"Gleymum ekki öðrum Charlie þessa heims".

 

Og vísað er í útbreidda skoðanakúgun víða um heim.

Algjört frelsi fjölmiðla er undantekning en ekki regla, og höftin liggja víðar en í löggjöf eða hjá stjórnvöldum viðkomandi landa.

Gleymum heldur ekki hinu skítuga fjármagni sem hefur sogað til sín allflesta af fyrrum frjálsum fjölmiðlum Vesturlanda, og gert þá að viljalausum verkfærum í auðbralli sínu.

 

Við eigum heldur ekki að gleyma öðrum fórnarlömbum Íslamista.

Það voru fleiri drepnir í París en skopmyndateiknarar, þar á meðal saklausir gyðingar sem voru að versla í matinn.

Og lögreglumaður sem var múslimi.

 

Við megum heldur ekki gleyma þeim múslimum sem Íslamistar murka lífið úr daglega í löndum eins og Írak og Sýrlandi, bæði með sjálfsmorðsprengjum sínum, sem og beinum aftökum á svæðum sem þeir stjórna.

Að ekki sé minnst á aðra trúarhópa í þessum löndum.

 

Við megum heldur ekki gleyma 10 þara gömlu stelpunni sem var látin bera sprengjubelti í sjálfsmorðárás í Nígeríu, á sama tíma og morðin voru frami í París.

Hún er líka manneskja, þó hún sé ekki hvít, og ekki skopmyndateiknari. 

Það féllu margir í sprengingunni, vissulega ekki hvítir, en fólk engu að síður.

 

Við  megum heldur ekki gleyma öllum þeim konum sem Íslamistar aflífuðu á síðasta ári, vegna þess sem þeir kalla siðsemisbrot eða hjúskaparbrot, eða hvaða orð sem þeir grípa úr Sharia lögum Kóranins á hverjum tíma.

Sumar voru grafnar upp að háls í jörðu, og svo grýttar með steinum þar til þeim hraut örendið.

Þær eiga ekki skilið þögnina sem umlykur örlög þeirra.

Eða réttara sagt þöggunina því ekki má minnast á voðaverk Íslamista því það gæti misskilist, að fólk héldi að það væri verið að tala um múslima almennt.

 

Það er nefnilega svo að þeir sem dóu í París, eru aðeins brot af fórnarlömbum þessara grimmdarseggja, sem hafa það eina markmið í lífi sínu að endurreisa heim miðalda í nafni trúar sinnar.

Flest fórnarlömbin eru í Fjarskaistan og því ypptum við aðeins öxlum.

Þau eru ekki hvít, þau eru ekki eins og við.

 

En við megum ekki gleyma þeim.

Þetta eru bræður okkar og systur.

Og þau eiga skilið samhygð okkar.

 

Gleymum því ekki.

Kveðja að austan.


mbl.is Fordæma nærveru „afræningja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þeir voru að gera grín að öfga­mönn­um, ekki múslim­um,"

 

Sem er kjarni málsins.

Og það voru öfgamenn sem drápu teiknarana, ekki múslimar.

 

Öfgamennirnir kalla sig Íslamista, sækja innblástur voðaverka sinna í hina helgu bók múslima, Kóraninn, ásamt öðrum trúarritum þeirra.

Það er tenging þeirra við hinn múslímska heim.

 

Þessir öfgamenn ógna lífi og limum fólks í löndum eins og Sýrlandi, Írak, Túnis, Epyptalandi, Alsír, Nígeríu, Pakistan, Afganistan, Yemen, og hafa hafið árásir sínar á Vesturlöndum.

Þeir stjórna í Saudi Arabíu og Katar, að ekki sé minnst á landsvæðið sem kennt er við Ríki Íslams.  Og ekki má jú gleyma uppáhaldi hins íslenska rétttrúnaðar, Gaza svæðinu.

Þeir eiga sér samsvörun í klerkastjórn Irans, og eru af sama meiði og núverandi stjórnarflokkur Tyrklands, það má segja að hann sé eins og lifra á púpustigi miðað við Islamista.

 

Meðvirkni með skoðunum þeirra og kenningum er síðan útbreidd í hinum múslímska heimi.

Hversu má guð einn vita, sem og þeir sem fjármagna starfsemi þeirra og útþenslu.

 

Fjármögnun þeirra er beint rakin til Saudi Arabíu og Katar.

Auk ?????

 

Ein birtingarmyndar þessarar fjármögnunar er kennd við moskur og trúarmiðstöðvar, líkt og önnur af þeim sem á að byggja hér í Reykjavík.

Þekkt módel sem bæði nasistar og kommúnistar notuðu á sínum tíma.

Með þekktum afleiðingum.

Og afleiðingum sem við upplifum í dag.

Og eiga ekkert annað en eftir að stigmagnast á meðan útbreiðsla þeirra og fjármögnun er látin í friði.

 

Meðvirknin á sér ýmsar myndir.

Þráin eftir Sharia lögum svo hægt sé að grýta konur og handhöggva þjófa.  Að ekki sé minnst á að hengja homma, færa réttindi kvenna þúsund ár aftur í tímann, og hægt sé að taka þá af lífi sem ganga af trúnni eða trúvillinga sem móðga trúna.

Samkvæmt skoðanakönnunum er þessi þrá mjög útbreidd í hinum múslímska heimi, þar á meðal hér á Íslandi.  Enda ekki von, þau eru óaðskiljanlegur hluti af trúarritum múslima, og erfitt að vera sanntrúaður múslimi án þess að viðurkenna þau.

 

Önnur mynd er að ljúga til um staðreyndir mála.

Líkt og formaður Félags íslenskra múslíma gerir þegar hann fullyrðir í fréttum að liðsmenn Íslamska ríkisins séu að uppstöðu fyrrum fylgismenn Saddams Husseins.  Eða þegar hann sagði að gerendur voðaverkanna í París hefðu verið geðsjúklingar án nokkurra tenginga við hinn múslímska hugmyndaheim.

Þegar hið rétta er að þeir eru stríðsmenn Íslams sem upplifa sig í stríði við hinn vestræna heim, eða reyndar restina af heiminum svo maður gæti fyllsta nákvæmis, og ekki frekar geðsjúkir en þeir kristnu riddarar sem fóru með báli og brandi um lönd "heiðingja" á tímum krossferðanna.

 

Þriðja birtingarmynd meðvirkninnar, og líklegasta sú alvarlegast, er afneitun á þeim raunveruleika sem við blasir.

Afneitun sem er dagsskipun þeirra sem stýra hinum pólitíska rétttrúnaði á Íslandi og víðar í Vestur Evrópu.

Alnæmið breiddist hraðast út í þeim löndum þar sem ráðamenn viðurkenndu ekki tilvist þess.

 

 

Nasisminn endaði í hörmungum annarrar heimsstyrjaldarinnar vegna sömu tegundar afneitunar.

Þeir sem vöruðu við útbreiðslu öfganna og mannhatursins, þeir voru útmálaðir Þjóðverjahatarar eða stríðsæsingarmenn.  Þegar benti var á hvað gert var við pólitíska fanga í búðum eins og Sachsenhausen, þá var bent á hið góða snitzel sem frú Schmidt hafði boðið uppá í þorpi þar skammt hjá.

Þjóðverjar voru hið vænsta fólk, þjóð Goethe og Schiller, menningarþjóð sem átti sér aldagamlar rætur.

Nema það var enginn að tala um Þjóðverja, það var verið að tala um nasista, sem vildu svo til að voru Þjóðverjar.

 

Íslamistar eru múslimar, múslimar eru ekki Íslamistar.

Staðreynd sem hinir meðvirku virðast ekki átta sig á.

Og reyndar fleiri ef útí það er farið.

 

Parísarbúar eru hins vegar að átta sig á þessari staðreynd.

Þeir styðja núna háðið, þó efalaust finnist mörgum það ekki fyndið, jafnvel ósmekklegt að stórum hluta.

En þeir verja grundvaldargildið, sem Lea Gayet orðaði svo vel í viðtalinu sem þessi pistill er tengdur við; 

"Þetta er tjáningarfrelsi og punktur."

 

Og þetta er ekkert annað.

Ekki árás á Íslam, ekki árás á friðsamt fólk.

 

Og það eigum við öll að hafa í huga.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Með tárin í augunum úti á götu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. janúar 2015

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (5956)
  • Screenshot (5957)
  • Screenshot (5952)
  • Screenshot (5951)
  • Screenshot (5886)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 111
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 90
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband