En á því tímabili sem Geir Harde var ákærður fyrir aðgerðarleysi var aðeins eitt hægt að gera og það var að undirbúa neyðarlög sem brugðust við því ástandi sem yrði þegar bankarnir færu á hliðina.
Við megum ekki gleyma því að EES reglurnar gáfu bönkunum frítt spil og ef ríkisstjórnin ætlaði að snúa þá niður þá þurfti hún fyrst að segja upp EES samningnum og láta uppsögnina vera afturvirka.
Allar aðgerðir sem stönguðust á við EES hefðu skapað stjórnvöldum skaðabótaábyrgð sem þýðir á mannamáli að auk afleiðinga bankahrunsins (sem hefði óhjákvæmilega orðið ef stjórnvöld hefðu gripið til aðgerða) þá hefðu hluthafar bankanna og kröfuhafar getað hengt fall þeirra á herðar skattgreiðanda og fengið tjón sitt bætt þar til síðasta króna væri horfin úr ríkissjóði og þjóðin algjörlega gjaldþrota.
Ríkisstjórn Geirs Harde gerði það sem þurfti að gera, hún undirbjó neyðarlögin og lagði ekki almananafé í vonlausar björgunartilraunir.
Hún uppfyllti skyldur sínar, hún brást þeim ekki.
Vandinn átti sér dýpri rætur, lengra aftur í tímann.
Vandinn hét EES.
Kveðja að austan.
Varpar ljósi á hegðun margra Íslendinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 33
- Sl. sólarhring: 40
- Sl. viku: 2052
- Frá upphafi: 1412751
Annað
- Innlit í dag: 33
- Innlit sl. viku: 1805
- Gestir í dag: 33
- IP-tölur í dag: 28
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tryggvi Þór Herbertsson vitnaði að hann teldi að það hefðu verið mistök að yfirtaka Glitni, og allir bankarnir rúlluðu. Þetta er maðurinn sem er með 127 m.kr veð á sinni eign sem er 60 m.kr. að fasteignamati. Hver heilvita maður getur ímyndað sér hvað orðið hefði um lýðveldið Ísland ef yfirtakan hefði ekki orðið. Þeir sjallar sem hafa almenna skynsemi, strika yfir TÞH í næstu kosningum.
Hrúturinn (IP-tala skráð) 9.3.2012 kl. 10:43
Nákvæmlega!!!!! Eg er ekki flokksbundin en ég hef aldrei getað skilið þennann ofsa gagnvart Geir því það er svo augljóst að hann bjargaði þjóðinni með neyðarlögunum! Á ögurstundu gerði hann það eina rétta sem hægt var að gera í stöðunni.
anna (IP-tala skráð) 9.3.2012 kl. 10:46
Blessaður Hrútur.
Vissurðu að þið Tryggvi eruð nafnar???
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 9.3.2012 kl. 12:02
Sammála anna.
Takk fyrir innlitið.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 9.3.2012 kl. 12:02
Það hljómar C í loftinu Ómar minn og full ástæða til,
enda hefur Lilja verið fullkomlega heilsteypt og einörð í baráttu sinni fyrir okkur hina óbreyttu og venjulegu.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 9.3.2012 kl. 23:01
Hver veit Pétur, hver veit.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 10.3.2012 kl. 00:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.