EES samningurinn er lýðræðislegur.

 

Í honum er hvergi að finna hótun um að ef einstök aðildarríki EES treysti sér ekki til að innleiða regluverk Evrópusambandsins að óbreyttu, að þá sé samningurinn sem slíkur í uppnámi eins og utanríkisráðherra og iðnaðar og nýsköpunarráðherra halda fram.

Þvert á móti segir Jón Baldvin að;

"„EES-samn­ing­ur­inn trygg­ir aðild­ar­ríkj­un­um óvé­fengj­an­leg­an rétt til að hafna inn­leiðingu lög­gjaf­ar á til­teknu mála­sviði, ef hún á ekki við eða þjón­ar ekki hags­mun­um viðkom­andi rík­is. Fyr­ir þessu eru mörg for­dæmi. Höfn­un inn­leiðing­ar hef­ur ekki í för með sér nein viður­lög. Af­leiðing­in er sú, að mál­inu er vísað til sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­inn­ar, þar sem samið er um málið. Þar með fást þeir einu fyr­ir­var­ar, sem ör­uggt hald er í. Þessi ótví­ræði rétt­ur aðild­ar­ríkja EES-samn­ings­ins til þess að hafna inn­leiðingu lög­gjaf­ar út frá eig­in þjóðar­hags­mun­um, án viður­laga, var frá upp­hafi ein meg­in­rök­semd­in fyr­ir því, að framsal valds skv. samn­ingn­um væri inn­an marka þess sem sam­rýmd­ist óbreyttri stjórn­ar­skrá.“".

 

Og hvor aðilinn skyldi vita betur um málið, fyrrverandi utanríkisráðherra sem samdi við Evrópusambandið og hefur enga annarlega hagsmuna að gæta í dag, eða núverandi utanríkisráðherra sem fullyrðir kinnroðalaust að þeir sem vara við samþykkt orkutilskipunar Evrópusambandsins séu undir áhrifum "erlendrar einangrunarhyggju".

Enda ættu allir að sjá hversu fáránlegt það er að saka höfund EES samningsins, manninn sem lagði pólitískt líf sitt að veði til að samningurinn yrði samþykktur, um einhvern illvilja við að" vilja grafa und­an EES-samn­ingn­um á því sem eru í besta falli illa ígrundaðar for­send­ur – ef ekki af hrein­um ásetn­ingi.“".

 

Rök Jón Baldvins eru skýr, og þeim þarf að svara með rökum, ekki skítkasti og gífuryrðum.  En málið er að kannski að Guðlaugur Þór á þau rök ekki til

"Hins veg­ar verða að telj­ast veru­leg­ar lík­ur á því, að ótíma­bær lög­leiðing orkupakka 3 og ófyr­ir­séðar og óhag­stæðar af­leiðing­ar, önd­verðar ís­lensk­um þjóðar­hags­mun­um, muni grafa und­an trausti á og efla and­stöðu með þjóðinni við EES-samn­ing­inn, eins og reynsl­an sýn­ir frá Nor­egi. Þegar af þeirri ástæðu er óráðlegt að flana að fyr­ir­hugaðri lög­gjöf nú,“ seg­ir Jón Bald­vin hins veg­ar. Öllum beri þannig sam­an um að lög­gjöf um teng­ingu ís­lensks raf­orku­markaðar við þann evr­ópska muni hafa marg­vís­leg áhrif hér á landi.

Gef­ur hann lítið fyr­ir þá fyr­ir­vara sem Guðlaug­ur Þór hef­ur kynnt vegna máls­ins. "Lög­gjaf­an­um ber skylda til að greina þessi „marg­vís­legu áhrif" út frá ís­lensk­um þjóðar­hags­mun­um og hags­mun­um neyt­enda, áður en lagt er upp í þessa óvissu­ferð. M.a. vegna þess að yf­ir­gnæf­andi lík­ur eru á því, að meint­ir fyr­ir­var­ar reyn­ist hald­litl­ir vegna þess­ara „marg­vís­legu áhrifa". [...] Framsal valds til fjölþjóðlegra stofn­ana rétt­læt­ist jafn­an af því, að það þjóni þjóðar­hags­mun­um bet­ur en óbreytt ástand. Þessa þjóðhags­legu grein­ingu skort­ir ger­sam­lega. Hún þarf að liggja fyr­ir, áður en lengra er haldið. Það er ekki nóg að vísa í fyr­ir­vara, sem vafa­samt er að haldi, þegar á reyn­ir.“".

 

Hversvegna skyldi kostum og göllum ekki hafa verið stillt upp??

Er það vegna þess að hinn sameiginlegi markaður muni þrýsta verði á Íslandi uppúr öllu valdi??

Fyrir því færir Jón Baldvin rök, og þau eru ekki illa ígrundið eins og  Guðlaugur Þór vogar sér að fullyrða, án þess að koma með nein rök á móti.

"Jón Bald­vin bend­ir á að meg­in­regl­ur innri markaðar Evr­ópu­sam­bands­ins snúa að grunn­regl­um fjór­frels­is­ins um jafn­ræði keppi­nauta á sam­keppn­ismörkuðum. Ráðandi markaðshlut­deild rík­is­fyr­ir­tækja, eins og Lands­virkj­un­ar, sam­rým­ist ekki þeim regl­um. Rík­is­styrk­ir í formi niður­greiðslu orku­verðs, til að mynda vegna nýt­ing­ar orku til upp­bygg­ing­ar græn­met­is­rækt­un­ar í gróður­hús­um, sam­rým­ist ekki þess­um regl­um. Í grein­ar­gerð þings­álykt­un­ar­til­lög­unn­ar sé viður­kennt að verð til neyt­enda muni hækka við teng­ingu við orku­markað Evr­ópu­sam­bands­ins. Reynsla Norðmanna staðfesti það.".

 

Kílóvattið fór úr 25 aurum í 75 aura í Noregi, og það kalla Guðlaugur og Þórdís Kolbrún neytendavernd.

En Jón Baldvin er á öðru máli."„Þeir sem halda því fram, að fyr­ir­huguð lög­gjöf snú­ist aðallega um neyt­enda­vernd, þurfa að lesa sér bet­ur til. Íslensk­ir neyt­end­ur búa við miklu lægra verð en neyt­end­ur á sam­eig­in­lega markaðnum og hafa meiri áhrif á verðlagn­ing­una, sem sæt­ir lýðræðis­leg­um aga kjós­enda.".

Lágt orkuverð og blómstrandi mannlíf, það er neytendavernd, það er þjóðarhagur.

 

Jón Baldvin afgreiðir rök ráðherra ríkisstjórnarinnar af þekkingu og rökfestu þannig að ekki finnst steinvarða í málflutningi þeirra.

Eitthvað annað en rök málsins, eða hagsmunir almennings skýrir málflutning þeirra.

Kannski er það bara undirlægjuhátturinn gagnvart erlendu valdi, líkt og var drifkraftur uppgjafar Jóhönnu og Steingríms í ICEsave fjárkúguninni, en þá væri ekki þessi heift í gangi, heldur aðeins þreyta og andvörp; "ahhh við verðum bara að gera þetta, þau ráða".

 

Undiralda þessa máls hefur nefnilega verið lengi í umræðunni, nema fyrstu angarnir voru meintar tilraunir til að krossfesta fyrirfram helstu andstæðinga orkupakkans.

Hve langt gekk ekki níðið um Jón Baldvin og fjölskyldu þar til þorri landsmanna áttaði sig á hvaða klikkun bjó þar að baki?

Og þjóðhetjan hún Bára var aðeins fátæk manneskja sem var gerð út á örkina til að festa í rafeindir meint hneykslismál á fyllerís samkundum.  Sem tókst, með tilheyrandi eftirmálum.

 

En hvorugt var tilviljun, miklir hagsmunir kyntu upp allt það fár, og heldur engin tilviljun að sömu fjölmiðlar og fjölmiðlamenn ríða nú röftum fyrir sömu hagsmuni í orkupakkamálinu.

Því eins og Jón bendir réttilega á, þá líður evrópska regluverkið ekki ráðandi ríkisfyrirtæki á markaði, það er óhjákvæmilegt, hvort sem verður lagður sæstrengur eða ei, að íslenska ríkið verði knúið til að hluta Landsvirkjun upp og setja á markað. Reyndar rangt að segja knúið, því innst inni eru margir ráðherrar hlynntir slíkri gjörð, hún er í samræmi við hugmyndafræði þeirra og lífsskoðanir.  Og þeir munu ekki verða hindrun þegar þar að kemur.

 

Orkupakkinn er konfektkassi auðmanna og það skýrir ofurkappið, og skurðgröftinn útí samfélaginu gagnvart þeim sem tala gegn hagsmunum þeirra.

Auðvitað eru einhverjir sakleysingjar með í föruneytinu, og það er bara staðreynd að íslenskir Evrópusinnar vilja lúta Brussel, og myndu gefa upp sjálfstæði þjóðarinnar á morgun, hefðu þeir til þess vald.

En það skýrir ekki heiftina, lygarnar eða rangfærslurnar.

 

Aðeins miklir fjármunir geta tryggt slíku líf í þjóðmálaumræðunni, til þess þarf her fjölmiðlamanna, álitsgjafa, almannatengla og að sjálfsögðu, stjórnmálamanna.

Þetta blasir við.

Óþarfi að neita því.

 

En við sem þjóð þurfum ekki að sætta okkur við.

Kveðja að austan.

 


mbl.is „Viljum við taka þessa áhættu?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef til maður mæti á morgun og spyrji ráðherra út í fullyrðingar þína Ómar

Vörður – fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík stendur fyrir opnum málfundi um þriðja orkupakkann næstkomandi föstudag, 26. apríl, kl. 12:00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.

Frummælendur verða Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, dómsmálaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þau munu fara yfir stöðu málsins og gera grein fyrir sínum sjónarmiðum.

Fundarstjóri: Kristín Edwald lögmaður og fyrrum formaður Varðar.

Heitt á könnunni og allir velkomnir.

Grímur (IP-tala skráð) 25.4.2019 kl. 18:29

2 identicon

Takk Ómar fyrir enn einn glimrandi góðan pistil.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 25.4.2019 kl. 22:11

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Grímur.

Endilega mættu og spyrðu spurninga, en vertu ekki að hafa mig fyrir þeim.

Ég gerði nú fátt annað í þessum pistli en að draga fram andstæðurnar annars vegar í sterkri rökræðu Jóns Baldvins og hins vegar frasa og fullyrðingar Guðlaugs Þórs, þó Þórdísi hafi eitthvað verið blandað inní málið.

Reyndar legg ég hér og þar út frá þessu, og kannski hæpin fullyrðing, það er hún er nær alhæfingu, þegar ég segi að ESB sinnar myndu selja okkur Brussel á morgun ef þeir gætu.  Held samt að þeir myndu ekki neitt sérstaklega selja ömmu sína eina og sér, heldur meir svona hóppakka, það er eina þjóð og eitt sjálfstæði.

Eins set ég þekktar staðreyndir umræðunnar frá því fyrr í vetur, í samhengi við þekkt vinnubrögð hákarla fjármagnsins, kölluðu sumir sem unnu fyrir þá sig ekki; "hitman"?  Þetta væri allavega augljóst í útlöndum, þó við séum kannski eins og kettlingurinn sem sér flugu í fyrsta sinn, og telur hana eitt af undrum alheimsins, nema að hann þekkir ekki það hugtak. 

Við erum kannski svo bernsk að við þekkjum þetta ekki heldur svo ég myndi ekkert hafa hátt um það sem þú last hér undir lokin.  Eða sagði skáldið ekki að ef maður kallaði "að hér inni er stúlka í alltof þröngum kjól, og öllum er ljóst að þessi maður er galinn".  Þetta er svona álíka, og ef menn vilja verða álitnir galnir, þá er langbest vinna sér inn það álit hér á Moggablogginu.  Því hér er fólk eins og það er og eina sem er bannað er rétttrúnaður, eiginlega allt annað leyft.

Vitnaðu því í Jón, það mun kveikja.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 25.4.2019 kl. 22:36

4 identicon

Baráttan gegn þriðja orkupakkanum

er barátta fyrir sjálfstæði íslensku þjóðarinnar.

Baráttan gegn þriðja orkupakkanum

er barátta gegn innlendum sjálfgræðgismönnum

sem hafa plantað sér í helstu ríkisstofnanir,

þ.m.t. lagavaldsins, framkvæmda- og dómsvaldsins

svo þeir geti innleitt pakkana frá Brussel

til eigin hagsbóta en ekki þjóðarinnar.

Fjölmiðla hafa þeir nær alla keypt upp.

Háskólana hafa þeir gert að sýndarveruleikaiðnaði

og lyfjafabrikku, þar þrífst ekki lengir

akademískt frelsi, einungis rétttrúnaður þeirra.

Slíkir menn eru ekki sjálfstæðismenn.

Slíkir menn eru vargar í véum. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.4.2019 kl. 22:41

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Pétur Örn.

Það er nú Jón Baldvin sem er maðurinn, ég er eiginlega bara svona skrásetjari sem skrifa athugasemdir á spássíuna.

Helv. var kallinn annars góður.

Það var ekki von þó það væri reynt að myrða hann fyrirfram í umræðunni.

En það tókst ekki, enda  Jón kominn af rammefldum heljarmönnum að vestan, sumum göldróttum í þokkabót.

Svo ég ítreka bara, hvor skyldi vita betur, sá sem samdi textann í EES, eða sá sem segir búgísögur frá eigin brjósti til hræða fólk, og ber EES samninginn fyrir þeim sögum?

Jafnvel launaður fjölmiðlamaður veit svarið, svo augljóst er það.

Veit reyndar ekki um þann vitgranna, en hann talaði líka alltaf um ICEsave sem skuldbindingar þjóðarinnar, jafnvel eftir að EFTA dómurinn hrakti endanlega fjárkúgunarkröfu breta.

Það verður fróðlegt að hlusta á morgunútvarpið í fyrramálið.

Tekst einhverjum að þykjast ekki skilja, eða tekst einhverjum að snúa út úr.

Eða verður jafnvel talað við Jón Baldvin??

Sjáum til.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 25.4.2019 kl. 22:46

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Og amen eftir því Símon Pétur.

Þú ert farinn að minna mig kraftaskáld nokkurt sem ég las ljóð eftir í óbirtri ljóðabók.

Það var kynngimagnað svo ekki er leiðum að líkjast.

Vargar í véum, mikið rétt.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 25.4.2019 kl. 22:49

7 identicon

:-)

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.4.2019 kl. 22:54

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Ekki þið skáldin, heldur börnin þarna á þingi.

Ég skil auðinn, þetta er bara bissness eins og venjulega hjá honum, en ég skil ekki krakkana sem þjóna honum, og þau eru því miður ekki bara í Sjálfstæðisflokknum.

Því svo er, þá hefði ég engar áhyggjur, því drekinn rumskar, og ekki vildi ég verða fyrir reiði hans.

En það dugar ekki til, þegar svikin eru svona víðtæk.

Eða barnaskapurinn svona algjör.

Vargar í véum.

Svo sannarlega.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 25.4.2019 kl. 23:06

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Íslendingar! Guð minn góður þakka þér.

Helga Kristjánsdóttir, 26.4.2019 kl. 05:43

10 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir innlitið Helga.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 26.4.2019 kl. 06:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 76
  • Sl. sólarhring: 102
  • Sl. viku: 1635
  • Frá upphafi: 1321527

Annað

  • Innlit í dag: 65
  • Innlit sl. viku: 1393
  • Gestir í dag: 57
  • IP-tölur í dag: 57

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband