8.7.2020 | 14:36
Ásættanlegt segir sóttvarnarlæknir.
En hver greiðir gjaldið þegar allt fer úr böndum??
Því samkvæmt lögmáli Murphys, það er þessi jákvæði, þá býður hættan sér í heimsókn ef dyr eru skildar opnar.
Þá er saklaust fólk sett í sóttkví.
Ekki sóttvarnarlæknir, ekki ráðherrar, ekki þeir sem ábyrgðina bera.
Heldur sá sem hefur þá einu sök að hafa verið nálægt smituðum einstaklingi á einhverjum tímapunkti.
Hann er sviptur sínu daglega lífi, allar áætlanir, öll plön, vinna eða sumarfrí, allt sett á hold.
Dugi sóttkvíin ekki að einangra smitið, þá er næst skellt í lás hjá gamla fólkinu, sem og að fólk með undirliggjandi sjúkdóma lokar sig frá öllu mannlífi.
Það sem var öruggt, reyndist ekki öruggt.
Hvernig heldur fólk þá að það sem er ásættanlegt reynist??
Núna þegar næsta bylgja er á leiðinni??
Óvitarökin eru að það hafi svo fáir greinst með smit við landamæraskimun.
Sem er mikið rétt, með óheyrilegum fórnum almennings í mörgum vestrænum löndum tókst að skera á smitleiðir veirunnar og þar með væri saga hennar öll ef menn hefðu haft úthald nokkrar vikur í viðbót.
En veira sem smitast með veldishraða, þarf ekki marga smitbera til að smita á ný heilu samfélögin.
Það hefðu ekki margir greinst með veirusmit við landamæraskimun ef það hefði verið skimað fyrir henni í desember eða jafnvel janúar.
En hvað gerðist svo??
Hvað gerðist svo??
Allavega ef illa fer, þá mun fólk deyja vegna þess sem sóttvarnarlæknir telur ásættanlegt.
Munum samt að það er hann sem heldur aftur af óvitunum að opna landið, hann er ráðgjafinn sem veit að einvaldurinn er kolkreisý en það má lauma að honum góðum ráðum og telja honum í trú um að þau séu hans.
Fullorðið fólk sem á líf sem það sór að vernda, má aldrei gleyma að sama dag og ríkissjónvarpið sýndi fréttaskot frá Texas þar sem læknir á bráðamóttöku sagði að veiran væri illvígari, hún virtist smita meira og fólk veiktist verr en áður, að þá var líka viðtal við dómsmálaráðherra.
Sem greinilega var ósátt að ekki væri opnað á Bandaríkin í þessari lotu, minnti á hin sterku efnahagslegu tengsl við landið.
Firring, vitfirring, skiptir ekki öllu, á milli var Þórólfur sem gaf ekki eftir.
Við sem þjóð erum í miðju fellibylsins og trúum að lognið sé komið til að vera.
En þeir sem hafa komist í miðju fellibylsins og lifað af, segja að hann sé skæðari þegar hann skellur á ný.
Við búum vissulega að þekkingunni og reynslu sóttvarnaryfirvalda og Kóvid deildarinnar á Landsspítalanum, en við höfum líka sömu óvitana.
Óvitana sem skilja ekkert í af hverju allt er ekki galopnað.
Ha, meinlaus flensuskítur, er eitthvað að óttast, það dóu svo fáir!!
Það þarf að fá efnahagslífið í gang.
Meinið er að efnahagslífið er í gangi, svona eins og það getur verið á tímum heimskreppu í miðri drepsótt.
Og það mun ná fullum styrk þegar veirunni hefur verið útrýmt.
En fái hún að grassera, þá mun kreppan aðeins dýpka.
Eitthvað sem fullorðið fólk skilur, en er ofviða börnunum.
Þess vegna eiga börn að vera í skóla, og læra, sama á hvað aldri þau eru.
Það er bara svo.
Kveðja að austan.
Ákvörðun ÍE ekki tilefni til að stíga til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 680
- Sl. sólarhring: 759
- Sl. viku: 6264
- Frá upphafi: 1400203
Annað
- Innlit í dag: 621
- Innlit sl. viku: 5385
- Gestir í dag: 592
- IP-tölur í dag: 578
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Covid-19 er dauðans alvara. Það eru börn og hálfvitar sem stjórna landinu, þetta er ekki búið langt í frá.
Við deyjum öll á endanum en ég er persónulega ekki tilbúin að deyja úr þessum skelfilega sjúkdómi og það vegna græðgi og heimsku ráðamanna!
Ég er með undirliggjandi sjúkdóma,ólæknandi krabbamein, hjarta/lungnajúkdóm, brjósklos og hvað eina sem krabbameinið hefur skilið eftir sig og meira á eftir að koma í ljós. Ég hef verið meira og minna innilokuð heima síðan covid-19 bankaði uppá.
Nú loksins þegar við höfum ráðið niðurlögum veirunnar og við getum ferðast innanlands og andað að okkur hreinu lofti þá á að flytja þessa helvítis veiru inn aftur!
Hver andskotinn er að þessu fólki!
Birna Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 8.7.2020 kl. 18:29
Ja Birna, hvað getur maður sagt.
Kannski nota orðið óvitar í stað hálfvita, ég gerði það allavega.
Annars góð samantekt af síendurteknu efni.
Sem verður endurtekið þar til ljóst er að kóvid veiran hefur misst af síðasta póstskipinu og maður þarf ekki lengur að óttast um sína nánustu.
Og fótboltann líka, hann fellur á undan.
Svo er svarið við spurningu þinni; Óvitaskapur.
Þjáir oft kynslóðir sem lítið af dauðans alvöru að segja.
Hvort sem það er gagnvart stríði, upplausn samfélaga vegna misskiptingar sem birtist í síendurteknum átökum, eða smitsjúkdómum sem drepa ef ekki er ráðist gegn þeim.
Svo fullorðnast óvitarnir.
Hratt.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 8.7.2020 kl. 21:17
Komið þið sæl bæði: Ómar og Birna, sem og aðrir gestir þínir, Ómar !
Þakka ykkur fyrir - hispurlausar ályktanir, gagnvart þessarri graf- alvarlegu atburðarás, sem við er að etja.
Samt: gátu um eða yfir 90 prósenta (%) landsmanna látið sig hafa það, að endurkjósa hinn lið- ónýta Guðna Th. Jóhannesson þann 27. Júní s.l., til áframhaldandi setu suður á Bessastöðum:: vitandi um, svo rækilega, hvers lags auðsveipt og þjált verkfæri hann er / og hefur verið, í lúkum óstjórnar þessa Guðanna volaða lands, maður: ef bein hefði í nefi, að skipa Utanþingsstjórn þróttmikils fólks úr framleiðzlu- og þjónustustörfum í landinu, hefði hann hinn minnsta dug og kjark til.
Og - takið eptir, þessi hin sömu 90 prósent, halda svo áfram að mjálma á hinum aðskiljanlesgustu athugasemdakerfum vefmiðlanna hérlendu um órjettlæti Heimsins.
Hún liggur víða: hræsnin og lágkúran, í hugarfylgsnum allt of margra samalanda okkar, Ómar og Birna.
Með beztu kveðjum - engu að síður, af Suðurlandi / sem optar //
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.7.2020 kl. 21:54
Takk Óskar.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 8.7.2020 kl. 23:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.