18.11.2009 | 16:57
Þetta heitir Landráð
Og það er allt í lagi að kæra manninn fyrir þau ráð.
Ef ríkisstjórn Íslands kemst upp með að nauðga stjórnarskrá Íslands, og þverbrjóta landráðakafla almennra hegningarlaga, þá eru allar forsendur fyrir réttarríkinu brostnar.
Það er til lítils að stinga lögbrjóta inn, ef stærsti glæpurinn er látinn órefsaður.
Það er skýrt brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Samfylkingin gleymir því alltaf, að þó henni langi rosalega mikið að fá að vera menn í Brussel, og neyðir VinstriGræna til að samþykkja ICEsave ólögin, þá er sá gjörningur bæði brot á íslenskum lögum, sem og brot á tilskipun ESB um innlánstryggingar. Og það er skýrt brot á EES samningnum að ágreiningur um túlkun Evrópska laga, sé ekki leystur á þann lögformlega hátt sem EES samningurinn kveður á um.
Það er bannað að leysa milliríkja deilur samkvæmt EES samningnum á þann hátt, að annar málsaðilinn múti stjórnmálamönnum hins aðilans þannig að þeir, eftir múturnar, samþykki einhliða ólöglegar kröfur.
Aðildarríki eru ekki í ábyrgð segir löggjöfin, og þó menn vilji hafa lagatextann á hinn veginn, að aðildarríki séu í ábyrgð, þá er því ekki breytt eftir á. Jafnvel þó íslenskum stjórnmálamönnum sé mútað til að svíkja þjóð sína.
Evrópsk löggjöf krefst þess að Steingrímur Joð Sigfússon sé ákærður og fangelsaður fyrir lögbrot sín.
Við erum ekki bananalýðveldi.
Kveðja að austan.
Saka Steingrím um að brjóta gegn stjórnarskránni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:21 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 27
- Sl. sólarhring: 628
- Sl. viku: 5611
- Frá upphafi: 1399550
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 4784
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.