Leiðtogi mælti í árdaga nýrrar aldarl

 

Orð sem þjóðin þarf að nema og skilja.

 

Ég man ekki hvenær síðast ég hlustaði á áramótaávarp með innihaldi, þar sem ekki var notað tækifæri til að bulla með.  Til dæmis um velsæld og hagsæld þjóðar þegar hagsældin og velsældin fór í vasa þeirra sem þegar höfðu nóg fyrir.

En fátækari hlutinn mátti éta það sem úti frýs.

 

Líklegast man ég aðeins eftir góðu ávarpi Davíðs Oddssonar, sem brást við orrahríð dægurumræðunnar með því að fjalla um gildi þess að vera Íslendingur, í landi þar sem auðlegð varð til á grunni örbirgðar og alsleysi, en knúin áfram af reisn og stolti hinnar nýfrjálsu þjóðar.

Enda trylltist allt liðið sem vildi selja þjóðina í hendur auðmagnsins í Brussel, hinir væntanlegu ICEsave þjófar og vinnumenn hrægammanna.

 

Katrín var frábær, hreint út sagt frábær, og ótrúlega falleg og glæsileg.

Sómi kvenkyns, sómi mannkyns.

 

Orð hennar eru áskorun.

Fyrir hana og ríkisstjórnar hennar.

Fyrir almenning, fyrir þjóðina alla.

 

Og hún mælti mannamál.

Byggt á aldalangri hefði íslenskrar tungu.

Af grunni eldmóðs þeirra sem sjá fyrir sig fegurra mannlíf, betri heim.

 

Tíminn sker úr um.

En orð eru til alls fyrst.

 

Því í upphafi var orðið.

Kveðja að austan.


mbl.is Nauðsynlegt að gæta mennskunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veikara kynið vann.

 

Kosninguna um manneskju ársins.

Of veikt til að vera menn.

 

Enda of veikt til að standa á rétti sínum.

Nýtti sér ekki lög og reglur til að standa á rétti sínum, hafði ekki frétt að það er í eðli mannsins að láta ekki bjóða sér kúgun og ofbeldi.

Sagði svo vælandi og skælandi frá, eftir á, fattaði aldrei sína ábyrgð á ástandinu.

 

En náði að afsanna hina fornu skiptingu mannsins, milli karlkyns og kvenkyns.

Þriðja kynið hafði alltaf gleymst.

Veikara kynið.

 

En ekki lengur.

Það var loksins viðurkennt árið 2017.

 

En hvort það var tilgangur þeirra sem hófu metoo byltinguna.

Er önnur saga.

Saga sem verður sögð á næstu árum.

 

Kannski voru kynin tvö eftir allt saman.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is #metoo-konur manneskjur ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Holufyllingar.

 

Er orð sem margir þekkja á eigin skinni.

Hver kannast ekki við hundónýtt malbik, sem klastrað er í, jafnvel ár eftir ár.

Ég man meira að segja þá tíð hér á Neskaupstað, að bæjarstarfsmenn hlupu eftir rigningar með malarskóflur, ekki fullar af malbiki, heldur möl, og settu í holur, sem dugði alveg fram að næstu rigningu.

Ég man líka eftir leiðaraskrifum Morgunblaðsins þar sem  hæðst var af meintum holufyllingum á götum Reykjavíkur þegar Ingibjörg Sólrún var og hét.

 

Eðli holufyllinga er að þær hjálpa til skamms tíma, og jafnvel til lengri tíma ef vel er að verki staðið.

En engin holufylling fær breytt þeirri staðreynd, að það sem er laskað, lagast ekkert þó það sé fyllt í holur. 

Þær fresta aðeins vandanum, þar til nauðsynleg endurnýjun er óumflýjanleg.

 

Viðbætur ríkisstjórnarinnar frá fjárlagafrumvarpi Benna frænda er aðeins holufylling, örugglega vel meint, hvarflar ekki að nokkrum manni að hér sé aðeins um sýndarmennsku að ræða.

Ónýtt vegakerfi þarf ekki 2,3 milljarða í viðbótarfjárveitingu, heldur 23 milljarða.

Landsspítalinn heldur ekki ennþá í horfinu þrátt fyrir holufyllinguna.

Börn í vanda eru ennþá á vergangi kerfisins.

Og svo mætti lengi telja.

 

Það er sagt að það séu ekki til peningar, en það er rangt, það er aðeins vitlaust gefið eins og Steinn Steinar benti réttilega á.

Hins vegar munu peningauppspretturnar þorna ef ekkert er fjárfest í framtíðinni.

Það er meinið og við það mein er ekki tekist á við í þessu fjárlagafrumvarpi.

 

En í raun var ekki hægt að biðja um meira, ekki miðað við þann pólitíska raunveruleika sem við lifum við.

Og þó ljótt sé frá að segja, að þá myndu flokkarnir sem núna eru í stjórnarandstöðu, og Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki starfa með, gera nákvæmlega sama hlutinn ef þeir væru í náðinni en VG út í kuldanum.  Og þá sæi VG peninga í hverju horni, og jafnvel fleiri en fjögur horn í hverju herbergi.

Ríkisstjórnin þarf sinn umþóttunartíma, hún þarf árið til að móta sínar áherslur.

Að ári mun sjást hvort hún ætli aftur að holufylla hið gjaldþrota kerfi sjálftökunnar, eða takast á við vandann, innleiða nýja hugsun, nýja nálgun.

Hvort hún ætli að endurnýja, að endurbyggja.

 

Að viðbrögðum stjórnarandstöðunnar má ráða að þar verður enga hjálp að fá. 

Þar er fólk fast í einhverri holunni, og kemst ekki uppúr til að taka þátt í vitrænni umræðu, til að leggja sitt að mörkum að börnin okkar fái lifað mannsæmandi lífi í þessu fallega landi okkar sem við fengum að láni frá áum okkar.

Allar tillögur þeirra eru hræsni, til þess eins hugsað til að koma höggi á Vinstri Græna. 

Ekki er ráðist á sjálftökuna, ekki er ráðist á græðgivæðinguna, ekki er ráðist á hið arfavitlausa efnahagskerfi auðsins, sem hefur þann eina tilgang að gera hina ríkari, ennþá ríkari, og þá á kostnað okkar hinna.

Enginn leggur til að þjóðin fylgi fordæmi Breta og segi sig úr Evrópusamstarfinu.

Enginn leggur til rétta forgangsröðun, til nýja hugsun, nýja nálgun.

Aðeins pólitískar keilur.

 

Holufyllingar, holufyllingar.

 

En þeirra tími er liðinn.

Það er bara þannig.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Brugðist við ákalli um auknar fjárveitingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Díki flokksspillingar.

 

Á tímapunkti þess sem Guðlaugur Þór gæti hugsanlega fengið fólk til að gleyma að hann var dvergur þegar Bjarni skipaði innanríkisráðherra á sínum tíma, að þá varð Guðlaugur greyið aumari en sá spilltasti.

Ekki að stjórnmálasaga okkar geymi verri dæmi um flokkshygli en skipun Sigríðar Andersen í flokksrétt, sem þjóðin átti að greiða laun undir yfirskini dómsstigs sem kallað var Landsréttur, heldur að þjóðin umbar ekki lengur slíka spillingu.

Jafnvel þó Davíð skrifaði marga leiðara, og eitt eða tvö Reykjavíkurbréf, um gildi spillingar sem hefði reynst íslensku þjóðinni mjög vel þegar hann réði, hvort sem það var beint, eða úr svarta turni Seðlabankans.

Þessi tími er einfaldlega liðinn.

 

Vissulega má þjóðin vona að Guðlaugur kunni að tjá sig á erlendum tungum, allavega ekki verr en sá sem hélt ræðuna á þingi Sameinuðu þjóðanna á sínum tíma.

Og þó við kannski fyrirgefum ekki allt, þá erum við sem þjóð að eldast, og þar með gleymum við kannski hraðar en ella.

Gleymum til dæmis að Guðlaugur seldi sig Baugi og öðrum nýríkum auðjöfrum.

 

En að hann spili sig fífl, og segi að hann meti svo að skýringar faglegrar nefndar séu eitthvað sem hann, gjörspillti þingmaðurinn sem varð ráðherra því ljóst var að hann myndi ekki ógna stöðu Bjarna, telji "óljósar" eða "gefi í raun litlar sem engar upplýsingar", er eitthvað sem stjórnmálasaga lýðveldisins kann ekki frá að greina.

Að láta auðmenn kaupa sig er þannig séð aðeins viðskipti, og til að þau gangi upp, þá þarf einhver annar að trúa.  Eða kaupa spillinguna með atkvæði sínu.

En slíkt hefur ekkert með heimsku að gera, miklu frekar kalt hagsmunamat.

 

Sem aftur vekur spurningu, hvort er Guðlaugur fífl??

Eða er umsögn hans atlaga að Sigríði Andersen??

Sem er jú gæludýrið hans Bjarna, því jú hægriöfgamanneskja mun aldrei hljóta það fjöldafylgi að ógna stöðu hans sem formanns.

 

Segjum að allt það sem Guðlaugur í visku sinni, sem gæti alveg verið orginal því Baugur og hans fólk er jú history, sé rétt, að skýringar faglegrar nefndar um skipun dómara í Landsrétt séu óljósar og ófaglegar, því ekki sé tekið tillit til reynslu dómara við að dæma eftir hagsmunum flokksins, að skyldi einhver ætla að Sigríður myndi benda á þessa vankanta, og skipa nýja nefnd.

Það er opinbera nefnd, en ekki starfshóp innan Valhallar.

 

Sem hún gerði ekki.

Og hvert er þá fíflið??

Eða minnsta kosti flokksfíflið?

 

Og til að svara þá dugar ekki véfréttin í Delfí.

Til þess er díki flokksspillingarinnar of djúpt.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Rökstuðning skorti að miklu leyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað um Aron Einar?

 

Manninn sem var límið, og leiddi hinn frábæra hóp sem við köllum landslið Íslands í fótbolta, áfram í úrslit þjóðanna, sjálfa heimsmeistarakepnninnar.

Hvers á hann að gjalda??

Og ef hræsnin er skilin eftir heima, að fólk prófi að vera heiðarlegt, þá á þessi snillingur við tvennskonar vandamála að etja.

 

Hann er á lægri launum en Gylfi, og þar að auki eru mörk í meiri metan, en hæfileikinn til að koma í veg fyrir mörk.  Þó sannarlega er hið seinna forsenda árangurs.

En hann er líka með typpi.

Og slíkan glæp er ekki hægt að fyrirgefa.

 

Samt skal því haldið til haga að Ólöf er frábær, hvílíkur talent.

Og það sama mátti segja um Gylfa þegar samtök fótboltafréttamanna með sérsvið í Ensku knattspyrnunni kusu hann um árið.

Gylfi mátti þó eiga að hann gat ekki þegið viðurkenninguna án þess að benda á að hann ætti hana ekki skilið, það var betra íþróttafólk sem hefði unnið fyrir henni.

Ólöf, sem er að byrja sinn feril, hafði ekki þroska til þess, en hann kemur.

Einn daginn mun henni finnast að hún hafi unnið fyrir viðurkenningunni, og að það muni ekki á nokkurn hátt koma kynfærum við.

 

Svarti Pétur er hins vegar Morgunblaðsins að aftúlka orð Geirs Þorsteinssonar með því að vitna í Jóker íslenskra jólalaga.

Fyndinn náungi, rétthugsandi, en er það forsenda vitrænnar umræðu?

Eins og ófullkomleiki Newton hafi verið skortur á sníp, en ekki stærðfræðiformúlur Einsteins, sem kenndar voru við Afstæðiskenningu hans.  Sem aftur hafi verið litaðar af kynfærum hans.

Og þar með ekki tækar í rétthugsandi umræðu dagsins í dag.

 

Ég er ósammála Geir, en ekki með tilvísun hans í Gylfa, heldur orð Heimis Hallgrímssonar, þar sem hann sagði eitthvað á þá leið að aðrir hefðu Messi og Ronaldo, en við Íslendingar hefðum Aron Einar.

Að hundsa þau orð, en á sama tíma kjósa Heimi sem þjálfara ársins, er mótsögn, er annað hvort lítilsvirðing gagnvart Aroni Einari, að Heimi sjálfum.

Eitthvað sem íþróttafréttamenn þurfa að gera upp við sig sjálfa, og réttlæting þeirra er ekki sú almennu sannindi, að bjánarnir, þeir sem þurftu að fá vinnu, en réðu hvorki við tungumál eða texta, að þeir voru settir í íþróttirnar.  Sem er náttúrulega ekki rétt, því viðbótarskilyrði var einhver áhugi á viðfangsefninu, samanber að Steingrímur Joð fjallaði um sveitaíþróttir sem voru utan meinstrím umræðu meintra alvöru íþróttamanna.

 

Á sínum tíma var Gylfi ranglega kosinn, og hann var fyrstur til að viðurkenna þau rangindi.

Þann þroska hafði Ólöf ekki, hún greip þá gæs sem kynfæri hennar gáfu henni.

Flott viðtal við einlægan íþróttamann, en eftir stóð kjarni hennar svara, hún hafði styrk til að vera með en ekki styrk til að ná toppnum.  En greinilega hafði hún sett sér það markmið.

Enda frábær íþróttamaður, framtíðin er hennar, og hún þurfti ekki á nokkurn hátt að þola þá lítillækkun sem kjör hennar á íþróttamanni ársins var.

Og vonandi mun það ekki skemma hennar feril, að hún höndli ruglið og skili því til baka.

Að hún sé íþróttamaður, en ekki uppfylling sökum kynferðis.

 

Fábjánar umræðunnar taka hins vegar þann vinkil á sjónarmið Geirs, að hann sjái aðeins karl, og þá þann karl sem lengst hefur náð í alþjóðlegri samkeppni.

Og þá er Geir ekki að vitna í Galaxy far far away, heldur þann raunveruleika að smáþjóð náði að vinna sér sess á meðal hinna stóru, í keppni sem á alþjóðlegan mælikvarða, á engan samanburð, miðað við fjölda þátttakenda eða útbreiðslu.

Vissulega eru byggð stór einbýlishús á Íslandi, og sum hver gætu fengið sess í úthverfum Beverly Hills, og vissulega er ríkramanna íþróttin golf útbreidd á Íslandi miðað við höfðatölu, og á þá þar sammerkt við álfatrú landsmanna.

En í stærra samhenginu, og þá er ekki vitnað í auðlegð hinna ofurríku, þá er golf jaðaríþrótt, bundin við auð og yfirstétt.

Líklegast er stökk á skíðabrettum útbreiddara, og ef ekki í dag, þá á morgun þá eru hetjur krossfitsins líklegri til að hitta meinstrímið en hið gamaldags golf yfirstéttarinnar.  Og ef mig minnir rétt, þá eru röng kynfæri ekki að þvælast fyrir hinum íslenskum hetjum þeirrar íþróttar.

 

Eitthvað sem fábjána umræðunnar er fyrirmunað að skilja.

Hann er rétthugsandi, og veit alveg hvaða tegund kynfæra er inn.

Fattar ekki greyið með samsvöruninni við fyrri tíma rétthugsun, til dæmis hinar kæfandi nálgun piparmeyjarinnar á Viktoríutímanum á Englandi.

Sér til afsökunar reyndar að hvorki saga eða bókmenntir kenndar í framhaldsskólum í dag.

Því púrítanar 21. aldarinnar banna ekki hlátur, heldur kæfa öll fræði með kynvitund sinni.

Kynfæri og kúgun þeirra knýr áfram fræði þeirra.

 

Hvort það er afsökun fábjánanna að vega að Geir er önnur saga.

Þó afsökun að vitræn umræða er ekki knúin áfram af fábjánum, eðli málsins vegna.

Hver afsökun Morgunblaðsins er, að vitna í fábjánana eins og um málsmetandi fólk innan íþróttahreyfingarinnar sé að ræða, má guð vita.

Mogginn var jú fyrsta vígið til að falla fyrir Metoo umræðunni, á þann hátt að blaðið sá sér tekjur í að klámvæðast að hætti gulu pressunnar.

Til þess þurfti kannski að múlbinda fullorðið fólk á ritstjórninni, að senda það í ótímabært frí eða eitthvað.  Gömul saga og ný hvernig aurinn sigrar fagmennskuna.

En samt, það stendur hvergi á haus Morgunblaðsins, og virkilega hef ég leitað með mínum fjarsýnisgleraugum, að blaðið sé gefið út af fávitum.  Að fávitar hafi tekið yfir síðasta dagblað þjóðarinnar.

 

Svo hvert er málið??

Fíflin vega að Geir fyrir að benda á hið augljósa.  Burt séð reyndar frá mati hans á verðugum.

En fíflin fá fréttina.

Svo hver er munurinn á fréttamiðli og fíflamiðli??

 

Eða Donald Trump og tveir plúss tveir eru fjórir??

Munur sem öllum er eiginlega augljós, nema hann lesi að staðaldri ritstjórnartengd efni Morgunblaðsins.

Eitthvað sem ætti að fá mann til að spyrja, hver er munurinn á Mogganum í dag, og Mogganum þegar Styrmir og Matthías ritstýrðu blaðinu.

Hefðu þeir hampað Donald Trump??, eða hefðu þeir gefið fábjánum rétttrúnaðarins sama vægi og alvöru fólki sem tjáir sig um mál sem snertir þeirra fag eða þekkingu??

 

Kannski fortíðarþrá.

Kannski á forheimskan og fábjánaháttur rétttrúnaðarins landið að erfa, þó sá arfur sé kominn frá vitibornu fólki, og forheimska rétttrúnaðarins muni engum arfi skila til framtíðarinnar, því það liggur í eðli hennar.

 

Veit ekki.

En hins vegar veit ég að umræða sem ekki bendir á augljósa verðleika Arons Einars, óháð kynfærum hans, er út á túni.

Og sá fjölmiðill sem áttar sig ekki á því, en vitnar í fábjána dægurumræðunnar, að hann er ekki fjölmiðill.

Hann er ekki einu sinni Gula pressan.

 

Hann er aðeins slúður.

Hann er Metoo.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Geir svarar fyrir sig – „Ég held með fótboltanum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig stöðvar maður nauðgara??

 

Með því að gera saklausa jafnseka gerandanum með kröfunni að karlar axli ábyrgð á gjörðum hans eða með því að nýta sér úrræði laga og réttar, og kæra viðkomandi nauðgunartilraun?

Kvennaátakið gegn kynofbeldi virðist ekki þekkja til íslenskra laga og reglna, og kýs því fyrri leiðina, að sakfella fjöldann fyrir gjörðir einstaklingsins.

Og þá er það spurningin, hvernig geta karlmenn almennt axlað ábyrgð á tilraun yfirlæknis til að nauðga læknanema?  Eiga þeir sjálfir að finna sér fórnarlamb (það er kynremba að tala um konur eftir að samkynhneigð var viðurkennd sem hluti af kynflórunni), reyna að nauðga því, og axla síðan ábyrgð eftir á með því að skammast sín, og gera þetta ekki aftur??

Gæti virkað því vandséð er hvað þeir gætu annað gert til að axla ábyrgð á gjörðum ofbeldismanna, en myndi það ekki fjölga nauðgunum, allavega svona til skamms tíma?

 

Nei myndu líklegast hinar skarpgáfuðu konur í læknastétt segja, það var ekki tilgangurinn, þið eigið bara að skammast ykkur því ofbeldismaðurinn var karlmaður eins og þið.

En myndi það eitthvað fækka nauðgunum, eða tilraunum til nauðgana, að sakalausir taki á sig sök hin seka.

Eða er verið að gefa í skyn að allir karlmenn eru hugsanlegir nauðgarar, en skorti aðeins tækifæri til að þjóna lund sinni?

Ef svo er, þá skilur maður þessa áskorun, en annars ætti fólk að vera ljóst að sá sem hefur það geðsslag að fremja þennan hryllilega glæp, að hann hlær sig máttlausan að því að aðrir eru látnir taka á sig sök hans.  Og það eina sem öruggt er að hann kærir sig kollóttan um hina meintu samábyrgð hans sem verandi karlmaður.

 

Og hann nýtir hvert tækifæri til að þjóna lund sinni, þó breyttir tímar kalli kannski á aðeins meiri siðfágun eða aðgæslu.

Og verður svo um aldur og ævi þar til konur axli ábyrgð á tilveru sinni.

Hætti að upplifa sig sem hið vælandi veikara kyn, og taki á móti.

Láti ekki bjóða sér kynbundið ofbeldi og yfirgang í neinni mynd.

 

Ef þær væru ekki svona samdauna vælnum og upplifun sinni sem hið veikara kyn sem getur ekki staðið á eigin fótum nema undir verndarvæng karlmanna, þá myndu þær spyrja; AF hverju?

Af hverju kærðir þú ekki?  Hvernig getur þú axlað ábyrgð á sjúklingum þínum, og haft mannaforræði, ef þú lætur siðblindingja vaða uppi án þess að gera tilraun til að stöðva hann??

Og þær myndu spyrja allar þær konur sem afsaka undirgefni sína gagnvart kynferðislegri áreitni með tilvísun í eitthvað sem heitir "valdaójafnvægi", hvernig getið þið lifað með sjálfum ykkur, hvað skilaboð eru þetta til dætra ykkar, eiga þær líka að vera ambáttar ofbeldismanna??

Síðan myndu þær dreifa bæklingum um lög landsins, ásamt upplýsingum um hvernig á að kæra meint ofbeldi.  Sem og starfsmannastefnu stofnana og fyrirtækja sem líða ekki ofbeldi og einelti á vinnustað. Þar á meðal kynofbeldi.

Taka svo lagið; "Áfram stelpur".

 

Hvort þetta dugi til að sannfæra allar þær konur sem hafa látið kynofbeldi yfir sig ganga mögnunarlaust um að hér á landi gildi lög fyrir aðeins eitt kyn, mankyn, og að ekki sé þörf á sér lög fyrir annað kyn, veikara kyn, skal ekki fullyrt.

En vonandi verður það mikil vakning að svona sögur verði ekki aftur sagðar.

Að nauðgunartilraunir morgundagsins verði kærðar, og sökin skilin eftir hjá ofbeldismanninum.

Ekki hjá fórnarlambinu, og ekki hjá þeim sem enga ábyrgð báru, voru ekki á staðnum, gátu ekkert gert til að hindra glæpinn, og deila þeim lífsviðhorfum að svona glæpir séu viðurstyggð.

 

Það er eins og hið veikara kyn gleymi að karlmenn eru líka fórnarlömb drullusokkanna, bara á annan hátt.

Því þeim sem finnst kynofbeldi eðlilegt, finnst líka annað ofbeldi í samskiptum eðlilegt.

Og siðblindan knýr áfram græðgivæðinguna sem er að koma heimnum á heljarþröm.

Hún rænir samfélög okkar mennskunni og mannúðinni.

Og það eru ekki bara karlar sem ábyrgðina bera.

 

Eða var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir eingöngu skipuð körlum?

Var þingmeirihluti hennar bara karlmenn??

Þessir handlangarar græðgiafla sem rændu og rupluðu þjóð okkar, og hröktu þúsundir kvenna og barna af heimilum sínum á meðan hrægammar hirtu til sín hundruð milljarða.

Og á meðan þessum Útburði varnarlaus fólks stóð sem hæst, þá er haft eftir stolti íslenskra forréttindakvenna, þeirra sem voru aldrei í hættu að vera bornar út af heimilum sínum, að hún hefði frétt það útí París að endurreisn Íslands gengi svo vel.  Og hún skyldi ekki þessa neikvæðni í samfélaginu.

Þetta var jú öll samúðin með fórnarlömbum Hrunsins.

Enda komu þau allflest úr almúgastétt, og sannaðist hið fornkveðna, að almúginn er ekki fólk í augum yfirstéttarinnar.

 

Ofbeldismenning yfirstéttarinnar hefur gegnsýrt samfélög manna í gegnum aldirnar, þar sem kúgun og arðrán venjulegs fólks er normið, hið viðtekna stef sem allt kerfið hefur gengið út á. 

Bakslag kom í þessa ofbeldismenningu undir lok 19. aldar, og réttindabaraátta almúgans skilaði auknum lýðréttindum, sem og umræðu um rangindi kúgunar sökum kynferðis, trúar, litarháttar eða kynhneigðar.  Og heimurinn varð smátt og smátt betri staður til að lifa í.

En með frjálshyggjunni náði yfirstéttin vopnum sínum og kúgun og arðrán heimsins er að ná nýjum áður óþekktum hæðum, og sjálft lífið er í húfi.

Og hin gjörspillta yfirstétt þarf ekkert að óttast á meðan réttindabarátta fólks er í þeim farvegi sem ég hef gert athugasemdir við í nokkrum undanfarandi pistlum.

Að etja saman, hvað þá að ná að glæpavæða sakalausa, allt ber að þeim brunni að hinir raunverulegu ofbeldismenn eru stikkfrí.

Hvort sem ofbeldi þeirra er á mini skala eða global skala.  Og allt þar á milli.

 

Maður stöðvar nauðgara með því að stöðva nauðgarann.

Að halda öðru fram, að reyna að glæpavæða aðra, er í besta falli að kóa með nauðgaranum.

En í raun er það styrking á ofbeldismenningunni, meðvirkni sem gerir henni kleyft að endurnýja sig sífellt í breytilegum heimi.

 

En að stöðva ofbeldi, er ekki nóg að stöðva ofbeldismennina, það þarf að ráðast að rótum vandans, sjálfri ofbeldismenningunni.

Ráðast að hugmyndafræði hennar.

Ráðast að þeim sem hafa hag af henni.

Að þeim sem byggja völd sín á henni.

 

Í dag er þetta eina verkefni mannkynsins.

Takist það ekki.

Þá er ekkert annað verkefni í boði.

 

Þess vegna megum við ekki týna umræðunni í eitthvað bull og vitleysu.

Börnin okkar eiga betra skilið.

 

Til dæmis framtíð.

Kveðja að austan.


mbl.is Reyndi að nauðga læknanema
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fimmta valdið slúður??

 

Þegar múgæsing nær ákveðnu stigi, þá hættir hún að vera hlægileg.

Verður aumkunarverð.

 

Konur, sem upphefja sig með því að segjast vinna hjá fjórða valdinu (eins og að kóa með ríkjandi kerfi spillingar auðs og forréttinda sé eitthvað vald), segjast vera búnar að sameinast undir merkjum fimmta valdsins, með þessari yfirlýsingu;

 

"Kon­ur í fjöl­miðlum vinna bein­lín­is við að koma upp um spill­ingu, segja frá of­beldi og kúg­un, ljóstra upp um leynd­ar­mál sem skipta máli fyr­ir þjóðfé­lagið og borg­ara þess. Það er því ekki nema eðli­legt að við sam­einaðar tök­um þetta skref sam­an og sýn­um sam­fé­lag­inu öllu hvernig viðmóti og hegðum við mæt­um í okk­ar vinnu.

Nú­ver­andi ástand er ekki boðlegt. Við krefj­umst breyt­inga og skor­um á ís­lenska fjöl­miðla að taka meðfylgj­andi frá­sagn­ir al­var­lega, setja sér siðaregl­ur varðandi áreitni og kyn­ferðis­legt of­beldi, og fylgja þeim eft­ir. Gjarn­an er talað um fjöl­miðla sem fjórða valdið. Við kom­um hér sam­an und­ir for­merkj­um fimmta valds­ins #fimmta­valdið. Sam­einaðar höf­um við áhrif. "

 

Eins og að þær viti ekki að upp komst um Harry Weinstein vegna þess að konur sögðu frá, í samvinnu við blaðamenn New York Times breyttu þær orðrómi í frétt, og króuðu skrímslið út í horni.

Og afhjúpuðu það.

Ekki með slúðri og slúðursögum, heldur með faglegum vinnubrögðum fólks sem vinnur við það að koma upp um spillingu, segja frá ofbeldi og kúgun, ljóstra upp um leyndarmál sem skipta máli fyrir þjóðfélagið og borgara þess.

Vinnubrögðum sem þessar fjölmiðlakonur slá sér upp með en virðist vera þeim algjörlega framandi.

Eða halda þær að það hefði dugað til að stöðva Harry Weinstein ef allir kvikmyndaframleiðendur hefðu verið settir undir sama hatt??, til dæmis Sigurjón okkar Sighvatsson.

 

Fyrir hvað stendur þetta fimmta vald??

Annað en að baða sig í sviðsljósi frægðar þeirra sem unnu vinnu sína á faglegan hátt?

 

Vissulega er það smá vinna að sannreyna hvaða prófessor í fámennri deild innan HÍ hafi krafið stúdínur sínar um kynlífsþjónustu, en það ætti ekki vera þeim ofraun að segja frá þeim kyndólgum sem vaða uppi á þeirra eigin vinnustað.

Ef þær eru svo stórar uppá sig að telja sig vera hluti af fjórða valdinu, þá ættu þær að ráða við að nafngreina þá sem þær hafa haft bein kynni af.

Hverjir eru þetta sem beittu þær kynferðislegu ofbeldi, hverjir eru þetta sem áreittu þær??

Varla er þetta reykur í heilu fjölbýlishúsi út frá einum viðbrenndum potti, sem í augnablikinu er ekki hægt að finna sökum hins mikla reyk sem er útum allt húsið??

Það hlýtur eitthvað alvarlegt að búa að baki svona stóryrtri yfirlýsingu og alvarlegum ásökunum??

 

Allavega rennir það stoðum undir ásakanir þeirra að þær komast upp með þau ófagleg vinnubrögð sem hafa dunið yfir þjóðina síðustu daga.

Varla eru þessir karlar sem stjórna, svo miklar kerlingar að þeir þori ekki að rísa gegn múgæsingunni, og sjá áratug æru og fagmennsku renna í ræsi múgæsingarinnar??

Þeir hljóta að vera kyndólgar, allir sem einn, og því ekki að nefna þá??

Það er kannski hugsanlegt að einhver sé saklaus, og er þá ekki allt í lagi að nefna þennan eina, eða þessa tvo, eða eru þeir fleiri sem sitja undir ásökunum að ósekju?? 

 

En ég leyfi mér að efast að svo sé.

Leyfi mér stórlega að efast að fjölmiðlar landsins séu uppfullir að kynofbeldismönnum.

Einhvers staðar er einhverju ofaukið.

 

Og ég dreg stórlega í efa einlægni allflestra sem þarna skrifa undir.

Í það minnsta sem starfa hjá Ruv.

Mér er ennþá minnisstætt að fyrir svona rúmu ári síðan sögðu nokkrar konur frá samskiptum sínum við ákveðinn einstakling, háttsettan innan Ruv, eða hvað á maður að segja, mikilsvirtan fréttamann innan gæsalappa, sem hafði sem yfirmaður þeirra sýnt sterk þekkt skilgreind hegðunareinkenni miðaldra karla með skerta sjálfsvitund og lítið typpi, og birtist í því að leggja ungar og hæfilekaríkar konur í einelti, gera sífellt lítið úr störfum þeirra og terrorista þær út í eitt.

Þær voru vissulega fyrrverandi, því þær hröktust úr starfi út af dólgshætti yfirmanns síns, en engin núverandi tók málið upp, það að segja frá kúgun, spillingu og ofbeldi gilti greinilega ekki um innanhúsmál.

Enda ekkert frægðarljós til að baða sig í.

Aðeins spurning um heiðarleika, að geta horft í eigin barm, og tekist á við erfið mál sem snertu þeirra eigin vinnustað.

 

Núna vilja allir Lilju kveðið hafa.

Að hætti slúðurkellinga.

Að hætti Gróu á Leiti.

 

Og allir jarma með.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Konur í fjölmiðlum stíga fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldi í skjóli þagnar.

 

Nafnleyndar, eða annars sem gerir stóran hóp sekan, þegar augljóst er á frásögnum að fáir eiga í hlut, er ofbeldi sem engan endi mun taka.

Slúður mun ekki leggja þennan Glám að velli.

Hvað þá eftirá væl og skæl.

 

Grettir lagði Glám því hann tókst á við hann.

Enda karlmennskan holdi klædd.

 

Það er kannski meinið.

Kveðja að austan.

 


mbl.is „Það lendir alltaf einhver í honum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

You are not alone.

 

Það er enginn einn, nema kannski mannkynið í úniversinu.

Það eru skilaboð þessa fundar, skilaboð þessa átaks.

Ef rétt er á málum staðið verður þetta átak upphaf af heimi þar sem ofbeldi er ekki liðið, hvorki kynbundið, einelti, líkamlegt, valdtengt, eða annað þar sem fólk þarf að sæta áreitni eða ofbeldi af hálfu samferðafólks síns.

 

Það verður hins vegar ekki nema fórnarlömb ofbeldis hafi kjark til að hafna því, og nota þau úrræði sem samfélagið býður uppá til stuðnings og til að stöðva ofbeldisfólkið.

Það verður ekki ef konur falla í þá gryfju að tengja ofbeldisfólkið við stærri heild, til dæmis að ofbeldismaður sem er karl, þýði að karlar eru ofbeldismenn.

Það verður ekki nema ef ofbeldismenningin og ofbeldisfólkið sé króað útí horni, og gert upp við það án þess að það nái að verja sig með því að falla inní annan og stærri hóp.

 

Það var mikið klappað í Borgarleikhúsinu þegar sagt var frá ungri konu sem lét ekki bjóða sér áreitið, og sagði frá, og eins og segir í fréttinni "Hún hefði látið sam­starfs­fé­laga sína vita, auk yf­ir­manna, þar sem hún fékk frá­bær­an stuðning".  Nýleg saga, gerðist þannig séð í dag.

En þær konur sem þögðu í gær mættu íhuga, hvað hefði gerst ef þær hefðu sagt Nei, í stað þess að láta ofbeldið yfir sig ganga??  Hefðu þær hlotið svona stuðning?? Eða var engin meining að baki stefnu fyrirtækja og voru lög landsins hjóm eitt, og fór ekkert að virka fyrr en umræðan fór á Tvitter??

Þær mættu íhuga hvað margar konur sögðu Nei í gær, fyrradag og þar áður.  Þær fengu kannski ekki hlutverkin þar sem var þuklað á þeim, eða stöðuhækkun gegn kynlífsþjónustu, eða klapp á bakið sem þæga stúlkan sem var hægt að áreita.  En þær gengu hnarreistar að vettvangi, sjálfum sér trúar.

Og kannski hefði kynofbeldið ekki grasserað svona lengi, ef þær hefðu verið Not alone.

Það er nefnilega hollt að spyrja; AF HVERJU, allavega ef vilji er til að leysa ráðgátu, vilji til að láta hlutina ekki falla aftur í sama farið.

 

Mér er minnisstætt samtal sem ég átti við jafnöldru mína svona um miðjan níunda áratug síðustu aldar, var óska henni til hamingju með útskriftina, en hún var að útskrifast sem viðskiptafræðingur, og ég vissi ekki annað en að henni biði stöðuhækkun hjá því fyrirtæki sem hún hafði unnið hjá á sumrin, og síðan með námi við góða orðstír.  "Nei ég er hætt sagði hún, ég lét ekki bjóða mér að strákur sem hafði útskrifast um leið og ég, með mun síðri einkunnir, nýráðinn til fyrirtækisins, fékk starfið, en mér var boðið launahækkun, ef ég ynni sem aðstoðarmaður hans".  Því það þurfti jú hæfni og reynslu til að sinna starfinu.

Ég hef ekki hitt hana síðan, en ég horfði á eftir sterkri og glæsilegri konu halda áfram út í lífið, vitandi að svona konur myndu breyta heiminum.

En það breyttist greinilega alltof lítið, og karlar eru sagðir sekir.

En er það svo?? 

Liggur sektin ekki víðar??

 

Til dæmis í skort á sjálfsgagnrýni.

Eða alhæfingum.

 

Allavega þá líða fleiri fyrir ofbeldismenninguna en konur.

Það líða allir fyrir hana.

Sérstaklega framtíð barna okkar.

 

Það er lofsvert að snúa bökum saman og segja frá.

Og mikið vildi ég óska þess að þessi smánarblettur á okkur mannkyninu, kynbundið ofbeldi heyrði sögunni til.

 

Að upplifa samkennd og samstöðu er fyrsta skrefið.

Megi fleiri skref fylgja í kjölfarið.

Kveðja að austan.


mbl.is Hlegið og grátið í Borgarleikhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morð í nafni laga.

 

Eru skipbrot siðmenningarinnar.

 

Voru vissulega viðtekin í ríki Hitlers, nasisma fjórða áratugar síðustu aldar, og guð kommúnistanna, Stalín frændi, byggði upp sitt réttarríki á slíkum morðum. Tókst að hnakkskjóta í nafni laga og réttar, allavega á aðra milljóna saklausra, og síðan má bæta við milljónunum sem feisuðu sinn dauða fyrir framan aftökusveit hinna morðóðu kommúnista.

Og í dag eru til milljónir sem dýrka þessa siðblindu morðingja.

 

Eins og í dag er til fólk sem upphefur hið sama hel sem hefur gegnsýrt hina fyrrum brjóstvörn vestræns lýðræðis og vestrænna lífsgilda.

Og þá er ekki um að ræða fórnarlömb svertunnar í Bandaríkjum sjálfum.

Heldur aðdáendurnir sem hafa ekki kynnst henni að eigin raun, eða orðið fórnarlömb afleiðinga hennar.

Svo dæmi sé tekið, þá var vandfundin sú kona í Þýskalandi sem fann til með pólskum kynsystrum hennar á árunum 1939 til 1944, en skyldu betur þjáningar þeirra þegar hinn frelsandi Rauði hefi fór með báli brandi og nauðgunum yfir þeirra eigið heimaland.

 

Svertan í Bandaríkjunum réttlætir morð í nafni laga.

Og meira að segja í okkar friðsama samfélagi er fullt að fólki sem kóar með.

Að mörgu leiti sama fólk sem tók undir víðáttu heimsku Trumps forseta að hella olíuna á eldinn í hinu viðkvæma ástandi sem er í Mið Austurlöndum.

Blaðamaður Moggans benti á í fréttaskýringu að núverandi leiðtogar Araba heimsins hefðu meiri áhyggjur af Íran.  Sem er örugglega alveg rétt, en þeir sem kynda undir ófrið, þeir vita eins og er að þeir sem fyrstu sem falla, eru hófsamir, þeir sem kjósa frið fram yfir dauða og djöful.

Og það er ekki afsökun að sambærileg heimska sá ekki fyrir síðustu heimsstyrjöld, það er jú eitthvað til sem heitir lærdómur sögunnar.

 

Lærdómur sem segir, að firring gegn mennsku og mannúð, firring sem vanvirðir skelfilegt ofbeldi gegn einstaklingnum og fjölskyldu hans, að hún endar aðeins á einn veg.

Veg alræðis, ofbeldis, átaka og eyðingar.

USA hefur hafið þessa vegferð.

Of mörg púsl í heildarmyndinni hafa þegar verið lögð svo ekki er hægt að efast um.

 

Heildarmynd sem varðar okkur öll.

En við kjósum að leiða hjá okkur,.

 

Eins og við séum fórnarlömb sem kunnum ekki að segja Nei.

Eins og mannkynið allt sé hið grenjandi veikara kyn sem hefur tröllriðið umræðuna síðustu vikur.

 

Eins og börn okkar séu eingetin.

Eins og Vællinn hafi nokkuð komið þar nærri.

 

Eiga ekki framtíð.

Því við áttum bara nútíð.

Og fórnuðum framtíðinni því við lærðum ekkert af fortíðinni.

 

Gáfum hinum Örfáu það svigrúm sem þeir þurftu.

Kveðja að austan.


mbl.is Sýknaður af að skjóta mann á hnjánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Des. 2017
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 995
  • Frá upphafi: 1321547

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 834
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband