12.11.2020 | 21:09
Ráðumst á fortíðna.
Hundsum nútíðina.
Til dæmis þá spurningu að formaður Sjálfstæðisflokksins talar um að það hafi reynt á meðalhóf lagagrundvallar sóttvarna, en axlar ekki ábyrgð á opnun landamæranna í vor, þvert gegn aðvörun lækna Landsspítalans, opnun sem hefur þegar kostað 14 manns lífið, og ekki er séð úr um hvar Dauðinn gefur eftir.
Fyrir 1971 gerðist ýmislegt sem á sér sína sögu, bæði í tíðaranda, sem og algjöru aðstöðuleysi fyrri ára og áratuga.
Að velta sér uppúr því núna er í besta falli aumkunarvert, en lýsir í raun heimsku og fáráð þeirra sem stjórna okkur í dag.
Vita fíflin ekki að margt hefur breyst til batnaðar, meðal annars vegna lærdóms fortíðar.
Ef fíflin eru ekki að vitna í að ástandið sé svipað eða verra í dag, eða hafi batnað lítillega, þá eru þau bara hreinræktuð fífl.
Fífl sem horfa algjörlega framhjá skyldum sínum og ábyrgð í dag.
Hvað er að fjölmiðlafólkinu sem veltir sér uppúr hálfrar aldar gömlu sögum, eða þaðan af eldri??
Ætlar það að leita uppi afa sína og ömmur, eða fara útí kirkjugarð, og öskra; skammist ykkar??
Af hverju steinhélt þetta sama fólk kjafti þegar mjög þröngir fjárhagslegir hagsmunir Bláa lónsins, sem og annarra auðmanna sem eiga hönk uppá bak á ráðherrum Sjálfstæðisflokksins, opnuðu landamæri þjóðarinnar fyrir nýrri bylgju kóvid veirunnar.
Var það svo heimskt að það skynjaði ekki alvarleik farsóttarinnar??
Eða krefjast eigendur fjölmiðlanna að ekki sé fjallað um núið, heldur að frétt sé aðeins frétt ef hún vísar nógu langt til baka, eða er upphlaup og hávaði líkt og svo margar fréttir Ruv??
Það er samt 12. nóvember í dag.
Opnun landamæranna í sumar hefur þegar kostað 14 manns lífið.
Fyrir utan ómælt tjón á hagkerfi þjóðarinnar, sem og lokun alls þess sem tengist samskiptum milli fólks.
Fíflin, hálfvitarnir, sem nóta bene eru ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, sögðu að meiri hagsmunir væru undir, en þeir að vernda innlenda hagkerfið, mannlíf okkar sem og líf þeirra sem eldri eru.
Fíflin, hálfvitarnir höfðu rangt fyrir sér.
Og engin spyr þá um ábyrgð.
Meir að segja formaður Sjálfstæðisflokksins réttlætir þau sjónarmið að mikilvægast sé að virða meðalhóf í sóttvörnum, sem er fínt lagamál um að grípa seint og illa til nauðsynlegar aðgerða, með tilheyrandi fórnarkostnaði fyrir líf og samfélag.
Og hann kemst upp með það, berandi ábyrgð á þeirri ákvörðun sem þegar hefur kosta líf samborgara okkar.
Hve firrt er fólk??
Hve heimskt er fólk??
Þegar það er í góðu, að gamlar sögur taka yfir umræðu dagsins..
Það er ekkert sem afsakar svona fréttamennsku.
Ekkert.
Kveðja að austan.
![]() |
Yfirhjúkrunarfræðingur hafi dregið fólk í dilka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 12. nóvember 2020
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 1440180
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar