28.4.2016 | 20:33
Að verja hið óverjanlega.
Er iðja margra sjálfstæðismanna þessa dagana.
Hvort skýringin sé sú að þeir hafa beinan hag af svikamyllu aflandsvæðingarinnar, eða af misskilinni tryggð við flokkinn, skal ósagt látið.
Höfum eitt á hreinu, málsmetandi fólk hefur afhjúpað svikamyllu. Sýnt fram á hvernig fjármunir voru búnir til með fölskum lánveitingum, eignir keyptar á brjálæðislegu yfirverði (sem skýrir auð eiginkonu fyrrverandi forsætisráðherra auk margra annarra), hlutabréfabólu, og síðan skuldir skildar eftir á eignalausum kennitölum, en ávinningurinn fluttur úr landi.
Annars vegar skipt í gjaldeyri, á meðan einhverjir ginkeyptir vildu lána gömlu bönkunum og hins vegar þegar gjaldeyrinn þraut, þá var froðukrónum breytt í aflandskrónur í gegnum félög í erlendum skattaskjólum.
Gjaldeyrinn sjáum við ekki aftur, nema kannski hjá þeim auðmönnum sem hafa keypt hrakkröfur vogunarsjóða á yfirverði, en aflandskrónurnar hafa leitað heim í gegnum peningaþvott seðlabankans, þar sem í boði er beinharður gjaldeyrir eða svokölluð fjárfestingarleið þar sem hver aflandskróna er ígildi 1,2 sem veitir henni samkeppnisyfirburði fram yfir okkur hin sem engu stálu, og eigum bara krónu með verðgildinu 1.
Þessi svikamylla gengur upp vegna ítaka aflandseiganda í fjölmiðlum, stjórnmálum og hjá seðlabanka þjóðarinnar.
Og fórnarlömbin er almenningur og þeir aðilar sem reynt hafa stunda viðskipti sín á ábyrgan máta, staðið skil á skuldum sínum, sköttum og gjöldum.
Samfélag sem lætur svona svikamyllu liðast, sem leyfir þetta rán og rupl, er helsjúkt.
Á það bendir Gylfi Magnússon réttilega í viðtali á Ruv.
Og viðbrögð hinna síverjandi láta ekki á sér standa.
Svikamyllan skal varin með öllum ráðum, aflandsvæðingin skal réttlæt, allt vegna þess að þeirra menn eru í ríkisstjórn. Svo gera menn grín af vinstri mönnum sem héldu uppi sambærilegum vörnum fyrir ICEsave samning Svavars Gestssonar.
Vandinn er bara sá, að það er ekki hægt að verja hið óverjanlega, jafnvel Svavar gat ekki varið samning sinn nema með afneitun og bulli.
Lítum því á helstu varnir dagsins.
Sú fyrsta sem ég rakst á var bloggfærsla hjá yfirverjanda ósómans hér á Moggablogginu. Vitnað í færslu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem benti á að Gylfi hefði sjálfur tekið þátt í að stofna aflandsfélag sem meirihlutamaður í stjórn OR. Sem skýrir svo þennan gapastokk Mbl.is.
Og hvað með það?, breyta gjörðir staðreyndum?? Ef morðingi heldur því til dæmis fram að það sé rangt að drepa, er það þá röng fullyrðing, því hann hefur sjálfur drepið?
Að sjálfsögðu ekki, rök eru metin á forsendum þeirra, og aum er sú málsvörn sem treystir sér ekki í rökræðuna, en hjólar í manninn. En þegar eru engin rök á móti, og samt þarf að verja, þá eru þetta kannski eðlileg viðbrögð.
Annað sem ég las í dag, hjá öðrum Moggabloggara, var litlu betra, en þau fóru ekki í manninn, heldur rökfærslu hans.
Efnislega mótmælti hann sjónarmiðum Gylfa, og fordæmdi í leiðin Ruv fyrir upphlaupsherferð á hendur ríkisstjórn og aflandseigandafélaginu, með þeim rökum að samfélagið væri ekki helsjúkt. Það væri bara allt í fínasta lagi hérna, og ef eitthvað færi úrskeiðis, þá gripi réttarkerfið inní, men væru dæmdir fyrir þær gjörðir sem væru handan laga og réttar.
Munum að orðanotkunin "helsjúkt samfélag" er myndlíking, til að tjá alvarleika svikamyllunnar, og að kerfið skuli bæði hafa leyft þetta, og að aflandseigandafélagið geti í raun keypt landið fyrir sitt illa fengna fé. Það er ekki verið að tala um að fólk sé almennt sjúkt, vegakerfið í rúst, heilu hóparnir svelti (sem jarðar reyndar við að vera rétt hjá sumum hópum), réttarkerfið dæmi ekki smáþjófa, eða að atvinnuvegirnir séu meira eða minna gjaldþrota.
Fólk í holdum getur orðið helsjúkt af krabbameini, forsenda þess að verða helsjúkur er ekki sú að líða skort og hörgul þannig að um lifandi beinagrindur er að ræða.
Það kallast að rökræða myndlíkinguna, en ekki þær forsendur sem liggja að baki henni.
Svona má lengi telja, athugasemdarkerfin eru funheit af góðu og gegnu sjálfstæðisfólki sem upplifir ofsóknir og samsæri, þá sérstaklega vonda fólksins á Ruv, bent er á góðu stöðu efnahagslífsins, og svo framvegis.
Í raun allt týnt til annað en það sem snertir efnisatriði málsins. Sem fyrst og síðast afhjúpar rokþrot þeirra sem vilja verja, en geta ekki varið hið óverjanlega.
En fjármálaráðherra, sem tengist þessum aflandseigendum beint í gegnum flokksbönd og fjölskyldubönd, og hefur sannarlega komist upp með hluti sem sannarlega eiga sér enga hliðstæðu í vestrænum löndum en eru til siðs í gömlu kommúnistaríkjum Austur Evrópi, hann á samt vörn dagsins.
"Ísland er í fararbroddi ríkja í baráttuna við skattaskjólin", eins og hann hafi frétt að aflandseigendur hafi lagt niður lýðræðið í öðrum vestrænum ríkjum. Gleymum því að nauðbeygður þurfti fjármálaráðherra að gera ýmislegt eins og að leyfa skattrannsóknarstjóra að kaupa skattaskjólsgögn eftir að hafa dregið lappirnar í marga mánuði, og að þær lagabreytingar sem hafa orðið til úrbóta, komu ekki fram að frumkvæði íslenskra stjórnmálamann heldur krafðist AGS ákveðinna úrbóta til að stoppa í mesta lekann í skattheimtunni.
Gleymum þessu öllu saman.
En íhugum rökfærsluna sjálfa.
Það er búið að koma þessu froðufé í leyndarhjúp aflandsfélaga, seðlabankinn og ríkisstjórn hafa síðan unnið hörðum höndum að peningaþvætti fyrir þessar aflandskrónur, það síðasta og stærsta mun eiga sér stað eftir nokkrar vikur.
Þar með er allt orðið löglegt.
Og þetta sem átti sér stað í fortíðinni, og að hluta til í nútíðinni, ætlar fjármálaráðherra að stöðva með hertu eftirliti í framtíðinni.
Heldur hann að fólk sé fávitar að kaupa svona rök?
Hvort er svarið við bankaráni að herða öryggisgæslu eftir ránið, eða leita upp bankaræningjana og draga þá fyrir dóm??
Augljóst nema í þeim tilvikum þar sem bankaræningjarnir hafa hönd í bagga með þeim sem ákvörðunina taka.
Eitthvað sem allir skilja nema hinir síverjandi sjálfstæðismenn, sem hamast við að verja hið óverjanlega.
Og komast upp með það.
Þess vegna er samfélagið helsjúkt.
Það fékk auðlæknanlega lungnabólgu, en var neitað um læknismeðferð.
Skjaldborg hagsmuna var slegin um lækna samfélagsins, svo þeir gætu ekki beitt sér gegn sjúkdómnum.
Það skiptir ekki máli hver Gylfinn er.
Og Gylfinn þarf ekki að heita Gylfi.
Hann þarf ekki að heita neitt, það eru rök hans sem telja, ekki nafn hans.
Vonandi fær þjóðin lækningu.
Vonandi sjá sjálfstæðismenn að sér.
Þá verður lækningin friðsamleg.
Annars þarf þjóðin að grípa til þess neyðarréttar sem allar þjóðir hafa.
Að brjóta niður hina óverjanlegu skjaldborg.
Með góðu eða illu.
Annað er ekki í boði.
Ekki látum við sjúklinginn deyja?
Eða viljum við það?
Kveðja að austan.
![]() |
Ekki öll aflandsfélög slæm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
28.4.2016 | 16:28
Það sem Árni sagði ekki.
Og útskýrir af hverju Samfylkingin er deyjandi flokkur.
Eru töfraorðin: Rannsókn. Uppgjör. Ábyrgð.
Hann þorði ekki að ganga á hólm við aflandseigednur.
Hann þorði ekki að ganga gegn gjafstefnu ríkisstjórnar og seðlabanka sem kennd er við afnám gjaldeyrishafta.
Hann þorði ekki að spyrja; Hver á Ísland.
Heldur ætlar Árni Páll að vera áfram samdauna samtryggingunni.
Eins og hann hafi ekki heyrt glymjandann úr samfélaginu sem krefst Rannsóknar, Upplýsinga, Uppgjörs.
Heldur að þetta reddist allt enn einar kosningarnar.
Sem er rangt.
Og þeir sem ekki það skilja, munu enda á öskuhaugum tímans.
En að boða blaðamannafund um ekki neitt, er afrek.
Og það má allavega meta við Árna Pál.
Honum er ekki alls varnað.
Kveðja að austan.
![]() |
Vill ganga á hólm við gamla pólitík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2016 | 11:40
Það fjarar undan þjófræðinu.
Því borgaralegir íhaldsmenn, traustir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, hafa fengið nóg.
Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar tímamótagrein í Morgunblaðið í morgun, aldrei áður hefur virtur lögmaður haft kjark til að benda á að fjármálaspillingin nær djúpt inní rætur réttarkerfis okkar.
"Þess er þá stundum dæmi, að þeir sem hafa verið fengnir til að stýra skiptum skúrkanna, "sjái ekki ástæðu til", að elta uppi þrjótana sem komið hafa eignum undan. Þetta kunna að vera menn sem staðið hafa í viðskiptasambandi við skúrkinn áður en fyrirtækið fór á hausinn og óhætt er að gruna um að gæta ekki hlutleysis gagnvart honum. ....Getur verið að dómarar sem skipi slíka þjóna til þessara verka hafi líka hangið á upp á snaga, þess athafnasama manns sem í hlut á."
Við skulum gera okkur grein fyrir því að það eru miklir fjármunir í glæpum, hvort sem það er fjármálaglæpir eða hefðbundnir eins og mansal eða eiturlyfjasala. Og þessir fjármunir leita til lögfræðistéttarinnar, hún gegnir því hlutverki sem vopnaðir hermenn gegndu fyrir nokkrum öldum síðan í köstulum ræningjabaróna.
Að tryggja vernd fyrir þóknun.
En að auðspillingin nái inní réttarkerfið, það er alvarleg ásökun, og örugglega ekki sett fram nema að gefnu tilefni.
Og aðeins Rannsókn getur skorið úr um.
Annar íhaldsmaður, maðurinn sem varaði í tíma við Hruninu, og enginn hlustaði á, tók sterkt til orða á feisbókarsíðu sinni í gær.
Ragnar Önundarson útskýrði svikamyllu aflandsauðsins í skilmerkilegri færslu(birti hana í heild í athugasemdarkerfinu), sem fékk sem betur fer mikla dreifingu í netheimum, og hann bætti við í athugasemdarkerfinu þessum orðum;
Þjófnaður og fjárdráttur gengur á eignarrétt annarra. Maður eignast ekkert með þjófnaði. Málamyndagerningum má rifta. Þetta eru refsiverð brot þar sem ákæruvaldið er málsaðili. Engu skiptir þó sá sem stolið var frá aðhafist ekki. Nú viljum við enga "rannsóknarnefnd", nú er það glæparannsókn með aðkomu Interpol.
Hann hefur með öðrum orðum enga trú á stjórnmálastéttinni, hann vill sakamálarannsókn.
Á sama tíma er Alþingi að vinna að því hörðum höndum með seðlabankanum að afhenda þessum aflandseigendum gjaldeyrissjóð landsmanna. Eða þeir fá forskot til að kaupa upp eignir og fyrirtæki. Lítum nánar á lýsingu Ragnars á þessum þætti svikamyllunnar;
5. Þú bíður í nokkur ár en svo sérðu tilboð Seðlabankans um að taka þátt í gjaldeyrisútboði. Þú tekur því og færð þriðjungs ábót á "vinninginn" og átt allt í einu 1.200 milljónir. Seðlabankinn tryggir þèr nafnleynd svo ekki sé unnt að lesa saman nöfn þáttakenda við afskriftalistana.
6. Þú kaupir þér teinótt jakkaföt og gerist "fjárfestir". Ásamt félögum þínum kaupir þú banka af ríkinu, sem gleðst yfir vel heppnaðri einkavæðingu og lýsir yfir sigri og fagnar að samkeppni virðist komin í bankaþjónustu.
Er ekki kominn tími til að staldra við, stöðva frekari eignatilfærslur, og rannsaka ofaní kjölinn hverjir það eru í raun sem fengu að hirða þrotabú bankanna, hvort það séu ekki sömu aðilarnir sem við sjáum grilla í þoku aflandsskjólanna.
Fá uppá yfirborðið tengsl þeirra við stjórnmálastéttina, og fá það á hreint af hverju þeir komust upp með þessa fjárglæfra sína. Í góðu samstarfi við seðlabankann og stjórnvöld.
Því fleiri jónar sem ítreka þessa kröfu, því fleiri Séra Jónar þora að stíga fram og krefjast rannsóknar, og í kjölfarið aðgerða gegn þeim sem leyfðu þessa svikamyllu, hvort sem það var með löggjöf, aðgerðaleysi, eða hreinlega með beinum aðgerðum í þágu þessara aflandskrónueiganda.
Því þetta snýst ekki bara um hagsæld okkar og velmegun, þetta snýst ekki bara um sjálfstæði okkar og reisn, þetta snýst um sjálfan grundvöll þjóðskipulags okkar.
Hvort hér sé lýðræði en ekki þjófræði, hvort hér sé borgarlegt þjóðskipulag, eða auðskipulag örfárra stóreignamanna sem efnuðust á braski og fjármálamisferli.
Það held ég að skýri reisn þessara manna sem þora að stíga fram og mótmæla þjófræðinu.
Þeir vita eins og er að hið borgaraleg lýðræðissamfélag er í húfi.
Megi fleiri sjálfstæðir menn öðlast þá visku.
Að breyta rétt.
Kveðja að austan.
Bloggfærslur 28. apríl 2016
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 9
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 2492
- Frá upphafi: 1469894
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 2133
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar