23.6.2025 | 15:52
Eru engin mörk á áróðri Hamas deildar Morgunblaðsins??
Hvers á borgarlegt fólk að gjalda??
Hversu heimsk getur ein borgarleg ritstjórn verið að láta svona áróður morðóðra Íslamista seytla inn á síður blaðsins, hvort sem það er á pappír eða í netútgáfu??
Formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, af öllum víðáttuvitleysingum sem blaðið gat fundið, þá er hann álitsgjafi blaðsins í dag.
Það má deila um vit og vitsmuni þeirra íslensku stjórnmálamanna sem viðurkenna ógnina af kjarnavopnum í höndum morðóðra Íslamista, en á sama tíma fordæma árásir þeirra ríkja sem leitast við að útrýma þeirri ógn.
Sjálfsagt að koma sjónarmiðum þeirra á framfæri, þau sjónarmið endurspegla í stærra samhengi áhrifaleysi Evrópu, af hverju enginn tekur mark á henni í dag.
En að gefa þessari úrkynjun vitsmuna rödd, er fyrir neðan virðingu Morgunblaðsins, sem og allra borgaralegra blaða.
Morgunblaðið er ekki Stundin, og lesendahópur þessara miðla skarast ekkert.
Samt efa ég að ritstjórn Stundarinnar sé svo heimsk að fatta ekki ógnina af kjarnavopnum í höndum morðóðra Íslamista.
Þessi áróður er ekki blaðamennska.
Hún er firring veruleikafirrts fólks sem ástundar áróður fyrir morðingja, fyrir voðamenni þar sem blóðslóðin fylgir hverju fótspori.
Þá er ég ekki að vísa í formann Samtaka hernaðarandstæðinga heldur útibú áróðursvélar Hamas á Morgunblaðinu.
Borgarleg ritstjórn, sem líður þennan áróður dauðans.
Er ekki starfi sínu vaxin.
Það er mál að linni.
Kveðja að austan.
![]() |
Óttast allsherjarstríð í Persaflóa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Segir Kristrún Frostadóttir í þessari frétt á Mbl.is. Bætir svo við; "Það er því mikið áhyggjuefni að diplómatískar leiðir hafi ekki verið þrautreyndar áður en til þessara loftárása kom".
Þessi sama Kristrún, nauðsynlegt að taka það fram að þetta er ekki sitthvor manneskjan, segir líka og Morgunblaðið tekur saman í fyrirsögn fréttarinnar, að Klerkarnir með kjarnavopn séu ógn við heimsfriðinn.
Já, það er sem sagt þess vegna það eigi að semja við þá.
Við getum séð í anda þessar samningaviðræður, ímyndað okkur að Kristrún hafi fengið að fljóta með dvergunum sem hafa svo gaman að koma saman til að láta taka mynd af sér, segja eitthvað gáfulegt og lifa í þeirri blekkingu að einhver hlusti á þá og jafnvel taki mark á þeim.
Ekki einu sinni ormur tekur mark á tannlausri gaggandi hænu, hvað þá minkurinn sem á leið inní hænsnahúsið.
Dvergarnir: Við í Evrópusambandinu og Bretlandi teljum að fyrirhuguð kjarnavopn ykkar sé ógn við stöðugleika og heimsfrið, við viljum því að þið hættið við að auðga úran og smíða kjarnorkusprengju.
Klerkarnir: Við erum ekki að smíða kjarnorkusprengingu, öll auðgun úrans okkar er í friðsamlegum tilgangi og það er öryggisatriði að fela okkar friðsömu kjarnorkustarfsemi djúpt í iðrum jarðar, það verður sko engin geislamengun ef eitthvað fer úrskeiðis.
Dvergarnir: Samt, ef ske kynni að kjarnorkusprengja yrði óvart til, viljið þið ekki þiggja pening fyrir að taka hana í sundur og halda áfram að vera friðsamir.
Klerkarnir: Ekkert nema sjálfsagt að þiggja fjármuni fyrir að hætta við að gera það sem við erum ekki að gera.
Samningaviðræðum lokið, dvergarnir tilkynna mikinn árangur, heimsfriðurinn sé tryggður um ókomna framtíð, góður frasi er jú til að nýta, og sérstaklega er Kristrúnu Frostadóttur þakkað fyrir mikla glöggskyggni og fallega viðveru.
Þó þessi lýsing á meintum samningaviðræðum sem kallað er eftir, sé skrifuð í háði, þá nær hún samt ekki þeim fáráðum að baki orðum þeirra sem hvetja til stillingar og samningaviðræðna.
Það er eins og vitið sé ekki meira en það að þetta blessaða fólk viti ekki að það sé þegar búið að reyna samningaleiðin, og samningar tókust, þeir voru bara ekki virtir.
Heldur nýtti Íran tímann og fjármunina sem það fékk vegna samninga sem stóð aldrei til að virða, til að grafa alla sína kjarnorkuvopnaframleiðslu í jörð svo erfiðara yrði að sækja að henni.
Ef þeir sem hvetja til samninga, en telja jafnframt að klerkar með kjarnavopn ógni heimsfriðnum, þá meina þeir ekkert með ákalli sínu um frekari samningaviðræður, ekki frekar en klerkarnir meini eitthvað með að semja um eitthvað sem þeir segjast ekki vera að gera.
Samningatalið er þá hugsað til að fóðra heimska fjölmiðlamenn sem og heimskt fólk í löndum sínum, það er svona svipuð mandra eins og að kalla eftir friði á Gasa, en minnast ekki einu orði á að forsenda slíks friðar er að Hamas sleppi gíslum sínum og leggi niður vopn sín.
Og þegar fólk bullar svona, líkt og Kristrún Frostadóttir gerir í þessu viðtali, þá fljóta öfugmælin eins og að Ísraelar og Bandaríkjamenn "hafi aukið stigmögnun með árásum sínum gegn Írönum, sem ógni stöðugleika á svæðinu."
Því það er einbeittur vilji klerkana til að koma sér upp kjarnorkuvopnum, vopnum sem þeir segjast ætla að nota til að brenna Ísraelsríki upp til agna, sem ógnar stöðugleika á svæðinu og neyðir önnur forysturíki í Mið-Austurlöndum til að koma sér upp kjarnvopnum.
Þar með verður næsta stríð þar háð með gjöreyðingarvopnum, og það er ógn við heimsfriðinn. Kemur vissulega á stöðugleika, því þar sem er ekkert líf, þar er enginn óstöðugleiki.
Þetta vita allir innst inni, nema þá allra heimskasta fólk.
Og alveg eins og ég tel Íslamistana í Teheran ekki vitfirrta, þá tel ég hvorki Kristrúnu eða dvergana vera í þeim flokki, það er allra heimskasta fólk.
Svona tal segir hins vegar ýmislegt um hvernig opinber umræða hefur þróast á þessari öld, eða hvaða álít viðkomandi ráðamenn hafa á kjósendum sínum.
En svona tal, að hugsa eitt en segja annað, er hins vegar ávísun á frekari stigmögnun átaka, því það freistar klerkana til gagnárása, því það mætti halda að andstaðan gegn þeim væri ekki einörð.
Sem hún er, það styður þá enginn nema nautheimskt fólk.
Árásir á olíumannvirki við Persaflóann eða stöðvun siglinga um Hormússund er til dæmis það síðasta sem til dæmis Kínverjar vilja, hagkerfi þeirra á allt undir ótrufluðum alþjóðaviðskiptum.
Þess vegna er sýndarstuðningur við klerkana í formi fordæmingar á þessum lífsnauðsynlegum árásum, eða ákalli um einhverjar samningaviðræður við þá sem virða ekki samninga, stórhættulegur, eykur líkur á stigmögnun og frekari ófriði.
Ófriður sem verður samt alltaf staðbundinn því Kínverjar og Rússar munu ekki skipta sér að honum.
Við lifum þá tíma að froða Dagískunnar er ekki í boði og við þurfum að fatta það áður en það verður of seint.
Öfgaöflum þarf að mæta alls staðar í heiminum, þau skilja ekkert annað en tungutak valdsins.
Og ef það kemur til stríða, þá er betra að þau séu háð með hefðbundnum vopnum en gjöreyðingavopnum.
Því á meðan það er líf, þá er von.
Von um frið á jörðu.
Sá friður er aldrei keyptur með samningum við þá sem telja sig hafa rétt til að drepa aðra.
Hvort sem það er í nafni trúar eða hugmyndafræði.
Þar er ekkert val.
Kveðja að austan.
![]() |
Klerkarnir með kjarnavopn ógn við heimsfriðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2025 | 12:46
"Það er búið að kveikja í púðurtunnunni"
Er fyrirsögn á annarri frétt hér á Mbl.is og vitnað í skrif Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur þar sem hún talar um "hugarheim vænisjúkra hefnigjarnra valdakarla".
Þá vitum við það, Churchill var sem sagt vænisjúkur hefnigjarn valdakarl þegar hann sagði að það þyrfti að mæta hernaðaruppbyggingu nasista áður en þeir hæfu árásir sínar. Fólkið sem dó, en hefði lifað ef einhver hefði hlustað á Churchill, er ekki sammála þessum orðum Ingibjargar, það er ef einhver miðill myndi spyrja það.
Hins vegar hefur Ingubjörg algjörlega rétt fyrir sér um að það sé búið að kveikja í púðurtunnunni, það var gert 7. október 2023, síðan þá hefur eftirleikurinn verið nokkuð ljós.
Svar kerlingarinnar sem hefur látið uppgang Íslamista í Mið-Austurlöndum viðgangast alltof lengi, er svar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir og lesa má um í viðtengdri frétt:
""Við höfum lagt áherslu á, eins og önnur Norðurlönd, að þetta verður ekki leyst með hernaði. Þetta verður að leysa með samningaviðræðum og öflugum diplómatískum leiðum", segir Þorgerður. "Það er knýjandi nauðsyn að fá Írana að samningsborðinu af því það væri stórslys ef þeir myndu eignast kjarnorkuvopn"."
Sem sagt Chamberlain var gáfumenni og leiðir hans að semja við ofbeldisfólk með undanlátsemi, eru ekki fullreyndar.
Íslamistar eiga ekki að eiga kjarnorkuvopn, þeir upphefja dauðann með sítali sínu um píslarvætti og píslarvotta, hika ekki við að fórna eigin fólki í tugþúsunda tali til að ná markmiðum sínum líkt og Hamas gerði með árásum sínum á Ísrael.
Talsmáti þeirra er sá sami og talsmáti Hitlers í neðanjarðarbyrgi sínu þegar Sovétmenn sátu um Berlín, nema að Hitler var þá firrtur öllu viti, en margt má segja um það mannlega ógeð sem Íslamistar eru, en vitfirrtir eru þeir ekki.
Þess vegna er það ekki stórslys að þeir eignist kjarnorkuvopn, þeir mega ekki eignast þau.
Korteri fyrir sprengingu er það gert sem átti að vera gera fyrir langa löngu síðan.
Átti að gerast um leið og ljóst var að Íran var að auðga úran til að koma sér upp kjarnorkusprengingu, átti að gerast áður en þeir fengu fjármagn frá Obama og öðrum víðáttuvitleysingum kerlingarinnar við grafa kjarnorkuuppbyggingu sína inní fjöll.
Þá hefði þessi púðurtunna aldrei orðið, því aðeins vitfirringur sækir að þar sem hann veit að honum er svarað af fullri hörku.
Og eins og áður sagði, þá eru Íslamistar margt, en vitfirrtir eru þeir ekki.
Þeir aðeins misreiknuðu sig þegar þeir öttu Hamas til að fremja þjóðarmorð á sínu eigin fólki með árásum sínum á Ísrael og gíslatökunni svo tryggt væri að Ísraelsher kæmi á eftir þeim, og hætti ekki árásum sínum fyrr en síðast gíslinn væri laus úr haldi, hvort sem hann væri lífs eða liðinn.
Þeir vita eins og er að stigmagni þeir átökin án þess að hafa til þess nokkra burði, þá er eina svar Bandaríkjamanna að sprengja Íran aftur í miðaldir, með fullum stuðningi olíuríkjanna við Persaflóann, og ekkert stórveldanna mun skipta sér að því.
En það veit enginn hvað sá gerir sem hefur engu að tapa.
Þar liggur efinn sem næstu dagar munu svara.
Sprengingarnar í nótt voru nauðsynlegar, fyrirsjáanlegar.
Aðeins heimskur spilar þá plötu sem Góða fólkið spilar og vitnað er í í þessum pistli.
Það er ekki hægt að semja við þann sem ætlar sér aldrei að virða þá samninga.
Nú reynir á hvort Góða fólkið sé óendanlega heimskt eða girðir sig í brók og styður ístaðið gegn því óeðli sem Íslamistar eru og standa fyrir.
Hætti þessu væli og mynda þéttan stuðningsmúr að baki þeim sem gerðu það sem gera þurfti.
Því við eigum öll líf sem þarf að verja.
Og það líf er ekki varið með undanlátssemi við þá sem upphefja dauðann, telja sig hafa rétt til að drepa, til að útrýma öllum sem eru ekki eins og þeir sjálfir.
Í gær var það nasisminn.
Í dag er það Íslamistinn.
Staðreynd sem er ekki umflúinn.
Og þeim þarf að mæta.
Þar er ekkert val.
Kveðja að austan.
![]() |
Árásin mikið áhyggjuefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.6.2025 | 20:55
Af hverju eru Tyrkir ennþá í NATÓ??
Spurt ekki bara vegna þess að Erdogan Tyrklandsforseti er síðasti einræðisherrann í Evrópu.
Jafnvel þó leppur Pútíns, þessi þarna í Hvíta Rússlandi sé tekinn með í dæmið, þá réðst hann, það er Lúkasjenkó, á stjórnarandstöðuna eftir að hún vefengdi stýrðar kosningar hans, en Erdogan sviðsetti valdarán, sem aðeins heimskt fólk sá ekki í gegnum, svona líkt og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, og nýtti þá sviðsetningu til að útrýma veraldlegum öflum í Tyrklandsher.
Svo þegar hann sá fram á að tapa næstu forsetakosningum, þá lét hann réttarkerfi sitt, í sínum heljargreipum (Nei við erum ekki að tala um Sigríði ríkissaksóknara og Wókið hennar) ákæra keppinaut sinn, næsta sigurvera forsetakosninganna um spillingu, (Nei hann var ekki ákærður fyrir að segja að guð skapaði aðeins 2 kyn, og lét læsa hann inni.
Heldur vegna þess að Tyrkir, undir forræði Íslamistans Erdogans, hefur lengi verið skjól og skjöldur Íslamista, hvort sem þeir eru í Hamas eða Ríki Íslams.
Kalfífadæmi Íslamistann í Ríki Íslams, í suður hluta Sýrlands og Norður Írak, hefði aldrei átt sér stað nema vegna stuðnings Tyrkja.
Og þegar það ógnarríki var brotið á bak aftur, þá fengu Íslamistarnir skjól innan landamæra Tyrklands. Seinna sendir til að herja á Kúrda, undir nafni Tyrkjahers.
Efist einhver um þá tengingu, þá sanna brjóstaskorin lík herkvenna Kúrda hvaðan viðbjóðurinn kom sem fylkti sér undir fána Erdogans.
Erdogan er einræðisherra, hann er morðingi, og hann stendur fyrir algjöran viðbjóð þess viðbjóðslegasta, Íslamista og voðaverk þeirra.
Samt virtur meðlimur í Nató, kaldhæðnari getur ein hræsni ekki orðið.
Ísrael réðst á Íran af gefnu tilefni.
Íran stóð að baki voðaverkum Hams 7. október 2023, með þeim eina tilgangi að hefja allsherjar átök í Mið-Austurlöndum.
Íran stóð að baki árásir Húta i Jemen á alþjóðlegar siglingarleiðir, sem kerlingarnar hafa látið þá komist upp með.
Íran er korteri í að þróa kjarnorkuvopn.
Og utanríkisráðherra Tyrkja, þessa Trójuhest Íslamista innan Nató, segir að "vandinn liggi augljóslega hjá Ísrael".
Samt segir kanslari Þýskalands að Ísrael sé að vinna skítverkin, skítverkin gagnvart hinu eyðandi dauðaafli Íslamista.
Samt segir Trump forseti Bandaríkjanna að Íran hafi 2 vikur til að semja, annars verði ráðist á þær kjarnorkustöðvar sem auðga úran fyrir kjarnorkusprengjur íslamistanna í Íran.
Fyrir dauða, djöful og tortímingu.
Þarna fer ekki saman tal og mynd.
Natóríkið Tyrkland heldur öðru fram.
Íslamista þarf að stöðva, og það átti fyrir löngu vera búið að mæta þeim.
Rætur fjármögnunar þeirra á fyrir löngu að vera búið að höggva á.
Það var ekki gert, það er að höggva á ræturnar.
En í dag þarf að stöðva kjarnorkusprengju Írans.
Óeðli, sem upphefur dauðann í einhverju meintu píslarvætti við að drepa okkur hin, er eins og krabbameinsæxli sem þarf að skera burt.
Eyða, útrýma.
Annars útrýmir það okkur hin.
En það er aðeins hálfnað verk á meðan helsta stuðningsríki Íslamista er í Nató.
Tyrkir voru lýðræðisþjóð, og sjálfsagður bandamaður vestrænna ríkja í Kalda stríðinu.
Það var þá.
Í dag lúta Tyrkir stjórn Íslamista, eru í sjálfu sér ekki minni rót ólgu og upplausnar í Mið-Austurlöndum, en Íran.
Megin diffinn liggur í að Tyrkir fjármagna og styðja Íslamista af meiði Súnni-trúar, en Íran fjármagnar og styður sömu ógn gegn lífi og mennsku hjá trúbræðrum sínum meðal Shíta greinar Íslams.
En báðir drifkraftarnir sameinast í stuðninginn við systursamtök Ríki Íslams, Hamas á Gasa, þeir Íslamistar eru súnnitrúar, líkt trúbræður þeirra í Ríki Íslams, en Íran er hinn opinberi stuðningsaðili Hamas.
En að baki þeim opinbera stuðningi, liggja rætur til Tyrklands og Katar, í það minnsta.
Hamas deild Morgunblaðsins vitnar grimmt í Tyrki, hvað þeir segja, eins og þeir séu hlutlaus áhorfandi, en ekki beinn stuðningsaðili klerkastjórnarinnar í Íran.
Eða skjól og skjöldur voðaverka Íslamista um öll Mið-Austurlönd alla þessa öld.
Hamas deildinni er samt vorkunn, hún er ekki ein um þessa upphafningu einræðisherrans Erdogans og hins svarta hlutverk hans í voðaverkum og upplausn í þessum heimshluta.
Meginábyrgðin er jú hjá Nató.
Segir allt sem segja þarf um það bandalag í dag.
Um kerlingarnar sem stjórna Evrópu.
Kerlingar sem skilja ekkert í að voðamenni eru að taka yfir heiminn.
Voðamenni sem stefna á vargöld og váöld.
Á auðn og dauða.
Og komast upp með vegna þess að þeim er ekki mætt.
Af hverju eru Íslamistar í Nató??
Sú spurning segir allt sem segja þarf.
Kveðja að austan.
![]() |
Vandinn liggur augljóslega hjá Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2025 | 15:36
Með lygum á ekki landi að stjórna.
Það er leitun að öðrum eins ófögnuði og núverandi ríkisstjórn er.
Það vantaði ekki fögru fyrirheitin þegar lagt var af stað í vegferðina, sungið og trallað, allt átti að verða miklu betra en áður hafði tíðkast.
Síðan hafa svikin hlaðist upp, fögru fyrirheitin eru geymd í framtíðinni, í núinnu er enginn peningur til nema í stríðsrekstur og stríðsbrölt undir yfirskininu "að efla varnir þjóðarinnar".
Mannlíf á landsbyggðinni sætir stöðugum árásum, bætt er í svik fyrri ríkisstjórna með vanfjármagnað vegakerfi, þar sem þó er gert er þannig að hinir nýju vegir eru strax hálfónýtir vegna meintra loftslagstrúarbragða. Loftslagsskattar, sem leggjast þungt á hinar dreifðu byggðir, bæði samgöngur og flutninga, hækkaðir, eða boðuð hækkun á þeim, og vegið er að atvinnuvegum hinna dreifðu byggða.
Síðan er stríðsbröltið réttlætt með því að núna þurfi að fara inní Evrópusambandið, fyrst að samþykkja bókun 35, svo að sækja um aðild. Gleymd eru fyrirheitin um einhverja þjóðaratkvæðagreiðslu 2027.
Verst eru hins vegar lygarnar, hinar beinu rangfærslur sem eru út um allt í umræðunni.
Fremst er þar atvinnuvegaráðherrann og frumvarp hennar um sérstaka ofurskatta á fyrirtæki landsbyggðarinnar.
Núverandi tekjuskattur, þó hár sé, er ekki nægur, viðbótar ofurskattur er lagður á sjávarútveginn undir falsorðinu "auðlindagjald", tungumál andskotans notað til að tala um slíkan ofurskatt sem eitthvað sérstakt réttlætismál, að þjóðin eigi að fá arð af sinni sameiginlegu auðlind.
Eins og arðbærasta atvinnugrein þjóðarinnar því hún skilar svo miklu margfeldi út í samfélagið, greiði enga skatta og gjöld.
Núna hefur atvinnuvegaráðherra verið staðin að því að fara með beina lygi og ósannindi í forsendum og kynningu á þessu ofurskattlagningafrumvarpi sínu.
Viljandi var vitlaust reiknað til að reyna réttlæta ofurskattinn, eins og það sé hægt að réttlæta sérstakan ofurskatt á eina atvinnugrein umfram aðrar.
Það og margt fleira var afhjúpað í grein sem birt var á vef Samtaka fyrirtækja í sjávarútveginum, eitthvað sem Morgunblaðið hefur gert ágæt skil og óþarfi að reifa frekar.
Mig langar að vitna í góða grein eftir núverandi formann Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sem birt var í Morgunblaðinu í dag; "Skyldu þingmennirnir hafa áttað sig á því að það var enginn Norðmaður sem fór yfir meinta útreikninga á verðmyndun á uppsjávarfiski, þvert á það sem fjármálaráðherra hélt fram við kynningu á málinu þegar hann sagði mesta sérfræðing Norðmanna í verðmyndun uppsjávarfisks hafa staðfest þá?".
Þetta er það sem kallast á mannamáli að ljúga, þó í grein SFS er þessi fullyrðing aðeins sögð ósönn. Þar reyndar líka er klykkt á hvers eðlis vinnubrögð atvinnuráðherra eru; "Fullyrðingar ráðherra um að frumvarpið byggist á ítarlegri greiningu eru einfaldlega rangar, eins og margoft hefur verið sýnt fram á."
Það er eitthvað mikið að þegar ráðherrar komast upp með svona vinnubrögð átölulaust.
Þessi ofurskattur hefur afleiðingar, hann er aðför að landsbyggðinni. Vitna aftur í sveitunga minn Gunnþór; "Það á að flýta fyrir sameiningu fyrirtækja, fækka störfum á landsbyggðinni og flytja fjármagnið til Reykjavíkur.".
Því bein afleiðing svona ofurskattlagningar er að smærri útgerðir sjá sér hag í að selja kvóta i stað þess að halda áfram að strögla.
Eftir munu standa örfá stórfyrirtæki með alræði yfir landsbyggðinni.
Og það er félags og jafnaðarfólk sem styður þennan ófögnuð nýfrjálshyggju Viðreisnar.
Líkt og annar þingmaður Samfylkingarinnar í Norð-Austur kjördæmi, fyrrum forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.
Byggðar þar sem þrjú öflug sjávarútvegsfyrirtæki eru hryggjarstykkið í atvinnulífinu.
Maður spyr sig undir hvaða hæl er svona fólk, eða er það firrt viti um leið og það kemur inn fyrir dyr Alþingis?
Að það telji rétt að skaða sitt eigið byggðarlag.
Að það bregðist fólkinu sem studdi það til áhrifa, sendi það suður til góðra verka.
Hvað sem öðru líður stendur eftir berstrípuð lygastjórn með lygaráðherrum.
Ráðherrum sem eru farnir að væla og gjamma eins og klerkarnir í Íran, hótandi hefndum líkt og atvinnuvegaráðherra í nýlegri blaðagrein og lesa má um í pistli dagsins hjá Páli Vilhjálmssyni; "Það er hins vegar grafalvarlegt mál þegar viðbragð þessara sömu hagsmunaafla er að ráðast að stofnunum ríkisins að því er virðist í þeim tilgangi að þvinga fram aðra niðurstöðu. Við því verður brugðist af fullum þunga."
Að leiðrétta lygar og rangfærslur, að láta ekki kúga sig með ósannindum, kallar ráðherrann sem sagt að það sé árás á stofnanir ríkisins.
Og þess skal hefnt, eins gott að klerkarnir í Íran eiga ekki eldflaugar til afnota fyrir hefndarþyrsta ráðherra.
Svona á ekki að stjórna landinu, hvernig sem svo sem annars á að stjórna því.
Það er allt svo rangt við þetta, bæði sérstaki ofurskatturinn á landsbyggðina sem og að reynt sé að réttlæta hann með ósannindum.
Svo er bara bullað og logið og hótað, þingmennirnir, sem reyna að réttlæta flumbruganginn, bulla út í eitt í sjónvarpinu, ráðherranir fara rangt með og hóta þegar upp kemst um strákinn Tuma.
Verst er samt að þetta er í takt við allt annað hjá núverandi ríkisstjórn.
Ríkisstjórn hinna syngjandi fögru fyrirheita.
Það er eitthvað mikið að hjá þjóð sem sættir sig við svona ófögnuð.
Og það er kannski meinið.
Það er eitthvað að.
Eitthvað mikið að.
Kveðja að austan.
![]() |
Útreikningar Skattsins gilda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2025 | 11:13
Smánin.
Það er aur í glæpum og sá aur leitar víða í vasa auðfúsra þiggjenda.
Skipulögð glæpastarfsemi þrífst í skjóli spillingar sagði fulltrúi Europol sem var hér á landi nýlega.
Á yngri árum hristi maður hausinn þegar maður horfði á bíómyndir eins og Bangkog Hilton, þar sem gjörspilltir lögreglumenn störfuðu með glæpasamtökum, þau létu þá vita af einu og einu burðardýri sem mátti missa sig, þá fengu lögreglumennirnir athyglina frá fjölmiðlum, sem og þungu dómana.
Og jú einnig aur í vasann en glæpasamtökin friðinn til að stunda sína iðju óáreitt.
Þegar ég varð eldri gat ég ekki lengur horft framhjá því að sama stef var leikið hér í fjölmiðlum á Íslandi.
Stóra þetta og stóra hitt, öll málin sammerkt að upp komst um innflutning utanaðkomandi á markaðnum, framboðið minnkaði aldrei enda þeir sem áttu markaðinn óáreittir.
Seinna var upplýst að þekkt nöfn í bransanum nutu verndar lögreglunnar, þeir voru sko svokallaðir uppljóstrar, núna síðast komst upp um slíka friðhelgi í sambandi við aftökuna í deilum albönsku mafíunnar við aðra glæpahópa.
Hin meinta uppljóstrun snérist sem sagt um að koma upp um nýja aðila, mikill aur í vasa hlýtur að skýra þá fáheyrðu heimsku.
Síðan er það menn sem rugga bátnum, taka ekki þátt í hinni arðbæru samtryggingu, einn slíkur var Lúðvík lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Framhjá Reykjavíkurvaldinu tók hann að framfylgja lögum og reglum á landamærunum, ekki bara að vísa þeim frá sem alþjóðaglæpasamtökin sendu til landsins undir skjóli þess að vera meintir flóttamenn, heldur líka að ráðast á dópinnflutninginn, á sjálfa tekjulindina sem skapar aurinn sem leitar víða.
Hans banabiti var síðan að benda á hið skítuga samstarf glæpamanna og hinna dýru lögfræðinga, það gátu bakhjarlar Viðreisnar ekki þolað, og dómsmálaráðherra var falið að grípa inní.
Annar steinn í götu hins frjálsa flæðis var Helgi Magnússon vararíkissaksóknari, samviskusemi hans og tæpitunga varð honum að falli.
Hann hafið ekki vit á að halda sig við Wókið og gefa hinum gefandi (í vasa) lausan tauminn, og Wókið var notað til að fella hann enda Wók hinn nýi sannleikur guðs á jörðu, ekki meitlaður í stein heldur hina nýju trúarsetningu þjóðkirkjunnar.
Skilaboðin skýr, ekki gera skyldu ykkar.
Hvernig Ísland varð svona spillt má guð vita.
Í kjarna og arfleið erum við gott og heiðarlegt fólk, höfum samt lotið í lægra haldi fyrir asnanum klyfjaðan gulli.
Lögreglan tekur sama skýrslu og greinir frá að hér séu rekin 12 vel skipulögð glæpasamtök og svo er ekkert gert.
Næst mun verða gerð skýrsla, með sama inntaki, nema þá er talan búin að hækka úr 12 í 20, jafnhliða því að óöldin eykst og glæpasamtökin skeyta æ minna um að leyna starfsemi sinni eða baráttunni um markaðinn.
Ekki í trausti þess, heldur vissu að trúnaðarfólk almennings horfi í hina áttina, svona á meðan það fær einn og einn smáglæpamanninn til að rétta yfir og dæma.
Smán þessa alls að þetta skuli viðgangast, að þetta skuli vera svona, kristallast í þessum orðum hinnar meðvirku, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra; "Hann er góður lögfræðingur og málflytjandi og ég óska honum velfarnaðar í leik og starfi,".
Þegar ég las þennan yfirdrepskap, þá varð fyrirsögn þessa pistils til og það sem á eftir kom, flæddi af sjálfu sér.
Það er ekki logið uppá þetta fólk, allavega hvað varðar æru og sóma.
Smán þess er mikil.
Nei, reyndar ekki, hún er algjör.
Kveðja að austan.
PS. Önnur birtingarmynd um aðför hins Skítuga fjármagns að samfélagi okkar og framtíðar sem þjóðar, má lesa í afburðagóðum pistli Arnars Þórs Jónssonar, í tilefni 17. júní. Pistill sem ætti að fara inná hvert heimili og vera lesinn upp til agna.
Hvers vegna höldum við þjóðhátíðardaginn hátíðlegan?
Með annarri kveðju að austan.
![]() |
Helgi Magnús fer beint á eftirlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.6.2025 | 16:22
Væri ekki fyrsta skrefið að krefjast brottreksturs ríkissaksóknara??
Verndara glæpasamtaka, sérstaklega alþjóðlegra.
Wókið segir jú að óheftur innflutningur, sem stjórnað er af mannsals og flóttamannaiðnaðinum, sé góður innflutningur.
Enda hver vill til dæmis innlenda plebba þegar hægt er að fá albönsku mafíuna til að stjórna dyravarðamarkaðnum og dópsöluna á hans vegum??
Af hverju þá að benda á ríkissaksóknara???
Því svaraði talsmaður Sambands lögreglumanna, lögreglumenn sem sæta hótunum eða ofbeldi, njóta ekki verndar ríkissaksóknara.
Efist einhver, spyrjið þá næstráðenda núverandi ríkissaksóknara, líflátshótanir í hans garð voru léttvægnar fundnar af hálfu yfirmanns hans.
En þegar sannleikurinn var sagður um innflutning alþjóðlegar glæpasamtaka á meintum flóttafólki til Íslands, þá heyrði ríkissaksóknari, enda sannleikur eitur í eyrum Wóksins, það er fátt sem fífl og fávitar óttast meir en blessaður sannleikurinn.
Dugi þessi brottrekstur líklegast óhæfasta embættismanns Íslandssögunnar, þá ættu Hagsmunasamtök verslunarfólks að spyrja sig af hverju Viðreisn lét reka Vörðinn á landamærum þjóðarinnar??
Er dómsmálaráðherra mjög heimskur??, eða hefur þessi brottrekstur eitthvað að gera með hagsmunagæslu lögfræðinga glæpasamtakanna, því Lúðvík lögreglustjóra varð það á að benda á að í hvert sinn sem embætti hans tæki meinta albanska glæpamenn, sem samkvæmt skýrslum áttu ekki bót fyrir boru sinni þó eignir og lífsstíll segði annað, þá kæmu hálaunaðir stjörnulögfræðingar úr Reykjavík, ybbandi gogg, spyrjandi hvaða útlendahatur stjórnaði löggæslunni, hennar glæpur að reyna hamla gegn alræði hinna alþjóðlegu, glæpum þeirra, þjófnaði, innflutning og dreifingu á eiturlyfjum.
Þessi brottrekstur er líklegast skýrasta birtingarmynd þess sem fulltrúi Europol á Íslandi benti á skýringu þess að ill-erfiðlega gengi að uppræta starfsemi hinna alþjóðlegu glæpasamtaka, spillinguna heima fyrir.
Það er jú aur í glæpum, og ef réttum aðilum er borgað, þá er afskiptasamur lögreglustjóri rekinn.
Það gerist ekkert af sjálfu sér.
Allt á sér skýringar.
Lögreglumenn njóta ekki verndar.
Lögreglustjóri sem vinnur vinnuna sína er rekinn.
Á meðan breytist Ísland hægt og róglega í glæpasamfélag.
Líkt og Svíþjóð, í aðeins minna mæli Noregur og Danmörk.
Danir andæfa þó.
Ráðalaus almenningur læsir að sér.
Skilur ekkert í snarhækkuðum tryggingargjöldum sem borga þjófnaði hér og þar.
Skilur ekkert í fréttum af ofbeldi og líkamsárásum, og þá er ég ekki að tala um ofbeldi múslímskra barna í Breiðholti, heldur sífréttir af skaðlegum líkamsárásum, vopnaburði glæpafólks, árásum á lögreglu og hótanir í garð lögreglumanna.
Kýs samt Góða fólkið, og 76% segjast styðja ríkisstjórn þess.
Styður aðförina að lög og reglu.
Styður aðförina að sjálfstæði þjóðarinnar svo auðræningjar Hrunsins geti farið öllu sínu fram.
Skilur svo ekki neitt í neinu.
Eins og sárkvalinn hundur sem leitar í barsmíðar eiganda síns.
Gangi Hagsmunasamtök verslunarfólks vel með að stuðla að auknu öryggi verslunarfólks.
Gangi lögreglumönnum vel að njóta verndar laga og reglna.
Gangi landsbyggðinni vel þegar búið er að drepa síðasta sjálfstæða útgerðarmanninn og stórfyrirtækin eru ekki lengur skuldbundin að sýna samfélagslega ábyrgð.
Gangi fólkinu, sem vantar fjármagn í velferðarþjónustuna, vel að útvega það fjármagn á meðan mannsals og flóttamannaiðnaðurinn stjórnar hinni opinberu umræðu, sem og mörgum ráðherrum ríkisstjórnar Góða Fólksins.
Gangi öllum vel þó raunveruleikinn segir annað.
Um keypta stjórnmálamenn og spillta embættismenn.
Þar sem á hverjum degi er haldið áfram að grafa gröf þjóðar okkar, tungu og menningu.
Og glæpalýður er að eignast landið.
Ekki bara sá alþjóðlegi heldur fyrst og fremst þeir sem rændu þjóðina eftir Hrunið, urðu ofsaríkir á kostnað almennings.
Komnir aftur, ráða öllu í gegnum taglnýtinga sína í ríkisstjórn Góða fólksins.
Kannski er þetta bara svona.
Froskurinn í heita vatninu sem á að sjóða hann, þegar hann sjálfviljugur biður um meiri hitun, þá er honum ekki viðbjargandi.
Valkostur hans var jú að stökkva uppúr hinum sjóðandi potti.
76% þjóðarinnar styðja þessa aðför að samfélagi okkar og sjálfstæði.
Hvað getum við hin sagt??
Meira að segja Stuðmenn áttu ekki svarið.
Kveðja að austan.
![]() |
Verslunarfólk sameinast gegn ofbeldi og áreiti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.6.2025 | 12:03
Verðir stjórnarskráarinnar!
Eru Verðir sjálfstæði þjóðar okkar, smáþjóðar sem taglhnýtingar Evrópusambandsins sækja nú grimmt að.
Frá því að Feður Bandaríkjanna sömdu stjórnarskrá fyrir hið nýja lýðveldi, skrá sem geirnegldi stjórnskipan og grundvallarlög, hafa allflest ríki heims sett sér stjórnarskrá í svipuðum tilgangi.
Og allflest ríki heims virða stjórnarskrá sína.
Jafnvel þeir sem vilja ráða einir, líkt og til dæmis Erdogan Tyrkjaforseti, hafði fyrir því að breyta stjórnarskránni áður en jók völd sín og einráð.
Flest lýðræðisríki verja stjórnarskrá sína þegar að henni er sótt, nýjasta dæmið er frá Suður Kóreu þegar fráverandi forseti setti herlög í trássi við lög og reglur, og þingmenn landsins brutust inní þinghús landsins og settu hinn valdagráðuga forseta af.
En stundum er ógnin of mikil og þá er ekki gott að vera Vörður stjórnarskráarinnar.
Þekktasta dæmi þar um er þegar þáverandi utanríkisráðherra Tékkóslóvakíu, Jan Masaryk sagði kommúnistum að það gengi ekki að fella einhliða gömlu stjórnarskránna úr gildi, hún væri hornsteinn lýðveldisins. Þá var hann reyndar ekki ausinn auri að hætti götustráka, heldur var honum hjálpað út um gluggann á ráðuneyti sínu, fall hans var upphaf af 50 ára einræði kommúnista í landinu.
Í Ungverjalandi 1956 vitnuðu landsmenn í stjórnarskrá sína, sem og stofnsáttmála yfirríkisins; Varsjárbandalagsins, og sögðu að þeir mættu bæði ráða sínum málum sjálfir, og ganga úr yfirríkinu.
Réttmæt rök líkt og kæra Þjóðfrelsis á hendur utanríkisráðherra, og réttmætum rökum er oftast svarað með skítkast og eða valdi.
Innanlands kæfðu skriðdrekar hina réttmætu frelsiskröfu, utanlands rægðu taglhnýtingar Varsjárbandalagsins hina frelsisleitandi þjóð sem vitnaði aðeins í stjórnarskrá sína.
En jafnvel þó Þjóðviljinn verði lúslesinn þá finnst ekki þar annars eins skætingur eins og í skrifum þessa taglhnýtings, sem fjölmiðlar hafa kosið að vitna í.
Þó kölluðu kommarnir ekki allt ömmu sína í þessum fræðum.
Kostur þessara skrifa er samt sá að þau skýra víglínuna í þessari sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Annars vegar eru það Verðir stjórnarskráarinnar, hins vegar eru það taglhnýtingar Evrópusambandsins.
Annars vegar fólkið sem ver sjálfstæði þjóðarinnar, hins vegar þeir sem vilja kasta því fyrir ætternisstapa.
Og í þeirri skítaiðju virða taglhnýtingarnir hvorki lög eða rétt.
Telja stjórnarskrá lýðveldisins einskisvert plagg sem ekki þarf að taka tilliti til.
Meir að segja nasistarnir virtu lög, meir að segja kommúnistarnir virtu lög.
En ekki taglhnýtingarnir.
Það er fyrir neðan þeirra virðingu.
Verðirnir munu standa af sér þetta skítkast.
Dómstólar munu skera úr um hvort þeir séu sjálfstæðir og virði stjórnarskrána í útskurði sínum.
Eða hvort yfirvaldið sé þegar búið að samlaga þá.
Stjórnarskráin er allavega skýr.
Bókun 35 er skýr brot á henni.
Og hegningarlögin eru skýr að það sé landráð að koma innlendum lögum undir erlent yfirvald.
Það er þess vegna að einu mótrökin eru; "Þetta er aumkunarvert uppátæki".
Og grátnir þeir tímar þegar hægt var að hringja í yfirvaldið og biðja um aðstoð skriðdreka.
Gegn lögum og reglu.
Gegn sjálfstæði þjóðar.
Kveðja að austan.
![]() |
Segir kæru Þjóðfrelsis aumkunarvert uppátæki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
13.6.2025 | 17:32
Öld kerlingarinnar!!
Með vísan í voðaverk Anders Breivik í Útey 2011, þegar hann komst upp með að drepa tugi ungmenna, á meðan þyrlur sveimuðu yfir, og hann drap ungmennin í beinni útsendingu.
Skýring þess að enginn gerði neitt hjá norsku lögreglunni, var útskýring kerlingar, sem reyndar var kona, sem og lögreglustjóri, að vegna þess að morðin voru á eyju, þá sögðu verkferlarnir að bátasveit norsku lögreglunnar átti að koma á vettvang og bjarga ungmennunum, nema að bátar hennar voru bilaðir, og þá var ekkert gert.
Breivik greyið, sem var illmenni en ekki kerling, ætlaði að gefast upp fyrir lögreglunni, en hún kom ekki, þá hélt hann bara áfram að drepa.
Öll þau dráp voru á ábyrgð kerlingarinnar, þeirrar úrkynjunar að verkferlar, hugmyndafræði, eða annað sem fær ekki fólk til að bregðast við voðaverkum, og þar með hófst Öld kerlingarinnar, þann 22. júlí 2011.
Í boði kerlingarinnar sjáum við Norðurlönd breytast úr friðsömum velferðarsamfélögum í leikvöll glæpasamtaka, afþjóðun, væntanlegan vígvöll borgarastyrjaldarinnar þegar innfæddir snúast til varnar, til að endurheimta samfélög sín.
Aðeins heimskur heldur til dæmis að Svíar séu að vígvæða her sinn vegna meintrar ógnar af Rússum, sá heimski, sem yfirleitt er kerling, heldur að nú sé 1825, þegar Svíar voru nýbúnir að heyja aldalangar styrjaldir við Rússa.
Síðan eru liðin 200 ár, og í millitíðinni eru komin hernaðarbandalög, kjarnorkuvopn og fleira, element sem leyfa kjarnorkuveldum að böggast á nágrannaþjóðum sínum, en ekki að ráðast á yfirráðasvæði hvors annars.
Sænski herinn er að vígbúast til að heyja varnarstríð sænsku þjóðarinnar gagnvart glæpagengjum múslíma í Svíþjóð, gegn múslímskum innflytjendum sem eru Ríki í ríkinu í sænsku borgum.
Því það eru ekki allir Svíar kerlingar, þvert á flokka virðist vera sátt um vígvæðingu sænska hersins og væntanlega beitingu hans gegn Íslamistum Svíþjóðar, glæpagengjum þeirra, atlögum þeirra að vestrænum sið og menningu.
Atlögu þeirra að grunngildum sænsku þjóðarinnar.
Langur formáli um tilefni þessa pistils.
Vestrænar kerlingar, í valdastöðum, þar fremst er mannauminginn sem er í dag er forsætisráðherra Bretlands, áður níðingur sem horfði í hina áttina þegar íslamskt samfélag í breskum borgum tók uppá því að nauðga ungum breskum stelpum
Heimastelpum, innfæddum.
Kerlingarnar biðja fólk um að slaka á, að bæði Íran og Ísrael stígi til baka, slaki á.
Svo heimskar að þær halda að þetta snúist um frið við Íslamista Írans, að það sé í góðu að þeir vígvæði herafla sinn með kjarnorkuvopnum.
Fyrir Öld kerlingarinnar stjórnuðu menn Evrópu, þar var fremst Margrét forsætisráðherra Bretlands.
Staðfesta hennar batt endi á flugrán og önnur hryðjuverk öfgaafla.
Og hún hefði fyrir löngu skipulagt og framkvæmt þessar árásir á kjarnorkuvopnaframleiðslu Íslamistanna í Íran, og þá undir merki Nató.
En kerlingin skilur ekki ógnina.
Gerir ekki neitt.
Skilur svo ekkert í að árásaröfl ógni vestrænni menningu og velferð.
Hvort sem það er óheftur innflutningur á fólki úr framandi menningarheimum, innflutningur sem gagngert er hugsaður til að brjóta niður vestræna menningu og kristin gildi hennar, eða þegar dvergheimsveldi telur sig geta gefið vestrænum ríkjum fingurinn líkt og Pútín gerði með innrás sinni í Úkraínu.
Eða að miðaldaklerkarnir í Íran komi sér upp kjarnorkuvopnum.
Í sjálfu sér mun raunveruleikinn enda Öld kerlingarinnar.
Lítil birtingarmynd þess er hervæðing vestrænna landa, þar sem herinn er þjálfaður til að takast á við ógn múslímskra innflytjenda, glæpavæðingu þeirra og algjöra hundsun á gildum þeirra samfélaga sem tóku á móti þeim.
Stærri birtingarmynd þess eru skilaboðin til Rússa, við mætum ykkur, kerlingin stjórnar okkur ekki lengur.
Spurningin er síðan, hver margir munu deyja áður kerlingin mun endanlega missa áhrif sín og völd.
Íslamistar veðja á kerlinguna, hvort sem það er Hamas á Gasa, eða miðaldaklerkarnir í Íran.
Í Mið-Austurlöndum hafa Íslamistar skilið eftir sig sviðna jörð víða, líkt og illviðráðanlegur engisprettufaraldur, í dag eru Ísraelsmenn þeir einu sem andæfa gegn þeim.
Hin napra staðreynd sem ógnar lífi okkar og tilveru, er að fólk sem myrðir og drepur í nafni trúar, mun nota kjarnorkuvopn til að drepa og deyða margfalt fleiri en það gat drepið hingað til.
Þetta fattar ekki kerlingin.
En föttum við það??
Eða eigum við ekki líf sem við viljum vernda.
Þar er stórt spurt.
Spurning sem við höfum ekki svarað.
En þurfum að svara.
Þar gefur raunveruleikinn okkar engan afslátt.
Það er sótt að menningu okkar og sið.
Ef við verjumst ekki, þá segir raunveruleikinn okkur einfaldlega.
Ykkur verður skipt út.
Og spurningin er.
Viljum við það??
Kveðja að austan.
![]() |
Gert margar árásir á stærstu kjarnorkustöð Írana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2025 | 17:10
Yfirtaka ESB verður varla augljósari.
En með skipun Dóru Sif Tynes sem formann stórnar Persónuverndar.
Þessi skipun kemur í kjölfar naumrar kosningar Góða fólksins á Silju Báru Ómarsdóttir í stöðu Rektors Háskóla Íslands.
Þegar ICEsave varnarbarátta þjóðarinnar stóð sem hæst, þá skrifuðu Dóra og Silja Bára grein sem fór víða hjá landráðafólki Samfylkingarinnar, þar sem þær sökuðu föður minn, tengdaföður og alla af þeirri kynslóð, um að vera vanskilamenn, því þeir mótmæltu fjárkúgun breta og Hollendinga í ICEsave, töldu sig ekki vera í ábyrgð fyrir flottræfilsskuldir úrásarvíkinganna.
Þar var Silja Bára vissulega taglhnýtingur, vitið ekki meira en guð gaf, en Dóra Sif lagði til lögfræðina, sem hæddi þessa samviskusömu kynslóð foreldra minna, og allra foreldra minnar kynslóðar.
Skuldir auðmann er ykkar samkvæmt EES samningnum fullyrti hún fullum fetum, og minna vitið tók undir.
Bretar, sem gamalt heimsveldi hafa löggjöf um slík drottinssvik, það er landráð í þágu erlendra árásaraðila, böðull drottningar hegndi í gálga slíkt svikalið þar til lögum var breytt í byrjun áttunda áratugarins.
Eftir það var aðeins lífstíð í boði gegn slíku fólki.
Í dag heyrum við um dóma frá þeim löndum sem mæta ógn Pútíns, ekki kannski lífsíð gagnvart meðreiðarsveinum hans, en engu að síður dæmt fyrir landráð og drottinssvik.
Á Íslandi verðlaunum við slíkt fólk.
Fyrrverandi forseti okkar var málaliði breta í ICEsave fjárkúgun þeirra.
Í dag er annar málaliði þeirra Rektor Háskóla Íslands, sem og nýr formaður Persónuverndar.
Það verður ekki dregið í efa að fyrrverandi forseti taldi sig vera að gera rétt með því að styðja fjárkúgunina gagnvart íslensku almenningi, og það má færa sterk rök fyrir að vitið sé ekki meira hjá núverandi rektor Háskóla Íslands.
En núverandi formaður stjórnar Persónuverndar vissi betur, hún er löglærð í Evrópurétti.
Dómur EFTA dómsins um lögleysu ICEfjárkúgunar breta með beinum stuðningi Evrópusambandsins, átti ekki að koma henni á óvart, ekki nema hún væri faglegur hálfviti.
Hve marga hún fíflaði með röngum lögfræðiskýringum sínum má guð vita, en fals hennar og lygar, eru kannski skálkaskjól fyrrverandi forseta og núverandi rektors Háskóla Íslands.
Sjálfstæð þjóð, þó hún hafi ekki sömu ströngu löggjöf Breta til drottinsvika, velur ekki svona fólk til trúnaðarstarfa.
Beygð þjóð, sem kaus yfir sig ríkisstjórn ESB, gerir það hinsvegar.
Ein af mörgum staðfestingum þess er þessi skipan Dóru Sifjar.
Líkt og kyrkingartak kyrkingarslöngu á bráð sinni.
Eða líf froskar sem smán saman fjarar út þegar hitinn í þægilega hlýja vatninu hitnar og endar í suðu, án þess að hann taki eftir að hann hafi verið soðinn lifandi.
Og eins og froskurinn þá æmtum við hvorki eða skræmtum.
Horfum þegjandi á þegar stríðsmálaráðherrann og Mini mini meðreiðarsveinn hans telja sig ekki einu sinni þurfa að láta þjóðina samþykkja formlega yfirtöku Evrópusambandsins á sjálfstæði þjóðarinnar.
Með fullu samþykki Sjálfstæðisflokksins, og líklegast Framsóknarflokksins líka.
Það þarf ekki lengur að deila um að Götuna höfum við ekki gengið til góðs.
Svo vitnað sé í þjóðskáldið sem sá Snorrabúð sem stekk á Alþingi.
Hjá ríkisstjórn sem 76% þjóðarinnar styður.
Um það þarf ekki að hafa fleiri orð.
Kveðja að austan.
![]() |
Dóra Sif nýr formaður stjórnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 14
- Sl. sólarhring: 878
- Sl. viku: 2463
- Frá upphafi: 1450242
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 2117
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar