21.10.2020 | 19:22
Vel mælt hjá ASÍ.
Af sem áður var þegar sambandið studdi hrægamma í aðför að heimilum landsins.
Að ekki sé minnst á beinan stuðning við fjárkúgun breta kennda við ICEsave.
Á Ítalíu hefði ASÍ þá verið skilgreint sem glæpasamtök og lagt niður ásamt Samfylkingunni, líkt og flokkarnir sem höfðu stjórnað Ítalíu frá stríðslokum, kristilegir demókratar og sósíaldemókratar.
Sbr. að sá sem vinnur fyrir glæpasamtök á ekki tilverurétt í lýðræðisþjóðfélagi.
Þess vegna ber að fagna þessum orðum ASÍ.
"... að stjórnvöld beiti ríkisfjármálum í þágu almannahagsmuna og tryggi með aðgerðum sínum að kreppan af völdum Covid-19 skerði ekki afkomu- og húsnæðisöryggi almennings. Dregið verði úr atvinnuleysi og komið í veg fyrir langtímaatvinnuleysi.
Þing ASÍ krefst þess jafnframt að grunnatvinnuleysisbætur verði hækkaðar þegar í stað til samræmis við þróun lægstu launa og að þak vegna tekjutengingar lág- og millitekjufólks verði hækkað. Þá verði bótatímabilið lengt úr 30 í 36 mánuði.
Samhliða verði tryggt að þau heimili sem lenda í tekjusamdrætti vegna lækkunar tekna eða atvinnuleysis komist í greiðsluskjól og þannig komið í veg fyrir skuldavanda til frambúðar.
Þing ASÍ áréttar að ákvarðanir sem teknar eru á krepputímum geta haft úrslitaáhrif til framtíðar. Þær geta sagt til um afkomu- og skuldavanda til ára og jafnvel áratuga; þær geta auka ójöfnuð en þær geta einnig, ef rétt er á haldið, dregið úr ójöfnuði. ".
En um leið ítreka að ASÍ þegir um það sem öllu máli skiptir gagnvart heimilum landsins sem og smáfyrirtækjum sem eru á ábyrgð okkar hinna almennu, venjulegu borgara þessa lands.
Sem er óeðlið að verðtryggingin mælir verðbreytingar vegna heimsfaraldurs vírusar sem hefur ekkert með verðbólgu að gera.
Af hverju þegir ASÍ um þetta lykilatriði sem snertir öll þau markmið sem talin eru upp í ályktun sambandsins.
Hvaða goð eru stærri en heimili landsins??
Sú spurning krefst svars.
Kveðja að austan.
![]() |
Kreppan skerði ekki afkomu- og húsnæðisöryggi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.10.2020 | 16:34
Stormurinn í vatnsglasinu hreyfði við Pírötum.
Þeir voru jú búnir að þurrhreinsa allt þetta með iðnaðarsaltið, og fjármagnaða herferðin, úr vasa auðmannanna sem halda úti Fréttablaðinu, um stjórnarskrána, var jú ætluð til að skapa tilbúna vígstöðu fyrir Evrópuflokkana, Viðreisn og Samfylkinguna.
Látum vera hægri öfgana í Sjálfstæðisflokknum sem bera beina ábyrgð á núverandi faraldri og hafa valdið þúsundir samlanda okkar óbætanlegu tjóni.
Að ekki sé minnst á þann einbeitta illvilja sem hvetur til fjöldamorða að hætti sænsku fjöldamorðingjanna.
Látum það vera að Píratar hafa aldrei sagt eitt eða neitt um eitthvað sem skiptir almenning þess lands máli, á tímum þar sem hann hefur mátt sæta ítrekuðum árásum illviljaðra fjármálaafla sem nýttu sér fjármálahrunið 2008 til að valda áður fáheyrðum hörmungum meðal almennings í nútíma samfélagi.
Reyndar þarf ekki að fara aftur til 30 ára stríðsins á 17. öld til að finna sambærilegar hörmungar, þökk sé illmennum nasista sem léku samfélög Póllands, Úkraínu og Hvíta Rússlands grátt.
En andófsafl sem þegir allan tíma getur aldrei verið neitt annað en fjármagnað viðrini þess eina hlutverks að hlutlausa andspyrnu almennings, að gera hana máttvana svo voðaverkin leiði ekki til mótspyrnu, jafnvel uppreisnar.
Enginn rífst um að Píratar hafa staðið sig vel í þessu hlutverki.
En núna er kóvid.
Sem sækir að almenningi, bæði grafa hægri öfgar undan sóttvörnum, sem og að mótspyrna ríkisstjórnarinnar til að hjálpa og aðstoða samborgara okkar sem farsóttin sem og sóttvarnir léku grátt, hafa engan veginn dugað, þó vissulega sé margt miklu betra en verra, og í raun vilji til að gera betur.
Gera betur!!.
Þá tóku viðrinin við sér.
Fundu sinn vígvöll.
Mynd af lögreglukonu frá 2018.
Smán allra sem koma að þessum viðrinishætti er algjör.
Þarf ekki dauðans alvöru tíma kóvid til.
Þetta er svo lágt.
Þetta er svo aumt.
En aumast er að til er fólk sem tengir viðrinin við Andóf.
Smán þess er algjör.
Kveðja að austan.
![]() |
Finnst þetta mjög leiðinlegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 21. október 2020
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 1440180
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar