28.11.2009 | 15:37
Hver er þessi Ásmundur Einar????
Jú, bíddu við, er þetta ekki maðurinn sem þorði ekki að mæta á fund hjá efnahags og viðskiptanefnd þegar ICEsave ábyrgðin var afgreidd úr nefnd????
Þetta er sem sagt maðurinn sem ætlar að löghelga 1.000 milljarða þjófnað breta og Hollendinga.
Og eina leiðin til að hindra þjóðargjaldþrot eftir ICEsave, er innganga í Evrópubandalagið, eins og Andri Geir verkfræðingur benti á í Silfri Egils, þar gæti sú aðstoð komið sem gerði þjóðinni kleyft að standa í skilum með öll þessi okurlán.
Að hafa VG liða sem sveik, sem formann Heimssýnar er eins og SÁÁ fengi þekktasta dópsala bæjarins til að leið stjórn samtakanna. "Ég er innilega á móti dópneyslu, en það er bara svo góður díll að selja það".
Það er tími til kominn að flokksmenn VinstriGrænna átti sig á því að þeir verða pólitísk úrhrök ef þeir samþykkja ICEsave samninginn, meiri lýkur að meðlimur Svarta Pardusa falli í faðminn á Ku Klux Klan liða, en að þjóðin fyrirgefi þeim þrælslundina við ESB draum Samfylkingarinnar.
Þrælslund sem kostar þjóðina 1.000 milljarða með vöxtum.
Jafnvel æra dópssala er meiri en þeirra.
Kveðja að austan.
ESB óttist að vera hafnað af Íslendingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:24 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 341
- Sl. sólarhring: 769
- Sl. viku: 6072
- Frá upphafi: 1399240
Annað
- Innlit í dag: 290
- Innlit sl. viku: 5145
- Gestir í dag: 272
- IP-tölur í dag: 270
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessaður Ómar. Hann er dalamaður, sagt er að það skýri margt.
Kveðja að norðan.
Arinbjörn Kúld, 28.11.2009 kl. 15:56
Sælir félagar.
Þessi þingmaður nýtur einskis trausts hjá mér eftir að hafa kallað inn varamann til að afgreiða þrælasamninginn úr nefnd daginn eftir að hann var kosinn formaður Heimssýnar, enda sagði ég mig úr Heimssýn morguninn eftir svikin. Það má vel vera að ég gangi í samtökin að nýju eftir að annar formaður tekur við, en ég vinn í anda samtakana en ekki í þeirra nafni.
Íslandi allt
Umrenningur, 28.11.2009 kl. 16:45
Blessaðir félagar,
Ég henti inn uppkasti, jólasveinarnir biðu og ég hafði ekki tíma til að skrifa það sem ég ætlaði.
En núna er heildarmyndin komin, og þetta er aðeins byrjunin,.
Pólitísk úrhrök verða þessir menn eins og aðrir sem svíkja sannfæringu sína og hugsjónir fyrir valdastóla. Og þar að auki bugta sig fyrir erlendum ógnaröflum.
Þetta verður þema næstu viku.
Örlög þeirra sem sviku sjálfa sig.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 28.11.2009 kl. 18:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.