11.1.2010 | 10:09
Ærulaus Paul Fitch reynir að réttlæta mútuákvörðun sína.
Fyrst skulum við ekki gleyma því að það eru meiri lýkur á að fiskiskipi setji sjó á olíutanka sína og haldi síðan á miðin, en að þjóðir öðlist traust lánamarkaða með því að taka á sig óbærilegar skuldbindingar.
Það er engin hagfræði á bak við slík rök.
En Paul Fitch hljóp á sig þegar hann tilkynnti lækkun lánshæfimats síns sama dag og forseti Íslands tilkynnti að Ísland væri sjálfstætt lýðræðisríki.
Vissulega var ákvörðun forsetans umdeild, en Paul Fitch vissi ekkert um hver viðbrögðin yrðu. Hann vissi ekkert um hvort Norðurlöndin myndu hætta við lánafyrirgreiðslu sína. Hann vissi ekkert um viðbrögð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, og hann vissi ekkert um viðbrögð umheimsins.
Enda hefur það komið á daginn að ekkert af hinum meinta ótta Paul Fitch gekk eftir. Ef eitthvað var þá styrktist staða íslensku þjóðarinnar í kjölfar ákvörðun forsetans að tilkynna að Ísland væri lýðræðisríki, enda hvernig á annað að vera í álfu sem er vagga lýðræðisins.
Eftir stendur sú spurning, hver pantaði þessi mistök Paul Fitch??
Hans vegna vona ég að múturnar hafi verið það háar að þær vegi upp á móti þeim skaða sem hann olli fyrirtæki sínu.
En, bara að jóka, megi gullið standa í honum eins og Mídasi forðum.
Það er ljótt að selja sálu sina andskotanum.
Kveðja að austan.
Fjármögnun sett í uppnám | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 505
- Sl. sólarhring: 678
- Sl. viku: 6236
- Frá upphafi: 1399404
Annað
- Innlit í dag: 427
- Innlit sl. viku: 5282
- Gestir í dag: 392
- IP-tölur í dag: 386
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.