Lærum af Rómverjum hinum fornu.

Þeir kunnu mjög að glíma við skuldsetta einstaklinga og fjölskyldur þeirra.

Aðalatriðið er að láta ekki fólk daga upp í iðjuleysi.  

Eins skiptir miklu máli að eignir fjáreiganda rýrni ekki.  Þeir mega ekki við því eftir öll áföllin á hinum alþjóðlega fjármálamarkaði.

Greiðsluvilji!!!   Hvað er nú það???

Rómverjar vissu alveg hvernig átti að viðhalda honum.

Því legg ég til að ASÍ komi út úr skápnum og styðji í alvöru sína umbjóðendur.  Fyrsta skref til þess er að ráða atvinnulausan Samfylkingarsagnfræðing og láta hann þróa greiðslukerfi út frá fornum Rómverskum lögum.  

Klassík er klassík, og aldrei eins mikil þörf eins og núna að forn fræði séu í hávegum höfð.

Svo má samtvinna tillögur ASÍ við greiðsluloforð Samfylkingarinnar til ESB, algjör óþarfi að greiða í beinhörðum gjaldeyri þegar nóg er til af viljugum skuldurum.

Og þjóðfélag Félagshyggju og Auðmanna mun dafna eins og aldrei fyrr.

Áfram ASÍ.  

Við vitum öll hvar hjarta ykkar slær.

Kveðja að austan.

 


mbl.is ASÍ: Brýnt að einfalda ferlið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 26
  • Sl. sólarhring: 465
  • Sl. viku: 5517
  • Frá upphafi: 1327341

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 4927
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband