23.9.2023 | 21:49
Fyrsti meinti íslenski raðmorðinginn.
Og helsjúkt kerfi segist ekki hafa tíma.
Sjúkleikinn er síðan algjör þegar Landsspítalinn réði hinn meinta fyrsta íslenska raðmorðingja í sérverkefni, þvílík var vanvirðingin gagnvart fórnarlömbum þessa manns.
Á meðan þessi viðbjóður átti sér stað, þá var Landlæknir upptekinn við gerð heimildarmyndarinnar Storm, þar sem hver klippan á fætur annarri sýndi meinta samúð Landlæknis með hlutskipti aldraða sem fengu kóvid veirunna, eins og Landlækni væri ekki sama.
Samt þurfti Embætti Landlæknis fjölmiðlaumfjöllun til að grípa inní hinn meintu fjöldamorð á Suðurnesjum.
Og með vissu veit ég að hjá Embættinu hefur ekkert breyst, gangsterar í hvítum sloppum taka lífsnauðsynleg lyf af öldruðu fólki, fólki sem býr við góð lífskilyrði fái það aðeins sín lyf, og þegar aðstandendur kvarta, þá er þeim sagt að þeir séu númer 346 í biðröðinni, mál þeirra verði tekið fyrir eftir sirka 4 ár.
Skyldu aðstandendurnir á fórnarlambanna á Suðurnesjum hafa fengið svipuð svör þegar grunur þeirra vaknaði fyrst um morðæðið??
Hingað var fenginn erlendur læknir á ráðstefnu um ábyrgð heilbrigðisstarfsmanna og heilbrigðiskerfisins á mistökum, þar sem hann sagði sína sögu, og hvernig hann var maður til að viðurkenna mistök sín, því öllum getur orðið á mistök.
Mistök hans voru banvæn, en hann viðurkenndi þau strax, baðst afsökunar, hann lagði ekki þá þrautargöngu á aðstandendur að þurfa að sækja rétt og réttlæti gegn herskörum siðblindunnar sem viðurkenna aldrei neitt, og bakka hvorn annan upp.
Hvað skyldu margir læknar hafa horft uppá viðbjóðinn á Suðurnesjum, og gerðu ekki neitt, sögðu ekki neitt, horfðu í hina áttina þegar lífsnauðsynleg lyf voru tekin af fólki sem hafði sama rétt til lífsins og við hin??????
Hver er sekt þeirra, því sæta þeir ekki ábyrgð fyrst þeir hafa ekki manndóm til að játa heigulshátt sinn, og hin banvænu mistök að hafa ekki gripið inní dauðaferlið sem átti sér stað beint fyrir framan nefið á þeim??
En hver eru orð skinhelgarinnar, þess embættismanns sem mesta ábyrgðina ber að enginn er lærdómurinn, að siðblindan og siðleysið er algjört í lærdómnum af hinu meintu raðmorðum á Suðurnesjum??
Vitnum í frétt Morgunblaðsins um orð Landlæknis eftir þessa ráðstefnu.
Fyrirsögn fréttarinn er "Mikilvægt að heilbrigðiskerfið læri af mistökum" og vitnað í Landlækni. "Hún segir að frumvarpið sé mikilvægt til að tryggja að lært sé af alvarlegum atvikum er þau koma upp og að þau gerist ekki aftur, "frekar en að leita að sökudólgum".".
Í viðtali við Ríkisútvarpið segir Landlæknir, mikilvægt að gangast við mistökum, biðjast afsökunar og læra af þeim.
Samt grípur embætti hennar ekki inní þegar aðstandendur kvarta yfir gangsterum í hvítum sloppum sem setja sjúklinga sína á samheitalyf sem vitað er að sjúklingurinn svarar ekki, þá er eina svarið að erindi þínu verður svarað eftir 4 ár, hvort viðkomandi deyi í millitíðinni er ekki okkar mál.
Tölfræðin sannar að konur fái margfalt verri þjónustu og greiningar en karlar, en þegar Embætti landlæknis er bent á raungerningu þessarar tölfræði, þá er það ekki þess mál, hvað eru nokkur ótímabær dauðsföll á milli vina?
Harmleikurinn á Suðurnesjum er ekki einsdæmi, heldur aðeins toppurinn á ísjaka sem helsjúkt kerfi reynir að þagga niður, og þegar það mistókst hjá Embætti Landlæknis, þessir helv. fjölmiðlar, þá reynir embætti ríkissaksóknara að svæfa málið.
Hvað er svo flókið við þetta mál annað en kerfisbresturinn að aðrir læknar reyna réttlæta hin ótímabæru dauðsföll??
Réttlæta hin meintu raðmorð eins og það sé eitthvað læknisfræðilegt að taka lífsnauðsynleg lyf af sjúklingum.
Hin grímulausu skilaboð eru þau að ef þú ert langveikur, ef þú ert aldraður, og sérstaklega af fyrstu tveimur skilyrðum uppfylltum, að þú sért kona, þá máttu missa þig, jafnvel þó þú fáir óumbeðna hjálp til þess.
Það er sparnaður í því og Vörðurinn um þann sparnað er Embætti Landlæknis og Embætti ríkissaksóknara.
Og við hin horfum uppá þetta og steinhöldum kjafti.
Hvað segir það um okkur og okkar siðferði??
Hvar eru fjölmiðlar okkar, hvar er fjölmiðlafólk okkar??
Í Kanada voru grafnar upp fjöldagrafir með hundruðum ungra barna af frumbyggjaættum, sem dóu ótímabærum dauðdaga á barnaheimilum ríkisins fyrir frumbyggjabörn, sem voru tekin nauðug af foreldrum sínum.
Það tók áratugi fyrir aðstandendur þessara barna að ná fram réttlæti fyrir börn sín, til að þarlend stjórnvöld öxluðu ábyrgð og bæðust afsökunar.
Ég efa samt að siðblinda þarlends landlæknis hafi verið á það háu stigi, að í afneitunarferlinu miðju, hafi hann mætt kotroskinn í viðtal og sagt; Mikilvægt að við lærum af mistökum okkar, öxlum á þeim ábyrgð og biðjumst afsökunar.
Á allri skömm eru jú takmörk.
Hvað skyldi Holokaust íslenskra kvenna fela í sér mörg lík ef læknaskýrslur yrðu skoðaðar og farið yrði yfir sjúkdómsgreininguna; "Lést vegna aldurs", en hið raunverulega banamein var ótímabært andát vegna þess að lífsnauðsynleg lyf voru tekin af viðkomandi.
Og læknarnir sem áttu að sjá það horfðu í hina áttina.
Ypptu öxlum líkt og gert var á Suðurnesjum.
Það munum við ekki vita á meðan allir þegja.
Félag eldri borgara, Kvenréttindafélag Íslands, fjölmiðlar þjóðarinnar.
Það þögðu reyndar flestir í Kanada, en samt gafst réttlætið ekki upp, réttlætið sem hefur sig upp yfir svikið réttlæti hins helsjúka kerfis sem þaggar, sem reynir að réttlæta mannaníð sem ekki er hægt að réttæta.
Og að lokum var Holokaust þarlendra frumbyggjabarna afhjúpað.
Hér er það bara lítil frétt að hinn meinti fyrsti íslenski raðmorðingi starfi áfram innan heilbrigðiskerfisins og að réttarkerfi okkar hafi ekki tíma til að skoða mál hans.
Og að sambærileg mál sem koma inná borð Embættis Landlæknis séu númer 346 í biðröðinni, og verði tekin til skoðunar mörgum árum eftir að hægt var að bjarga lífi þess sem það var beðið um að bjarga.
Ömmur, langömmur, so what??
Í þessu samhengi er hinn meinti raðmorðingi skásta eintakið um mannvonsku og siðblindu.
Og skinhelginni er ekki logið uppá núverandi Landlækni.
Læra hvað!!.
Þessu fólki er ekki viðbjargandi, en við sem þjóð eigum ekki að líða það.
Þá er skömm okkar margfalt meiri en þeirra.
Kveðja að austan.
Mál læknisins enn á borði saksóknara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 23. september 2023
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 129
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 113
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar