Glæpastjórnin þarf að víkja.

 

Og allir þingmenn hennar að segja af sér.

Menn vissu kannski ekki betur um gengislánin en eftir að dómur féll þá ákvað ríkisstjórn Íslands einhliða að viðskiptavinir bankanna yrðu rændir.

Það heitir þjófnaður, sem er glæpur.

Ríkisstjórn Íslands er því glæpastjórn.

Og Ísland glæpamannaríki ef hún situr áfram.

 

Hraunið á að hýsa þetta fólk, ekki Alþingi.

Kveðja að austan.


mbl.is Sigmundur: Hæstiréttur dæmir ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allt heiðarlegt og sanngjarnt fólk tekur hilshugar undir réttmæta kröfu þína Ómar.

En mig langar að benda á, að það er dæmi um yndislega gráglettnina að nú situr í stól Árna Páls, sem ólögin eru kennd við, Steingrímur Jóhann Sigfússon sem barðist sem fjármálaráðherra fyrir hönd hrægamma og erlendra vogunarsjóða og reyndi ítrekað  að valdnauðga Icesave-klafanum á íslenskan almenning.  Nú situr hann sem efnahags-ogviðskiptaráðherra (auk landbúnaðar- og sjávarútvegsmála) og segir öllum að þegja sem benda honum á að hann sé nú berstrípaður sem keisarinn í allri sinni útrás til Brussel, höfuðstöðva ESB, þangað sem ferð hans var alltaf heitið, sama hvað hann reynir að þagga það niður.  Hann hefur logið og svikið svo oft að enginn, nema nánasta hirð hans, trúir honum lengur.  Traust þjóðarinnar á VG er nú mælt á nokkrum fingrum og þeir gefa honum brátt endanlega fingurinn.  Sömu sögu er að segja um hausfrau Johanna og allt flokkadráttaliðið undir pilsfaldi hennar, sem nú er tvístrað og veit að tími hennar er nú endanlega liðinn.

Munum að Lilja Mósesdóttir mótmælti kröftuglega á þingi ólögum Árna Páls og einnig ítrekuðum Icesave valdnauðgunar tilraunum Steingríms:  

http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/folk-sem-misst-hefur-allt-sitt-hlytur-ad-hofda-skadabotamal---their-sem-setja-svona-olog-eiga-ad-vikja

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 15.2.2012 kl. 19:27

2 identicon

Í fréttinni, sem ég vísa til segir ma.:

Dómur um vaxtagreiðslur gengislána féll í dag og er Lilja Mósesdóttir ein þeirra sem fagnar niðurstöðu dómsins.

Ég gekk út þegar lögin fóru í gegn á þingi og hef verið mjög ósátt bæði við lögin og svokallaða 110% leið. Samstaða fagnar þessari niðurstöðu sérstaklega en dómurinn kemur okkur þó ekki á óvart,

segir Lilja Mósesdóttir sem fer með forystu í Samstöðu. Hún vill nota tækifærið og skora á ríkisstjórnina.

Ég skora hér með á ríkisstjórnina að boða til kosninga sem allra fyrst. Ríkisstjórn sem er samþykk svona ólögum ætti að víkja.

Lilja segist einkum og sér í lagi vera ánægð fyrir hönd skuldsettra heimila.

Fólk sem misst hefur eignir sínar vegna þessara ólaga hlýtur að höfða skaðabótamál,

segir Lilja

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 15.2.2012 kl. 19:40

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Lilja er flott en ég skildi samt aldrei af hverju hún bauð sig fram fyrir VG því alþjóðlegt auðmagn hafði þá þegar innlimað flokkinn.

Það var eins og hún hefði aðeins lesið stefnuskrá flokksins eða ræður stjórnarandstöðuleiðtogans Steingríms Jóhanns Sigfússonar.

En ekki hvað Steingrímur sagði eftir að hann varð ráðherra.

En það er svo sem liðin tíð, vonandi gengur Lilju og öllu hennar fólki sem best að fóta sig fram að kosningum og virki sem alvöru afl á þjóðina.

Ekki veitir af.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 15.2.2012 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 179
  • Sl. sólarhring: 787
  • Sl. viku: 4627
  • Frá upphafi: 1329189

Annað

  • Innlit í dag: 155
  • Innlit sl. viku: 4082
  • Gestir í dag: 152
  • IP-tölur í dag: 150

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband