21.4.2016 | 18:41
Það er karlmannlegt að játa hræðslu sína.
Hvort sem tennurnar skulfu eða eitthvað var gert í brók.
Verri eru viðbrögð hinnar tilbúnu fjölmiðlaímyndar að panta vildarvinarviðtal í DV, og rægja þann sem veldur hræðslunni.
Það var þó karlmannlegra hjá Guðna þegar hann rægði ítrekað íslenskan almenning fyrir að standa gegn fjárkúgun breta.
Þar var jú auður gegn þjóð og þjóðin gat svarað fyrir sig.
En það er erfiðara fyrir sitjandi forseta að svara hælbítum.
Ótrúlegt kjarkleysi að þora ekki í glímu við Ólaf.
Það er eins og ekkert sé að baki ímyndinni.
Kveðja að austan.
![]() |
Guðni Th.: Fyrsta sem ég sá var Ólafur Ragnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.4.2016 | 08:50
Sjálfum sér samkvæmt fólk.
Sem streymdi niður á Austurvöll og strengdi sitt heit gagnvart aflandsráðherrum, hlýtur núna að gera slíkt hið sama þegar það sjálft á í hlut.
Það strengir heit gagnvart sjálfum sér.
Hættir að vinna hjá Baugsmiðlum.
Hættir að nýta sér Baugsmiðlana.
Hættir að nota Baugsmiðlana.
Annars er það bara prumphænsn.
Ómarktækir hávaðabelgir.
Svo er það spurningin með Píratana.
Ekkert verður til úr engu.
Kveðja að austan.
![]() |
Ingibjörg með peninga í Panama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 21. apríl 2016
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 9
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 2492
- Frá upphafi: 1469894
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 2133
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar