7.6.2019 | 13:26
" Seinni umræða um þriðja orkupakkann er enn ekki lokið. "
Og mun ekki ljúka á meðan ennþá er fólk á þingi sem getur sagt satt orð, og staðið vörð um fullveldi þjóðarinnar, um stjórnarskrána og um hag almennings í því gríðarlega mikilvæga máli sem kennt er við orkupakka 3.
Mikilvægt fyrir þá sem sjá milljarðana inná Tortillureikninga sína þegar allt sem viðkemur nýtingu orkunnar hefur verið markaðsvætt, eignarhald og sala hennar á single market eins og segir í tilskipuninni.
Mikilvægt fyrir almenning að verði aldrei samþykkt.
Munum lygarnar, "Þetta er tæknilegt framhald af fyrsta og öðrum orkapakka,sem eykur neytendavernd, eykur aðhald á fyrirtæki sem selja raforku og eykur upplýsingaskyldu þessara fyrirtækja, það er í eðli sínu mjög fínt finnst mér." (Þórdís Kolbrún í útvarpsviðtali).
Og staðreyndirnar, núna ætla ég að vitna í hlutlausan aðila, sem á engra hagsmuna að gæta, nema að gæta sannleikans í þessu máli.
"Með þriðja orkupakkanum verður ekki betur séð en að við séum að játa okkur undir það og festa það í sessi að raforka, eins og hver önnur vara, flæði óheft á milli landa. Frjálsa flæðið á vörum er fyrir hendi, skilgreining á raforku sem vöru er fyrir hendi, en með þriðja orkupakkanum kemur regluverk sem fjallar sérstaklega um tengingar á milli landa. Þannig sé inngangur tilskipunar 2009/â72/âEC, sem er hluti af þriðja orkupakka Evrópusambandsins, skýr hvað þetta varðar sem og markmið og skuldbindingar ríkja sem undirgangist hana.
Gegnumgangandi í textanum er áhersla á að ríki skuldbindi sig til að ryðja úr vegi hindrunum í þessu sambandi. Markmiðið er sömuleiðis kristaltært, það er að auka samkeppni á þessu sviði milli landa. Komi til þess að Alþingi maldi á síðari stigum í móinn munu ráðamenn í Brussel spyrja sömu spurningar og ég spyr nú: Til hvers voru Íslendingar eiginlega að samþykkja þriðja orkupakkann ef þeir vilja síðan ekki flytja raforku til annarra landa?". (Arnar Þór Jónsson)
Staðreyndirnar tala sínu máli.
Orkupakki 3 fjallar um tengingar milli landa, ásamt regluverki um yfirþjóðlega stofnun, ACER.
Vilji menn ekki gangast undir það regluverk, þá þarf að semja um það fyrirfram, og gera það á þann hátt að fyrirvarinn haldi.
Og á meðan stjórnvöld halda öðru fram, þá mun umræðunni ekki ljúka.
Eina spurningin er, hvenær fatta stjórnvöld það.
Þá er samið.
Kveðja að austan.
Greiða atkvæði um 14 frumvörp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:05 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 22
- Sl. sólarhring: 629
- Sl. viku: 5606
- Frá upphafi: 1399545
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 4779
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.