3.9.2009 | 10:36
Bla ,bla, bla, bla.
Enn ein sjónhverfingin til að afvegleiða umræðuna. Umræðuna um réttlæti. Og umræðu sem krefst að handónýtt kerfi verði hent á ruslahaugana.
Réttlætið er í því fólgið að hækkun lán vegna atlögu auðmanna að hagkerfinu, verði látin ganga til baka. Það verður ekki friður í þjóðfélaginu fyrr en það er gert.
Handónýta kerfið sem á heima á ruslahaugunum er heimska verðtryggingarinnar, hins sjálfvirka kerfis sem lætur verðbólguna lifa sjálfstæðu lífi.
Þetta heimskulega kerfi mælir núna hrun krónunnar sem verðbólgu. Og kemur gengishruninu beint inn í lán fólks. Og gerir þar með venjulegu fólki ókleyft að lifa í landinu.
Hefur heimskan náð hærri hæðum í sögu þessa lands???
Og svo blaðra menn og blaðra út í eitt um eitthvað sem skiptir ekki máli. Og á meðan molnar undan grunnstoðum samfélagsins, sjálf heimilin og fyrirtækin eru að komast í þrot. Og blað allra landsmanna tekur þátt í skrípaleiknum.
En tími blaðursins er liðinn. Fólk þarf raunhæfar aðgerðir.
STRAX.
Kveðja að austan.
Grunnur að lausn á vanda heimila? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 102
- Sl. sólarhring: 788
- Sl. viku: 5641
- Frá upphafi: 1400398
Annað
- Innlit í dag: 88
- Innlit sl. viku: 4846
- Gestir í dag: 88
- IP-tölur í dag: 88
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.