27.4.2019 | 11:37
Stundum setur mann hljóðan.
Þegar maður les grein og hefur ekkert við að bæta.
Kemur vel á vondan mætti halda þegar kjöftugur verður kjaftstopp.
Tómas Ingi Olrich skrifaði slíka grein í Morgunblaðið í dag.
Á meðan hagsmunir einkavinavæðingarinnar láta fjölmiðla sína annars vegar skrifa bullleiðara um hrun alþjóðaviðskipta og jafnvel sjálfs samfélagsins ef Alþingi hafnar orkupakka 3 og sendir hann til baka í sameiginlegu EES nefndina og hins vegar framleiða ekki fréttir um hvort Bára hlerari sé hlæjandi eða ekki hlæjandi, eigi bankareikning eða ekki bankareikning, sé svona eða hinsegin, þá vilja svona gæðagreina oft fara framhjá fólki, sem er miður.
Miður því þjóð sem lætur upphlaup móta þjóðmálaumræðuna, en heldur þeirri vitrænu í herbergjum þar sem meðal annars óhreinu börnin hennar Evu eru geymd, hún endar alltaf sem leiksoppur þeirra sem hafa efni á að kosta og skipuleggja upphlaup og önnur fár.
Síðast þegar ég vissi var þessi grein opin til lestrar, og því ætla ég ekki að endurbirta hana alla, en mig langar að láta fljóta með kafla úr henni en vísa annars á Mbl.is eða sjálfan Moggann hjá þeim sem eru ennþá pappírssinnar.
Greinir heitir Óskipulagt undanhald og þarm má meðal annars lesa þetta;
"Takmarkað vald en talsverður vilji.
Þó kemur það hvergi fram í álitsgerðinni að íslensk stjórnvöld hafi vald til að setja sig á móti því að komið verði á tengingu um sæstreng við raforkumarkað ESB/​EES. Um slíkt svigrúm fjalla engar samþykktar undanþágur. Þar er einungis gefið í skyn að þriðji orkupakkinn leggi ekki þá skyldu á íslensk stjórnvöld að koma á fót grunnvirkjum yfir landamæri. Það er hins vegar andi allrar orkulöggjafar ESB að koma á fót sameiginlegum orkumarkaði aðildarlandanna og flytja orku yfir landamæri til að fullgera þann markað.
Þótt engin skylda hvíli á íslenskum stjórnvöldum að leggja sæstreng, þýðir það ekki að íslensk stjórnvöld geti hindrað lagningu sæstrengs þvert á tilgang orkutilskipana ESB/​EES. Þetta mál er í raun skilið eftir óútkljáð af hálfu höfunda álitsgerðarinnar. Kemur það einna skýrast fram neðanmáls (nr. 62) á síðu 35.
Það er mikill barnaskapur að ímynda sér að íslensk stjórnvöld hafi fullt forræði á tengingu landsins við orkumarkað ESB/​EES ef þess er hvergi getið í formlegum undanþágum og einungis vitnað í pólitískar yfirlýsingar utanríkisráðherra Íslands og framkvæmdastjóra orkumála innan framkvæmdastjórnar ESB. Yfirlýsingar þessara embættismanna eru ekki á nokkurn hátt lagalega skuldbindandi.
Ekki er rétt að útiloka þann möguleika að innan ríkisstjórnar Íslands séu þegar að verða til áætlanir um að tengjast orkumarkaði ESB/​EES með sæstreng. Landsvirkjun hefur á því verkefni mikinn áhuga og telur sig geta hagnast vel á verkefninu. Stofnunin telur að raforkuverð muni hækka, en er ekki eins bjartsýn á þá hækkun og Þorsteinn Víglundsson. Eru áætlanir Landsvirkjunar gerðar í tómarúmi eða styðjast þær við velvilja ríkisstjórnarinnar?
Þegar litið er til útlistana Landsvirkjunar um þann hag sem Íslendingar geta haft af sæstrengnum, eins og stofnunin hugsar sér hann, blasir við að þar eru menn komnir fram úr sjálfum sér. Skiptir þá litlu hvort litið er á röksemdafærslu stofnunarinnar frá hagfræðisjónarmiði eða umhverfissjónarmiði að ekki sé minnst á hagsmuni íslenskrar atvinnustarfsemi. Spurningin sem vaknar er hvort Landsvirkjun er komin fram úr ríkisstjórninni eða hvort hún á samleið með ráðherrunum.
Upplausn stjórnmálaflokka.
Nú berast tíðindi víða að um óstöðugleika stjórnmálaflokka. Þótt sú upplausn eigi sér eflaust ýmsar skýringar, er ekki hægt að líta fram hjá því að innan Evrópu hafa þær allar tengsl við Evrópusambandið. Það hendir oftar en ekki að stjórnmálaforkólfar draga sjálfa sig upp úr töfrahatti og þá dagar svo uppi við sólarupprás.
Það er ekki lengra síðan en í marsmánuði 2018, sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, undraðist hvers vegna menn hefðu áhuga á því að komast undir boðvald sameiginlegra eftirlitsstofnana. Nú hefur hann ákveðið að fara þá leið. Í farteskinu hefur hann ekki annað en yfirlýsingu utanríkisráðherrans um fullt forræði íslenskra stjórnvalda á því hvort Ísland tengist með sæstreng. Vitað er að sú yfirlýsing er ekki á nokkurn hátt lagalega bindandi. Með honum stendur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins. Það er mikil ógæfa að sjá þann möguleika einan í stöðunni að ríða netið sem þéttast og sjá svo seinna hvort og hvernig við getum sloppið úr trollinu.".
Og hver rífst við þessi lokaorð??
"Það er sannarlega kominn tími til að Íslendingar sæki fram í stað þess að hörfa. Það er mikill misskilningur að það skapi okkur skjól og auki virðingu viðsemjenda okkar að hörfa sífellt og fara með veggjum, hlýðnir og auðmjúkir. Það hlutverk var okkur ætlað í Icesave-málinu. Það vannst vegna þess að einarður málflutningur fór fram gegn uppgjöf ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og forsetinn vísaði málinu til þjóðarinnar.".
Ég bara spyr?
Kveðja að austan.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 37
- Sl. sólarhring: 628
- Sl. viku: 5621
- Frá upphafi: 1399560
Annað
- Innlit í dag: 30
- Innlit sl. viku: 4794
- Gestir í dag: 29
- IP-tölur í dag: 29
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er engu við þetta að bæta. Ritsnilld hjá reyndum stjórnmálamanni og sönnum fullveldissinna.
Júlíus Valsson, 27.4.2019 kl. 12:58
Þó hljóður sé ætla ég samt að sega; SAMMÁLA.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 27.4.2019 kl. 13:39
Hreint út sagt frábær grein eftir Tómas Inga.
Allir heiðarlegir og sannir sjálfstæðismenn
taka heils hugar undir með honum.
En það eina sem Gulli og Bjössi Bjarna geta sagt
er að þylja möntru Steingríms J. og Jóhönnu Sig.
um að þetta sé allt "misskilningur" í okkur sem
andæfðum Icesave og andæfum nú þriðja orkupakkanum
frá hirðinni í Brussel, Gulla og Bjössa Bjarna.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.4.2019 kl. 15:14
Góður 'Omar.Tómas Ingi alveg Frábær. Eg hélt einu sinni að Björn Bjarnason væri gáfumaður,held ekki!!! Já Fimbulfamb sagði hann.
Einu eigum við heimtingu á að fá að vita,hvað er plan B hjá gulla (þegar) belti og axlabönd slitna?
Óskar Kristinsson, 27.4.2019 kl. 16:46
Blessaður Óskar.
Eru þau ekki úr ósnertanlegu stáli, hulin galdraseið svo ekkert fái þau rofið??, eða eitthvað.
Það er ekkert plan B, því Guðlaugur Þór er í hjarta sínu algjörlega sammála innihaldi orkupakkans, hann vill markaðsvæða orkuna, en má bara ekki segja það.
Þetta eru svona svik í áföngum.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 27.4.2019 kl. 23:32
Blessaður Símon Pétur.
Greinina má lesa í heild á bloggsíðu Heimssýnar, sem segir mér það að Björn Bjarna er ekki lengur þar aufúsugestur, og það hefði fyrr mátt vera, hann var aldrei heill í ICEsave.
En Steingrímur og Jóhanna eru örugglega góðir kennarar, og börn hafa oft það eftir sem fyrir þeim er haft.
Nema formúla þeirra virkar ekki, þetta er svona svipað og þegar efnafræðingurinn sagði við Davíð í Sól að nú hefði hann betrumbætt kólað, og Davíð trúði.
En útkoman var ódrekkandi,.
Kokteill Guðlaugar þegar hann svívirti þann hluta flokksins sem er á móti þessum orkupakka, er svipaður eðlis.
Menn gera ekki svona í pólitík, ekki ef þeir eru í Sjálfstæðisflokknum. Því þó þetta virki hjá VG, þá virkar þetta ekki gagnvart grasrót Sjálfstæðisflokksins, því hún er sjálfstæð. Vissulega húsbóndatrygg, og seinþreytt til vandræða, en hún er sjálfstæð.
Og þú ofbýður ekki sjálfstæðu fólki, þó hundtryggir VG liðar beri bakið ef það á að hýða þá til hlýðni. Stalínisminn bjó til svoleiðis fólk, en sjálfstæðisbaráttan ekki.
Að halda annað, er alvarlegur misskilningur.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 27.4.2019 kl. 23:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.