23.4.2016 | 10:48
Fjölmiðlakóngur Íslands.
Hrunverjinn, sem skildi sínar skuldir eftir í tómum kennitölum, allt löglegt að sjálfsögðu svo ég vitni þekktan varnarfrasa.
Er kominn í dagsljósið, og á fyrir Diet kók, og einhverju öðru í viðbót.
Jafnvel samloku með kjöti næst þegar fjölmiðlar hans efna til aðsúgs að stofnunum lýðræðisins.
Því það þarf jú að fóðra.
Þetta er besti vinur Davíðs og Styrmis í dag.
Eintóna í skítmokstrinum í átt að Bessastöðum.
Og hinir skinheilögu dansa með.
Meira lýðræði, meira gegnsæi, meira eitthvað.
En að framkvæma það í verki.
Lýðræðislegt framboð þar sem stefna er kynnt, áherslur, kostir og gallar ræddir.
Nei, það er ekki gert.
Því það er lýðræði.
Ekki Meira lýðræði.
Þess vegna er leitað á náðir fjölmiðlakóngs Íslands.
Og pantað eitt stykki skítkast, eitt stykki aðför.
Svona er Ísland í dag.
Land þar sem ekkert breytist.
Kveðja að austan.
Stofnuðu keðju félaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 340
- Sl. sólarhring: 709
- Sl. viku: 5924
- Frá upphafi: 1399863
Annað
- Innlit í dag: 305
- Innlit sl. viku: 5069
- Gestir í dag: 298
- IP-tölur í dag: 296
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.