Samfélag í betrun.

 

Það er óhætt að segja að Thelma Ásdísardóttir er sá einstaki einstaklingur sem mest áhrif hefur haft á íslenskt nútímaþjóðfélag.

Þegar hún steig fram og sagði sögu sína án þess að draga nokkuð undan, og án þess að skammast sín fyrir það sem henni var gert, þá gerðist eitthvað hjá þjóðinni.

Þá skildi fólk alltí einu að það var margt sem hafði ekki verið í lagi, og var ekki í lagi hjá þjóðinni.

Níðingarnir áttu ekki bara heima úti, þeir voru meðal okkar, og þöggunin og skömmin sem samfélagið umlukti fórnarlömb níðinganna, þetta voru ekki sögur úr fjarlægum tímum, frá fjarlægum löndum, þetta var Ísland í dag, ekki einangrað, ekki einstakt, heldur raunveruleiki hjá fjöldamörgum börnum og fjöldamörgum fullorðnum, sem voru að glíma við afleiðingar óhæfuverkanna árum og áratugum saman, í þögn og jafnvel í í skömm.

Vissulega voru þessi mál í umræðunni og þjóðin var oft reið, en eftir Thelmu var hún ekki söm.  

 

Það gerðist eitthvað, þjóðin reyndi að bæta sig, að hjálpa, að bregðast við, að þegja ekki.

"Við ákváðum ekki að verða sofandi samfélag" segir forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar.

Og óhætt er að segja að samfélagið hafi tekið svipaða ákvörðun og reynt að betra sig.  Það ætlar ekki að líða þessi brot, og það ætlar að reyna að hjálpa.

 

Það er ekki það sama og ástandið sé orðið gott í dag, en það er á réttri leið.

Og ekki bara í sambandi við kynferðisbrot, einelti, ofsóknir, ofbeldi, þetta er ekki liðið eins og var.

Það er verið að reyna að takast á við þessa hluti.

Af alvöru og af heilindum hjá fullt af fólki um allt land.  Hjá fólkinu í kerfinu, hjá fólkinu í skólunum, á heimilunum, út um allt samfélagið.

 

En það er ekki það sama og ástandið sé orðið gott, það tekur tíma að breyta, tíma að læra ný vinnubrögð, og rétt vinnubrögð, þau sem virka, bæði fyrirbyggjandi sem og þau sem takast á við vanda þegar hann kemur upp.

Líklegast er mesti sigurinn að sektin er ekki lengur hjá þolendum heldur gerandanum, og hjá þeim sem hafa ekki brugðist við þegar þeir áttu að bregðast við, þögðu eða litu í hina áttina, gerðu ekki sína skyldu.

 

En betur má ef duga skal.

Af hverju er ekki sett upp hjálparmiðstöð sem fær öll nauðsynleg fjárframlög frá hinu opinbera, líknarsamtökum, fyrirtækju, einstaklingum og öðrum sem láta sig málið varða, og þessi hjálparmiðstöð bíður öllum fórnarlömbum, sem eru lifandi á Íslandi í dag, alla þá nauðsynlega hjálp og aðstoð, sem þau telja sig þurfa til að ná aftur tökum á lífi sínu.

Mikið af þessu fólki er hvort sem er viðloðandi heilbrigðiskerfið því afleiðingar níðsins leita út í allskonar sjúkdóma, vanlíðan, heilsuleysi, heilsubresti, sem fólk leitar sér hjálpar við án þess að það sé tekið á grunnmeininu.  Fyrir þá sem virða engin rök önnur en fjárhagsleg, þá benda á að svona hjálp sparar þjóðfélaginu pening til lengri tíma, og eykur tekjur þess því bætt heilsa skilar sér í auknu vinnuframlagi.

Af hverju eru Stígamót ekki með ríflegan fjárstuðning frá hinu opinbera til að geta sinnt öllum þeim sem þangað leitað á þann hátt sem þau telja bestan.  Stígamót eru engu minni líknarsamtök en Rauði krossinn eða Hjálparsamtök kirkjunnar.  Þau brugðu við þegar aðrir brugðust.  

Af hverju eru fórnarlömb kynferðisbrotamanna ekki kortlögð og boðin hjálp og "meðferð" að fyrra bragði.  Kynferðisbrot eru oft vítahringur sem eiga sér rætur langt aftur í tímann, fórnarlamb í dag getur orðið gerandi á morgun.  Öll þekkjum við þessa góðu sögu Milenium sem var að benda á slík tengsl, að löngu dáið skrímsli gæti stýrt atburðum dagsins í dag. 

Það er ekkert samasem merki þarna á milli en það eru tengsl, tengsl sem hægt er að rekja, og rjúfa.

 

Og þar með er komið að mesta tabúi umræðunnar, af hverju er hefnd og reiði látin stjórna umræðunni????  Refsa, hegna, gelda, gera líf afbrotamannanna af algjöru helvíti. 

Réttlætingin er að þeir hafa gert líf annarra af algjöru helvíti.  Hið hundheiðna viðhorf Gamla Testamentisins í sinni tærustu mynd.  Að launa illt með illu, að vera verri en sá sem var vondur.

Að fordæma ekki verknaðinn heldur gerandann.  Að viðhalda vítahring illskunnar út í hið óendanlega því illskan finnur sér alltaf farveg.  Eða allt þar til hún mætir kærleik, við honum á illskan ekkert svar.

 

Mig langar að vitna í viðtal við Gunnar Hansson, eitt fórnarlamba Karls Vignis, en því viðtali gaf ein af Valkyrjum vallarins  að þar færi ein af perlum lífsins.

 

"Gunnar hefur áhyggjur af því að samfélagið komist ekki nógu langt í að takast á við umræðu af þessu tagi. „Það þarf að fara í grunninn á þessu, hvernig við getum tekist á við þetta. Það fer rosalega mikil orka í reiðina sem blossar upp, í því að kalla þessa menn skrímsli eða að þeir séu af hinu illa. Aftur segi ég að ég skil þessi viðbrögð, en ég hræðist þau líka. Ég sé veika einstaklinga sem þarf að koma af þessari braut," segir Gunnar. Fyrst og fremst þurfi þó að vernda börnin. „Ég er ekki með neina töfralausn, en ég vona að við náum að komast í einhverja átt fyrir börnin til þess að koma í veg fyrir að svona lagað komi fyrir aftur. Við þurfum að láta okkur aðeins renna reiðin og skoða þessi mál af yfirvegun," segir Gunnar. „Þetta eru svo hrikaleg og erfið mál að við þurfum að komast eitthvað lengra, eitthvað áfram" bætir hann við.

Ég er ekkert rosalega refsiglaður. Mér er miklu meira í mun að koma í veg fyrir að þetta komi fyrir aftur," segir hann. Það þurfi að taka á málum gagnvart þolendum. „Að þeir þori að koma fram með hluti sem þessa og þeim verði hjálpað," segir hann. Einnig að tekið verði á málum gerenda. „Þá er ég ekki að meina að það eigi að hengja þá upp á torgum. Í mínum augum eru þetta bara sjúkir einstaklingar sem þarf að takast á við. Við erum samfélag og við þurfum að takast á við það," segir Gunnar að lokum.".

 

Þetta eru sjúkir einstaklingar og siðað samfélag hjálpar sjúkum einstaklingum.

Aðeins þannig náum við tökum á vandanum, aðeins þannig náum við að rjúfa vítahringinn.

 

Siðað samfélag verndar líka börnin sín, það hlusta á þau, og það hlustar á foreldra þeirra þegar þeir vekja máls á níði, hvort sem það er kynferðislegt, einelti, misbeiting, eða það sem er útbreiddasta barnaníðið í dag, óttast að börnin fái ekki að sofa í rúmum sínum því rukkari verðtryggingarinnar ætlar að bera þau út á gaddinn.

Það er nefnilega meira barnaníð en það sem er kynferðislegt.

Alvarlegasta barnaníðið er að svipta börn heimilum sínum vegna tilbúinna tækja manna eins og verðtryggingar, eða vegna ólöglegrar gengistryggingar.  

Að koma börnum og heimilum landsins ekki til hjálpar eftir fjármálahamfarir er mesta smán í ellefu hundruð ára sögu landsins.  Áður fór fólk á vergang vegna fátæktar, og vegna samfélagsgerðar liðinna alda.  Í dag er vergangurinn stjórnvaldaðgerð, og slík stjórnvaldsaðgerð er því mesta níð Íslandssögunnar.

 

Þjóðin verður að fara horfast í augun á að barnaníðingar stjórna landinu og þeir eru svo sjúkir í sinni að þeir víla sér ekki að selja börn okkar og framtíð í hendur vogunarsjóða sem ætla sér að blóðmjólka og arðræna íslenskt samfélag.

Lægra getur manneskjan ekki lagst, sjúkari getur hún ekki orðið.

Og við sem þjóð þegjum.

 

Við áttum ekki að þegja þegar mál Karls Vignis kom upp, en hann á sér marga bræður, þó ekki séu þeir allir tengdir kyn-, heldur sjúklegri græðgi og siðblindu.

En eiga það sammerkt að vilja illt, að gera illt, að ætla illt.

Af hverju þegjum við, af hverju látum við níðið viðgangast???

 

Hvað er að okkur??

Hvað misfórst í uppeldi okkar.

Af hverju verjum við ekki börnin okkar fyrir öllu níði????

 

Þau þjást ef við þegjum.

Viljum við það??

 

Svari hver fyrir sig.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Tóku sig á eftir bók Thelmu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Sterk samlíking á viðbrögðum samfélagsins. Það er hryllingur að gerast í samfélaginu og enginn gerir neitt, þrátt fyrir vitneskjuna. Það fer einungis kaldur hrollur um okkur í morgunsárið og við kúrum undir heitri sænginni í stað þess að fara fram úr bælinu og koma hreyfingu á blóðið og gera eitthvað.

Íslendingar eru kveifur. Þeir ræða um hlutina sífellt og ergja sig á ástandinu, en gera ekkert. 

Hafðu þakkir fyrir þína pistla og tilraunir þínar að vekja upp liðið og brýna það til athafna.

Eggert Guðmundsson, 11.1.2013 kl. 16:08

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk Eggert.

" ... ergja sig á ástandinu, en gera ekkert."

Þetta er skýring þess að ekkert breytist, það er svo auðvelt að kvarta, auðvelt að hneykslast, en það þarf meira til að krefjast réttlætis.  

Til dæmis að hugsa.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.1.2013 kl. 17:47

3 identicon

Í 25 kafla Matteusarguðspjalls má finna eftirfarandi:

" 31 Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu. 32Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum og hann mun skilja þær að eins og hirðir skilur sauði frá höfrum.

33 Sauðunum skipar hann sér til hægri handar en höfrunum til vinstri.

34 Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: Komið þér, sem faðir minn á og blessar, og takið við ríkinu sem yður var ætlað frá grundvöllun heims. 35Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig, 36nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég og þér komuð til mín.

37 Þá munu þeir réttlátu segja: Drottinn, hvenær sáum vér þig hungraðan og gáfum þér að eta eða þyrstan og gáfum þér að drekka? 38 Hvenær sáum vér þig gestkominn og hýstum þig, nakinn og klæddum þig?

39 Og hvenær sáum vér þig sjúkan eða í fangelsi og komum til þín?

40 Konungurinn mun þá svara þeim: Sannlega segi ég yður: Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.

Á Íslandi eins og reyndar á flestum vestrænum löndum höfum við afsalað okkur ábyrgðinni á náunganum til hins almáttuga (vanmáttuga) ríkis og teljum okkur þá geta sofið betur því að það er ekki okkar að eiga við þetta.

Erlendur (IP-tala skráð) 11.1.2013 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband