6.7.2009 | 08:52
Viðgengst svo lengi sem braskið nýtur velvildar stjórnvalda.
Brask á gráa svæðinu er og verður alltaf þar sem höft eru. En bein brot viðgangast aðeins ef eftirlitsaðilar hafa samúð með glæpamanninum.
Slík samúð er rík í stjórnkerfinu í dag. Evrópudraumur svo margra byggist á því að allt fari í kalda kol á landinu. Þess vegna er krónunni nauðgað og vissir ráðamenn nota hvert tækifæri til að tala hana niður með rangfærslum og blekkingum.
Krónan féll vegna þess brjálæðis sem ríkti í þjóðfélaginu. Taumlausar erlendar lántökur og stjórnlaus innflutningur felldu hana. En í stað þess að viðurkenna vandann og benda á orsakaþætti fallsins þá er sökinni skellt á krónuna. Fólki talið í trú um að ef Evra hefði verið gjaldmiðillinn þá væri hér ekki gjaldmiðilskreppa. En það er rangt því ef svo hefði verið þá væri hér alvarlegur skortur á gjaldmiðli því það er alltaf þannig að ef meira er eytt en aflað þá myndast skortur.
Einfaldasta efnahagslögmál í heimi.
Þeir sem áttuðu sig ekki á þessu í gamla daga, féllu úr hungri á vorin, jafnvel þó þeir hefðu haft Evru sem gjaldmiðil.
Eins er það með höftin. Þau eru sögð nauðsynleg vegna krónunnar. En það er rangt. Þau eru nauðsynleg vegna þess að stjórnvöld ákváðu að skrá gengi hennar of hátt. En það er svo auðvelt að kenna braskinu um það sem miður fer, í stað þess að gera eitthvað í málinu.
Það heitir að stjórna.
Kveðja að austan.
Gjaldeyrisbraskarar græða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 425
- Sl. sólarhring: 740
- Sl. viku: 6156
- Frá upphafi: 1399324
Annað
- Innlit í dag: 357
- Innlit sl. viku: 5212
- Gestir í dag: 330
- IP-tölur í dag: 326
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.