23.1.2018 | 06:50
Sigríður játar vanhæfni sína.
Játar að hún hafi ekki einu sinni kynnt sér aðvaranir sérfræðinga ráðuneytisins.
Slík var öll fagmennska hennar.
Enda ákvörðun hennar af ætt geðþóttans, flokkspólitísk.
Seta hennar á ráðherrastól er áfellisdómur yfir ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttir.
Afhjúpar einnig veika stöðu Bjarna innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Því Bjarni á allt undir að þessi ríkisstjórn nái að rífa flokkinn uppúr hjólförum spillingarumræðunnar, umræðu sem er að draga flokkinn til dauða.
Því þeir öldruðu lifa ekki að eilífu.
En seta hennar er fyrst og síðast smán Alþingis.
Og stjórnarandstöðunnar til ævarandi minnkunar ef hún leggur ekki samstillt fram vantraust á ráðherra.
Ásamt því að krefjast opinberar rannsóknar á stjórnsýsluspillingu hennar.
Er geðþóttinn skýrður með beinum mútum?
Er geðþóttinn vinargreiði, flokkshygli?
Er geðþóttinn vísvitandi tilraun til að skaða stjórnsýsluna, og veikja dómsvaldið??
Í öllum löndum væru svona mál rannsökuð niður í kjölinn.
Líka í veikburða lýðræðisríkjum.
Og þau fella stjórnmálamenn.
Ríkisstjórnir.
Það er þær sem reyna að verja ósómann.
Og það er liðin tíð að Ísland sé undantekning.
Kveðja að austan.
Fullmikil túlkun á viðvörunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 515
- Sl. sólarhring: 712
- Sl. viku: 6099
- Frá upphafi: 1400038
Annað
- Innlit í dag: 467
- Innlit sl. viku: 5231
- Gestir í dag: 447
- IP-tölur í dag: 442
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.