16.1.2022 | 13:32
Óður til sýndarmennskunnar.
Orðvar, kurteis maður segir að það sé ólíklegt að nýlegar sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda muni skila tilætluðum árangri, enda er faraldurinn mestur meðal barna, unglinga og ungra fullorðinna í mennta og háskóla.
Þýtt yfir á mannamál, þær eru sýndarmennskan ein.
Fjölmiðlar hafa upplýst að sóttvarnalæknir lagði til aðgerðir sem duga til að ná niður smiti, aðgerðir í ætt við þær sem náðu niður samfélagssmitinu vorið 2020.
Ríkisstjórnin samþykkti ekki tillögur hans enda vandséð hvernig hægt væri að réttlæta lokun samfélagsins vegna pestar sem þjóðin er varin gegn með bólusetningum, og flestir vita ekki að því að þeir eru sýktir, aðrir finna fyrir lítilsháttar kvefeinkennum.
Í stað þess samþykkti ríkisstjórnin samkomutakmarkanir á fullbólusett fólk, sem er ekki að veikjast eða sýkja aðra, og jú, bannaði ungum karlmönnum að drekka brennivín á krám og öldurhúsum, broslegt í ljósi þess að brennivínsþorsti finnur sér alltaf sínar leiðir, sérstaklega þegar náttúran spilar inní.
Ríkisstjórnin taldi sig ekki geta lokað aðalútbreiðslusvæðum veirunnar, skólum landsins enda menntun mikilvæg, og einhvers staðar þurfa blessuð börnin að vera svo fólk geti unnið.
Skynsamt fólk skilur þau rök, en þar með þrýtur ekki skynsemi þess, það spyr sig; Til hvers voruð þið þá að grípa til annarra aðgerða sem engu máli skipta, eru íþyngjandi fyrir samfélagið, loka í raun á allt eðlilegt mannlíf?
Til hvers??
Það hlálegast er kannski það að miðað við þá nálgun að nota nútímatækni, PCR prófin, til að greina smit en ekki veikindin sjálf, þá er ekki hægt að halda skólunum opnum þegar allir eru heima í annaðhvort sóttkví eða einangrun.
"Ákvarðanir stjórnvalda í sjálfu sér breyta engu þar um. Skólar loka ef ekki er hægt að halda úti mannskap sem dugar til að halda uppi að minnsta kosti öryggissjónarmiðum," segir Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara".
Og það eru ekki bara skólarnir sem loka, PCR prófin leita út samfélagið, foreldrar og systkini eru send í einangrun eða sóttkví, vinnufélagar, fólk sem hefur hitt viðkomandi á fundum eða í félagsstarfi.
Nýleg saga úr litlum bæ skýrir þessi dómínóáhrif. Einkennalaus nemandi smitar kennara sem er einkennalaus, hann fer í félagsstarf þar sem allra sóttreglna er gætt, en fyrst hann er með PCR próf, þá þurfa allir sem þar voru að fara í sóttkví eða smitgátt, það raskar víða starfsemi í litlu samfélagi. Fólk getur ekki sinnt störfum sínum ef þau byggjast á samskiptum við aðra, þar sem margir nemendur dreifðu smitinu, þá eru svona dómínóáhrif mörg út í samfélagið.
Afleiðingin er höktandi mannlíf þar sem fáir eru veikir, en fjöldinn með PCR próf. Og aðeins tímaspursmál hvenær ekki er hægt að sinna veiðum og vinnslu, sem allt mannlíf byggist á.
Þetta er heimskara en það sem heimskt er.
Þjónar engum tilgangi en að skaða samfélagið.
Við lifum kannski á tækniöld, en við erum samt lífverur, og við getum ekki yfirgefið hin fornu sannindi að það eru veikindi sem ákveða hvort fólk er veikt, ekki nútímahátæknipróf, sem voru ekki einu sinni til staðar fyrir nokkrum árum síðan.
Var þá bara enginn veikur, spítalar óþarfir því engin voru PCR prófin??
En eitt er samt heimskara en þessi Óður til sýndarmennskunnar.
Alþjóða heilbrigðisstofnunin áætlar að um 40% Evrópubúa muni smitast af hinu bráðsmitandi Omikron afbrigði veirunnar.
Sem segir að þessi veira verður ekki hamin með takmörkuðum samfélagslokunum, þær draga aðeins faraldurinn á langinn.
Með öðrum orðum, það er verið að skaða samfélagið án nokkurs ávinnings.
Alvarleikinn við þá heimsku er sá að líftími bólu mRN bóluefnanna sem verja okkur, er skammvinnur, 3-5 mánuðir.
Sá tími er næstum liðinn fyrir þá sem eru i áhættuhópum og fengu því bóluefnið fyrst allra, þar með talið þriðju sprautuna.
Það að draga faraldurinn á langinn er því bein aðför að lífi þess og limum, er í raun tilraun til fjöldamorða því það eru bóluefnin sem vernda, ekki núgildandi sóttvarnir.
Kurteis maður sagði að það væri ólíklegt að nýlegar aðgerðir stjórnvalda myndu skila tilætluðum árangri.
Vonandi ná orð hans eyrum landsmanna, að skynsamt fólk láti ekki bjóða sér þessa nútímaútgáfu af sögunni um klæðalausa keisarann.
Ég er ekki kurteis.
Ég get ekki annað en sagt það hreint út að þetta er sýndarmennska fólks sem hefur bugast af álagi raunveruleikans, haldi það fast við mistök sín, þá er það ekki starfi sínu vaxið.
Ber því að víkja hafi það ekki manndóminn til að gangast við sínum röngum ákvörðunum, aflétti óþarfa samkomutakmörkunum, leyfi mannlífinu að flæða eðlilega á ný.
Og geri það sem það á að gera, efla heilbrigðiskerfið á neyðarstundu með þeim lögum og reglum sem Alþingi hefur sett þar um.
Það er búið að lýsa yfir neyðarástandi almannavarna.
Í því felst ekki að menn eigi að grípa til sýndaraðgerða eins og Foringinn í byrginu sem færði til herdeildir sem voru ekki til svo hægt yrði að stöðva stórsókn Rússa. Varð svo brjálaður þegar sýndarherdeildirnar höfðu ekki sigur á raunverulegum herjum.
Það er orrusta í gangi á Landsspítalanum, heilbrigðu fólki er þar haldið fjarverandi vegna PCR prófa, telji almannavarnir sig ekki hafa styrk til að stöðva þá gjörð, þá ber almannavörnum að koma mannskapi annars staðar úr þjóðfélaginu inná spítalann.
Það er það sem felst í orðinu "Neyðarástand", ekki að þá sé gripið til sýndarráðstafana.
Það er ekki fyndið hvernig tíðarandinn hefur skilað af sér leiðtogum sem engan kjark hafa eða snerpu til að takast á við tilfallandi erfiðleika eða eitthvað sem flokkast má sem neyðarástand eða muni leiða til neyðarástands.
Er ekki búið að tala um komandi hamfarahlýnun í um 30 ár (Ríó 1992)?, og nauðsyn orkuskipta, raunveruleikinn eftir allt innlenda málæðið er orkuskortur.
Er ekki kórónúveiran búin að herja frá síðla vetur 2020?, ástandið á gjörgæsludeild Landsspítalans samt mjög svipað og það var fyrir faraldurinn, undirmönnun, of fá rúm, alltof mikið álag á starfsfólk, kulnun, mikil starfsmannavelta
En þetta hættir að vera fyndið þegar á reynir, að þá sé gripið til sýndarráðstafana, hvað þá skaðlegra sýndarráðstafana eins og gripið var til fyrir helgi.
Mig langar að vitna í góða frétt sem ég las áðan á Mbl.is þar sem talað var við menntaskólakrakka um týndu árin, þar sagði einn strákur, örugglega yngri en 20 ára, allt sem segja þarf um þann sorglega raunveruleik sem blasir við eftir tveggja ára faraldur kórónuveirunnar;
"Ísak León segir unga fólkið pirrað á ástandinu og það vilji komast út og njóta áranna þar sem það er mitt á milli þess að vera börn og fullorðin. "Það eru náttúrulega komin tvö ár," segir Ísak.
Hann gagnrýnir að heilbrigðiskerfið hafi ekki verið bætt þannig að hægt sé að taka á móti fleiri Covid-sjúklingum á spítala en undanfarna daga hefur þeim fjölgað hratt á Landspítalanum. "Það er eiginlega ekkert búið að gera þannig að hægt sé að taka á móti fleiri," segir Ísak. Hann segir flesta sem hann þekki hrausta og heilbrigða þótt auðvitað þekki margir fólk í áhættuhópum.
Hann veltir því fyrir sér hvenær hamlanir vegna faraldursins hafi meiri áhrif en faraldurinn sjálfur. "Þetta er pirrandi en á sama tíma erfitt að koma þessu rétt frá sér," segir Ísak sem vill opna samfélagið meira og einnig passa að "það fari ekki allt í fokk" á spítalanum.".
Það er nefnilega eiginlega ekkert búið að gera til að fjölga gjörgæslurúmum og það er hægt að hafa samfélagið opnara án þess að allt fari í fokk á spítalanum.
Þetta sjá unglingarnir.
Af hverju ekki stjórnvöld??
Og hví gera ekki almannavarnir ekki skyldu sína??
Spyr sá sem ekki veit en grunar margt.
Hefur einhver heyrt getið um silkihúfur??
Kveðja að austan.
![]() |
Erum á leið út af sporinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 16. janúar 2022
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.5.): 0
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar