Aðeins aumingjar níðast á smælingjum.

 

Hollendingar eru að uppgötva að þeir eru aumingjaþjóð. 

Með aðstoð íslensks landráðafólks ætla þeir að ræna íslenskan almenning velferð sinni og hagsæld. 

Gera íslenska skattgreiðendur  ábyrga fyrir hrun banka á hollenskum fjármálamarkaði.  Vegna þess að eigendur þessa banka voru íslenskir.

Bandarískir bankar hrundu líka.  Þeir störfuðu í Hollandi.  Og Hollendingar töpuðu miklu fé á því hruni, margföldu þess sem þeir töpuðu á íslenskum bönkunum.

En Hollendingar krefja ekki bandaríska skattgreiðendur um endurgreiðslu.  

Þora því ekki.  

Þeir vita líka að það þarf aðstoð innlendra Bandaríkjamanna við að innheimta þá kröfu.  En í Bandaríkjunum er landráðamönnum stungið í fangelsi, og þeir einbeittustu enda í rafmangsstólnum.  

En á Íslandi eru slíkir menn látnir stýra fjölmiðlum, kosnir í ríkisstjórn, og hampað á allan þann hátt sem hægt er.  Frá bankahruninu hefur vísasta leiðin til frama á Íslandi verið einbeittur vilji til föðurlandssvika.  

Þess vegna réðust Hollendingar á Ísland.  

En það breytir því ekki að um aumingjaskap er að ræða.

Og á það benda hollenskir bloggarar. 

Þeir vita líka eins og er að það er siðleysi að ræna smælingja, og aðeins samviskulausir þorparar byggja velmegun sína á ránsfeng.

Það skiptir engu máli þó það séu innlendir Leppar sem afhenda þeim ránsfenginn.  Þjófnaður er þjófnaður, og þjófur alltaf þjófur.

Og nútíma Hollendingur er ekki þjófur.

Og þeir skammast sín fyrir ríkisstjórn sína.

En 53% Íslendinga eru stolt af mönnunum sem fríviljugir afhenda Hollendingum ránsfenginn.

Svona er margt skrítið í kýrhausnum.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Hollenskir bloggarar undrast hörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það munaði litlu að illa færi forsetin gerði okkur mikinn greiða með að skrifa ekki undir við verðum að nýta okkur það ein vel og hægt er.

Sigurður Haraldsson, 8.1.2010 kl. 09:44

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Sigurður.

Við fellum auðvita samninginn.  Eða það vona ég.

Stefnum síðan bretum og Hollendingum fyrir dóm, og látum réttlætið skera úr um.

Lög eru til að fara eftir.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 8.1.2010 kl. 10:05

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Kýrhausar er nánast lofsyrði um mörg toppstykki þessarar undarlegu þjóðar. Hann Valdimar sálugi í Bólu í Blönduhlíð vandaði málfar sitt þegar hann verslaði í kaupstaðnum. Eitt sinn kom hann í kaupfélagsbúðina Gránu á Króknum til að kaupa hrífuhausa.

Hann bað um alominiumhöfuð.

Erum við Íslendingar ekki bara komnir með álhausa?

Árni Gunnarsson, 8.1.2010 kl. 11:05

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Árni.

Þetta er spurning, um álhausana.  

En það er samt margt skrýtið í kýrhausnum.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 8.1.2010 kl. 11:23

5 Smámynd: Elle_

Eitt sinn kom hann í kaupfélagsbúðina Gránu á Króknum til að kaupa hrífuhausa.

Hann bað um alominiumhöfuð.

Erum við Íslendingar ekki bara komnir með álhausa?   Smilie

Elle_, 9.1.2010 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 29
  • Sl. sólarhring: 914
  • Sl. viku: 4477
  • Frá upphafi: 1329039

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 3955
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband