Meintar skuldir Runólfs eru ekki kjarni málsins.

 

Kjarni málsins er að núverandi ríkisstjórn, þrátt fyrir fögur fyrirheit sem jafnvel áttu stóran þátt í að koma henni til valda, að hún hélt áfram á þeirri braut flokks og klíkuráðninga sem höfðu stórskaðað þjóðfélagið á undangengnum árum.

Og eitt er að vera spillt ríkisstjórn, ljúgandi spillt ríkisstjórn er ennþá ógeðslegri.

 

Þjóðin  fór ekki í gegnum þrengingarnar 2008 til að fá yfir sig sömu vinnubrögðin, sömu gjörspilltu stjórnarhættina.

Sá tími á að vera liðinn að nauðsynlegt skilyrðir fyrir ráðningum hjá hinu opinbera sé rétt flokkspólitísk tengsl.  

 

Málið snýst ekki um að Runólfur hafi verið hæfur í embættið, málið snýst um  að það komu ekki aðrir til greina.

Þar liggur hnífurinn í kúnni.

Kveðja að austan.


mbl.is Vissi að Runólfur tapaði fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

já þú meinar - það komu ekki aðrir til greina að mati þessa ráðherra samspillingar

Jón Snæbjörnsson, 3.8.2010 kl. 12:34

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Akkúrat það er málið spilling og mafíustarfsemi af versta tagi!

Hendum þessu pakki út í haust þegar þingið kemur saman!

Sigurður Haraldsson, 3.8.2010 kl. 13:17

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Algjörlega sammála ykkur strákar, og hann er greinilega ekki meðvitaður, segist hafa vitað að Runólfur hafi tapað eitthverju en ekki hversu miklu... Hvernig voru hans mál skoðuð fyrir ráðninguna langar mig að vita, hverslags vinnubrögð eru þetta... En málið er eins og þú segir Sigurður það er þessari Ríkisstjórn sem verður að koma frá hið snarasta...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 3.8.2010 kl. 14:48

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir innlitið kæra fólk.

Hvað sem öðru líður þá tókst almenningsálitinu að koma vitinu fyrir málsaðila.

Flokksráðning í þetta embætti var alltaf dauðadæmd, burtséð frá meintri hæfni flokkshestsins.

Og ef almenningur heldur vöku sinni þá mun þetta ekki gerast í bráð.  Þingmönnum þykir alltof vænt um stóla sína til  þess.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.8.2010 kl. 21:47

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þeir munu ekki sitja stólana öllu lengur Ómar við sjáum til þess í haust að koma pakkinu frá!

Sigurður Haraldsson, 4.8.2010 kl. 00:41

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Sigurður.

Ég sé  um títuprjónana, þú mætir í útburðinn.

En eru ekki allir ligegladir???

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.8.2010 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 995
  • Frá upphafi: 1321547

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 834
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband