26.6.2009 | 15:19
Bööö, sjálfur Boogie man hefur talað.
Núna er ég hræddur.
Steingrímur segir að ef við fellum ICEsave, þá fáum við ekki lánin sem við ætlum ekki að nota, en sem er svo gaman að eiga inná reikning hjá einhverjum Morgan í Bandaríkjunum.
"Shit", þar með er út um meint heimsmet okkar í skuldasöfnun þróaðra þjóða.
Sjálfsagt verður þjóðin að sætta sig við silfrið á Ólympíuleikunum.
Jæja, ég er sáttur við það. Og ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn færi í fúlan pytt svo hægt yrði að byrja endurreisn landsins, þá er það fínt.
Stjórnarandstöðuleiðtoginn, Steingrímur Jóhann Sigfússon, var líka óþreytandi að benda á þá einföldu staðreynd að auðmenn væru ekki þjóðin. Og braskkerfi þeirra væri ekki sú leið sem siðuð þjóð færi í efnahagsmálum sínum.
Þess vegna er gott að fjármálaráðherrann, Steingrímur Joð, getur ekki endurreist þetta braskkerfi. Nógum skaða hefur það valdið þjóðinni, þó auðmenn og Leppar þeirra fá ekki aftur tækifæri til að stela því sem þeim vannst ekki tími til að stela frá okkur fyrir hrun.
Við þurfum ekki slíka endurreisn.
Við þurfum heilbrigt efnahagslíf byggt á þekkingu og tækni og mannauði og mannúð og virðingu fyrir landinu og náttúru þess og ..........
Og við þurfum heilbrigða skynsemi við endurreisnina. Bullukollar, sem telja hæstu stýrisvexti heims bestu leiðina til koma skuldsettu þjóðfélagi á lappirnar, þeir mega bulla einhvers staðar annar staðar. Við þurfum ekki Óráð þeirra.
Farið hefur fé betra.
En hvernig er það annars. Heitir Ögmundur Jónasson, Sjálfstæðisflokkur að millinafni????.
Kveðja að austan
Strandi Icesave, strandar allt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 587
- Sl. sólarhring: 641
- Sl. viku: 6318
- Frá upphafi: 1399486
Annað
- Innlit í dag: 502
- Innlit sl. viku: 5357
- Gestir í dag: 460
- IP-tölur í dag: 453
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.