Ábyrgðarmenn Hrunsins vaða uppi með fólsku í skjóli Félagshyggjunnar.

Kannski eru allir búnir að gleyma því en starfsstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi,  þessi sem situr í skjóli sjóðsins, kennir sig við Félagshyggju.  Hennar draumur er að byggja upp Norrænt velferðarkerfi.

Svona í anda Stalíns, og fyrirmyndin er sótt í Gúlagið.  Eins og allir vita þá var Gúlagið staðsett mjög norðarlega í Rússlandi, norðar var sjaldnast hægt að komast.  Og þar þræluðu menn og þræluðu fyrir hinn göfuga málstað sem hét velferð sósíalismans.  Allir voru jafnir í sínum þrældómi og allir áttu þann sameiginlega draum að morgundagurinn yrði skárri.

Og ef menn voru ekki sáttir, þá var föntum að mæta.  

Á næstkomandi fimmtudag verða þrælalög samþykkt á Alþingi.  Þau munu vísa veginn að hinni norrænu velferð félagshyggjunnar.  Þræla og þræla svo við verðum gjaldgeng í alþjóðasamfélaginu er yfirskrift laganna.  

Og allir eiga að vera jafnir í sínum þrældómi og fátækt.

Nema náttúrlega ábyrgðarmenn Hrunsins og aðrir fjárbraskarar.

Þeir munu verða aðeins jafnari en hinir og í stað þess að þræla, þá munu þeir njóta afrakstur þrældómsins eins og yfirstétt Gúlagsins forðum daga.  Fyrst í stað mun hin norræna velferð aðeins ná til þeirra en einhvern "Morguninn" mun hún ná til annarra þegna landsins.

Kannski.

En eins og í Gúlaginu forðum daga, þá mögla alltaf einhverjir og skilja ekki hví þeir eru fastir í viðjum okurvaxta og verðtryggingar.  Eða skilja ekki lógígina í að skuldir þeirra hafi tvöfaldast á einni nóttu.   Fatta jafnvel ekki hví þeir eiga að píska sig út fyrir útlenda fjármagnseigendur.  

Þá kemur til kasta fantana, þeirra sem halda hinni norrænu velferð saman.

Lýsing virðist vera ágætar þjálfunarbúðir fyrir þá.  Einhvers staðar þurfa vondir að fá sína þjálfun.

Halda menn virkilega að þrælakerfið virki án fanta????

Morgunblaðið, helsti talsmaður ICEsave þrælasamningsins, ætti að hugsa sinn gang vel áður en það skítur út störf þeirra.  Það er ekki hægt að reka þrælakerfi án fanta.  Og fyrst það er draumur blaðsins að leggja þjóð sína í þrælahlekki ICEsave samningsins, þá á það að sýna ábyrgðarmönnum Hrunsins tilhlíðandi virðingu.  

Án þeirra verður hin "Norræna velferð" aðeins orðin tóm.  

Það verður ekki bæði haldið og sleppt.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Lýsing sökuð um miskunnarleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 276
  • Sl. sólarhring: 396
  • Sl. viku: 4119
  • Frá upphafi: 1329650

Annað

  • Innlit í dag: 242
  • Innlit sl. viku: 3611
  • Gestir í dag: 228
  • IP-tölur í dag: 224

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband