13.11.2009 | 11:40
Hann Josefsson, hvað veit hann????
Er þetta ekki bara ellilífeyrisþegi út í bæ og hefur ekkert með það að gera að gagnrýna vel meinandi stjórnvöld.
Var það ekki einhvern veginn svona sem Steingrímur Joð Sigfússon afgreiddi málefnalega gagnrýni Davíðs Oddssonar á Svavarssamninginn?
Og talsmenn heimilanna, sem mótmæla frekari píningu þeirra, eru sagðir ekki hafa nokkurn skilning á Norrænu velferðarkerfi.
Og var ekki hann Stefán, formaður Félags bandalags háskólamanna, ekki bara þröngsýnn Sjálfstæðismaður sem mætti ekki heyra minnst á skatta.
Málefnaleg svör á rökstudda gagnrýni hefur alltaf verið styrkur þessarar ríkisstjórnar.
Kveðja að austan.
Jóhanna ósammála Josefsson | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 511
- Sl. sólarhring: 674
- Sl. viku: 6242
- Frá upphafi: 1399410
Annað
- Innlit í dag: 433
- Innlit sl. viku: 5288
- Gestir í dag: 397
- IP-tölur í dag: 391
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nákvæmlega - þetta er náttúrlag bara orðið gaman að þessu öllu saman, stanslaus skemmtun að horfa uppá þessa reynslubolta okkar í ríkisstjórninni sem hafa varla farið út fyrir bæjarmörkin í sinni sveit til að kynna sér hvað hefur verið og hvað er að gerast og hvað mun væntanlega gerast hjá sveitungum þeirra í kringum sig, þ.e. UK, EU, USA o.s.frv. ;-)
Það er akkúrat engin reynsla að hafa verið að gera samahlutinn svo lengi að þú mannst ekki eins sinni eftir því afhverju þú byrjaðir á því að gera hlutinn upphaflega og til hvers. Skv. mínum rannsóknum og reynslu er engnum hollt að vera starfandi hjá sömu stofununinni í lengur en 5 til 7 ár, á þetta ekki bara við um stjórnunarstöður, þetta á við um allar stöður og störf ;-)
Með þetta í huga er vert að lesa Að elska er að lifa eftir Gunnar Dal til að sjá hlutina í öðru ljósi.
Lifið heil og áfram Ísland;-)
Góða helgi,
AtliAtli Georg Árnason (IP-tala skráð) 13.11.2009 kl. 12:11
Takk fyrir innlitið Atli.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 13.11.2009 kl. 13:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.