Það er eitt sem vantar í sóttvarnarlög.

 

Og það er kafli sem fjallar um ábyrgð stjórnvalda gagnvart því fólki og fyrirtækjum sem verða fyrir höggi vegna sóttvarnarráðstafana.

 

Það var glópavon að treysta á að erlendir ferðamenn myndu streyma inn á tímum heimsfaraldurs, og þar með hyrfi vandi ferðaþjónustunnar og hún héldi áfram eins og ekkert hefði í skorið.

Sumarið átti að nýta til að móta og þróa úrræði fyrir ferðaþjónustuna, afþreyingariðnaðinn og svo framvegis.

 

Hefðu stjórnvöld kynnt slík úrræði um leið og hertar aðgerðir á landamærunum, þá væri sátt og hægri öfgarnar eins og hver önnur ískrandi viðrini út í horni, tuðandi eitthvað sem enginn hlustar á.

Í stað þess að gera út á örvæntinguna og fá þannig hljómgrunn hjá örvingluðu fólki.

En ekki þessum 14-15 manna stuðningskjarna sem annars hefði lagt við eyru.

 

Væri skyldan skýr í lögum, þá hefðu þessi mistök ekki átt sér stað.

Þau þarf að leiðrétta.

 

Fundir eru góðir en fundir koma aldrei í stað aðgerða.

Þar er meinið.

Og þar varð stjórnvöldum á.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Sóttvarnalög endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 61
  • Sl. sólarhring: 748
  • Sl. viku: 5269
  • Frá upphafi: 1328082

Annað

  • Innlit í dag: 56
  • Innlit sl. viku: 4728
  • Gestir í dag: 55
  • IP-tölur í dag: 55

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband