Grundvallarmunurinn á rannsókn eftirá.

 

Og rannsókn fyrirfram;

Er lík hinna saklausu.

 

Það er mikill misskilningur hjá þjónum hjáguðsins Mammons að völd þeirra yfir vestrænum samfélögum séu til þess eins að gera fámennri stétt auðmanna kleyft að blóðmjólka samfélög sín.

Það er vissulega markmið þeirra sem þeir fara ekki leynt með þegar þeir nýta auð húsbænda sinna til að tryggja sér sigur í lýðræðislegum kosningum, en hlutverk og tilgangur almannavaldsins er engu að síður skýrt i stjórnarskrám viðkomandi landa, og á meðan þeir láta ekki breyta þeim í eina málsgrein; "Mammon er okkar eini guð, og þjónar hans mega allt, og eiga allt", þá verða þeir að virða þá frumskyldu almannavaldsins að vernda borgara sína.

Og útrýma óværunni sem eru afskiptalaust fengið að breiða úr sér um vestræn samfélög.

 

Það er ekki flókið.

Hver hefur ekki séð grínmynd frá Hollywood þar sem jafnvel eini brandarinn var hvernig sögupersónan frá nútímanum sem lenti óvart í tímalykkju og endaði í einhverju miðaldasamfélagi, var út úr kú í klæðaburði sínum og hegðun.

Og hver man ekki eftir hinni dásamlegu frönsku mynd; "Les Visiteurs"  þar sem stórleikarinn Jean Reno lék miðaldariddara sem lenti með þjóni sínum inní nútímann.

Auðþekktur, öllum sjáanlegur, að hann var miðaldamaður, ekki nútímamaður.

 

Islamistar eru jafn mikið út úr kú í nútímasamfélagi.

Það er vitað hverjir þeir eru, hvar þeir eru, hverjir fóðra þá og fæða, og hvaða öfl hafa hag af upplausn og ólgu samfélagsins.

Hnífurinn í kúnni snýst um hina stóru spurningu; Af hverju njóta þeir friðhelgi??

Af hverju eru lík forsenda einhverra málamyndagjörninga eins og greint er frá í þessari frétt að ofan.  Eina sem vantar til að toppa vitleysuna er að fram kæmi að til stæði að einkavinavæða rannsókn málsins til að tryggja að fé fari ekki til spillis.

 

Afhverju njóta þeir friðhelgi??

Af hverju fær óværan að breiðast út??

 

Auðvita vitum við svarið, það er svo góður bissness í ótta, og hann er líka tækifæri til að þrengja að lýðréttindum fólks og frelsi einstaklingsins.

Fyrir sálarlaust fólk sem telur kærleik vera kerfisvillu eru saklaus fórnarlömb algjört aukaatriði, nema þá einna helst tækifæri fyrri falska mærð í fréttaskoti fjölmiðlanna.

Annað ekki, annars væri óværan ekki í blóma, skjótandi frjóöngum í allar áttir í frjóan jarðveg hinnar evrópsku gettóa.

 

Og við eigum að hafa tötsið til að horfast í augun á staðreyndum.

Um eðli óværunnar, um aflið sem fóðrar það, og um eðli hins vanheilaga bandalags Mammonsdýrkenda og múslímskra öfga.

Og lygina sem knýr þöggunina áfram.

 

Það er tímaspursmál hvenær við Íslendingar munum þurfum að jarða okkar eigin börn eftir svona voðaverk.

Frjókornin eru þegar til staðar, og það er í eðli þeirra að spíra.

Ef okkur mislíkar sú sýn, þá er þögnin og lygin ekki leiðin til að að fyrirbyggja hana.

 

Við erum umburðarlynd þjóð, og eigum að vera umburðarlynd þjóð þar sem hraktir eiga geta reiknað með athvarfi og skjóli.

En að líða að óværa skjóti rótum er ekki dæmi um slíkt umburðarlyndi, heldur heimsku í þágu annarlegra hagsmuna.

Það vita allir sem hafa glímt við illgresi, að sú barátta er dæmd til að tapast ef fyrstu brúskarnir eru ekki upprættir, heldur beðið þar til að það hefur dreift sér út um allt.

 

Það eiga allir hafa rétt til að iðka sína trú, en við eigum ekki að líða trúarmiðstöðvar þar sem prelátar neita handabandi við konur, eða konum sé haldið afsíðis í einhverju sem líkist griparéttum.

Vissulega höfum við ekki efni á að kaupa "one way ticket to the moon" en það er styttra til Saudi Arabíu og miðaldamenn eiga að búa í miðaldaríki þar sem þeir mega grýta konur fyrir hórdóm eða hengja homma eða hvað annað sem þessi óværa hefur fyrir tómstundargaman, en ekki hér.

Við erum nútímaríki, við lifum í nútímanum, ekki á miðöldum.

Og grundvallarforsenda nútímaríkis er nútímafólk.

 

Þetta er ekki flókið.

Það er ekkert flókið að lifa saman í frið og sátt.

 

Það á bara ekki að umbera þá sem vilja eitthvað annað.

Kveðja að austan.


mbl.is Kom við í íbúð og sprengdi sig svo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1497
  • Sl. sólarhring: 1603
  • Sl. viku: 3510
  • Frá upphafi: 1324310

Annað

  • Innlit í dag: 1372
  • Innlit sl. viku: 3075
  • Gestir í dag: 1229
  • IP-tölur í dag: 1182

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband