Höfuðborgin er sýkt svæði.

 

Og það er sjúkt að viðurkenna það ekki.

Sjúkt að fólk megi óhindrað fara þangað, jafnvel fólk sem starfar í umönnun og hjúkrun viðkvæmra hópa, og ennþá sjúkara að fólk megi óhindrað dreifa þar smiti út um allt landi.

Ef það kýs svo.

 

Þegar Madrid varð smituð á ný, þá voru sóttreglur hertar í Madrid en ekki í Galasíu.

Og eins bent er réttilega á í viðtengdri frétt, þá var Helsinki sett í sóttkví svo stórborgarsvæðið smitaði ekki aðra hluta Finnlands.

Orsök-afleiðing.

 

Við erum smáþjóð og það er ekki hægt að viðurkenna þessi einföldu sannindi.

Það er ekki hægt að beita sóttvörnum í samræmi við tilefni, og það er ekki hægt að vernda ósýkt svæði frá dreifingu smita frá sýktum svæðum.

 

Hvað veldur??

Er þetta skömmustu tilfinningin að hafa látið hægriöfga fólk tefja nauðsynlegar aðgerðir í um 2 vikur??

Og þá er gerð dauðaleit að bakara til að hengja.

 

Meikar ekki sens og sá sem meikar ekki sens í svona, hann mun ekki meika sens í öðrum álíka málum.

Til dæmis til að nýta hættustig almannavarna til að loka þeim fjölmiðlum sem beint vinna gegn sóttvörnum þjóðarinnar í þágu þröngra sérhagsmuna??

 

Það eru mannslíf undir og mannslíf þarf að vernda.

En skip sem mega fara á sjó með götuga björgunarbáta eru engu bættari þó brugðist sé við því neyðarástandi að skylda langferðabíla til að hafa björgunarbáta.

 

Það má vera að landið allt muni smitast innan ekki svo langs tíma.

En það er ákaflega auðvelt að koma í veg fyrir það með því að setja höfuðborgina í sóttkví og ferðir þangað, til og frá, verði háðar ströngum skilyrðum.

Svona líkt og var með enska landsliðið sem hingað kom, mínus vændið.

 

Þetta er allt hægt, en að hrópa Úlfur, úlfur, það er ekki góð aðferðafræði þegar enginn úlfur er á ferðinni.

Og svarið er þá ekki að ná í úlf og sleppa honum lausum.

 

Það er absúrt að ég fái til dæmis ekki að heimsækja mömmu gömlu á morgun vegna þess að boxklúbbar og brennivínsstaðir í Reykjavík leka smiti.

Og það er ennþá meira absúrt að fólk skuli hindrunarlaust geta sótt smit til Reykjavíkur án þess að gæta sóttvarna þegar það kemur aftur til baka.

 

Mistök voru gerð en við vitum hvaða illþýði báru ábyrgð á þeim.

Sækjum það til saka, en hengjum ekki saklaust fólk.

 

Látum skynsemina ráða.

Vinnum þetta saman.

Kveðja að austan.


mbl.is „Höfuðborgarsvæðið er orðið sýkt svæði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við eigum í stríði

 

Sagði ungur hagfræðingur Kvikubanka fyrr í sumar.

Útlistaði nákvæmlega í hvaða stöðu þjóðin væri.

 

Vísan hennar var í að benda á að hagfræðingar frjálshyggjunnar skitu á sig þegar þeir lögðust gegn hækkun atvinnuleysisbóta, og fordæmdi um leið hægri öflin í Sjálfstæðisflokknum að leggjast gegn slíkum bótum.

Allt rétt og satt.

 

En þessi unga kona náði um leið að afhjúpa ráðaleysi stjórnvalda, sem vissu ekki í hvorn fótinn þau ættu að stíga.

Sem í kjarna er að þetta sé annars vegar eins og hver önnur flensa, sem of mikið hefur verið gert úr, eða að þetta sé ógn sem ræðst að lífi og heilsu þjóðarinnar, sem og efnahag hennar.

 

Engin slík orðræða hefur komið frá ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Hálfvelgja hefur alla tíð einkennt stuðning hennar við nauðsynlegar sóttvarnir, sem skýrir ekki aðeins hikið við að loka á smitleiðir skíðakappa frá Ölpunum, hik sem kostað líf samborgara okkar, heldur líka landamærin voru opnuð fyrir smiti, og þegar loksins var gripið til hertra aðgerða, þá var ekki styrkur til að loka á smitleiðir innanlands í tíma.

Þegar mannslíf á samviskunni, en guð og gæfa vonandi sér til þess að í þann syndakvóta sé ekki bætt.

 

Síst betra er að byrðum af sóttvörnum hefur ekki verið deilt jafnt á þjóðina, þær atvinnugreinar sem verst urðu úti vegna farsóttarinnar, hafa um margt upplifað sig óbættar frá garði.

Hinar meintu aðgerðir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttir hafa oft borið einkenni sýndarmennsku almannatengilsins, það hefur dugað að þær gangi uppí Exel og þar með ekki spurt um raunveruleikann.

 

Á þetta benti hin unga kona sem Kviku banki treysti fyrir hagfræði sinni.

En stjórnarandstaðan ekki.

 

Það er því með ólíkindum að þurfa að hlusta á frétt í hádegisfréttum Ruv að Þorgerður Katrín krefji ríkisstjórnina um stefnu í sóttvörnum sem hægt er að byggja næstu 10-12 mánuðina.

Þó heimskan eigi sér þá skýringu að hún sé í kapphlaupi við Sigmund Davíð að ná til hægri öfganna innan Sjálfstæðisflokksins, í þeirri einbeittu viðleitni að reyna að sá sundrungu innan ríkisstjórnarinnar á Ögurstund þjóðarinnar.

Þá er heimskan af slíku level að þjóð í stríð má og getur ekki liðið hana.

Það er ekki hægt að vinna stríð með 5. herdeild innanborðs.

Staðreynd sem bæði minnihlutinn á Alþingi sem og aðrir í þjóðfélaginu þurfa að feisa.

 

Sem betur fer þá lokaði Þórólfur ekki tímum hjá Kírópraktora mínum, lokunin í vor endaði með fót í hækjum, sumar og haust sem aldrei varð.

En í tímanum í dag þá las ég gamalt blað á meðan ég beið, grein í Sögunni okkar um fyrsta sigur Churchil og breskra stjórnvalda á ógnvaldi Myrkursins sem hafði lagt undir sig alla Vestur Evrópu.

Það náðist að stöðva 5. herdeildina í Bretlandi.

Valkosturinn var samvinna og falskar upplýsingar til höfuðstöðva Myrkursins, eða gálginn ella.

 

Þjóð í stríði mætti hafa þann lærdóm í huga.

Útburðarvæl stjórnarandstöðunnar er ekki einleikið.

Hegðun ákveðinna fjölmiðla er forkastanleg.

Í den var fólk hengt af minna tilefni.

 

Dauðans alvara er nógu alvarleg þó Myrkrið fái ekki að grafa undan vörnum gegn henni.

Að stuðla að útbreiðslu farsóttarinnar og ótímabærum dauða samborgara okkar.

 

Ríkisstjórnin talar ekki mannamál.

Hún er föst í hálfvelgju þess að verjast eða láta undan Myrkrinu.

 

Tónn hennar er falskur.

Þess vegna gengur veiran laus.

Og þess vegna er byrðum ekki dreift, þess vegna bera sumir skaða á meðan fjöldinn sleppur.

 

Það er mál að linni.

Stríð vinnast ekki án forystu.

 

Þetta stríð er ekki að vinnast.

Kveðja að austan.


mbl.is Segir einingu í ríkisstjórn um aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málefnaleg umræða.

 

Viðkomandi þingmanni til sóma.

 

Vonandi fær hann málefnaleg svör, að bregðast við ástandi eftir aðstæðum getur til dæmis aldrei kallast að elta skottið á sjálfum sér.

Svo vísað sé í andsvar sóttvarnarlæknis við hinni hóflegu bón um að sóttvarnir taki mið að raunverulegu smiti á mismunandi svæðum landsins.

 

Mjög mikilvægt er að hafa í huga að sóttvarnir eiga mikið undir sátt, og að fólk skynji mikilvægi þeirra.

Það er til dæmis hættan að fólk á lítt smituðum svæðum sé orðið þreytt á stífum, í þess huga tilgangslitlum sóttvörnum, loksins þegar reynir á þær, og að allir séu með.

 

Þetta og margt annað kallar á umræðu.

Þarfa umræðu.

Kveðja að austan.


mbl.is „Spurning hvort of harkalega sé farið fram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. október 2020

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 1440180

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband