Er Sjálfstæðisflokkurinn skjólvörn skattaundanskotsmanna??

 

Er flokkurinn í herferð gegn skattrannsóknarstjóra??

Er skattaundanskotslistinn jarðsprengjusvæði fyrir kvótakerfið??

Mun Stóra ferðatöskumáli fella Bjarna.

Mun Brynjar Níelsson þurfa að segja af sér vegna hótana við opinberan embættismann sem reynir að afla gagna um skattalagabrot íslensks auðfólks??

Kemur nafnalistinn sér illa við eigendur Morgunblaðsins??

 

Þessar spurningar og fleiri koma upp í huga manns eftir hina ótrúlegu atburðarrás síðustu daga eftir að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mætti pirraður í viðtal á Ruv og missti úr sér klaufaleg ummæli um eimbætti skattrannsóknarstjóra, ásamt því að gera gárungum færi á sér með því að myndlíkja vandann við að útvega nafnalistann við stóra ferðatösku, fulla af seðlum.

 

Víkjum fyrst af því sem Bjarni sagði, vitnum í frétt Mbl.is.

 

Mér hef­ur þótt þetta mál vera að þvæl­ast hjá embætt­inu alltof lengi og að ekki hafi allt staðist sem þaðan hef­ur komið,“ seg­ir Bjarni við RÚV. „Eins og til dæm­is þegar embættið fær­ir þær upp­lýs­ing­ar í ráðuneytið að gögn­in standi til boða fyr­ir til­tekna hlut­falls­fjár­hæð af inn­heimt­um skatt­tekj­um sem myndi leiða af upp­lýs­ing­un­um. En eitt­hvað allt annað kem­ur í ljós síðar. Og auðvitað get­ur það ekki komið til greina að við ætl­um að fara að greiða fyr­ir gögn af þess­um toga með ferðatösk­um af seðlum til ein­hverra huldu­manna.“.

 

Mér persónulega fannst þetta fyndið, og fyrst ég blogga alltaf í viku, þegar ég á annað borð byrja að blogga,til að sjá stöðuna á topptíulistanum þá ákvað ég að gera þessi kostulegu ummæli Bjarna um ferðatöskuna að þemaefni vikunnar.  Enda næstum óendanlegir fletir til að velta sér uppúr því.  Eins tók ég eftir því að íhaldsbloggurum var svo lítið skemmt, að þeir þögðu allir sem einn, með einni góðri undantekningu sem fjallaði á málefnalegan hátt um að ekki væri víst að svona gögn kæmi að gagni, og rakti gang mál í sambærilegu dæmi frá Þýskalandi.  Góð grein eins og oft áður hjá þeim bloggara, og maður varð fróðari á eftir.

 

Skattrannsóknarstjóra var hins vegar ekki skemmt, og hún er ekki hrædd við Bjarna, sem er ekki skrýtið eftir Umboðsmaður Alþingis flengdi Hönnu Birnu.

Á þriðjudaginn sendi hún frá sér fréttatilkynningu þar sem skýrt kom fram hverjum tafirnar væri að kenna.  Bjarna og ráðuneytinu hans.

 

Að minnsta kosti annað þeirra tveggja skil­yrða sem fjár­mála- og efna­hags­ráðherra setti fyr­ir kaup­um á gögn­um um meint skattaund­an­skot ís­lenskra fé­laga telst ekki upp­fyllt og end­ur­skoða þarf hitt. Ráðuneytið hef­ur ekki svarað bréfi skatt­rann­sókn­ar­stjóra frá 27. janú­ar um hvort halda eigi áfram með málið.

Skil­yrðin tvö voru ann­ars veg­ar að ekki yrðu gerðir samn­ing­ar við aðra en þá sem „til þess eru bær­ir“ og hins veg­ar að mögu­legt væri að skil­yrða greiðslur til selj­enda gagn­anna við hlut­fall af inn­heimtu.

 

 

Eðli málsins vegna uppfylla þessi gögn ekki þessi skilyrði þar sem þau eru uppljóstrun í ágóðaskyni.

Að setja skilyrði sem ekki er hægt að uppfylla er þekkt aðferð til að svæfa mál, og ef einbeittur vilji er hjá viðkomandi stjórnsýsluembætti að láta ekki málið svæfast, þá er lengi hægt að þæfa málið fram og til baka, á meðan listamenn geta gert ráðstafanir um varnir.  

Skattrannsóknarstjóri á erfitt um vik að fara gegn yfirmanni sínum, en þegar að ráðherra lætur svo lítið að kenna honum um að þófið, þá á skattrannsóknarstjóri aðeins 2 kosti í stöðunni, að svara fyrir sig, eða segja af sér líkt og Lögreglustjórinn í Reykjavík gerði.

 

Vörn Bjarna fólst fyrst í að segja að "þetta aldrei hafa verið ófrá­víkj­an­legt skil­yrði, held­ur ein­fald­lega árétt­ing um að ráðuneytið styddi embættið í því að sækja gögn­in með þess­um hætti" en Bjarni komst fljótt að því að jafnvel auðtrúustu flokksmenn hans gátu ekki fundið flöt á lógíkinni í hundalógíkinni.

Nauðvörn hans fólst því í afdráttarlausri yfirlýsingu; sem sett var fram með stríðsletri í frétt Mbl.is, sem ég næ vonandi að kópera, því fyrirsögin var svo flott; 

Bjarni: Ekk­ert skatta­skjól hjá mér.

Teningunum kastað, hann ætlaði ekki lengur að þvælast fyrir.

 

Þar með átti málið að vera komið í farsælan farveg fyrir Bjarna og flokkinn, og á leið þess um stjórnkerfið var örugglega hægt að finna ýmsa steinana til að hnjóta um.

Ummælin um ferðatöskuna, og hin 8 mánaða töf myndi gleymast ef gögn kæmu heim.  Það yrði bara tuð að minnast á slíkt á sigurstund.

 

En það gerðist eitthvað sem er óskiljanlegt, nema maður fari virkilega að taka mark á því að flokkurinn þoli ekki birtingu nafnalistans.

Ágætur íhaldsbloggari, einn sá altraustasti hér á Moggablogginu, fann þann flöt að ríkið gæti ekki verið að kaupa ólögleg gögn með þeim hætti að ekki stæðist lög um útgáfu reikninga og innheimtu virðisaukaskatts.

Og alltí einu var þögnin rofin, hver um annan héldu menn ekki vatni yfir slíkri ósvinnu.  Laga og reglna skyldi gæta, menn styrktu ekki þjófa, og svo framvegis.

Flokkurinn átti sem sagt að vera skattaskjól fyrir vini sína og velunnara.

 

Bjarni fékk ekki að ná stjórn á málinu, koma því út úr hinni neikvæðu umræðu sem klaufaskapur hans bar ábyrgð á, og leiða það farsællega til lykta, bæði fyrir þjóð og flokk.

Og ganga svona gegn formanninum er ekki gert nema miklir hagsmunir máttarstólpa eru í húfi.

 

Ég fékk þá athugasemd við einhvern stríðnispistil minn, að ef það kæmi í ljós að nöfn kvótahandhafa væri á þessu lista, þá væri eðlileg viðbrögð samfélagsins að svipa þá kvótaréttindum sínum.

Veit nú ekki alveg, en ég veit að spjótin myndu standa bæði á viðkomandi kvótaeigendur, sem og kerfið sem gerði þeim fjárbrask sitt kleyft.

Nefni þetta sem dæmi, margir aðrir hagsmunir gætu legið undir.

 

Vissulega aðeins pælingar, en þegar þingmaður hótar til að stöðva skattrannsókn, þá er ljóst að eitthvað mikið, mikið mikið er undir.

Brynjar Níelsson er ekki lengur lögmaður útí bæ að tjá sig, hann er þingmaður stjórnarflokks, og það segir, verður að skoðast í því ljósi.

Hann er hvorki ég eða þú lesandi góður.

Hann er sendiboði, sem hefur vald til að standa við hótanir sínar.

 

Ætla ekki að hafa þetta lengra.

Hef ekki tíma til þess, en það hefði verið gaman að hnykkja á hinni bráðfyndnu málsvörn hinna alheilögu sem vilja ekki að hróflað sé við skattsvikurum ef prinsipp þeirra er í húfi.

Vil aðeins nefna að ríkisvald gerir ýmislegt sem við hin megum ekki.

Það til dæmis skýtur fólk á færi, ef það telur aðstæður krefja svo, það hlerar síma okkar, og svo framvegis.  

Og útí hinum stóra heimi eru sérstakar stofnanir um svona starfsemi, kallaðar leyni eitthvað.  Þar vita menn að þjóðríki þurfa að verja sig gegn ytri sem innri ógnum.

Vissulega má ræða prinsipp rök hinna alheilögu, en þegar prinsipp þeirra dúkka aðeins þegar hagsmunir hins skítuga fjármagns eru í húfi, þá er ekki orðum eyðandi á rökfærslu þeirra.

 

En nóg í bili.

Góða fótboltahelgi.

Orðið er laust, líka fyrir aulahúmora.

Ég verð ekki á vaktinni.

Kveðja að austan.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Sæll Ómar og avalt er gaman að lesa pistla þína og hvaða sýn þú dregur upp í hverju máli á etir öðru. Þetta skattamál er nú úr sögunni, enda smámál sem dregið hefur verið fram til að eyða umræðunni frá öðrum málum sem meira gagn væri að ræða um. 

Gaman væri að sjá vinkil frá þér varðandi "Víglundarmálið" svo kallaða. Þar eru hagsmunir sem vert er að ræða um og hvernig allur sá tilflutingur fjármagns gékk fyrir sig í trássi við Neyðarlög sem sett voru til að verja fólk og fyrirtæki.

Ef til vill gætu þessar atgerðir síðustu Ríkisstjórnar í uppstokkun og brotum Neyðarlaga, átt stóran þátt í því að umræðan snúist um nú um skattaskjól, undanskot, gjaldeyriskaup á afslætti,fjárfestingar fjárfestingafélaga á afslætti,  o.s.fr. Gjaldþrot valinna fyrirtækja og gjafir til valinna viðskiptavina nýju bankanna, leyndarhyggju eiganda banka.

Þetta eru stærri mál en hvort við eigum að fara út með 1 ferðatösku til að brjóta landslög. Því ekki má kaupa þýfi skv. hegningarlögum(svo má deila hvort dæmt yrði eftir landslögum, þegar útvaldir brjóta þau)

Þar sem þú er svo vel lesinn og skrmbi góður penni, þá væri gaman að sjá pistla um mál sem skipta okkur meiri máli en full ferðataska  af íslenskri mynt, sem líklega þarf að borga yfirvigt hjá flugfélagingu sem ferðast verður með.

Eggert Guðmundsson, 13.2.2015 kl. 22:12

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Skattaskjóls listarnir.

Allir sem ráða yfir sæmilegri tölvu tækni hafa alla þessa lista,

það er leiniþjónustur og mafíur.

Það eru aðeins alþýðan, Jón og Gunna sem vita ekkert.

ooo

Skildi einhver vilja vilja kaupa listan, og stinga honum undir stól?

Einhver gæti keypt listan og birt nafnlaus gögn til að byrja með,

en selt svo ríkinu eitt og eitt nafn.

Fjölmiðill gæti komi þar við sögu.

Trúlega getur ekkert komið í veg fyrir að listinn verði opinberaður.

Fjöldi fólks getur lagt út þessa upphæð til að kaupa listann.

Egilsstaðir, 13.02.2015  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 14.2.2015 kl. 11:32

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Enda sérviskan á jaðrinum einkenni þessa bloggs Eggert, svo ekki þýðir að halda sig við að segja það sem fólk segir sem vill vera eins og fólk er flest.

En ég held að þú vanmetir þessa ferðatösku fyrir pólitíska framtíð Bjarna.

Vissulega voru ummæli hans klaufaskapur til að fóðra okkur sem hafa gaman að sjá spaugilegar hliðar mála, en meiningin skyldist alveg, og ef hann hefði látið ógert að sneiða að skattrannsóknarstjóra með beinum hætti, þá hefði málið verið sjálfdautt.

En síðan fór af stað atburðarrás sem laut fyrst í stað hefðbundnum reglum, þetta venjulega karp milli stjórnar og stjórnarandstöðu, en staða Bjarna veiktist eftir að skattrannsóknarstjóri afhjúpaði hver það var sem þvældi málið.  

En jafnvel þá var mótleikur Bjarna sterkur, og að mínum dómi hafði hann fulla stjórn á málinu.  

Síðan fór atburðarrásin úr böndunum, og að mínum dómi eru öfl innan Sjálfstæðisflokksins að vinna gegn Bjarna.  Eigum við ekki að kenna þau öfl við niðurlægðan þinghóp, sem og stuðningshóp Hönnu Birnu, sem örugglega átta sig fullkomlega á hvaða þræðir stjórnuðu lekamálinu.

Eina spurningin í þessu dæmi er hversu hundónýt stjórnarandstaðan er, því ekki geta samflokksmenn Bjarna vegið að honum beint, ekki ennþá.

Varðandi mína nálgun þá er ég bara að skrifa mér til gamans, auka liðleika puttana, og mér hefur ekki leiðst þessi skrif, en að öðru leiti þjónar þetta engum tilgangi hjá mér.

Er svona án málstaða þessi misserin.

En ég þyrfti að hafa sterka hvöt til að nálgast Víglundarmálið, því þar ertu að tala um sjálfa samtrygginguna, þar sem síðasta ríkisstjórn gerði það sem núverandi stjórnarflokkar vildu gert hafa.

Sú þjóðernislega nálgun að stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn eigi að gæta hagsmuna þjóðarinnar er aðeins meinloka í huga nokkurra eldri stjórnmálamanna sem flestir er með orðið uppgjafa- fyrir framan sig.

Ég veit að margur sjálfstæðismaðurinn er stoltur af hlutdeild flokks síns í neyðarlögunum, en þegar rykið er fallið, þá virðist það alltaf koma betur og betur í ljós, að þau voru næstum því einsmannsverk Davíðs Oddssonar, hann beindi Seðlabankakerfinu í þennan farveg.  

Og hann var brotinn á bak aftur í okt 2008 þegar hann var látinn kokgleypa AGS, og þeim svikasamningum öllum.  Eftir það hefur enginn stjórnmálaflokkur starfað í þágu þjóðarinnar, þegar hagsmunir fjármagns og fjármagnseiganda skarast við þá sem þjóðin hefur.

Þess vegna er Víglundur að fara gegn öllum, og því á hann ekki séns.

Vissulega skemmtilegur málstaður til að styðja, en slík barátta verður samt alltaf að þjóna einhverjum tilgangi, maður skrifar ekki vandaða pistla um það sem enginn les, og lætur svo öllum illum látum, til að fá lestur, ef það er engin uppskeruvon fyrir eitthvað sem manni er annt um.

Íslandsógæfu verður allt að vopni, nema góðæri til lands og sjávar.

Ég sný því ekkert við Eggert.

Fólk hefur það almennt gott, ánægt með kerfið, og vill ekki breytingar.

Og ég held mig við klaufaskapinn og að ergja síarga frjálshyggjustráka.

En aðallega við þögnina.

Takk fyrir innlitið Eggert, gaman að heyra í þér.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 16.2.2015 kl. 16:24

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir innlitið Jónas.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 16.2.2015 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 995
  • Frá upphafi: 1321547

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 834
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband