17.5.2010 | 19:34
Fíflaskapur er betra en landsöluflokkar.
Það er allt betra en landsöluflokkar.
Það er þjóðarsmán ef ríkisstjórnarflokkarnir fá 1 mann kjörinn í Reykjavík.
Þeir sem sviku stefnu sína, loforð sína, unga fólkið, þeir sem afhentu amerískum vogunarsjóðum eignarhaldið á nýju bönkunum okkar, þeir sem starfa með Óbermum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þeir eiga ekkert erindi í neinn valdastól á Íslandi.
Og að leyfa skúffufyrirtæki sölsa undir sig orkuauðlindir Suðurnesja, það er landsala, glæpur gegn þjóðinni.
Þá skal ég viðurkenna að Jón Gnarr sé þúsund sinnum betri en þetta lið, allt með tölu.
Ekki það að hugsandi maður eins og Jón á fullt erindi í borgarstjórn, en ekki út á fíflaskap heldur út á sinn frjóa og mennska huga sem fjórflokkurinn týndi niður í græðgivæðingu þjóðfélagsins.
En það er ekki á allt kosið, landsala er aldrei valkostur.
Og myndbandið er flott.
Kveðja að austan.
Besti flokkurinn stærstur í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 289
- Sl. sólarhring: 803
- Sl. viku: 6020
- Frá upphafi: 1399188
Annað
- Innlit í dag: 247
- Innlit sl. viku: 5102
- Gestir í dag: 234
- IP-tölur í dag: 231
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Rétt hjá þér. Grínið er á kostnað hinna flokkana ekki kjósenda einfaldlega vegna þess sem þú segir og ekki síst fyrir það að þingmenn þessara flokka sem voru í hruninu eru enn á þingi og þeir alþingismenn sem þáðu hæstu styrkina eru enn að. þangað til að þetta fólk segir af sér eða að flokkarnir gera eitthvað raunverulega í sýnum málum þá náttúrulega verður þetta niðurstaðan, það er bara þannig. allavega frá mínum bæjardyrum séð og ég mun kjósa besta flokkinn þangað til ég sé einhverja raunverulgar lausnir frá þessu fólki.
þórarinn (IP-tala skráð) 17.5.2010 kl. 20:02
Blessaður Þórarinn.
Með því að sparka í Grínflokkinn í fyrri bloggum mínum þá var ég fyrst og fremst að hreyfa við fólki, að öll framboð þurfi innihald. Annað sé aðför að lýðræðinu.
Og af hverju er ekki hægt að hafa innihald, þetta er jú hugsandi fólk. Og það meira að segja vel hugsandi. Mörg viðtöl við Jón hafa vakið athygli mína fyrir hugsun og innihald, enda er slíkt forsenda góðs gríns, frjór og hugsandi hugur.
En það verður ekki á allt kosið, og kannski mun flokkurinn kasta af sér gríninu og breyta sér í alvöru framboð síðustu dagana fyrir kosningar.
Gera til dæmis ríkisstjórnina óvelkomna í Reykjavík ef hún grípur ekki strax til raunhæfra aðgerða í þágu heimilanna, líkt og Hagsmunasamtök þeirra hafa margoft útfært á skynsaman hátt.
Má alltaf vona en ég viðurkenni mistök mín, allt er betra en landsöluhyski.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 17.5.2010 kl. 20:35
Það væri þjóðarsmán ef Sjálfstæðisflokkurinn fengi einn fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur. Nenni ekki að rökstyðja það. Þarf þess ekki. Það er svo augljóst. Enginn einn flokkur hefur gagnast þjóð sinni jafn illa, þrátt fyrir góða spretti á stundum. Þrátt fyrir góðan vilja á stundum, en endalausar vitlausar ákvarðanir, sem reyndust þjóðinni þungbærari en tárum taki. Til lukku Jón Gnarr!
Polli, 17.5.2010 kl. 22:08
Eru þeir ekki sekir um glæp, útskúfaðir??
Þú sérð Polli minn að jafnvel ég sé ljósið.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 17.5.2010 kl. 22:43
Það er gott að sjá ljósið, í öllu því myrkri sem umlykur þjóðina. Ég á bara sprittkerti.
Polli, 17.5.2010 kl. 22:49
Varla sendir það frá sér myrkur????
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 17.5.2010 kl. 23:51
Nei, bara smá týru. Sem ég ætla að nýta í svartnætti íhaldsins fyrir þessa þjóð. Ég á nokkur svona.
Polli, 17.5.2010 kl. 23:56
Líst vel á það Polli.
Megi Týran skýna sem víðast.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 18.5.2010 kl. 06:44
Merkilegt að Þór Saari segi: alvarleg þróun í stjórnmálaUMræðunni á Íslandi.
Ekki einfaldlega: alvarlega þróun í stjórnmálum á Íslandi.
Vil nú sjá þessi orð Þórs sem viðvörun: Hlunkið ykkur af strandstað fyrir
sólsetur, ella taka einhverjir ótíndir skemmtikraftar við stjórn!
Og btw, þið getið gleymt eftirlaununum.
Þið verðið bara sett í sama dilk og allir hinir sauðirnir.
Þórdís Bachmann, 18.5.2010 kl. 18:33
Blessuð Þórdís.
Ég leit þetta sömu augum, en svo fór ég að hugsa, að það er ekki þannig að þetta fólk hafi ekki margt gott fram að færa, svona þegar kafað er djúpt undir grínið. Og þetta er ógn svo hinir endi ekki allir í húsdýragarðinum.
Og fólk sem selur land sitt og auðlindir, er jú best geymt þar hjá hinum skepnunum.
Svo kannski var maður fullfljótur á sér að stjaksetja Besta fólkið.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 18.5.2010 kl. 18:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.