra.
Það eru kettir sem mjálma.
Ekki fólk í ábyrgðarstörfum sem hafa dauðans alvöru á herðum sér.
Takið ykkur taki.
Kveðja að austan.
![]() |
Tveir staðir uppfylltu ekki sóttvarnareglur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2020 | 16:53
Hvað dvaldi orminn langa??
Það veit enginn hvort þriðja bylgjan hefði náð þeim hæðum að vera kennd við bylgju ef sóttvarnaryfirvöld hefðu strax brugðist við fréttum af fylleríssmitunum með því að herða strax allar sóttvarnir.
Mistökin fólust ekki í að slaka á þegar bönd virtust komin á aðra bylgju, mistökin voru að herða þær ekki strax aftur, þar á meðal að loka ekki tímabundið vínveitingahúsum.
Ásamt því að upplýsa ekki jafn óðum við hvaða aðstæður veiran var að smita svo fólk gæti haft varann á sér.
Svo það sé ítrekað enn og aftur, þá eru aðeins tveir möguleikar í stöðunni, að leyfa veirunni að hafa sinn gang og drepa og veikla þá sem hún kýs, eða að hún sé tekin þeim föstum tökum að henni sé útrýmt hvar sem í hana næst.
Og á meðan það ferli stendur yfir, að smitleiðir hennar séu skertar svo hún nái ekki að smita fjölda ef hún á annað borð nær að sleppa framhjá sóttvörnum.
Hin svokallaða þriðja leið, að læra lifa með henni en hægja á útbreiðslu hennar með ýmiskonar takmörkunum endar alltaf með ósköpum því þrátt fyrir að samfélagið sé í fjötrum sóttvarna, þá gjósa alltaf upp fjöldasmit sem lama starfsemi fyrirtækja, lama skólastarf, eyðileggja fyrir afþreyingu, menningu eða tómstundarstarfi.
Sem og að fórnarkostnaðurinn er alltaf talinn i ótímabærum dauða náunga okkar, og enginn veit hvaða náungi verður næstur, það getur verið náinn vinur, ættingi, eða bara fólk sem á sama rétt til lífs og við hin.
Þess vegna er hikið síðustu 3 vikur með öllu óskiljanlegt, það er eins og gífurleg átök hafi átt sér stað bak við tjöldin við öfl sem vilja litlar sem engar sóttvarnir, og þau öfl hafi áhrif á dómgreind ráðherra og ríkisstjórnar.
Í þessu samhengi er gott að muna hina fáheyrðu heimsku sem kom frá starfshópi ríkisstjórnarinnar sem kvartaði yfir að sóttvarnir væru ekki nógu fyrirsjáanlegar, á tímum þar sem enginn veit hvar veiran stingur sér næst niður.
Það er enginn svona heimskur í raunheimi, slíkt orðalag er alltaf sett inn til að koma til móts við hagsmuni eða pólitísk öfl sem þarf að friða svo þau eyðileggja ekki eða skemma út frá sér.
Gleymum heldur ekki óeðlinu sem fékk vængi hér á síðum Morgunblaðsins, núna síðast í Staksteinum dagsins, þar sem leitað var ráða hjá mönnum sem bera beina ábyrgð á dauða þúsunda samlanda sinna til þess eins að skíta út eða grafa undan sóttvörnum okkar manna sem náðu margföldum árangri í að vernda líf samborgara sinna ásamt því að tryggja að aldrei þurfti að grípa til harkalegustu sóttvarna.
Skyldu átökin við það skýra ráðaleysið?
Spyr sá sem ekki veit.
En þeirri spurningu þarf að svara.
Það er nú þegar fólk að berjast fyrir lífi sínu.
Og smitið náði að dreifast svo að þegar loksins er gripið inní og veirunni aftur sagt stríð á hendur, þá mun sú barátta standa lengur yfir, samfélagslegi fórnarkostnaðurinn verður því hærri sem og sá mannlegi sem aldrei á að meta til fjár.
Ekki bara hjá þeim sem veikjast af kóvid heldur líka hjá þeim sem fá ekki nauðsynlega þjónustu heilbrigðiskerfisins vegna bæði álags vegna kóvid sjúklinga sem og að starfsfólk heilbrigðiskerfisins sinnir ekki störfum sínum á meðan það er veikt eða er í sóttkví.
Á dauðans alvöru tímum má ekki hika.
Það er þá sem forystan þarf að vera styrk og stöðug.
Átökum um sóttvarnir þarf að linna.
Með illu ef ekki annað dugar.
Kveðja að austan.
![]() |
20 manna samkomutakmarkanir á mánudaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.10.2020 | 10:05
Afleiðing á að fylgja brotum.
Annars virkar ekki sóttkví, annars virka ekki sóttvarnir.
Erlendir ríkisborgarar sem vanvirða gistiþjóð sína á þann hátt sem lýst er i þessari frétt, eiga án undantekninga að sæta þeirri einni refsingu sem þeir taka mark á, og það er tafarlaus brottvísun úr landi.þ
Séu þeir hluti af farandverkahóp þar sem fleiri í hópnum vanvirða sóttvarnir, þá á hópurinn allur að fara.
Fyrir utan að draga úr félagslegum undirboðum hins frjálsa flæðis Evrópusambandsins, þá er slíkt aðhald fyrir verkkaupa hinna lægstu tilboða.
Innlendir eiga að sektast eftir alvarleika brota þeirra, og ef brotaviljinn er einbeittur, sæta tafarlausri einangrun í boði ríkisins að Singapúrskri fyrirmynd.
Vegna þess að kóvid er dauðans alvara og í baráttunni við veiruna er aðeins tvennt í boði, að sætta sig við hana og láta faraldurinn ganga yfir, eða taka baráttuna alvarlega og útrýma veirunni úr samfélaginu.
Til þess höfum við öll tæki og tól því veiran er ekkert leyndó, það er vitað hvernig hún smitar, það er hægt að mæla smit, og með markvissum aðgerðum er hægt að losna við hana á tiltölulega stuttum tíma úr samfélaginu.
En til þess að það sé hægt, þá þarf að taka hlutina alvarlega.
Annars er veiran alltaf grasserandi, alltaf ógnandi og allt daglegt líf í heljargreipum hennar.
Þess vegna eiga menn að feisa að það er enginn millivegur í boði, það er annað hvort eða.
Að krossa fingur og vona líkt og íslensk stjórnvöld gera í dag, gengur ekki.
Á meðan gengur dauðinn laus.
Kveðja að austan.
![]() |
Nokkrir gripnir utan sóttkvíar í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2020 | 16:44
Hvenær var Þórólfur tekinn í gíslingu??
Svona í ljósi þess að ekki er liðinn mánuður frá því að hann spurði fylgjendur sænsku leiðarinnar hvert væri hið ásættanlega mannfall??
Á mannamáli, hver margir þurfa að veiklast, hve margir þurfa að deyja.
Svo þið haldið kjafti og skammist ykkar um aldir og eilífð??
Núna segir Þórólfur að smitin séu ekki í veldisvexti og það þarf djúpan illvilja hægri öfga til að skilja þau rök hans, 26 af 37 sem greindust voru utan sóttkvíar, forsenda Þórólfs er að umframfjöldinn smiti ekki.
Sé hún rétt þá verður hann handhafi næstu Nóbelsverðlauna, að hann hafi afsannað veldisvöxt.
Því þó smithlutfall þeirra sýktu sé aðeins 1, þá eru 26 hærri tala en 11, og það er vitað að smittalan er hærri en 1.
Hví bullar Þórólfur svona??, hvaða ógnaröfl hafa náð þessum heljartökum á honum að hann hætti að vinna fyrir fólk, mig og þig, og vinnur þess í stað fyrir fjársterka hagsmuni sem fjármagna og fóðra heimsku og vitleysu hægri öfga??
Hvaða gríðarlega fjármagn skýrir þennan umsnúning??
Og hvenær tikkaði það inní ríkisstjórn Íslands??
Ekki að nokkrum detti í hug að Þórólfur sé keyptur.
En hvenær var honum stillt upp við vegg??
Tikk takk.
Tikk takk.
Heljartök veirunnar færast nær.
Kveðja að austan.
![]() |
Fjöldi tilfella ekki í veldisvexti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.10.2020 | 11:13
Dauðinn gengur laus.
Þarna úti, í líki veiru sem ógnar fólki sem er komið á aldur eða er með undirliggjandi sjúkdóma.
Þarf hann að drepa til að snúist sé til varnar??
Hvað veldur sinnuleysinu, aðgerðarleysinu??
Það er brýnt að þeirri spurningu sé svarað.
Það á ekki að þurfa jarðarfarir til þess.
Kveðja að austan.
![]() |
Einn bætist við á gjörgæslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 14
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 2575
- Frá upphafi: 1444893
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 2134
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar