Hann styður ekki Glæpi gegn mannkyni.

 

Hann styður ekki morð, limlestingar, nauðganir.

Hann styður ekki að konur séu grýttar fyrir framhjáhald, hann styður ekki að hommum og lesbíum sé kastað fram af þökum háhýsa, og látin hrapa til dauðs.

Hann er ekki Hamas.

 

Hann vill aðeins fá að vinna vinnuna sína.

 

Auðvitað hafnar Góða fólkið í Reykjavík umsókn hans um að tjalda á Austurvelli.

Hvílík firra í manninum.

Heppinn að vera ekki lagður inn.

 

Ísland í dag, í janúar 2023.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Fær ekki að tjalda á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlutdrægar Sameinuðu þjóðir draga lappir.

 

Það hefði aldrei orði stríð á Gasa ef alþjóðasamfélagið hefði strax skorist í leikinn eftir morðárásir Hamas á óbreytta borgara í Ísrael, fordæmt þær, hafið strax rannsókn á hvort um Glæpi gegn mannkyni væri að ræða, og í framhaldinu skorað á yfirvöld á Gasa að framselja sjálfa sig svo hægt væri að rétta yfir þeim samkvæmt alþjóðalögum.

Ella myndi alþjóðasamfélagið grípa inní og senda herlið inní Gasa til að handtaka hina seku.

Í stað þess að gera ekki neitt.

 

Stofnun alþjóðasamfélagsins var hins vegar hlutdræg frá fyrsta degi.

Framkvæmdarstjórinn, Ant­onio Guter­res gaf tóninn strax á öðrum degi eftir morðárásirnar, réttlæti voðaverkin með því að segja að þau hefðu ekki sprottið uppúr tómarúmi, vísaði í áratugaátök Ísraela við nágranna sína og fyrrum íbúa Palestínu sem hafa verið á vergangi eftir stríðið 1948.

Eins og eitthvað gæti réttlætt Glæpi gegn mannkyni, eða morðárásir sem höfðu þann eina tilgang að drepa sem flesta óbreytta borgara.

Og stofnanir Sameinuðu þjóðanna á Gasa hafa verið hlutdrægar frá fyrsta degi, þær láta einsog Ísrael séu árásaraðilinn en ekki Hamas, hvetja því Ísraela að hætta að herja á vígamennina sem réðust á landið, í stað þess að hvetja vígamennina til að leggja niður vopn, að hætta að verjast innan um óbreytta borgara.

 

Með þessari hlutdrægni, og með því að þrýsta ekki á Hamas, bera Sameinuðu þjóðirnar mikla ábyrgð á að viðhalda hörmungarástandinu á Gasa, á mannfallinu og vergangi íbúa þar.

Ef mennskan sigrar þetta stríð við öfganna, þá mun falla þungur dómur yfir því forystufólki Sameinuðu þjóðanna sem ábyrgðina ber, því hendur þessa fólks er mun blóðugri en hermannanna sem neyðast til að sækja inní þéttar byggðir gegn þungvopnuðum vígamönnum.

 

Annar glæpur, því þessi hlutdrægni er glæpur, er að láta Hamas komast upp með að misnota alþjóðastofnanir á Gasa, sem skjól og aðgerðastöðvar, draga þannig trúverðugleik stofnana algjörlega niður í svaðið.

Í framhjáhaldi geta að samstarfið við Rauða Hálfmánann er svipað eðlis, þau samtök starfa ekki á sama grunni og Rauði krossinn í vestrænum löndum, þau er skjól og hjálp fyrir vígamenn og vígasamtök.

Takandi þátt í hinu heilögu stríði við trúleysingjana.

 

Núna er Sameinuðu þjóðirnar loksins í nauðvörn.

Þurfa vonandi að gangast við hlutdrægni sinni og glæpum.

 

Þar þykjast menn vera voðalega hissa þegar raunveruleikinn stillti þeim loksins upp við vegg, og neyddu þá til að kannast við skálkaskjólið sem vígamenn hafa nýtt til voðaverka.

Og núna þykjast hinir seku ætla að rannsaka það sem þeir hafa alltaf vitað, og draga hina ábyrgu fyrir dóm.

Eru sem sagt að leita að númerinu hjá skúringarkonunni.

 

Vonandi tekst þeim það ekki.

Kveðja að austan.

 

 

 

 


mbl.is Kanada og Ástralía frysta fjárveitingar til SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. janúar 2024

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 3631
  • Frá upphafi: 1338901

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 3246
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband