Dauðans alvara er handan við næsta horn.

 

Og því megum við ekki núna eftir alla þessa mánuði þar sem samfélagið var meira eða minna í höftum sóttvarna, vanvirða ráðgjöf og ráðleggingar Þórólfs um að við stígum varlega til jarðar, gætum að okkur og hvert og eitt skref  til opnunar samfélagsins sé tekið að varúð, og við séum öll meðvituð um að gæta að hegðun okkar.

Það er svo auðvelt fyrir veiruna að skjóta hér rótum aftur, alveg eins og það er svo auðvelt fyrir okkur að ná að útrýma henni úr samfélaginu svo við getum tekið upp eðlilega lífshætti á ný.

 

Þetta tóks í Whuan, 11 milljóna manna borg, eftir 76 daga útgöngubann, þá hófst þar ferli þar sem samfélagslegum lokunum var aflétt í áföngum, og þegar komið var fram á sumarið var eins og engin farsótt geisaði i heiminum.

Mannlíf var þar því sem næst eðlilegt, fólk gætti vissulega að persónulegum sóttvörnum (kínverska gríman) en vörnin var staðin á borgarmörkum og síðan við landamæri Kína.

 

Það er svo mikilvægt fyrir okkur að skilja að fólk þurfti ekki svo mikið að deyja í þessum heimsfaraldri, ekki ef ríki gripu strax til þeirra ráðstafana að loka á smitleiðir veirunnar og verja síðan landamærin.

Ekki bara Kínverjar, samlandar þeirra i Taiwan eru með dánartöluna 0,4 per milljón, Thailand er með 1 per milljón, Nýja Sjáland með 5, eitthvað meira í löndum eins og Hong Kong og Singapúr.

 

Á sama tíma hundsuðu vestræn stjórnvöld alvarleik veirunnar, þegar bönd virtust vera komin á hana í byrjun sumars, faraldurinn var að deyja út, þá í forheimsku sinni var Evrópa opnuð fyrir umferð, án þess tryggt væri að smit bærust ekki milli landa.  Svipað gerðist í Bandaríkjunum.

Hundruð þúsunda dóu að óþörfu, frá því í fyrsta faraldri hefur dánartala flestra Evrópulanda þrefaldast ef ekki meir.

Við megum ekki gleyma þessum napra raunveruleika, hinir látnu eiga þá kröfu að afglöpin séu viðurkennd, af þeim dreginn lærdómur, svo fall þeirra hafi ekki verið til einskis.

 

Og tökum dæmi um þennan napra raunveruleika, gott er að miða við 1. júní, því þá var ljóst að faraldurinn var búinn í Whuan.

 

Ísland fór úr 11 í 29, tæp þreföldun, dánarhlutfallið 83 per milljón íbúa.

Danmörk fór úr 576 í 2.361, rúmleg fjórföldun, dánarhlutfallið 407 per milljón.

Svíþjóð fór úr 4.661 í 12.826, tæplega þreföldun (2,7), dánarhlutfallið 1.265.*

Portúgal fór úr 1.424 í 16.276, rúm 11 földun, dánarhlutfallið 1.603 per milljón.

Tékkland fór úr 318 í 20.396, rúm 64 földun, dánarhlutfallið 1.909 per milljón.

Ítalía fór úr 33.568 í 97.699, tæplega þreföldun, dánarhlutfallið 1.617 per milljón.

Spánn fór úr 29.079 í 69.142, rúmlega tvöföldun, dánarhlutfallið 1.478 per milljón.

Frakkland fór úr 28.808 í 86.454, þreföldun, dánarhlutfallið 1.323 per milljón.

Þýskaland fór úr 8.618 í 70.687, rúmlega 8 földun, dánarhlutfallið 842 per milljón.

Bretland fór úr 37.529 í 122.849, rúmlega þreföldun, dánarhlutfallið 1.803 per milljón.

Bandaríkin fóru úr 110.116 í 525.778, tæplega 5 földun, dánarhlutfallið 1.582 per milljón íbúa.

 

Og þessi aukning varð þrátt fyrir að á lokum var gripið til umfangsmikilla samfélagslegra lokana í öllum þessum löndum, og þær hafa staðið víðast lengur yfir en það tók Kínverja að útrýma farsóttinni úr landi sínu.

Ávinningurinn af heimskunni er því enginn fyrir utan ótímabæran dauða og margfalds efnahagslegs tjóns en hefði orðið ef veirunni hefði strax verið útrýmt í fyrstu bylgju og landamæri síðan varinn.

Vissulega hefði veiran blossað upp, en aðeins staðbundið og henni hefði þá aftur verið útrýmt með sömu aðferðarfræði.

 

Gleymum svo heldur aldrei að það var endalaust verið að naga niður sóttvarnir hérlendis með tilvísan í eitthvað sem átti að ganga betur í öðrum löndum þar sem að sögn miðuðust sóttvarnir við meðalhóf.

Gott og blessað, allir vita hvernig það endaði hjá þessum hinum, því raunveruleikinn er sá að annað hvort lokar þú á smitleiðir, eða þú situr uppi með faraldur fyrr eða síðar.

 

Við megum ekki gleyma þessu.

Styðjum núna Þórólf allt til enda.

 

Hann á það inni hjá okkur.

Kveðja að austan.


mbl.is Mótefnamælingar beðið vegna smitsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Osló lokar.

 

Á meðan við opnum.

Ástæðan er að okkar landamæri halda á meðan þeirra leka.

 

Eitt af því sem hefur skipt gífurlega miklu máli hér er að fólk hefur almennt farið eftir reglum, sem skýrir að í þessum örfáum tilvikum þar sem breska afbrigði hefur sloppið inní landið og náð að smita aðstandanda eða aðstandendur komufarþega, þá hafa viðkomandi einstaklingar virt heimkomusóttkvína og veiran því ekki náð að dreifa sér út fyrir hana.

Hefði fólk verið kærulaust þá gætum við verið í sömu sporum og Óslóarbúar í dag, að herða samkomutakmarkanir svo jarða við samfélagslega lokun, í stað þess að við erum að opna landið hægt og hljótt, án þess að fá aukningu veirusmits í kjölfarið.

 

Þetta skulum við hafa í huga þegar nagið gegn sóttvörnum hefst á ný.

Og sóttvarnaryfirvöld skömmuð fyrir að gera ennþá kröfur um grímuskyldu eða hafa ennþá takmarkanir á mannfjölda á samkomum, í verslunum og svo framvegis.

Það er ekki að ástæðulausu, það er einfaldlega hugsað til að koma í veg fyrir nýja bylgju þegar létt er á sóttvörnum í áföngum.

 

Stundum borgar sig að flýta sér hægt.

Þetta kemur allt með hækkandi sól.

Kveðja að austan.


mbl.is „Í dag má vera mæðulegur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. mars 2021

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1440174

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband