Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
14.5.2024 | 18:23
Mannsalsiðnaðurinn á sína fulltrúa í ríkisstjórninni.
Í London einni eru þúsundir vændiskvenna frá Nígeríu, megnið af þeim flutt af alþjóðaglæpasamtökum sem eru kennd við mannsal, sölu á fólki.
Eins sorgleg og örlög þessara kvenna eru, og guð hjálpi mér, ég vildi að þær fengju allar grið frá melludólgum mannsalsiðnaðarins, þá þarf ekki mjög vitra manneskju til að sjá, að okkar litla land getur ekki veitt öllum þeim hæli sem mannsalsiðnaðurinn beinir til okkar.
Tugþúsundir vændiskvenna, sannarlega allar fórnarlömb, tugþúsundir flóttamanna frá Palestínu, sannarlega eru stríðsátök þar.
Og svo framvegis, og svo framvegis.
Umræðan er öll eins, við eigum að gefa þeim hæli og grið, varla erum við svona vont fólk??
Svo eru þessar 5 milljónir, eða eru það 10 milljónir, sem eru að deyja úr hungri í Súdan, sæta ofsóknum miðaldamanna Íslams.
Reyndar fór ég fram úr mér því mannsalsiðnaðurinn sér ekki aur í því fátæka fólki, og þess vegna dúkka ekki upp sjálfskipuð góðmenni á Íslandi sem tala máli þess fólks.
Það eru bara þau sem borga fyrir farið með þrældómi eða þau sem eru send, og vinna með því sem þeim er tiltækt.
Monní, monní, monní, gróði, gróði, gróði.
Kyrja atvinnugóðmenni landsins.
En loksins þegar ríkisstjórnin mætir mannsalsiðnaðinum, þó sú mæting sé í flugulíki, þá þarf aðeins að kippa í spotta.
Upp spretta atvinnugóðmennin
Upp spretta fréttir, og þingmenn.
Og stjórnarþingmenn.
Enginn sér samhengið á milli gróða og þeirra sem spretta upp.
Til upplýsingar þá er mannsalsiðnaðurinn og flóttamannaiðnaðurinn sú skipulagða glæpastarfsemi sem veltur mest fyrir utan innflutning, sölu og dreifingu eiturlyfja.
Og líkt og eiturlyfjainnflutningurinn til Íslands, á þessi glæpaiðnaður næstum því frítt spil.
Hann getur alltaf treyst á fávísi og forheimsku fólks.
Aurinn á milli handa hjálpar svo alltaf til.
En þegar ríkisstjórnin er undir þá á Embætti Ríkislögreglustjóra að grípa inní.
Nægar eru fjárveitingarnar til að takast á við skipulagða glæpastarfsemi þó framkvæmdarvald okkar, eða í það minnsta fulltrúar á löggjafarþingi okkar, séu beint að ganga erinda þessa glæpaiðnaðar.
Það er engin svona heimskur, þó hann þykist vera það, að hann sjái ekki að okkar litla og fámenna þjóð getur ekki tekið á móti öllum flóttamönnum heimsins
Jafnvel þó hún takmarki sig við þá flóttamenn sem glæpaiðnaðurinn stefnir til landsins.
Þegar annað er sagt, þá býr aur undir.
Með reyndar þeirri undantekningu að Logi Einarsson hefur ekki þá vitsmuni að þurfa að fá borgað fyrir þetta enn eina skipulagða áhlaup alþjóðlegra glæpamanna að þjóð okkar og framtíð hennar.
Hinum á að mæta.
Nýta löggjöfina.
Og ákæra.
Framtíð þjóðarinnar er undir.
Að glæpahyskinu sé mætt, og það brotið á bak aftur.
Ef ekki, þá er Embætti ríkislögreglustjóra fallið.
Fyrir Voldemort svo ég vitni í eina af uppáhaldsmyndum okkar feðga.
Í raunveruleikanum spillingarbæli sem þarf að úthreinsa með kústum og skrúbbum hinnar hagsýnu húsmóður, sem skilur ekki hvernig íslensku þjóðinni, íslenskri tungu og íslenskri menningu hefur verið útvistað á nokkrum árum.
Hún segir að lögum á að framfylgja og glæpalýð eigi að fangelsa.
Að þjóðin stjórni landinu, ekki alþjóðleg glæpasamtök.
Að spillingin verði ekki mikið lengur liðin.
Það er Ögurstund, eina spurningin er hvort stjórnmálin og stjórnmálamenn okkar fatti hana.
Þar liggur efinn og eiginlega er hann augljós.
Samt kannski ekki.
Kveðja að austan.
![]() |
Jódís gagnrýnir ákvörðun Útlendingastofnunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Segir Halla Hrund og telur sig vera lýsa sínu eigin forsetaframboði.
Svo ég vitni aftur í hana; "sannarlega að bjóða mig fram sem fulltrúa almennings í landinu".
Og án þess að ég sé að vísa í Marbendil þá skellihló ég þegar ég las þetta, því ef Halla Hrund meinti orð af því sem hún segði, þá er hún bókstaflega að biðja fólk um að kjósa sig ekki.
Vissulega er Halla Hrund að beina spjótum æsku sinnar að Höllu Tómasdóttir, sem er með bein tengsl við fjármálakerfið, og Katrínu Jakobsdóttir sem er sannarlega geirnegld valdaöflum landsins, allt í anda systrasamfélagsins sem kennir valdabrölt og valdabaráttu við karllægt samfélag.
En hvaða heilvita manneskju dettur í hug að Halla Hrund væri orkumálastjóri ef hún væri ekki beintengd??
Skipan hennar afhjúpar meir að segja fals Sjálfstæðisflokksins, eða allavega varaformanns flokksins um að eitt séu orð um orkuöflun, annað að skipa einstakling sem orkumálastjóra sem telur sitt helsta hlutverk að tefja, flækjast fyrir, sem hlekkur gegn frekari orkuöflun þjóðarinnar.
Skipan hennar var allavega ekki bræðralag ljóskunnar, og þá vísa ég í orðræðu Höllu Hrundar, því Þórdís Kolbrún er dökkhærð, hún er ekki Áslaug eitthvað.
Svo maður þýði orð Höllu Hrundar yfir á mál almennings sem hún segist fulltrúi fyrir, þá er hún í hreinskilni sinni að biðja þann sama almenning að kjósa hana ekki.
Almenningur eigi ekki að kjósa beintengt fólk.
Og ef þá ekki hana, nöfnu hennar Tómasdóttur, eða Katrínu, þá eru fáir þungavigtar frambjóðendur eftir.
Án þess að Halla Hrund nafngreinir þá, þá dettur mér einna helst í hug að hún sé að biðja fólk um að kjósa Gnarrinn, því hann er eins og hann er, vonlaust að tengja hann þó vissulega hafi stjórnmálamenn í vasa bresku fjárkúgarana og/eða innlendu og erlendu hrægammana notað Jón Gnarr á sínum tíma, en Gnarinn var saklaus hvað það varðar, hann vissi einfaldlega ekki að hann væri misnotaður.
Í dag er framboð hans alveg laust við slíka misnotkun eða tengingar.
Hugsanlega er Halla líka að vísa í Baldur, sem ég hélt að væri fulltrúi þessara afla, alveg þar til ég áttaði mig á tilurð framboðs Höllu Hrundar, en fortíð Baldurs er ekki flekklaus, þó Baldur sé flekklaus í dag.
Og á flottasta makann.
Að öðrum ólöstuðum.
Skiptir svo engu máli hvern eða hverja Halla Hrund er að biðja fólk að kjósa.
Aðalatriðið er að hún segir; ekki mig, ekki mig.
Sjaldgæf einlægni sem ber að virða.
Við hin látum ekki segja okkur hvern við ætlum að kjósa.
Við kjósum þann sem við teljum réttast að kjósa.
Og örugglega munu margir ekki láta Höllu Hrund segja sér fyrir verkum og kjósa hana engu að síður.
Því þannig eru kosningar.
Við kjósum á okkar forsendum en ekki annarra.
Í því liggur fegurð þeirra.
Kveðja að austan.
![]() |
Ákall eftir forseta án tengsla við valdöfl og fjármálakerfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2024 | 23:51
Almenningur gaf Góða fólkinu fingurinn.
Upp í óæðri endann á sér.
Enda við hæfi, megnið af því styður hommahatarana í Hamas og propagandastríð þeirra við Ísrael sem hefur kostað yfir 30 þúsund samlanda þeirra lífið og skilið Gasa ströndina nánast eftir í rústum.
Og hinn þögli meirihluti skilur ekki þetta áróðursstríð, skilur ekki hvernig öfgalýður getur gert sinni eigin þjóð þetta.
Íslendingar eru á pari við Evrópu sem kaus ísraelska lagið eftir verðleikum og kannski umfram það því óneitanlega var franska lagið betra, flutt af besta söngvara keppninnar.
En þetta extra sem ísraelska lagið fékk má skrifast á andúð á mötun rétttrúnaðarins sem gat ekki aðskilið söngvakeppnina frá sinum eigin áróðri fyrir morðingja Hamas, áróðri sem fólk keypti einfaldlega ekki.
Dómnefndir flestra landa gerðu hins vegar í brækurnar, þeirra hlutverk var að meta gæði, bæði laga og flytjanda.
Hánið frá Sviss var ekki með besta lagið og alls ekki með besta flutninginn, hvað þá að hann væri besti söngvarinn.
En hann var hán og það skýrði 12-urnar sem það hann fékk, fagfólkið hæddi sem sagt listgrein sína, hæfileika og fagmennsku; Fyrir rétttrúnaðinn.
Stóra skitan var hins vegar hundsun ísraelska lagsins, ef fagmennskan réði mati þá gat ekki eitt af 5 bestu lögun keppninnar fengið 0,0 frá hverri dómnefndinni á fætur annarri.
Það var eins og dómnefndirnar héldu að þær væru að greiða atkvæði um frið á Gasa á vettvangi Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna.
Þó ber að hrósa þeim sem þorðu og þar ber hæst faglegt atkvæði þýsku dómnefndarinnar með sín 10 stig á Ísrael, þau stig ásamt stigum nokkurra annarra þjóða forðaði hinni faglegu stjórnun söngvakeppninnar frá algjöri niðurlægingu.
Því það er algjör niðurlæging að skipa fólk í faglegar dómnefndir sem fyrirfram er búið að ákveða hvernig það dæmir, og þá út frá þjóðerni eða kynupplifun flytjenda, en ekki það sem keppnin snýst um, söngva og söng.
Öll umgerð keppninnar hefur verið ríkisútvarpinu til skammar, áróðurinn gegn henni, stuðningurinn við morðingjalýð Hamas, lágpunkturinn var líklegast eina stigið sem stjórnandi og álitsgjafar Alla leið gáfu ísraelska laginu.
Vissulega þeirra ákvörðun en þar með átti að hætta sýningu þessara þátta, ríkisútvarpið er í nauðungaráskrift og getur því ekki hagað sér eins og einhver einkastöð sem boðar rasisma og kynþáttahatur.
Eins og einhver Ku Klux Klan stöð.
Mál er að linni.
Þjóðin vill ríkisútvarpið sitt aftur.
Hlutlaust en ekki áróðursstöð rétttrúnaðarins.
Hvað er svo flókið við það.
Kveðja að austan.
PS. Mikið var nú hressandi að vera laus við aulahúmor Gísla Marteins, hrós til Gunnu og Gunnars.
![]() |
Ísland gaf Ísrael 8 stig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2024 | 11:11
Og þá hló Marbendill
Ofsalega þurfa menn að eftir að hafa lært lögfræði, að hafa unnið lengi í kerfinu til að geta látið annað eins þvaður út úr sér; líklega samt ekki, hugsanlega en þó ekki vitað, mega nota vopnin en þurfa að gæta betur að mannréttindum þeirra sem þeir sprengja í tætlur með þeim.
Þetta með mannréttindin slær reyndar út vitleysuna þegar MDE komst að þeirri niðurstöðu að það væri mannréttindi eldri borgara að þurfa ekki að upplifa afleiðingar hlýnunar jarðar, og þau mannréttindi yrðu svissnesk stjórnvöld að tryggja, líklegast með því að fara í opið stríð við Kína og Indland, og þá kannski með því að senda flotann.
En það olli ekki hláturkasti Marbendils heldur að Bandaríska utanríkisráðuneytið af öllum ráðuneytum heimsins skuli spá og spuklera í hvort mannréttindi séu brotin á sakalausum fórnarlömbum stríðsátaka.
Það féllu nákvæmlega 2.973 óbreyttir borgarar í hryðjuverkárás Sáda á Bandaríkin kennda við Tvíburaturna, og í stað þess að taka í lurginn á Sádum og sprengja þar allt í loft upp, þá var í nafni stríðs við hryðjuverk, ráðist inní Afganistan og Írak, auk þess að meintir grunaðir hryðjuverkamenn hafa verið sprengdir í tætlur ásamt fylgifé um öll Mið-Austurlönd.
Bara stríðsárásirnar á Írak og Afganistan, lönd sem höfðu ekkert með hryðjuverkaárásirnar að gera, hvorki að skipuleggja þær, fjármagna eða framkvæma, kostaði beint hundruð þúsunda óbreyttra borgara lífið, óbeint vegna afleiðinga á eyðileggingu innviða og eftirkasta stríðsátakanna, má tala um milljónir.
Og ég get svo lifandi svarið að í þessum stríðsátökum voru bandarísk vopn notuð.
Ennþá hlálegra finnst Marbendli þegar stjórnvöld sem tóku sér það vald til að sprengja upp óbreytta borgara í öðrum löndum, vegna gruns um að meðal þeirra væru meintir hryðjuverkamenn, tali um mannréttindi meintra fórnarlamba.
Gættu bandarísk stjórnvöld af mannréttindum allra þeirra brúðkaupsgesta sem þeir sprengdu í loft upp??, og svo Úppps, sorry, rangar upplýsingar, enginn hryðjuverkamaður. Eins og annars hefðu brúðkaupsgestirnir verið réttdræpir.
Án allra mannréttinda.
Spyr sá sem ekki veit en svona væl eins og þessi frétt fjallar um, er hlálegur kattarþvottur ríkis sem gæti stöðvað þessi átök og þvingað deiluaðila að samningaborðinu.
Það er tímabært að Bandaríkjamenn segi við Ísraelsmenn að núna sé þetta orðið gott, nú hætti þeir að stríða gegn því að fá alla gísla til síns heimahaga.
Íbúar Gasa munu síðan sjá um að refsa hinum seku í Hamas, þeir fái til þess stuðnings alþjóðasamfélagsins sem sendi friðargæslulið inná Gasa og í skjóli þeirra verði bundið endi á ógnarstjórn Hamas.
Svo ein nálgun sé rædd.
En að skemmta Marbendil þó kallinn í brúnni sé elliær.
Það gerir ekki þetta öflugasta ríki hins vestræna heims.
Það er mál að linni.
Og það fyrir löngu.
Kveðja að austan.
![]() |
Ísraelar hafi líklega brotið alþjóðalög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2024 | 22:54
Steinhissa femínisti.
Femínistinn á Morgunblaðinu, þessi þarna með menntun í fjölmiðlafræðum frá Háskóla Íslands, sérhæfing að kópa og peista glósur, verkefni, próf, hefur líklegast ekki lítið í bók, fyrir utan íslenskar nútíma bókmenntir, söguþekking á pari við vel upplýstan bandarískan almenning, sérfræðingur í ófræðum ýmiskonar eins og um fjölda kynja, veit ekki ennþá hvernig börnin hans urðu til, er steinhissa að Ísraels hafi komist áfram í Eurovision.
Hann, sem var búinn að flytja frétt eftir frétt af fámennum mótmælum í Málmey, útverði Íslams í norðri (þar sem fréttin er hve mótmælin eru fámenn miðað við fjölda araba í borginni) og að Möggu Stínur Svía hefðu orðið sér til skammar, enn einu sinni, með skrílslátum, skilur ekki í að Evrópa hafi kosið lag út af eigin verðleikum, en ekki eftir áróðri stríðsæsingamanna sem styðja morðingjana í Hamas með ráðum og dáðum.
Eins og hann er búinn að ítreka svo oft í fréttum sínum þegar hann fjallar um söngvakeppnina kennda við Evrópu að "Þykir það m.a. skjóta skökku við að Ísrael sé heimiluð þátttaka en Rússlandi hafi verið meinuð þátttaka í kjölfar innrásar þeirra í Úkraínu". Að söngvakeppnin snúist um það og ekkert annað.
Femínistinn er ekki vel gefinn, við skulum hafa það á hreinu.
Þess vegna má alveg fyrirgefa honum steinhissa sitt, hann fattar bara ekki greyið að Evrópa gerir greinarmun á stríðsátökum þar sem tveir deila, og þó það sé leitun að fólki, fyrir utan háværan stuðningshóp morðingjanna í Hamas, í Evrópu sem vill ekki að átökunum linni strax, helst áður en þau hófust, að þá skilur það gildi svona sameiginlegra atburða til að hrista hjörtu fólk saman og gera heiminn örlítið betri á eftir.
Næg er sundrungin í heiminum samt þó sundrungaröflin komist ekki upp með að sundra því litla sem við ennþá eigum sem sameinar.
Hvað þá með að Rússlandi var vikið úr Eurovision, frá íþróttakeppnum og svo framvegis?
Svarið við því er mjög einfalt eða svo ég vitni í Pet Shop Boys; It´s a sin.
Það mætti halda að Pútín sjálfur hefði tekið þessa ákvörðun til að þjappa saman Rússum um stríðsbrölt sitt og geðveiki.
Samtalið, þátttakan, það hefði verið erfitt fyrir ritskoðara Kreml að hafa fulla stjórn á því öllu saman, rússneska þjóðin hefði séð hina hliðina, það væri til frelsi og það væri til heimur án stríðsátaka.
En það þýðir lítið að útskýra þetta fyrir femínistanum, hann heldur að skammsýni vestrænna stjórnmálamanna sé meitlað í skýin líkt og regla Pýþagórasar.
Og krefst að það sama gangi yfir alla.
Í fáfræði sinni heldur hann að Palestína taki þátt í Eurovision og vegna glæpa morðingja Hamas, eigi að vísa þjóðinni úr söngvakeppninni.
Vitið er bara ekki meira en það.
Rússar hófu stríðsátökin með árás sinni á Úkraínu, Hamas hóf átökin með árás sinni á landamærabæi Ísrael og ólíkt Rússum sem reyndu að skjóta hermenn Úkraínu, þá sannar myndefni sem Hamasliðar sjálfir tóku, að markmið þeirra var að skjóta óbreytta borgara, sérstök áhersla var að leita uppi friðelskandi fólk sem fordæmi öfga og árásarstefnu ríkisstjórnar Netanyahu, enda hefur hann og Hamas lengi gengið í takt til að koma í veg fyrir frið í Miðausturlöndum.
Þetta skilur femínistinn ekki því hann hefur ekki vitsmuni til þess, hann hamrar á að það eigi að reka Ísrael úr keppninni fyrir að svara árás Hamas og reyna frelsa gíslana sem samtökin rændu.
Það eins og Rússarnir segir femínistinn, en Ísraelsmenn eru gera eins og Úkraína, verjast og svara árásum.
Vissulega með miklu öflugri her, en halda menn að Úkraínumenn hefðu ekki notað her sinn til að verjast og sækja að Rússum ef her þeirra væri öflugri??
Fáviskan er því algjör því krafa femínistans á Morgunblaðinu er í raun að það eigi að reka Úkraínu úr Eurovision fyrir að verjast árásum Rússa og myrða rússneska hermenn umvörpum svo ég vitni í þekkt orðalag úr fréttum sem femínistinn skrifar hér á Mbl.is.
Auðvitað eru fleiri svona fávísir og ekki betur gefnir en þetta, femínistinn á Morgunblaðinu á margar bræður og systur um alla Evrópu, en þó hávær sé, þá er þetta mjög fámennur minnihluti, fyrir utan að margir arabar í Evrópu styðja sitt fólk, sem gefur að skilja.
Þessi fámenni minnihluti tekst ekki að eyðileggja Eurovision.
Þess vegna komst ísraelska lagið áfram, það var einfaldlega það gott og vel flutt.
Átökin á Gasa halda áfram óháð því.
Og gera það þar til Bandaríkjamenn segja hingað og ekki lengra.
Það er óskiljanlegt að ef frelsun gísla er í boði, að Ísraelsmenn skuli ekki láta af hervirkjum sínum og semja frið.
Þar liggur meinið.
Við hin getum hins vegar bætt heiminn örlítið með því að tralla með Europabba.
Eða rokka með Króötum eða Norðmönnum.
Um það snýst þetta.
Um það snýst þetta.
Og ekkert annað.
Kveðja að austan.
![]() |
Ísrael komst áfram í Eurovision |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
9.5.2024 | 17:21
Halla Hrund er bara ekki með þetta.
Ekki ennþá, þarf að bæta við sig reynslu og styrk.
Burtséð frá vinahyglinni, sem bara eitt og sér afhjúpar reynsluleysi hennar, það er að lenda í þessum fúla pytt, og hafa ekki styrkinn til að þvo eða sverja hann af sér, þá er hún bara of ung ennþá.
Virkilega frambærileg en of ung.
Sem ætti að segja fólki að það sé hreinn og beinn kvikyndisskapur að kjósa hana á Bessastaði svona í blóma lífsins.
Loka hana inni til að taka í hendurnar á fólki.
Það er eiginlega bara dálítið perralegt, líkt og það trend öfugugga í tískuheiminum að láta barnungar, grindhoraðar stelpur vera tískumódel.
Það er ljóst að Katrín er að taka þetta, það eina sem gæti breytt því er að liðið sem mætti á samstöðutónleikana til stuðnings morðingjum Hamas og þeim hörmungum sem þeir hafa kallað yfir Palestínsku þjóðina, myndi sameinast um Baldur.
Þar á Baldur eitthvað inni en í heildina er Katrín bara með þetta sem þjóðin ætlast til af forseta sínum.
Og þegar upp er staðið þá mun almenningur, þrátt fyrir háværa ruglukolla kjósa með en ekki á móti.
Þess vegna kýs ég Arnar Jónsson, ég er með honum.
En það þýðir ekki að ég geti ekki metið verðleika annarra frambjóðanda.
Þetta er upp til hópa fínasta fólk
Sumir bara ekki með þetta.
Kveðja að austan.
![]() |
Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.5.2024 | 16:35
Þegar bjánar stýra för.
Stefna þeirra er gjaldþrota, frasar þeirra útbrunnir, þá eru þeir ekki reknir.
Sem væri gert í alvöru þjóðfélagi.
Því hagsmunirnir sem græða á fávisku þeirra, hinni algjöru vanhæfni, þeir bakka bjánann upp.
Og gegn þessum hagsmunum þorir enginn.
Ásgeir Jónsson viðurkennir, hann er ekki svo mikill bjáni að afneita þekktum staðreyndum, að heimili og fyrirtæki blæði vegna fávisku vaxtastefnu Seðlabanka Íslands.
Að fyrirtæki og heimili keppist við að greiða niður skuldir svo einhver von sé um líf eftir morgundaginn.
Fáráðir og bjánar uppklappa örugglega upp þessa staðreynd en betri lýsing á blæðingu eins þjóðfélags, á efnahagskerfi þess er vandfundin.
Framþróun hagvaxtar byggist á fjárfestingu heimila og fyrirtækja, stöðnun og afturför kjarna hagkerfisins á sér rætur í skorti á þessum fjárfestingum.
Blekkingin eina, hið villta vestur erlendra og innlendra fjárfesta í gullgreftri ferðaþjónustunnar felur þá stöðnun, en þjóð án kjarna, án öflugra heimila og fyrirtækja, er hol þjóð þó gróðafíkn ferðaþjónustunnar geti falið það holrúm um stund.
Heimskast af öllu er þegar bjáninn reynir að afsaka bjánaskap sinn.
Að þegar vaxtastefna hans er búin að drepa nógu mikið í kjarna efnahagslífs þjóðarinnar, að þá ætli hann að lækka vexti.
Í rústum efnahags- og atvinnulífs þjóðarinnar.
Bjáninn skautar framhjá kóvid og stríðinu í Úkraínu sem hefur þrýst upp verðbólgu um allan heim, hann er svo heimskur að hann heldur að ef hann hækki vexti, þá afkóvida menn heimshagkerfið eða spili aftur á bak stríð Rússa við Evrópu.
Ennþá heimskari er hann þegar hann þykist ekki vita um af hverju húsnæðisverði er þrýst uppúr öllu valdi, dagana og vikurnar eftir að vaxtastefna hans drap eðlilegar nýbyggingar markaðarins.
Hann hefur ekki frétt af eldgosinu á Reykjanesi, og afleiðingum þess.
Hvað þá að hann átti sig á að þegar alþjóðleg glæpasamtök í samvinnu við meint atvinnugóðmenni Íslands, yfirfylla landið af meintum flóttamönnum að þá myndast yfirþrýstingur á húsnæðismarkaðinn.
Þar sem nauðvörn innlendra er að bjóða hærra og hærra í það litla húsnæði sem er laust til ráðstöfunar.
Bjáninn fattar ekkert að þessu.
Hann er jú bara bjáni sem fattar ekki sinni sjálfur að hann sé bjáni.
Hið alvarlega er að bjáninn ræður för og vegur að þjóðinni.
Nytsamur þjónn gráðugra sem líta á samfélag okkar og efnahagslíf sem mjólkurkú sem helst á að blóðmjólka.
Í boði stjórnmálanna, einflokksins sem öllu ræður.
En af hverju við hin dönsum með Dansinn í Hruna.
Af hverju við látum bjóða okkur þetta.
Það er óskiljanlegt.
En máttur fjármagns hinna sígráðugu er mikill.
Lítil birtingarmynd þess er háðung Guðna forseta með samstöðutónleikunum til stuðnings morðingjunum í Hamas.
Það sér til þess að það er liðið að það sé vit á Bessastöðum og engin breyting þar á í sjónmáli.
Eða fávitastjórnmálin sem tröllríða umræðunni.
Í þess þjónustu er bjáninn, líklegast óaðvitandi.
Stjórnmálin, fjölmiðlarnir.
En við hin sem blæðum?
Hvað með okkur??
Er gott að blæða??
Er gott að samfélagið sem við erfðum frá foreldrum okkar og við ætlum að skila betra til barna okkar, sé mjólkurkýr hinna sígráðugu??
Það virðist vera því enginn stöðvar bjánann.
Enginn rís upp, nema náttúrulega Vilhjálmur Skagamaður sem enginn hlustar á.
Sem vekur upp spurninguna, hver er hinn raunverulegi bjáni.
Henni ætla ég ekki að svara.
Börn okkar krefjast hins vegar svara.
Kveðja að austan.
![]() |
4-5% gólf sem við verðum bara að brjótast í gegnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2024 | 09:11
Sveltum okkar eigið fólk.
Á einhverjum tímapunkti þarf fólk að horfast í augu við hverjir hófu þetta gjöreyðingarstríð á Gasa, hverjir viðhalda því, og hverjir bera ábyrgðina á því að það tekur engan endi.
Stríðsmenn Hamas hófu þetta stríð með voðaverkum sínum í Ísrael, voðaverk sem eiga ekkert skylt við stríðsátök eða varnarbaráttu kúgaðra sem reyna að endurheimta land sitt.
Þessi voðaverk nutu víðtæks stuðnings almennings á Gasa, sem og hjá brottfluttum Palestínuaröbum búsettum á Vesturlöndum. Á annan hátt er ekki hægt að túlka mikil fagnaðarlæti sem brutust út þegar fréttir bárust á morðum og viðbjóðslegum misþyrmingum á almennum borgurum Ísraelsmegin við landamærin.
Þessi voðaverk nutu víðtæks stuðnings meðal stuðningsfólks Palestínuaraba, samtök eins og Ísland-Palestína réttlættu þau strax, þar fólst viðbjóðurinn ekki bara í að réttlæta það sem aldrei er hægt að réttlæta, sama hver gerandinn er eða fórnarlömb hans, heldur líka máttu forsvarsmenn slíkra samtaka gera sér ljóst hvaða afleiðingar þessar árásir myndu hafa á líf og limi íbúa Gasa-strandarinnar.
Samt hefði verið hægt að stöðva manndrápin og eyðilegginguna á Gasa í fæðingu, ef alþjóðasamfélagið hefði strax sent ríkisstjórn Ísraels þau skýru skilaboð að hinkra með útrýmingarstríð sitt á hendur Hamas á Gasa á meðan það myndi knýja Hamas til að láta alla gísla lausa og framselja alla sem ábyrgðina báru á voðaverkunum, jafnt þá sem frömdu og þá sem skipulögðu þau, til stríðsglæpadómstólsins í Haag.
Draumórar myndu flestir segja, að það næðist alþjóðleg samstaða um slíkt þannig að Sameinuðu þjóðirnar myndu beita sér til að koma í veg fyrir fyrirsjáanlegar hörmungar óbreyttra borgara Gasa, jafnt hið fyrirsjáanlega gríðarlega mannfall sem og hina algjöru eyðingu mannvirkja, jafnt íbúða sem innviða.
Sjálfsagt en þeir sem legðust gegn þeirri samstöðu bæru þá hina beinu ábyrgð á hinum fyrirséðu hörmungum, ekki Hamas, ekki Ísrael, heldur þeir sem sögðu Nei vegna sinna eigin pólitískra hagsmuna.
Ábyrgðin á því stríði er því þeirra sem gerðu ekki það sem þeir áttu að gera til að stöðva þessi stríðsátök.
Það aðgerðarleysi sýnir alvarleik ástandsins í heimsmálum í dag, heimurinn er klofinn í herðar niður milli ólíkra fylkinga og hagsmuna, sem eru ófær um að ná saman á ögurstundu þegar mannkynið allt virkilega þarfnast þess.
Fyrirsjáanlegt vissulega, en jafn sorglegt fyrir það.
Á meðan heldur refskákin áfram.
Ísraelsmenn sprengja og drepa, og ef eitthvað lát virðist vera á, þá senda herskáir Hamasliðar eldflaugar yfir landamærin, svo það sé öruggt að átökin haldi áfram.
En að skjóta þeim á landamærastöð sem er opin fyrir innstreymi hjálpargagna er eitthvað svo sjúkt að maður trúir því varla.
Örlitla stund gleymir maður því að hungrið á Gasa er eitt af vopnum Hamas til að fóðra almenningsálit á Vesturlöndum, og þá sérstaklega Góða fólksins sem má ekkert aumt sjá.
Og maður spyr sig; Er ekkert lát á þeim hörmungum sem þið bjóðið þjóð ykkar í þessu vonlausa stríði ykkar við Ísrael??
Því þetta stríð er vonlaust því voðaverkin sem stríðsmenn Hamas frömdu í Ísrael voru mjög einföld skilaboð; ef þið verjið ykkur ekki, þá útrýmum við ykkur. Og þjóð sem fær slík skilaboð og er miklu öflugra herveldi, ver sig þar til yfir líkur og það eina sem er öruggt í slíkum átökum er að sá sem er verr vopnum búinn lifir þau átök ekki af.
Samt hóf Hamas þetta stríð, og samt heyir Hamas þetta stríð.
Gegn þungvopnuðum skriðdrekum Ísraela, flugvélum og öðrum nýtísku hernaðartólum, teflir Hamas fram þjáningum sinna eigin íbúa því þeirra helsta vopn er áróðurinn.
Og meðan hann virkar þá er áfram barist.
Hér á Íslandi gengur Morgunblaðið og Ríkisútvarpið í takt með Hamas.
Eru hluti af áróðursvopni þeirra.
Palestínumenn eru drepnir í svokölluðum hefndarárásum Ísraela, talað er um stríðsglæpi og þjóðarmorð, allt gert til að draga upp þá mynd að Ísraelsmenn séu að berjast við sjálfa sig á Gasa, og í þeim átökum sé saklaust fólk drepið umvörpum.
Spítalar séu sprengdir í loft upp, af því bara, en ekki vegna þess að í þeim hafa Hamasliðar vígbúist og verji þá. Ísraelskir hermenn skjóti fólk, jafnvel börn, að gamni sínu, en ekki vegna þess að þeir eru í stríði í þéttbýli þar sem skotið er stanslaust á þá, jafnt úr byssum sem sprengjuvörpum.
Eins og menn viti ekki að hermenn vita að þeir lifa ekki af átök ef þeir skjóta til baka eftir að þeir eru dauðir.
Eða í stríðsátökum fellur fólk, jafnt hermenn sem og óbreyttir borgarar, en það er ekki drepið.
Það féllu tugþúsundir Kínverja, jafnt hermenn sem óbreyttir borgarar í vörn Nanjing (höfuðborg Kína eftir fall Peking) 1937, en eftir fall borgarinnar, eftir að bardögum var hætt, þá drápu japanskir hermenn eftirlifandi hermenn sem og fjölda óbreyttra borgara, allt að 100.000 þúsund manns.
Að nota orðið drepa yfir mannfall í stríðsátökum, gjaldfellir orðið að drepa þegar sagt er frá morðum og drápum eftir uppgjöf annars stríðsaðilans. Slíkt upphefur voðaverkin, samsinnar sig þeim, sá sem það gerir tekur í raun afstöðu með þeim sem þau fremur.
Á það treystir Hamas og það vopn hefur virkað vel hjá þeim hingað til.
Þeir geta treyst á fávísi í bland við sjúkleika þeirra sem vita betur.
Þess vegna skjóta þeir eldflaugum á opna landamærastöð til að viðhalda hungrinu á Gasa, þess vegna vígvæða þeir spítala sína og verja þá þar til þeir eru rústir einar.
Þess vegna skjóta þeir eldflaugum úr íbúðablokkum, eða skjóta á ísraelska hermenn úr þeim svo það sé öruggt að húsin séu sprengd í tætlur.
Þeir treysta á áróðursvopn sitt, þeir treysta á sigur í stríðinu sem er háð á samfélagsmiðlum.
Meinið er að raunveruleikinn er ekki á samfélagsmiðlum og þeir eru að tapa stríðinu í mannheimum.
Þjóð sem hótað er útrýmingu gefst ekki upp fyrir lækum í netheimum.
Eina vopnið sem ver Hamas fyrir lokaárás Ísraelshers er líf gíslanna og það er að deyja í höndum þeirra.
Þetta vita íbúar á Gasa og þeir spyrja sig; af hverju??
Frá fyrsta degi í hljóði því ógnarstjórn Hamas kæfir í blóði alla andstöðu.
Svo fóru raddir að heyrast þó engin viti um örlög þeirra því meðvirkir fjölmiðlar Vesturlanda höfðu meiri áhuga að spila síendurtekna áróðursplötu þar sem sannarleg fórnarlömb stríðsátakanna tjáðu harm sinn og spurðu, Hvað höfun við gert??.
Í stað þess að leita upp þessar raddir og afhjúpa áróðursmaskínu Hamas. Slá þannig bitið úr áróðursvopni þeirra.
Hljómur þessara radda hefur hækkað og loksins fengið áheyrn vestrænna fjölmiðla.
DV birti frétt þar um og ég ætla að vitna að lokum í þá frétt;
"Jótlandspósturinn segir að margir Gazabúar segi að Hamas hefði átt að vita að árásin á Ísrael þann 7. október myndi hafa miklar afleiðingar og að samtökin hefðu átt að gera meira til að vernda almenna borgara. Þess í stað hafi liðsmenn samtakanna látið sig hverfa ofan í göngin undir Gaza og hafi skilið óbreytta borgara eftir varnarlausa.
"Þeir hefðu átt að sjá viðbrögð Ísraels fyrir og hugleiða hvað myndi verða um þær 2,3 milljónir sem búa á Gaza og hafa engan öruggan stað til að fara á. Þeir hefðu átt að takmarka þetta við hernaðarleg skotmörk" sagði Nassim, embættismaður á eftirlaunum, í samtali við Financial Times og vísaði þar til þess að meirihluti þeirra 1.200 Ísraelsmanna, sem féllu í árás Hamas, voru óbreyttir borgarar. Walid, sem starfar við neyðarhjálp á miðhluta Gaza, sagði í samtali við dagblaðið Science Monitor að honum finnist að "Hamas hafi lagt líf okkar að veði í leik og tapað".".
Það segir allt sem segja þarf um Ísland í dag að hvorki Morgunblaðið eða Ríkisútvarpið hafa ekki ljáð þessu röddum fórnarlamba Hamas eyru.
Því það hentar þeim ekki, þau eru líka í stríði, með Hamas, gegn gyðingum, sem á að útrýma.
Þeir eru gerendur, eru hluti af þeim stóra hópi sem ber ábyrgðina á stríðinu á Gasa.
Á meðan deyja börnin á Gasa.
Og engin lát á hörmungum íbúa þar.
Sorglegra en tárum tekur.
Kveðja að austan.
![]() |
Þrír létust í árásinni og tólf særðust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
4.5.2024 | 09:23
Línur skýrast eftir kappræður.
Komandi forsetakosningar munu standa milli tveggja frambjóðenda.
Það er alveg ljóst að Katrín Jakobsdóttir hefur allt það sem þarf til að verða góður forseti, hún býr að mikilli reynslu stjórnmálamannsins, en um leið hefur henni tekist vel að koma persónunni Katrínu Jakobsdóttur til skila.
Reynsla, karma, eiginleikar sem vega þungt þegar fólk tekur lokaákvörðun sína.
Baldur Þórhallsson afhommaði sig í þessum kappræðum, smækkun hans vegna þess að hann er hommi, hefur mistekist.
Persóna hans kom vel út í þessum þætti, og enginn dregur í efa vit hans og þekkingu.
Hann er svo fulltrúi andstæðra sjónarmiða í stjórnmálum, það er að segja við ríkisstjórnina, og þess vegna mun hann verða póllinn á móti Katrínu.
Eftir þessar kappræður ætti fólki að vera ljóst að Halla Hrund er ekki tilbúin í þetta embætti, henni vantar ennþá reynslu fyrir stóra sviðið.
Hvort hún hafi verið svona skekin vegna atlögu Morgunblaðsins að framboði hennar veit ég ekki en það var eitthvað sem hún hefði átt að vita að myndi koma upp í umræðunni, og hún þyrfti að mæta hnarreist.
Þetta snýst ekki um skítinn heldur hvernig þú þværð hann af þér.
Aðrir frambjóðendur eiga ekki möguleika í þessa þrjá frambjóðendur, ég held til dæmis að Gnarrinn sé runnin út á tíma.
Þetta var samt skemmtilegur hópur og margar þarfar áherslur komu fram sem mættu alveg lifa í umræðunni.
Til dæmis varslan um sjálfstæði þjóðarinnar.
En það fjöregg er bara ekki í tísku í dag, og þjóðin hægt og örugglega soðin lifandi í regluverki Brussel sem í raun stjórnar öllu sem stjórna þarf.
Við sitjum svo uppi með gasprið og leiðindin í innlendum þjónum Brusselvaldsins þó sumir sjái sér ennþá hag í að afneita þeirri þjónkun.
Hvað um það, þá ætla ég að spá því að Katrín verði næsti forseti þjóðarinnar.
Það val gæti alveg verið verra út frá mínum stjórnmálaskoðunum en ég vil líka taka það fram að Baldur er líka mjög frambærilegur og enginn toppar Felix sem forsetafrú.
Sjáum hvað verður.
Það er langt til kosninga.
Kveðja að austan.
![]() |
Landsvirkjun, ESB og dauðarefsing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
3.5.2024 | 19:47
Mogginn afhjúpar vinahygli.
Úr sjóðum almennings enda vasar hans digrir.
Ekki gott fyrir frambjóðanda sem fær mikið fylgi út á hreina ímynd sína.
Hún sé ný, laus við spillingu stjórnmálanna.
Hvort Halla Hrund standist þessa atlögu Morgunblaðsins á eftir að koma í ljós.
Kannski finnst fólki þetta eitthvað svo íslenskt og sætt, svona þjóðlegt eins og lopapeysan.
Sé ekki spilling, ekki frekar en þegar Þórdís Kolbrún skipaði hana Orkumálastjóra.
Sannleikurinn er samt sá að það er mikil leitun af ótengdu fólki sem hefur náð frama á Íslandi.
Sérstaklega ekki ef stjórnmálamenn eru með puttana í skipan eða meta meinta hæfni.
Og fólk á bara að feisa það.
Halla Hrund getur verið fínn frambjóðandi fyrir það og örugglega sómi af henni sem forseta.
Það er líka örugglega gott fyrir vini hennar, alltaf gott að eiga góðan vin sem hyglar.
Kemur allt í ljós.
Það er langt til kosninga.
Kveðja að austan.
![]() |
Fólk í kosningateymi Höllu fékk milljónir frá OS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 4
- Sl. sólarhring: 543
- Sl. viku: 3176
- Frá upphafi: 1448344
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 2737
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar