Hópsýking einkennalausra.

 

Starfsemi raskast, starfsemi stöðvuð, fullfrískt fólk sent í einangrun eða sóttkví.

 

Hve lengi ætlum við að rífast við þann raunveruleik að omikron afbrigði kórónuveirunnar er komið til að vera, að núverandi aðgerðir virka lítt til að hindra útbreiðslu þess og þær valda langtum meiri skaða en hið meinlausa afbrigði veirunnar sem bólusetningar virðast ráða fullkomlega við.

Fyrir utan þá djúpu heimsku að hamla útbreiðslu veirunnar núna á þeim tímapunkti þar sem virkni örvunarbólusetningarinnar er í hámarki, en það er vitað núverandi bóluefni hafa tiltölulega skamman líftíma áður en þörf er á nýrri örvunarbólusetningu.

 

Hversu lengi á að lemja hausnum í stein??
Vita menn ekki að það er hausinn sem skaðast en ekki steinninn??

 

Það er mál að linni.

Kveðja að austan.


mbl.is Sjúklingar og starfsmenn Vogs smitaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hina óendanlega heimsku þarf að stöðva.

 

Við fáum fréttir frá Frakklandi þar sem forseti landsins notar þarlent orð yfir ekki svo skynsamt fólk, til að ögra þeim hluta þjóðarinnar sem heldur restinni, hinum stóra meirihluta í gíslingu.

Orð hans vöktu hörð viðbrögð. lýðræði nútímans er óvant því að tæpitungan sé notuð.

 

Rúv birti fréttainnskot frá vörn talsmanns forsetans, sem benti á þá einföldu staðreynd að fólkið sem afneitar alvarleik veirunnar, eða trúir upplýsingaróreiðunni um að bólusetningar séu í núinu hættulegri en sjálf veiran, og hann benti á þá augljósu staðreynd að frjáls ákvörðun þess, það er hinna óbólusettu, væri að sjúga lífsþróttinn úr heilbrigðiskerfinu.

Eitthvað svo augljóst, staðreynd sem þarf ekki að rífast við.

 

En þessi sama forheimska er undirstaða þessa spálíkans frá Landspítalanum.

Að fjöldi óbólusettra á gjörgæslu fari úr 9 af 10, í 27 af 30.

 

Sem á að réttlæta viðvarandi samfélagslegar lokanir, að allt eðlilegt mannlíf sé fryst, vegna afbrigðis kóvid veirunnar sem í versta falli veldur kvefeinkennum hjá bólusettu fólki.

Þetta er eins og við eigum að stöðva alla umferð vegna þess að heimskt fólk kasti sér fyrir umferð bíla eftir að hafa séð slíka áskorun á Tik Tok.

 

Staðreyndir liggja fyrir.

Omikron afbrigði kóvid veirunnar ógnar ekki bólusettu fólki.

Þorri þjóðarinnar mun ekki leggjast inná gjörgæslu vegna hennar.

 

Samt á allt að vera í höftum.

Samt er kynnt undir ofsahræðslu meðal þjóðarinnar.

 

Fólk bendir hvort á annað og spyr; Ert þú smitaður??

Eins og það fatti ekki að sá sem bendir getur verið einkennalaus smitberi, og það þurfi virkilega að leita í minni sínu að leita að kvefi sem gerði það jafn illa veikt og smit omikron veirunnar er hjá bólusettum.

 

Uppskeran er múgæsing.

Grunsemdaraugu er augntillitið sem fólk beinir að næsta manni.

 

Sem reyndar er bólusettur.

Faraldurinn er enginn.

Aðeins hræðsluáróðurinn að vísa í það prómil sem kaus að þiggja ekki bólusetningu.

 

Munurinn á okkur og Frökkum er kannski sá, að þar talar forsetinn mannmál.

Hér er aðeins mjálmað.

Það er þegar hlustað er á ráðafólk þjóðarinnar, því miður kunna fleiri að mjálma en Guðni forseti.

 

Sjúkleikinn er valdabaráttan, kjarabaráttan sem lesa má um í þessari frétt.

Örprómil hinna óbólusetta veldur uppnámi, jafnvel neyðarástandi á Landsspítalanum.

Og hjúkrunarfræðingar vilja hærri grunnlaun, svo þeir standi hinar tvöföldu vaktir kórónuálagsins.

Neyðin er ekki stærri en það að hún er liður í kjarabaráttu.

 

Læknar eru ofurlaunastétt.

Við viljum það líka segja hjúkrunarfræðingar.

Og hinir óbólusettu eru vopn þeirra, án þeirra væri lítið að gera, en tvöföldun launa vegna álags af þeirra völdum, er ekki nóg.

 

Ekki nóg.

Ekki nóg sögðu fjármálasnillingar útrásarhagkerfisins.

Ekki nóg, ekki nóg.

 

Einhvern veginn finnst mér að við séum á rangri leið í dag.

Alveg eins og mér fannst og finnst að almennur hagvöxtur eigi ekki að vera röksemd til að hækka laun æðstu stjórnenda fjármálafyrirtækja, sem og annarra fyrirtækja.

Hvað þá þegar fjármálagambl sé röksemd fyrir ofurbónusum, ofurlaunum eða öðru sem engin forsenda er fyrir miðað við vöxt og grósku hins almanna efnahagskerfis.

 

Svo kom veiran.

Svo kom bólusetning.

Sem virkar, um það er ekki deilt.

 

Samt hlustum við á sönginn, ekki nóg, ekki nóg.

Og við trúum honum.

 

Eins og við vitum ekki að Ekki nóg er aldrei nóg.

Jafnvel heimsfaraldur fær því ekki breytt.

 

Veiran ógnar okkur ekki.

Landsspítalinn er undirfjármagnaður.

Afleiðingin er starfsumhverfi sem fælir fólk frá störfum.

 

Samt á allt að vera í hershöndum.

Þjóðfélagið lamað vegna sóttkvíar eða einangrun fólks sem getur ekki rifjað upp meint veikindi sín þó því væri borgað fyrir það.

Flöskuhálsinn er Landsspítalinn, sem hefur sogið til sín allt fjármagn niðurskurðar frjálshyggju undanfarinna ára, niðurskurðar og miðstýringar sem Steingrímur Joð Sigfússon tók að sér í þágu erlendra hrægamma, skorinn inn að beini ræður hann ekki við álag meðal ára, aukning þar um er neyðarástand.

 

Eitthvað sem gengur ekki upp á tímum heimsfaraldurs.

Og reyndar gengur aldrei upp, því að baki meðaltali er eitthvað óvænt sem reynir á kerfi sem er hannað til að sinna ekki toppum eða álagi.

 

En guð minn góður, er það skýring þess að meinlaust kvef megi ekki ganga yfir þjóðfélagið án þess að fólk sé tekið í gíslingu, að ótti sé látinn stjórna daglegum samskiptum fólks, að starfsemi fyrirtækja hökti, og ef heimskan nær að bólgna út, að það sem hökti stöðvist vegna sóttkvíar eða einangrun starfsfólks.

Einkennalaust, eða í besta falli kvefað.

Og lúðrablásarar heimskunnar er krafan um aukið fjármagn í botnlaust hít miðstýringar Landsspítalans, eða rökin um hjúkrunarfólk sem segist vera þreytt eða jafnvel útbrunnið vegna álags, finni samt ekki til þreytu eða kulnunareinkenna ef það fái aðeins sömu laun og ofurlaunastétt lækna.

 

Þetta er eitthvað svo sjúkt.

Og sýkin er ekki vírus sem kenndur er við kórónu.

Hvað þá að blóraböggullinn sé fólkið sem tók þá meðvituðu frjálsu ákvörðun að láta ekki bólusetja sig.

 

Vísindin gáfu okkur lausn sem við köllum bólusetningu.

Lausn sem virkar.

Sem þýðir að veiran er ekki lengur skálkaskjól.

Ekki lengur skálkaskjól þess að þjóðin sé í höftum á meðan hagsmunaöfl nýta hana sem tæki í þágu markmiða sinna.

Og í þágu hafta og hagsmuna er heimskan aldrei rök.

 

Þjóðin lét bólusetja sig.

Hún á því að uppskera afnám hafta, sóttkvía og einangrunar.

 

Aðeins annarlegir hagsmunir mæla gegn því.

Kveðja að austan.


mbl.is Búast við hátt í 30 sjúklingum á gjörgæslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ókeypis auglýsing fær vægi.

 

Þá ræðstu á einhvern sem á erfitt með að svara fyrir sig stöðu sinnar vegna.

 

Ég las bók Bergsveins, en aldrei ímyndaði ég mér að sú bók væri þekktur sjúkleiki vestra þar sem tröll gera út á orð, hugmyndir, hugsanir eða annað sem kenna má við eitthvað sem Tröllin telja sig geta sótt að, krafist réttar, þó í raun sé ekki nokkur vitrænn þráður sem má rekja til þess óeðlis vestrænnar menningar að gera lögfræðinga æðri öðrum stéttum.

Eitthvað sem við sjáum þegar fífl sækja að sóttvarnarstefnu þjóðarinnar, og rök heimskra fjölmiðlamanna er að vísa í að lögfræðingur hafi þegið pening fyrir að fylgja eftir þeirri aðför.

 

Samt get ég ekki spurt mig að þeirri einfaldri spurningu, hvað drífur það fólk áfram sem hannar og útfærir svona auglýsingar, ekki að ég skilji ekki að undantekningin um ókeypis Lunch (Friedman) sé drifkraftur, en hver er ávinningur Bergsveins, hver er ávinningur pælinga okkar um fortíðina, heldur þetta fólk að enginn sé morgundagurinn??

Yfirgefur það þennan vettvang, fyrir þær spurningar, fyrir ný tækifæri upphlaupa og bömmeringa að þekktu fólki??

 

Sem knýr mann að spyrja, eru þetta ógöngur íslenskra útgáfu í dag??

Að etja þannig séð gleymdum rithöfundi gegn þeim  sem þó nenna að skrifa bækur og gefa þær út?

 

Allavega er eitthvað vanhugsað í þessu dæmi.

Líklegast það sísta að Ásgeir nenni yfir höfuð að svara þessari ókeypis auglýsingu, eins og hagfræðingurinn hafi aldrei tekið kúrs í námi sínu að læra um slíkar auglýsingar.

 

Eftir stendur það aumkunarverða fólk sem tók þátt í leiknum.

Auðginnt, viðkomandi til vansa.

 

Enginn á sögu okkar.

Allir mega tjá hana.

 

Þau sannindi eru  okkar.

Kveðja að austan.


mbl.is Ásgeir nýtti ekki hugmyndir Bergsveins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskunni þarf að linna.

 

Þjóðin er í fangelsi.

 

Á annað tug þúsunda fólks, ekkert eða í besta falli smávægilega veikt, er í sóttkví eða einangrun, starfsemi fyrirtækja raskast, þjónusta er ekki veitt, ráðist er að eðlilegu lífi barna okkar.

Og af hverju??

 

Farsóttarnefnd Landspítalans svarar þessari spurningu með ákalli sínu.

"Far­sótta­nefnd og viðbragðsstjórn Land­spít­al­ans hafa þung­ar áhyggj­ur af þeim hópi fólks sem ekki hef­ur látið bólu­setja sig. Þau segja að töl­ur um fjölda inn­lagna og al­var­legra veik­inda meðal fólks í þess­um hópi tali sínu máli.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu, að frá upp­hafi fjórðu bylgju í sum­ar hafi 43% inn­lagna (110 ein­stak­ling­ar) verið úr hópi óbólu­settra sem telji um 27 þúsund manns á meðan 54% inn­lagna (140 ein­stak­ling­ar) hafi komið úr hópi full­bólu­settra sem eru nær 300 þúsund. Nú sé svo komið að 5 af 6 sjúk­ling­um á gjör­gæslu séu óbólu­sett­ir.

„Starfs­fólk Land­spít­ala biðlar til þeirra sem valið hafa að láta ekki bólu­setja sig að end­ur­skoða þá ákvörðun hið fyrsta; þeirra vegna, spít­al­ans vegna og í þágu sam­fé­lags­ins alls,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni. ".

 

Og ég spyr bara, hversu heimskt getur fólk í ábyrgðarstöðu eiginleg orðið??

Á allt að vera í hershöndum í þjóðfélaginu vegna einstaklinga sem tóku þá meðvitaða ákvörðun að láta ekki bólusetja sig, þegar bólusetning var í boði fyrir alla og kostir og gallar bólusetninga lágu fyrir.

 

Að láta ekki bólusetja sig er meðvituð ákvörðun, byggð á mati og lífsskoðunum fólks.

Að restin af þjóðfélaginu er í spennutreyju vegna þessarar meðvitaðar ákvörðunar er út yfir öll mörk skynseminnar.

Ef Landsspítalinn finnur fyrir álagi sem hann ræður ekki við, þá lokar hann einfaldlega á þetta fólk, það á að axla ábyrgð á ákvörðun sinni, ekki aðrir.

 

Ekki heilbrigðisstarfsfólk.

Ekki sá stóri hluti þjóðarinnar sem tók þá meðvituðu frjálsu ákvörðun að þiggja bólusetningu eftir að hún var í boði.

 

Hvað er eiginlega að fólki sem réttlætir sóttvarnir á tímum bólusetningar og meinlausrar kvefpestar, með vísan í eitthvað miniprómil sem kaus að fara aðra leið??

Sökin liggur ekki hjá hinum óbólusettu eða fólkinu sem dag og nótt hefur barist gegn sóttvörnum til að tryggja ótímabæran dauða samborgara sinna.

Það er eins og það er, en að kóa með, er á ábyrgð þeirra sem láta svona út úr sér.

 

Vandinn er sem sagt í raun enginn.

Af hverju þá þetta fangelsi þjóðarinnar??

 

Meikar ekki sens nema eitthvað annarlegt búi að baki.

Að veiran sé kærkomið tækifæri fyrir helsi og höft.

 

Trúi því ekki.

En þá þarf heimskunni að linna.

Með því að segja hingað og ekki lengra.

 

Hættið þessari vitleysu.

Kveðja að austan.


mbl.is Óbólusettir endurskoði sína ákvörðun sem fyrst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsi, já þetta frelsi.

 

Eftir stendur ábyrgð einstaklingsins á gjörðum sínum, sem og skylda stjórnvalda að vernda þegna sína.

Á neyðartímum fara aðeins viðrini gegn almannahag, og í þessu máli er ekki deilt um slíkan rétt.

Frekar svona, hvar eru mörkin??

 

Málflutningur Arnars væri heill ef hann héldi sig við þessa spurningu, hvar eru mörkin??

En óheill er hann þegar hann styður sig við málstað vitleysingahjarðarinnar, fólksins sem fyrst afneitaði alvarleik veirunnar, og þegar raunveruleikinn gerði út um þau viðhorf, afneitar mikilvægi bólusetninga, notar árangurinn sem rök gegn tilgangi þeirra.

Meinið er bullið sem hjörðin fóðrar forheimsku sína á, rétt eða rangt skiptir engu máli þegar trúin er annars vegar.

 

Eitt slíkt er árásin gegn veiruprófunum sem vísindin hafa þróað til að greina veiruna, og sóttvarnaryfirvöld nota sem tæki til að ákvarða sóttvarnir, sóttkví og einangrun smitaðra.

Rök forheimskunnar er að þau séu ekki hundrað prósent örugg, eins og eitthvað sé öruggt í þessum heimi.

Aðeins illa vitlaust fólk sér skynsemina í slíkum málflutningi, og illa vitlaust fólk er aldrei aðhald gegn einu eða neinu, allra síst umdeildum ákvörðunum stjórnvalda.

Slíkt skemmir aðeins fyrir að nauðsynlegar spurningar séu spurðar.

 

Spurningum sem þarf að spyrja og við þurfum að ræða.

Án þess að ég nenni að vitna í frétt Mbl.is þar sem sjónarmið Jóns Ívars, Harvardprófessors voru reifuð, þá skiptir öllu að sjónarmið hans séu rædd, ekki bara út frá göllum, heldur líka út frá því gilda sjónarmiði Jóns Ívars, að ekki sé hægt að gera börnunum okkar sem eiga að erfa landið, að þau séu lokuð inni ár eftir ár.

Og núna þegar bólusetningin virkar, því látum við ekki á hana reyna??

 

Vissulega eru sjónarmiðin mörg, meðal annars fjöldasýking þeirra sem eiga að annast afa okkar og ömmur á hjúkrunarheimilum, sem og hlúa að og sinna veikum.

Að ekki sé minnst á lækna og hjúkrunarfólk sem veikjast, bæði geta ekki sinnt verkum sínum, eða það sem verra er, sýkja viðkvæma við aðgerð, eða eftir aðgerð.

Þess vegna þarf sóttvarnir, hömlur á útbreiðslu veirunnar eru nauðsynlegar.

 

En að því gefnu, hver er áhættan af því að fullbólusett fólk sýkist??

Bæði er það ólíklegra til að smitast, sem og að það smitið nær varla að slá við slæmu kvefi.

Vissulega eru margir sem eru bólusettir ekki varðir, hefur eitthvað með ónæmiskerfi þeirra að gera, en slíkt er hægt að rannsaka, og verjast í kjölfarið með ýtrustu sóttvörnum viðkomandi.

 

Eftir stendur hinir óbólusettu, fólkið sem tekur þá sjálfstæðu ákvörðun að treysta á guð og lukkuna, og það fólk má aldrei vera faktur í þeim nauðsynlegu ákvörðunum sem samfélagið þarf að taka.

Vissulega er þetta fólkið  sem yfirfyllir sjúkrahúsin, veldur því neyðarástandi sem sóttvarnaryfirvöld telja sig knúin til að bregðast við.

Þetta er fólkið sem er að deyja, og mun deyja, en stóra spurningin er, hvað með það??

Er það ekki frjálst ákvarðana sinna??

 

Ef ákvörðunin er röng, þá á hún ekki að bitna á öðrum.

Hvað þá að hún sé röksemd fyrir lokunum á eðlilegt mannlíf, á ráni á eðlilegu lífi æsku okkar.

 

Bólusetningar eru valkostur, þeim stendur öllum til boða.

Sá sem kýs að bólusetja sig ekki, fyrirgerir rétt sínum á þjónustu heilbrigðiskerfisins, ef ákvörðun hans reynist röng.

Hann verður að taka afleiðingum af meðvitaðri ákvörðun sinni, axla ábyrgð hvað þær varðar.

Vissulega má senda honum lyf, sérstaklega þau lyf sem hann telur hjálpa, og ef það hlýtur að vera hægt að tryggja nægjanlegt súrefni handa þeim sem þurfa á því að halda, má senda það til hans, annars hefur viðkomandi fyrirgert sér réttinn á þjónustu heilbrigðiskerfisins,

Í því er jú frelsi hans fólgið.

 

Eftir stendur slaki sem á að duga til að við komust í gegnum núverandi smitbylgju.

Sóttvarnir hindra að hún verði of brött og setji allt á hliðina, bólusetningar tryggja að hún ógni ekki fleirum en hægt er að vernda.

Allsherjarlokun, frysting mannlífs, getur ekki verið valkostur, núna tæpum tveimur árum eftir að kóvidveiran fékk frelsi að smita heimsbyggðina vegna þess að keyptir stjórnmálamenn glóbalsins gátu ekki lokað á smitleiðir hennar  frá Kína í tíma.

Í dag höfum við bóluefnin, í dag höfum við lyf sem virka.

 

Ekkert réttlætir því Groundhog day endurtekninganna.

Veiruna þarf að feisa á meðan bólusetningar virka.

 

Annað er afglapaferð.

Í anda þess frelsis sem afneitar alvarleik veirunnar eða staðreyndum sem sóttvarnaryfirvöld byggja ákvarðanir sínar á.

 

Heimskan er valkvæð.

En það er líka valkvætt að læsa samfélaginu vegna veiru sem bólusetningar koma í veg fyrir alvarleg veikindi.

Þetta er næstum því eins og að banna kvef.

 

Frelsum því skynsemina.

Stjórnum þessu.

 

Mætum veirunni á meðan við ráðum við hana.

Kveðja að austan.


mbl.is Vonar að stigið verði á bremsuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Við erum enn á barmi stór­slyss í lofts­lags­mál­um"

 

Segir Guter­res, aðal­rit­ari Sam­einuðu þjóðanna, stóra spurningin er þá, af hverju gerir hann þá ekkert??

"Lofts­lags­breyt­ing­ar ógnar til­veru mann­kyns" segir "Carolyn Maloney, sem er formaður eft­ir­lis­nefnd­ar full­trúa­deild­ar Banda­ríkjaþings við yfirheyrslu á forstjórum stóru olíufyrirtækjanna vestra.  Það var eins og hún var að gera þá ábyrga fyrir notkun mannkyns á jarðeldsneyti, líkt og hún væri að leita að blóraböggli til að réttlæta aðgerðaleysi Bandaríkjanna í lofslagsmálum.

"Stund sann­leik­ans fyr­ir mann­kynið" sagði Boris Johnson í aðdraganda lofslagsráðstefnunnar, í opnunarræðu sinni líkti hann ógninni af manngerðum lofslagsbreytingum við dómsdagtæki út James Bond mynd, þó nærri lagi væri að hann sýndi cult kunnáttu og líkt henni við Helstirnið í Star Wars.

 

Úlfur, Úlfur var hrópað og niðurstaðna var gaggandi hæna.

Svo ætlast þetta fólk til þess að það sé tekið mark á því.

 

Ef hættan er svona alvarleg, þá mæta menn henni, í stað þess að tala um hana, mála hana sterkum litum, og gera svo lítið sem ekkert sem skiptir máli.

Slíkt er alltaf blekking, sýndarmennska.

 

Í viðtengdri frétt er sagt að "Alok Sharma, for­seti COP26 var tár­vot­ur um aug­un þegar þegar niðurstaðan var ljós og baðst af­sök­un­ar því hvernig mál­in hefðu þró­ast."

Hver biðst afsökunar í stað þess að standa í lappirnar og segja, þetta er rangt?

Við gerðum ekki nóg segir aðalritarinn, skrýtin játning þegar fyrir liggur að loftslagsvísindamenn segja að "að þær aðgerðir sem voru samþykkt­ar dugi skammt til að sporna við hlýn­un jarðar."

Til hvers eru þá menn að þessu, til hvers er leikurinn gerður??

 

Þetta er svona eins og að ef stjörnufræðingar hefðu fundið lofstein á braut um sólu sem myndi skarast við braut jörðu eftir 5 ár, mannkynið hefði  5 ár til að þróa eldflaug sem myndi mæta steininum og sprengja hann í loft upp, en ágreiningur um hver ætti að gera hvað, bera ábyrgðina og svo framvegis, varð til þess að samþykkt var að varnir jarðar yrðu í því fólgnar að flokkur götustráka yrðu settir uppá Effel turninn og þeir ættu að kasta steinum í átt að loftsteininum eftir að hann kæmi inní gufuhvolf jarðar.

Eitthvað sem skiptir engu, en leiðtogar jarðar gætu þó sagt að þeir hafi náð samkomulagi þó það "sé ekki nóg".

Hvaða skrípaleikur er þetta eiginlega??

 

Nú þegar er byrjað að taka viðtal við íslensku lofslagstrúðana sem tala um árangur, skref í rétta átt, og eru örugglega þegar byrjaðir að brugga hinu dreifðu byggðum sem og tekjulægri hópum launráð sín.

Kostnaður við samgöngu og flutninga verður brátt óbærilegur fyrir landsbyggðina, kolefnaskattur umhverfisráðherra mun bíta tekjulægri hópa svo þeir dragi úr ferðum og ferðalögum, eitthvað sem skiptir litlu því hinir tekjuhærri bera meginábyrgðina á því kolefnaspori.

Svo fara menn að gróðursetja tré, horfandi framhjá því að vegna hlýnandi veðurfars eru tré að spretta upp í tugþúsundavís á hverju ári af sjálfsánu fræi.

Og jú, hækka raforkuverð, þvinga orkuskipti í samgöngum með illu uppá þjóðina, og bæta fríverslunarkjörin við Kína svo það er öruggt að það litla jákvæða sem gert er, þurrkist út með innflutningi á ódýrum kolefnamengandi varningi.

 

Í því síðastnefnda kristallast nefnilega hin algjör hræsni íslenskra ráðamanna varðandi lofslagsbreytingar af mannavöldum.

Innlend framleiðsla, vörur og þjónusta frá orku sem er umhverfisvæn, er brotin niður með innflutningi á ódýrum vörum frá mengunarbæli heimsins.

Það dugar ekki minna en fríverslunarsamningur til að tryggja innflutning á þeirri mengun.

 

Aðförin að íslenskum landbúnaði er annað dæmi.

Í stað þess að efla innlenda matvælaframleiðslu, nýta jarðorkuna okkar til að framleiða megnið af öllu grænmeti og ávöxtum sem þjóðin þarf, gera kjötframleiðsluna að fyrirmynd fyrir heimsbyggðina varðandi kolefnisspor, þá er stjórnvöld í beinu stríði við landbúnaðinn.

Raforkukostnaðurinn er vísvitandi hækkaður með vísan í ESB reglugerðir í stað þess að líta á matvælaframleiðendur sem eina samningsheild og bjóða þeim rafmagn á stóriðjuverði, flutningsgjöld stórhækkuð með eldsneytissköttum og kolefnaskatti, að ekki sé minnst á hina hægdrepandi aðgerð að leyfa innflutning á ófrosnu kjöti, tifandi tímasprengju búfjársjúkdóma.

 

Eitt er sagt, annað er gert.

 

Það sama gildir um hinn stóra heim, ríki þriðja heimsins sem bera enga ábyrgð á útblæstri gróðurhúslofttegunda, þurfa sætta sig við orkuskort og það sem býðst verður á verði sem fátækir íbúar viðkomandi landa munu hafa illa efni á. 

Skýringin er kárínur gagnvart jarðeldsneytisiðnaðinum sem og hinn tilbúni orkuskortur í Evrópu.

Matvælaverð mun hækka, burt séð frá öllum meintum náttúruhamförum, dýrari orka eða orkuleysi hækkar öll aðföng og ef bændur eiga að lifa af, þá þurfa þeir hækkun á afurðum sínum.

 

Orkuskortur, hungur, hjá fólki sem síst skyldi og enga ábyrgð ber.

Þannig er framtíðarsýn lofslagsráðsstefna Sameinuðu þjóðanna, aðgerðir sem eiga bíta, svo ég vitni í umhverfisráðherra, vega að lífi og tilveru fátækari hluta heimsbyggðarinnar, jafnt í þriðja heiminum sem og á Vesturlöndum.

Að baki er helstefna hugmyndafræði sem færir mengun til, frá Vesturlöndum í kolabræðslur Kína og Indlands, sem skattleggur orku til að þvinga fram orkuskipti, í orkugjafa sem sannarlega í dag geta ekki sinnt núverandi orkuþörf mannkyns.

Helstefna sem fjármagnar og gerir út lofslagstrúða, og nærir múgæsing, aðallega æskunnar sem býr í foreldrahúsum og nýtir fjármuni sína í borgarferðir mörgum sinnum á ári, og heimsreisur þess á milli.

Með öðrum orðum, Leikhús fáránleikans.

 

Þetta er aumkunarvert.

Það er aumkunarvert fólk sem mætti til Glasgow og gerði sjálfa sig og heimsbyggðina að fífli.

Það verður síðan ennþá aumkunarverðar þegar það berst fyrir kvaðir á náungann og þvingar fram orkuskipti í löndum sem hafa ekki aðra orku til að hlaupa í.

Því hin manngerða kreppa mun engu breyta um lofslagsvána, þó litla Evrópa hætti að blása gróðurhúsloftegundum út í andrúmsloftið, þá er aukningin í kolbrennslu glóbalsins það mikil að heildarmengun eykst, og það er það sem skiptir máli.

Mengun á heimsvísu en ekki mengun einstakra landa.

 

Á meðan megnið af neysluvörum heimsbyggðarinnar er framleitt í Kína og í minna mæli hjá öðrum verksmiðjubúum alþjóðavæðingarinnar, þá skiptir engu þó vel stæð ríki nái að fjármagna orkuskipti sín, eða ofstækisfólk að knýja þau í gegn.

Koltvísýringurinn í andrúmsloftinu eykst, veðuröfgar magnast, mannkynið allt situr í súpunni.

Þess vegna er svo broslegt þegar leiðtogar landa eins og Danmerkur eða Kosta Ríka í sýndarmennskunni einni saman stíga á stokk og segjast hætta að nota jarðeldsneyti fyrir 2050, jafnvel þó tugir leiðtoga smáríkja herma eftir þeim, þá skiptir það engu.

Ekki á meðan Kína og Indland er ekki með, og ekki á meðan hin "frjálsa" verslun glóbalsins drepur niður alla framleiðslu en þá sem kemur frá mengunarsóðunum.

 

Eitthvað svo augljóst.

Nema það segir þetta enginn.

Enginn bendir á hinn nakta keisara og segir; Oj bara.

 

Á meðan grætur framtíð barna okkar í takt við grát jarðar.

Kveðja að austan.


mbl.is Nýr loftslagssamningur samþykktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannleikann um loftslagsráðstefnur Sameinuðu þjóðanna.

 

Má sjá á þessari mynd um losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum frá Ríó ráðstefnunni 1992, en þá var alþjóðasamfélagið búið að viðurkenna hættuna og lofaði að grípa til aðgerða.

 

Screenshot (49)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vesturlönd hafa markvisst losað mengandi framleiðslu til Kína og í minna mæli til annarra svokallaðra nýiðnaðarríkja, sem hafa engar kvaðir haft, og getað losað að vild gróðurhúsalofttegundir út í andrúmsloftið.

 

Allar aðgerðir hafa í raun verið sýndarmennska, engu skilað til að draga úr útblæstri, þvert á móti, mun minna mengandi verksmiðjum hefur verið lokað og framleiðsla þeirra flutt til landa sem nýta kol sem aðalorkugjafa.

En kola menga margfalt meira en jarðgas, og mun meira en olía.

 

Það eru engar líkur á að eitthvað breytist á morgun í Glasgow, nema síður sé, útlit er fyrir að vestrænir lofslagstrúðar þrýsti á lofslagsskatta, og óraunhæf markmið um orkuskipti með einni afleiðingu, orkukreppu af mannavöldum.

Æ fleiri vestræn fyrirtæki munu leggja upp laupana, og þar sem neyslan minnkar ekki, eykst innflutningur á mengandi vörum frá Kína og öðrum mengunarsóðum.

Niðurstaðan, aukin loftslagsmengun, mannkynið fjarlægist loftslagsmarkmið sín.

 

Loftslagstrúðurinn, við þekkjum þá nokkra hérlendis, er nefnilega drifinn áfram af allt öðrum hvötum en þeim að gera eitthvað sem skiptir máli varðandi lofslagsmál.

Hjá honum snýst þetta um völd, um að viðhalda hræðsluáróðri með því að geta bent sífellt á að heimurinn versnandi fer, þökk sé honum og þeirri stefnu sem hann seldi sálu sína.

 

Það er nefnilega ekki einleikið hvað afneitun loftslagstrúðanna á raunveruleikanum, og því sem þarf að gera, líkist mjög hinum kostuðu friðarhreyfingum Vesturlanda á áttunda og níuna áratug síðustu aldar, en þar börðust menn fyrir einhliða afvopnun vestrænna ríkja gagnvart óvini sem var grár fyrri járnum, sem bætti í á meðan krafan var um að vestræn ríki leggðu niður vopn.

Að sjálfsögðu fjármögnuðu Sovétmenn þessa heimsku, friðartrúðarnir voru ekki vitlausir eftir allt saman, þeir voru aðeins verkfæri hagsmuna, og er það ekki sama með lofslagstrúðanna??

 

Hverjir hafa grætt á flutningi framleiðslu frá lókal yfir í glóbal??

Kínverjar vissulega en megnið af gróðanum hefur orði eftir í vasa glóbal fjármagnsins, sem lætur framleiða eins ódýrt og mögulegt er, og selur vestrænum neytendum á margföldu verði.

Sem dæmi þá myndu Nike skór ekki lækka mikið í verði, kannski 3-5%, ef framleiðslukostnaðurinn færi niður í krónu stykkið.

 

Þetta er liðið sem er að baki lofslagstrúðunum.

Þetta er liðið sem segir, ferðumst um á seglskipum svo við mengum ekki himinhvolfið, svo vitnað sé í einn trúðinn og ímynd hans.

Þetta er liðið sem stanslaust fóðrar hræðsluáróðurinn þar sem lausnin er skattar, álögur, aðför að störfum fólks, áróður sem kemur samviskubiti inní dýpstu hjartarrætur fólks, svo það trúir að þess eini kostur sé að hafna nútímanum og taka uppi hætti miðaldamanna, það er lífið fyrir jarðeldsneyti.

Eða réttara sagt, að fátæka fólkið sem hefur ekki efni á hinn nýju orku, fari þangað, atvinnulaust, eigandi ekki fyrir hita og rafmagni, hefur ekki efni á fæðunni eftir stórhækkun matvælaverðs, getur ekki ferðast, bæði fyrir sköttum og gjöldum, sem og það hefur ekki efni á töfrabílunum sem ekkert eiga að menga.

Það er nefnilega ekki bara loftslagstrúðarnir sem segja eitt og gera annað, sá sem er kvalinn af samviskubiti, hann fær sína syndaaflausn með því að styðja kvaðir á náungann.

 

Þetta er kjarni þess að ekkert breytist.

Vestrænir stjórnmálamenn eru í vasa hagsmuna sem hafa gert út á loftslagsumræðuna í áratugi, stjórna umræðunni, móta hugmyndafræðina, fóðra múgæsingu og heimsku.

Fóðra bæði loftslagsafneitara sem og lofslagstrúða.

Tryggja þar með ruglanda umræðunnar og það að ekkert sé gert sem skiptir máli, nema þá í flugumynd þess sem annars hægt væri að gera.

 

Á meðan hlýnar jörðin, sannarlega.

Og öfgarnar sem við höfum þegar séð í veðurfarinu undanfarin ár, eru aðeins upphaf þess sem koma skal.

Siðmenningin er undir því hún þolir ekki þessa veðuröfga, þegar heilu samfélögin hrynja, líkt og þegar er að gerast í Karabíska hafinu og hluta Mið Ameríku, þá leitar fólk þangað þar sem samfélögin halda ennþá velli.

Flóttamannastraumurinn sem við þekkjum í dag verður aðeins hjóm eitt miðað við þann sem á eftir að verða eftir áratug eða svo.

Svo heldur ástandið aðeins áfram að versna.

 

Það er ótrúleg forheimska að feisa þetta ekki.

Afneitun okkar er glæpur gagnvart lífinu sem við ólum.

 

Við sem örþjóð getum kannski lítið gert í hinu stærra samhengi, en okkar framlag gæti samt skipt sköpum, að við verðum fyrsta þjóðin sem segir lofslagstrúðunum að þegja þegar þeir koma heim með óráð sín frá þessari ráðstefnu sýndarmennskunnar og blekkingarinnar.

Það væri þarft, bæði fyrir okkur og heiminn.

 

Við erum ekki heimsk.

Það er í eðli okkar að verja lífið sem við ólum.

 

Og það er úrkynjun að gera það ekki.

Kveðja að austan.


Það er faraldur Haraldur.

 

Nema Haraldur Briem er víst ekki lengur sóttvarnalæknir.

Eftir stendur spurningin, hvernig ætlum við að tækla þennan haustfaraldur, núna þegar ljóst er að bólusetningar koma ekki í veg fyrir smit, og fáum dettur í hug lengur að skella skuldinni á óbólusetta.

 

Ætlum við að verja landamærin??.

Ætlum við að þrauka í nokkurn veginn eðlilegu samfélagi þar til obbinn er búinn að fá þriðju sprautuna?

Ætlum við að efla heilbrigðiskerfið til að takast á við þessu fáu prósent sem bólusetningin er sögð ekki vernda??

Eða ætlum við virkilega, virkilega að hjakka aftur og aftur í sömu hjólförunum, spilandi sömu plötuna, að það sé kominn faraldur??

 

Þessum spurningum þurfa heilbrigðisyfirvöld að svara, annað er háðung, líkt og reka puttann framan í þjóðina.

Það er síðan vítavert að þeim hafi ekki þegar verið svarað, og niðurstaðan kynnt núna þegar heilbrigðisyfirvöld telja sig knúin til að herða sóttvarnir með tilheyrandi inngripi í daglegt líf fólks.

Það er ekki eins og það hefði ekki verið vitað að bólusettir bæru með sér smit þegar landið var opnað, og þá þegar voru komnar fram vísbendingar frá Ísrael að virkni bóluefna gegn smiti minnkað hratt nokkrum viku eftir bólusetningu, þó enginn hefði kannski trúað að þetta væri svikin vara, og landsmenn væru ekki einu sinni öruggir fram að jólum.

 

Svar óskast.

Annað en að það sé faraldur, Haraldur.

Kveðja að austan.


mbl.is Hertar aðgerðir á teikniborðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsspítalinn kallar á hertar aðgerðir.

 

Hættir að ráða við ástandið á næstu dögum.

Gott og vel, ekki er hægt að mótmæla því að bólusetningar ná ekki að hemja kóvid veiruna, og eitthvað þarf að gera.

Og eins og staðan er í dag, þá er augljóst að við þurfum að láta eins og þjóðin sé ekki bólusett, og byrja aftur að loka og læsa.

 

En samt þurfum við að spyrja okkur einnar spurningar, er það boðlegt að stjórnvöld opni ítrekað fyrir innflutning á veirunni, eftir langt tímabil fórna almennings, og það koma alltaf jafn mikið á óvart að faraldurinn fari á flug á ný??

Aftur og aftur, og alltaf jafn hissa.

Alltaf sami einfeldningshátturinn, sagt að núna sé óhætt að slaka á hömlum, því aðrar þjóðir gera það.

 

Ekki að það er ekki til lengdar hægt að loka heila þjóð inni, bæði inní landinu sem og inná heimilum sínum og fólki sé meinað fátt annað en að sinna vinnu og heimili því annars er lokað á flest allt sem tengist afþreyingu og tómstundum.

En samt, á einhverjum tímapunkti þarf að treysta á varnirnar, bæði bólusetningu, ný lyf, bætta meðferð, sem og þekkingu almennings við að sinna persónulegum sóttvörnum.

Sem og að gera heilbrigðiskerfinu kleyft að takast á við kúfinn á meðan hann gengur yfir.

 

Og það er þar sem stjórnvöld hafa brugðist, staðan á Landsspítalanum er nákvæmlega sú sama og í upphafi faraldurs, nema núna er hún verri ef eitthvað er því það saxast á starfsfólk þegar það vinnur í langan tíma undir svona stöðugu álagi eins og hjúkrun kóvidsjúklinga er.

Hvernig dettur heilvita manni í hug að það sé hægt að takast á við heimsfaraldur með aðeins 16 gjörgæslurúm, eða hvað lág sú tala annars er, því þetta er pikkað inn eftir minni.

Gjörgæslan ræður ekki einu sinni við alvarlegt rútuslys, ætla menn þá til öryggis að banna allar rútuferðir??

 

Það er eitthvað mikið virkilega að í stjórnun þjóðarinnar í dag.

Það er ekki eðlilegt að faraldurinn komi mönnum jafn mikið á óvart, og söngurinn sé alltaf sá sami, núna þarf að herða því Landspítalinn ræður ekki við ástandið.

Og ástandið slær ekki einu sinni við meðalflensu, ekki í augnablikinu, þökk sé bólusetningunni sem virðist þó duga til að koma í veg fyrir alvarleg veikindi fjöldans.

 

Þetta er ekki lengur boðlegur málflutningur hjá sóttvarnalækni eða stjórnendum Landsspítalans.

Þetta er meðvirkni með algjörlega óviðunandi ástandi og sofandahætti stjórnvalda.

 

Það er ekki endalaust hægt að biðla til þjóðarinnar á meðan ekki er kjarkur til að benda  á hinn raunverulega vanda sem er lamað sjúkrahúskerfi eftir langvarandi flatan niðurskurð síðustu áratuga, því vandinn er miklu dýpri en svo að hægt sé að tala um eitthvað sem núverandi ríkisstjórn ber ein ábyrgð á.

En hennar er ábyrgðin að hysja upp um sig brókina, og bæta úr, bæta í, að gera í stað þess að tala.

Samsektin er hins vegar þeirra sem þegja þegar þeir eiga að krefjast tafarlausra úrbóta og aðgerða.

 

Hringekja vitleysunnar þarf að ljúka.

Strax, helst í gær.

 

Munum svo að það er kostnaður að loka samfélaginu, kostnaður sem fellur beint og óbeint á ríkissjóð.

Margfaldur miða við það fjármagn sem þarf að setja í gjörgæslukerfið svo það geti sinnt hlutverki sínum á tímum heimsfaraldurs.

 

Þjóðin er ekki leikfang sem er hægt að setja í skúffu hvenær sem ráðþrota fólk rekur sig á heimsfaraldur veirunnar.

Það er mál að linni.

Það þarf að tala mannamál og gera það sem þarf að gera.

 

Þá er stuðningur vís.

Kveðja að austan.


mbl.is Aðgerðir verði hertar strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengur axarmorðingi laus á Menntamálastofnun??

 

Eða hvernig á að skilja þessi orð fréttaþular í hádegisfréttum Ruv; "stjórnarhættir á Menntamálastofnun ógnar lífi og heilsu starfsfólks".

Og er ekki von þó meintur sökudólgur kvarti yfir að mat mannauðsfyrirtækisins Auðnast standist ekki kröfur um hófsemd og nærgætni ef það er hægt að leggja þessi orð út af skýrslu fyrirtækisins.

 

Í fréttinni, reyndar hjá Ruv og eins hér á Mbl.is, er talað um öryggi og heilsu en samt, er ekki verið að ræða um vinnustað blýantsnagara??

Skrifstofufólks þar sem menntagráðurnar eru örugglega fleiri en hausatalan að baki, helstu meint vopn blýantur, penni og lyklaborð.

Eða er verið að meina að orð séu orðin svo illvíg að heilsa og öryggi er undir??

 

Svo er talað um kynferðislegt ofbeldi, kynferðislega áreitni og einelti, sem er þá líklegast ekki kynferðislegt, en heyrðu, varðar þetta ekki allt við lög í dag??

Var ekki ríkissaksóknari núna nýlega að eltast við meint káf hjá ellilífeyrisþega á fyllerí í heimahúsi á Spáni, draga gamalmenni fyrir dóm og krafðist fangelsisrefsingar??

Svona í ljósi ástandsins í undirheimum Reykjavíkur, þar sem eitrið flýtur, handrukkarar fara ekki lengur hljótt með níðingsverk sín, komast upp með að drepa fólk án þess að vera ákærðir, að ekki sé minnst á að þeir sem selja eiturlyf fyrir opnum tjöldum fá alltaf bætur frá ríkinu eftir að löggan vogar sér að skipta sér að iðju þeirra, og já, eru farnir að drepa hvorn annan að hætti erlendra mafíósa, þá er ljóst hve alvarlegum augum ríkissaksóknari, og þær konur sem eru undir hans stjórn, líta meinta kynferðislega áreitni.

Menn geta síðan ímyndað sér viðbrögðin ef gamalmennið hefði gerst sig sekan um kynferðislegt ofbeldi, eða verið sakaður um slíkt, svo af hverju, af hverju kæra ekki meint fórnarlömb, vita þau ekki að þetta er bannað? Eru þau meðvirk, er meðvirkni ekki líka glæpur??

 

Þó meintur dólgur eigi í hlut, þá er svona fréttaflutningur og svona umfjöllun ekki boðleg.

Það er verið að gjaldfella alvöruna þar til við hættu að gera greinarmun á raunverulegri hættu og raunverulegu ofbeldi og upplifun fólks á slíku.

Því sá sem verður fyrir ofbeldi upplifir ekki, hann er beittur ofbeldi.

Svona framsetning er til þess eins hugsuð að bola viðkomandi yfirmanni úr störfum, líklegast vegna þess að ráðherra telur sig ekki hafa neitt í hendi til að reka hann, eða réttindi ríkisstarfsmanna gera honum það ókleyft.

 

Nema þetta er bara ekki rétta leiðin, þetta er leið ístöðuleysisins og aumingjaskaparins.

Alveg eins og grenjið sem kemur fram í skýrslunni, hver vinnur á stað þar sem heilsa hans og öryggi er í húfi??

Hver vinnur á stað þar sem hann er beittur kynferðislegu ofbeldi??

Hver tekur ekki á móti og ver mennsku sína og réttindi??

 

Það er skítalykt af þessu.

Og sú lykt kemur ekki bara úr forstjórastólnum.

Sá sem þarf skýrslu frá fyrirtæki út i bæ til að fóðra neikvæða fjölmiðlaumfjöllun svo hann treysti sér til að reka undirmann sinn, hann er ekki starfi sínum vaxinn.

 

Kemur ekki á óvart að viðkomandi er ráðherra í ríkisstjórn Íslands.

Hafið þið ekki heyrt um kóvid??

Ekki ríkisstjórnin, núna einu og hálfu ári eftir að heimsfaraldurinn hófst, hefur hún ekki lagt krónu í að mennta gjörgæslustarfsfólk og fjölga gjörgæslurúmum.

Slíkur er fílabeinsturninn sem núna er staddur á ráðstefnu um hvernig hægt er að koma tekjulægri hópum aftur á miðaldir með sköttum og atvinnumissi.

 

Það vantar tötsið.

Kellingavælið hefur tekið yfir.

 

Trúið mér, það gengur ekki axarmorðingi laus.

Hann var handtekinn 1596 og ekkert til hans spurt síðan.

 

Alveg satt.

Kveðja að austan.


mbl.is Matið standist ekki kröfur um hófsemd og nærgætni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (5956)
  • Screenshot (5957)
  • Screenshot (5952)
  • Screenshot (5951)
  • Screenshot (5886)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 421
  • Sl. sólarhring: 646
  • Sl. viku: 3970
  • Frá upphafi: 1483308

Annað

  • Innlit í dag: 370
  • Innlit sl. viku: 3455
  • Gestir í dag: 336
  • IP-tölur í dag: 329

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband