13.4.2021 | 16:06
Þegar vanvitið fær vægi.
Þá fáum við svona frétt.
Og þá er ég ekki að vísa í hægri öfgamanninn, sem hefur það einbeitta markmið að fækka kjósendum Sjálfstæðisflokksins, sem fékk sína fréttaskýringu í gær þar sem hann vísaði í dóm vina sinna, í dómarastétt, heldur þá sorglegu staðreynd að Svanhvít, er út á túni í vörnum þjóðarinnar á landmærunum.
Svo ég vitni í spurningu blaðamanns og svar hennar;
"Sýnir þetta að það sé mögulega ónauðsynlegt að skima bólusetta við komuna? Það sýnir okkur alla vega að hingað til erum við að sjá að við getum treyst þessum bólusetningum en það auðvitað brýnir okkur líka í því að fylgjast mjög vel með þessu. Ég held að það sé ekki ástæða til að hætta þessu,".
Spurningin var um þá staðreynd að bólusettir hefðu ekki mælst smitaðir í fyrri skimun.
Nema það er ekki seinni skimun.
Var okkur ekki sagt sömu vitleysuna fyrir tæpu ári síðan, þegar ein skimun á landamærum átti að verja þjóðina.?
Allir vita hvernig það fór, mánuðir eftir mánuð, vorum við í herkví sóttvarna, þúsundir samlanda okkar voru sviptir lífsviðurværi sínu, engin leikhús, engir tónleikar, engin líkamsrækt, engar íþróttir, veislur, mannfagnaðir.
Svo vogar heilbrigðisráðherra sér að kóa með heimskunni og endurtaka þessa vitleysu.
Þegar það er vitað að það þarf tvær skimanir á landamærunum til að þau haldi.
Myrkraöfl stjórna Morgunblaðinu, varðandi kóvid er það ekki þessa heims.
En síðast þegar alþjóð vissi þá var Svanhvít þessa heims, og í liði með þjóðinni.
Samt lætur hún þetta út úr sér, að ein skimun dugi til að verja landamærin, þegar raunveruleikinn segir allt annað.
Og bólusett fólk, nýsmitað er engin undantekning þar á.
Fékk Svanhvít ekki fréttirnar í dag, um smitið sem lak inn yfir landamærin?'
Af hverju kóar hún með myrkrinu á Mogganum??
Hún sveik í ICEsave, en af hverju þarf hún að bregðast núna??
Eðlilegt líf þjóðarinnar er komið undir tveimur skimunum á landamærunum, og öruggri sóttkví þar á milli.
Allt annað er bein árás á líf okkar, því veiran finnur sinn farveg, til að sýkja, til að veikla, og þá er svar stjórnvalda alltaf það sama, sóttvarnarhandjárn á þjóðina.
En að tækla flakkið á landamærunum, sem prómil þjóðarinnar tekur þátt í, það er ekki í umræðunni.
Hinir fáu, hinir afbrigðilegu, halda restinni af þjóðinni í herkví.
En sökin er ekki þeirra.
Því þegar hið afbrigðlega, óeðlið tekur yfir almannahag, þá er skýringanna ekki að leita í óeðlinu, heldur þeirra sem sjá sér hag í að níðast á þjóð sinni og bera fyrir sig mannréttindi viðrina á kostnað hins helga rétt þjóðar að fá að verja sig gegn ytri ógn, hvort sem það er af völdum erlends ríkis, eða heimsfaraldurs drepsóttar.
Sökin er hjá þessu fólki.
Ekki samlöndum okkar, eins ömurlegir og þeir eru, sem telja sig hafa rétt á að ógna okkur hinum, með því að virða ekki sóttkví á landamærum.
Það er Svanhvítar að skera úr um hvort hún tilheyri þjóð sinni eða ógnaröflunum.
En þar duga ekki orð, heldur gjörðir.
Sem og að hundskamma það fjölmiðlafólk sem vinnur fyrir myrkrið, og spyr þeirra spurningar sem hún gat ekki svarað eins og maður.
Það þarf ekki að skríða fyrir myrkrinu eða ógnaröflunum.
Það þarf að mæta þeim.
Það gerði Svanhvít ekki.
Segir margt.
Kveðja að austan.
![]() |
Sérreglur fyrir bólusetta ekki í kortunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.4.2021 | 13:42
Nei, eru landamærin strax farin að leka??
Og þjóðinni hótað sóttvarnarhandjárnum uppá nýtt?
Eða hvernig á að skýra þessi orð Þórólfs á annan hátt?? "Í tveimur tilfellum er ekki klár tenging við önnur smit eins og staðan er núna.".
Vissulega er beðið eftir raðgreiningu veirunnar, en mikil má tilviljunin vera, að sama óþekkta smitið sem hefur verið á kreiki í nokkrar vikur, valdi smiti sem greinist á Suðurnesjum, Vesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu á sama tímapunktinum, og engin augljós tengsl eru á milli þeirra smituðu.
Og þó það væri gaman að berja á ógæfufólkinu í lögfræðistétt, sem skemmdi varnir þjóðarinnar á landamærunum, þá verðum við líka að íhuga hvað felst í að pappír um bóluefni eða fyrri smit sleppi fólki við sóttkví.
Hópsmitið í Mýrdalnum var vegna slíkra pappíra sem veiran bara því miður tók ekki mark þó íslensk sóttvarnaryfirvöld geri slíkt.
Þar var smitberinn einstaklingur sem framvísaði vottorði um fyrra smit, en reyndist vera með nýsmit i sér engu að síður, og smitaði út í sitt nánasta umhverfi.
Gæfa þjóðarinnar var að viðkomandi vann á fámennu vinnustað í dreifbýlinu, annars hefði stórslys út frá sóttvarnarsjónarmiðum átt sér stað.
En meinið, það alvarlega er að þeir sem eru bólusettir geta þrátt fyrir það borið veiruna á milli, ef þeir á annað borð smitast af veirunni.
Á þetta benti vísindamaður hjá íslenskri erfðagreiningu í nýlegir grein á Vísi.is.
"Bólusetning dregur úr dreifingu SARS-CoV-2 veirunnar í samfélaginu og smiti milli einstaklinga, þegar 60-80% íbúa hafa verið bólusettir, en áhrifin eru háð afbrigðum veirunnar. Meðan við höfum ekki náð hjarðónæmi með bólusetningu 60-80% þjóðarinnar þurfum við skima alla á landamærunum, líka þá sem eru bólusettir, þar sem við höfum takmarkaðar upplýsingar um hvort og hve mikið bólusetningar vernda gegn því að bera veiruna og smita aðra. Bólusetningavottorð tryggir engan veginn að fólk beri ekki veiruna og geti ekki smitað.".(Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu)
Það eru nefnilega takmarkaðar upplýsingar um hvort og hver mikið bólusetningar vernda gegn því að bera veiruna og smita aðra.
Bólusetningar eru nefnilega hannaðar til að hjálpa ónæmiskerfinu til að sigrast á veirunni, en þær tryggja ekki að menn geti ekki smitast, og smitað aðra.
Og um slíkt eru komnar vísbendingar sem verður að taka alvarlega.
Það er ekki bæði sleppt og haldið, að vernda þjóðina og hafa leka á landamærunum á sama tíma.
Veirur virða ekki opinbera pappíra, þó þeir séu stimplaðir í bak og fyrir.
Og sjálfval um sóttkví á landamærunum endar alltaf á einn veg.
Þann veg sem fréttir dagsins gefa í skyn.
Með leka, með dreifingu veirunnar út í samfélagið.
Spurningin er, eigum við að láta þessa örfáu einstaklinga sem þurfa að flækjast á tímum farsóttarinnar, komast upp með það að halda okkur hinum innilokuðum, að samfélagið sé meir og minna í herkví veirunnar??
Ef ekki, þá þurfum við að senda stjórnvöldum skýr skilaboð þar um.
Og það er ekki nóg að gera það í skoðanakönnunum.
Nú er lag fyrir leiðtoga að stíga fram.
Kveðja að austan.
![]() |
Smitin í dag dreifð um landið og ekki rakin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 13. apríl 2021
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar