Í hvaða heimi lifir þetta fólk??

 

Í miðjum heimsfaraldri lætur framkvæmdarstjóri Samtaka ferðaþjónustunnar sem að það sé ákvörðun íslenskra stjórnvalda að loka landinu, og þá til langs tíma.

Eins og að hann sé það mikið erkifífl að hann hafi ekki heyrt um, eða vitað hvað það þýðir að heimsbyggðin sé í miðjum veirufaraldri sem engan endir virðist ætla að eiga.

Eru skilboð ferðaþjónustunnar til stjórnvalda þau að erkifífl, eða hreinræktaðir fávitar sjái um að bera skilaboð á milli um nauðsyn mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar??

Eins og betra mannaval sé ekki í boði??

 

Orð þingmanns Sjálfstæðisflokksins sem hefur ítrekað talað niður sóttvarnir og mært fjöldamorð og fjöldamorðingja eru hins vegar umhugsunarefni.

Er heimska hennar skilaboð flokksins til þjóðarinnar á þessum erfiðleika tímum??

 

Vissulega er það rétt að þjóðin sætir kjaraskerðingu, en líkt og við hrun síldarstofnana 1969 eða eftir fjármálahrunið 2008 þá jafnar krónan út kjaraskerðingu þjóðarbúsins, ekki hagfræði hinna heimsku sem skera niður til dauðs þar til ekkert líf er eftir í hagkerfinu.

Við prentum peninga sagði seðlabankastjóri nýlega, og útskýrði viðbrögð stjórnvalda.

 

Sem í raun þarf ekki að ræða, svo augljóst er það.

Nema þegar ríkisstjórnin þegir, þá ná hægriöfgar að fylla uppí tómarúmið með dyggri aðstoð hinnar nýju ritstjórnarstefnu Morgunblaðsins.

Og fáviskan og heimskan fær að næra ótta.

 

Því þögn stjórnvalda nærir búgímann.

Öfganna sem engum vill vel.

 

Þá þögn þarf að rjúfa.

Kveðja að austan.


mbl.is Landið ekki lokað lengi án umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau sem játa ekki mistök.

 

Þau þurfa líka að sýna vald sitt.

Að þau, stjórnvöld ráði einhverju, hvort sem það er til góðs eða ills.

Þórólfur er ekki sammála þeim.

 

Hann var það þegar smiti var hleypt inní landið, en eftir á að hyggja, þá var það líklegast ekki hans vilji.

Heldur vilji stjórnvalda sem höfðu hvorki vit eða þroska til að takast á við breytta heimsmynd veirufaraldursins.

Auðveldara að kenna Þórólfi um en að axla ábyrgð á rangri ákvörðun

 

Höftin í dag eru afleiðing þeirrar röngu ákvörðunar, óvissan í dag er líka afleiðing fólks sem höndlar ekki ábyrgð sína og skyldur.

Eru ekki tilbúin með aðgerðir gagnvart þeim sem sóttvarnir eyðileggja lífsafkomu eða rekstur.

Eru eins og Steingrímur þegar hann kom ofan af fjöllum og hafði óvart samþykkt stóraukin lífeyrisréttindi.

 

Þessu þarf að linna.

Sóttvarnir hafa afleiðingar.

 

Og þær þarf að feisa.

Kveðja að austan.


mbl.is „Stjórnvöld keyptu ekki“ tillögu Þórólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á hvaða vegferð er Morgunblaðið??

 

Er það hætt að vera borgarlegt blað sem stendur vörð um borgarleg gildi, íhaldsamt um leið og það er víðsýnt og frjálslynt, og orðið að??

Hverju??

 

Þessi frétt um sóttvarnir Finna kemur í kjölfar annarra frétta þar sem Evrópulönd tilkynna hertar reglur á landamærum því þar byrjar sóttvarnirnar því innlendar sóttvarnir eru til einskis ef ekki er skorið á utanaðkomandi smitleiðir.

Þetta er hinn blákaldi raunveruleiki dagsins í dag hjá stjórnvöldum sem vilja ekki að hættulegur vírus drepi eða veikli íbúa viðkomandi landa.

Reynslunni ríkari frá því að landamærum Evrópu var haldið alltof lengi opnum í upphafi kórónufaraldursins.

Vegna hins innihaldslausa frasa um opin landamæri og frjálst flæði fólks yfir þau og kostaði tugþúsunda mannslífa, mestu fjöldamorð Evrópu vegna hugmyndafræði frá því að kommúnisminn var og hét.

 

Til að skilja alvöru malsins er gott að vísa í grein sem Freyr Rúnarson heimilislæknir skrifaði á Feisbókarsíðu sinni og Hringbraut endurbirti;

"Svarið er ein­falt, það geisar drep­sótt í heiminum og mig sem per­sónu er annt um eigin heilsu, heilsu fjöl­skyldu og vina, annt um fjár­hag fjöl­skyldunnar og efna­hags­líf þjóðarinnar og ég skil til­mæli al­manna­varna. Mig sem lækni er annt um heilsu þjóðarinnar, skjól­stæðinga minna og bara jarðar­búa í heild ef út í það er farið. Mig sem mann­eskju er líka annt um alla þá í fram­línunni sem hafa látið lífið við það að reyna að forða okkur öllum frá þessum hörmungum. Myndin hér að neðan er til minnis um þá hjúkrunar­fræðinga sem CO­VID 19 hefur td tekið frá okkur til þessa bara í Banda­ríkjunum einum, það eru fleiri svona myndir til en mér finnst þessi dá­lítið sláandi.

Af­hverju er ég að skrifa þetta núna? Jú því ég tel að þjóðin þurfi að vakna upp og hysja upp um sig og votta þeim virðingu sína sem hafa dáið eða ör­kum­last í þessum fjanda til þessa. Við erum stödd í heims­far­aldri einnar skæðustu drep­sóttar sem maðurinn hefur séð í langan tíma, hún er að leggja efna­hag ríkja heims í rúst og er að ná svimandi háum dauða­tolli. Ný stað­fest til­felli síðasta sólar­hringinn í heiminum t.d. 21.813.235 (bara stað­fest til­felli). Látnir til þessa 772.624 (bara það sem er stað­fest).".

 

Gleymum ekki að drepsóttin hefur fellt mun fleiri en talið er því í mörgum löndum er Norður Kórea tekin á upplýsingarnar eða heilbrigðiskerfið svo ófullkomið að það sinnir ekki fátækari hluta samfélagsins.

Og fólkið sem bjargar okkur hinum frá dauða, deyr, ekki vegna þess að það eru karlæg gamalmenni sem höfðu hvort sem er fallið úr inflúensu, heldur vegna þess að það er í svo miklu návígi við drápsveiruna að það er í stöðugri hættu þrátt fyrir öflugan hlíðfarbúnað.

 

Mér brá þegar ég las Staksteina dagsins, skrifin voru það heimsk að þarna er Davíð ekki að verki þó hann geti stundum verið svag fyrir hægriöfgum.

Þarna er einhver grundvallarbreyting sem hefur átt sér stað í ritstjórn blaðsins.

Einhvers konar Hari Kari hugsun, við nennum þessu ekki lengur, losum okkur við lesendur blaðsins með góðu eða illu.

 

Þetta var sagt í Staksteinum;

" Veirufréttir eru í senn þrúgandi og teknar að fara fyrir ofan garð og neðan. • • • • Þess vegna verður jafnvel þeim sem eru best búnir til fótanna hált á svellinu. • • • • Þetta gildir um fleiri lönd en okkar. • • • • Í breskum fréttum kom fram að þar í landi voru þá nærri 1.100 nýsmit skráð og var þar um samdrátt að ræða. • • • • Þá var sagt frá því að opinberar tölur um andlát sem rekja megi til veirunnar töldust nú vera að meðaltali 12 á dag. • • • • Einhverjum kynni að þykja þetta hátt en þá er þess að geta að Bretar eru ríflega 200 sinnum fjölmennari en Íslendingar. • • • • Og sá fréttapunktur sem gjarnan var skotið inn í allar þessar fréttir var kannski athyglisverðastur. • • • • Hann var sá að nú létust nærri áttatíu manns daglega af völdum flensu og lungnabólgu eða sex sinnum fleiri en þau andlát sem skrá má af öryggi á reikning kórónuveirunnar. • • • • Það er óneitanlega fróðlegt að setja hlutina í samhengi við þætti úr lífsbaráttunni sem flestir þekkja til. • • • • Ekki er vitað til þess að nein skelfingarbylgja sé í gangi þar syðra vegna hittasótta og flensu. ".

 

Hvar á maður að byrja??

Samlíkinguna við hitasótt og flensu, nei vísa í grein Freys þar um.

 

Móðursýkina á landamærunum, sóttkví og skimanir??

Ástandið á Bretlandi er þó ekki verri en það er ennþá, er vegna þess að þeir hafa skellt fyrirvaralaust á sóttkví gagnvart ferðalöngum sem koma frá löndum þar sem smit eru í vexti, flýtirinn var svo mikill að það lá við að sumir hefðu hlaupið yfir Ermasund þegar lokað var á Frakkland.

 

Nei þetta er skurðgröftur hægri öfga gegn nauðsynlegum aðgerðum íslenskra stjórnvalda, hugsað til að draga úr tiltrú fólks, skapa sundrungu, í veikburða tilraun til að landamærin verði aftur opnuð fyrir frjálsu flæði smita.

Verra er hin algjöra heimska að bera saman dánartölur af veirufaraldri í upphafi hans, við dánartölur annarra sjúkdóma.

Það er rétt, það voru ekki svo margir sem dóu fyrstu vikurnar, og það nokkuð margar fyrstu vikurnar á Ítalíu, svo sprakk faraldurinn út og drap tugþúsunda á beina og óbeinan hátt.

Og er einhver svo heimskur að halda að Ítalir, svona eftir á, hefðu ekki viljað að veiran hefði strax verið gerð útlæg á fyrstu vikum, á meðan ennþá var ráðið við hana??

Ætli þeir hafi ekki viljað vera í sporum Nýsjálendinga eða Taivana, sem brugðust strax við, og misstu ekki fólk, og sóttvarnir urðu aldrei til lengri tíma eins strangar og á Ítalíu.

Hvað þá efnahagslegur skaði.

 

Það vill enginn að sjúkdómur sem getur drepið náungann, gangi laus í samfélaginu.

Það er ekki hægt til lengdar að lifa með slíkum sjúkdómi.

Það vill enginn lifa í stanslausum ótta við að sýkja sína nánustu.

 

Og þessi enginn er lesandi Morgunblaðsins, sá sem borgar ritstjórninni laun.

Það er skrýtinn eigandi og stórfurðulegir hagsmunir að baki, ef hann lætur svona skrif viðgangast.

 

Það er ekki alltí lagi þarna.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Í lagi með Ítalíu en ekki Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarleg staða.

 

En samt allt í lagi að halda sig við raunveruleikann.

 

Sem er að lönd í miðjum faraldri lenda á rauðum lista annarra landa svo ferðaþjónusta sem treystir á erlenda ferðamenn er þá hvort sem er í lamasessi.

Sem og að faraldurinn virðist vera að springa út í Evrópu, og þá er líklegt að þau lönd sem ennþá leyfa óþarfa ferðalög, fari að loka á þau.

 

Staðreyndir eru nefnilega til alls fyrst ef menn ætla sér að fá aðstoð samfélagsins til að lifa af.

Afneitunin eða það sem á mannamáli má kalla lygar, er hins vegar ekki líkleg til að fá samúð þjóðarinnar, sem vill ekki lifa í sífelldum ótta við innflutt veirusmit.

 

Svo má ekki gleyma að tækifærin liggja í ósýktu landi, þangað vill fólk koma og slaka á, og þá er 5 daga sóttkví á fögrum stað aðeins upphaf af góðu fríi.

Þess vegna eiga menn að kalla eftir aðstoð en um leið hysja upp um sig brækurnar og skoða hvaða möguleikar búa í miðjum  heimsfaraldri.

 

Heimsfaraldri sem ríkisstjórn Íslands bjó ekki til og ber enga ábyrgð á.

En ber hins vegar skylda til að aðstoða þá sem sóttvarnarráðstafanir bitna á.

Því sóttvörnum fylgir ábyrgð.

 

Þá ábyrgð þarf að axla.

Ekki seinna.

 

Núna.

Kveðja að austan.


mbl.is Ferðir afbókaðar – verslunum lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. ágúst 2020

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1440182

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband