7.6.2009 | 21:24
Kjarni málsins "Allir þurfa að standa saman".
Þess vegna gengur það ekki hjá þeim skötuhjúum Jóhönnu og Steingrími að kljúfa þjóðfélagið í herðar niður.
Með því að neyta allt að helmingi ungs fólks á höfuðborgarsvæðinu, sem framdi þann eina glæp að kaupa sér húsnæði og fjölga Íslendingum, um sanngjarna leiðréttingu verðbóta vegna kerfishrunsins sem varð í haust.
Með því að þvinga upp á þjóðina deilu um aðildarviðræður við ESB á sama tíma þegar eldar loga út um allt í þjóðfélaginu.
Með því að svíkja þjóðina um rétt sinn í ICEsave deilunni en jafnvel hörðustu glæpamenn fá réttarhöld áður en þeir eru aflífaðir. Bretar fengu að aflífa íslenskt nútímaþjóðfélag með þeirri Nauðung sem Alþingi á að samþykkja á morgun. Og þjóðinni er neitað um réttlæti.
Stjórn sem vinnur að því hörðum höndum að rústa innviðum samfélagsins, getur ekki beðið um samstöðu. Og þó hún sé svo skyni skroppin að sjá ekki sínar misgjörðir þá sér þjóðin þær.
Óstjórn nær aldrei nauðsynlegri samstöðu.
Svo einfalt er það.
Kveðja að austan.
Allir þurfa að standa saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 594
- Sl. sólarhring: 642
- Sl. viku: 6325
- Frá upphafi: 1399493
Annað
- Innlit í dag: 509
- Innlit sl. viku: 5364
- Gestir í dag: 465
- IP-tölur í dag: 459
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.