Seint er gripið um rass.

 

Eftir að faraldur er brostinn á.

Ætli menn séu farnir að íhuga ábyrgð sína, líkt og vegagerðin gerir þessa dagana.

Þar sem fólk þurfti að deyja til að menn viðurkenndu afglöp.

 

Rifjum upp afglapaferlið.

Kári klári, þessi sem sagði á sínum tíma að danskir stjórnmálamenn færu offari, en sænskir, hlustuðu hins vegar á sóttvarnarsérfræðing, játaði að prófið, sem hann tregur tók þátt í að móta, væri ekki öruggt.

Á blaðamannafundi með heilbrigðisráðherra og sóttvarnarlæknir.

Taldi sig reyndar það kláran, að hann gæti sagt að það væri líklegast ekki rétt að það næði aðeins 70% nýsmitaðra, en aldrei hefði Kári klári náð prófi ef rétt svar væri "líklegast", án vísunar í nokkurra tilrauna, útreikninga, þekktar staðreyndir eða annað sem menn nota til að rökstyðja svar sitt.

 

Afglaparnir hleyptu fólki frá smituðum löndum inní landið, þar sem skálkaskjólið í vanvirðingu smitvarna, var próf sem menn deildu um hvort væri 70% öruggt, svona aðeins öruggara en 50% slembiúrtak.

Afglaparnir létu meir að segja taka við sig viðtöl, og það er vottað að fjölmiðalfólkið sem tók viðtölin voru ekki róbótar í húsakynnum Google, að fyrst að Schengen væri að opna, þá kæmi það til greina að hætta allri skimun við landamæri landsins.

Í heimi þar sem drepsótt geisar óhindrað.

 

Kannski höfðu afglaparnir hugsað sér að nota sænsku kynbótaleiðina, að sleppa því að greina fólk, og þar með sleppa því að skrá dauðsföll á drápsveiruna.

Snilldarbragð í raun, engin skráning, engin drepsótt.

Hefðu menn vitað þetta á miðöldum, þá hefði enginn Svarti dauði geisað, allavega ekki samkvæmt opinberum sænskum tölum.

Þau eru nefnilega mörg snilldarráðin þó þau því breyti litlu eða engu um raunveruleikann.

Svarti dauði drap þó hann væri ekki skráður, Kóvid drepur þó það sé ekki skráð.

Veira drepur ef ekki er skorið á smitleið hennar.

 

Íslensk sóttvarnaryfirvöld klóra í bakkann.

Þau taka ekki vegagerðina á þetta með því að rífast við raunveruleikann, hundsa réttmætar ábendingar, þar til fólk fellur og hættan um ákæru um manndráp blasir við.

Það er ekki alltaf hægt að ganga að hjörðinni vísri.

 

Stóra spurningin er samt ekki sú af hverju gerðuð þið þetta ekki strax??

Þið vissuð að prófin væru lítt betri en slembiúrtak.

Stóra spurningin er um alla hina sem koma til landsins.

Sýktir.

 

Varla eruð þið svo miklir rasistar að segja að þetta eru hvort sem er bara útlendingar sem vinna í ferðaþjónustunni??

Eða hvað??

 

Og kaupir fólk þetta??

Að við séum svona guðs útvalin þjóð sem aðeins getur smitað innbyrðis, en við séum ónæm fyrir smiti annars staðar frá??

Að fyrsti Íslendingurinn sem smitaði annan Íslending, hafi ekki fengið smitið frá erlendum manni, heldur hafi guð sjálfur almáttugur birst honum, og sagt; "Sjá, ég færi þér smitið eins og öðrum þjóðum".

 

Kannski erum við svona heimsk.

Kannski eru afglaparnir aðeins birtingarmynd okkar eigin sjálfs.

Eitthvað hlýtur að skýra að okkur er boðið uppá svona málflutning, og við meðtökum hann.

 

Frumhvöt lífsins er að lifa, og lifa af.

En það er kannski úrelt eins og kynið og svo margt annað.

 

Við erum kannski komin á endastöð.

Kveðja að austan.


mbl.is Allir Íslendingar fari í tvær sýnatökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðfélag óttans.

 

Við Austfirðingar sluppum blessunarlega við fyrri Kóvid bylgjuna, það greindist smit uppá Héraði en það var það veikt að það náði ekki að smita okkur ólseigu niðri á fjörðum, enda lifað af Ameríkuflóttann, hafísárin og kvótakerfið.

Þess vegna var allt afslappaðra hjá okkur, við gátum farið útí búð, eða heimsótt aldraða ættingja án þess að óttinn væri förunautur. Vissum eins og er að ef við gættum að persónulegum sóttvörnum að þá væru líkur á smitun hverfandi.

Aðeins suðurfarar mættu tortryggnu augnaráði ef þeir hóstuðu, vinsamlegast beðnir um að halda sig heima þar til ljós kæmi hvort þeir hefðu flutt veiruna með sér úr slömminu.

 

Við búum ekki svo vel lengur, maður fær kvef, og veislum er frestað.

Veiran er þarna úti, hún var flutt inn, við óttumst hana.

Við óttumst að smita aldraða foreldra okkar, vini og ættingja sem eru viðkvæmir fyrir.

Öll þekkjum við nefnilega fólk í áhættuhópi, og við metum líf þeirra til jafns við annarra.

Við erum ekki haldnir þeirri mannfyrirlitningu og mannhatri sem birtist í sjálfumgleði þeirra sem gera lítið úr faraldrinum og hnýta alltaf við töluna um fjölda látinna, að hinir látnu væru við aldur, eða með undirliggjandi sjúkdóma.

Við erum fólk og virðum annað fólk.

 

Í dag vitum við að veiran er þarna úti.

Viljandi vits ákváðu stjórnvöld að flytja hana inn, að endurræsa þannig samfélag óttans.

Okkur er sagt að flestir séu smitberarnir erlendir ferðamenn, og þeir smiti ekki svo mikið inní samfélagið, undir séu aðeins leiðsögumenn, bílstjórar og starfsfólk á hótelum, gististöðum og greiðasölum. 

Lungað hvort sem er útlendingar í láglaunastörfum.

Svo tala menn um rasista í fjarlægari löndum.

 

Meinið er að þetta fólk kemur í búðirnar og posinn smitar, sérstaklega núna á meðan varnirnar eru engar því fólk hélt að landið væri smitlaust, og það yrði svo þar til lækning finnst við drepsóttinni.

Það er líklegasta skýringin á smitinu á Egilstöðum á sínum tíma.

Og hvað sem menn segja þá er alltaf samgangur. 

Við vorum bara svo heppin að smitið var ekki það útbreitt að ferðamenn sýktu, bylgjan var bara að breiðast út í löndum þeirra, og þegar hún varð að faraldri, þá var búið að skella í lás og enginn fékk að koma inní landið án undangenginnar sóttkvíar.

 

Í Evrópu eru vissulega lönd sem hafa náð árangri, en misvitrir stjórnmálamenn keppast um annan þveran að skaða þann árangur, eða leggja hann að velli, með því að opna uppá nýtt fyrir smitleiðir.

Allar fórnir almennings, öll samstaðan, allt til einskis.

 

Lýðskrumið og heimskan, hefur líkast til náð hæstu hæðum í Bandaríkjunum þar sem afglöpum tókst að telja fólki í trú um að drepsóttir, varnir gegn þeim, fréttaflutningur eða annað þeim tengt, væri í eðli sínu pólitísk, og allt væri hinum að kenna.

Þess vegna var ekki gert það sem þurfti að gera á landsvísu, forysta stjórnvalda er engin, og drepsóttin orðin stjórnlaus, sérstaklega í ríkjum þar sem afneitarar, lýðskrumarar og hálfvitar fara með völd.

Afleiðingin; Dauði.

 

Heimskan og afglöpin á Íslandi njóta hins vegar þverpólitísks stuðnings, línur nokkurn veginn þær sömu og í orkupakkamálinu.

Á sumt fólk er bara ekki logið.

Hvort við endum eins og þau ríki Bandaríkjanna sem opnuðu of snemma, með stjórnlausa drepsótt, mun tíminn skera úr um.

Það sem við vitum er að afglaparnir hafa náð að endurræsa óttann.

Það er smit þarna og það veit enginn hver er næstur.

 

Tikk, takk, tikk takk.

Tikk, takk, tikk takk.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Starfsmannaveislu frestað vegna gruns um smit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júlí 2020
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband