6.6.2009 | 22:07
Hvernig kemst Jóhanna endalaust upp með órökstuddar fullyrðingar
án þess að nokkur láti hana rökstyðja mál sitt. Jóhanna segir að "hefðum við látið reyna á málið fyrir dómstólum er mjög líklegt að við hefðum tapað málinu".
Hvað veit hún um það? Eru einhver dómsfordæmi hjá Evrópudómstólnum að hann dæmi ekki eftir lögum og reglum sambandsins???????????
Það stendur skýrt í tilskipun sambandsins að aðildarríki EES uppfylli innistæðuábyrgð sína með því að stofna Tryggingasjóð innlána. Samkvæmt lögum er hann sjálfseignarstofnun með sjálfstæðum fjárhag.
Það stendur hvergi að ríkið sé í bakábyrgð fyrir sjóðinn. Fullyrðingar um annað eru lygi. Og forsætisráðherra Íslands er að ljúga að þjóð sinni og kemst upp með það vegna lydduskapar og vankunnáttu fjölmiðlafólks.
Ef Jóhann er að segja satt þá er Stefán Már Stefánsson prófessor að segja ósatt. Og þá ætti fyrir löngu að vera búið að setja manninn af sem prófessor við Háskóla Íslands. Menn bulla ekki að þjóð sinni í svona örlagamáli.
En enginn, ég endurtek enginn hefur svarað málefnalegu lögfræðiáliti Stefáns. Eftir að hann setti fram rökstudda gagnrýni sína á fullyrðingar ráðherra Samfylkingarinnar í ríkisstjórn Íslands, þá brugðust þeir við með þeim hætti að þeir sögðu sín lögfræðileg gögn vera trúnaðarmál.
Þau þoldu sem sagt ekki dagsljósið.
Og þeir komust upp með það vegna vanhæfni og lydduskapar íslenskra fjölmiðlamanna. Svipa atvinnuleysisins er svo sterk að þeir kyngja öllum sóðaskap sem að þeim er rétt. Enginn hefur krafið utanríkisráðuneytið um þau gögn sem það hefur í höndum og styður fullyrðingu Jóhönnu að við eigum að borga samkvæmt lögum og reglum Evrópusambandsins.
Og núna í dag kemst hún upp með ítrekuð ósannindi. Það stendur nefnilega hvergi að Ísland sé í ábyrgð.
Því ef það stendur einhversstaðar, þá hefði það fyrir löngu verið birt á síðum Morgunblaðsins og kæmi skýrt fram á heimasíðu stjórnarráðs Íslands.
Það er tilræði við framtíð barna okkar að láta Jóhönnu komast upp með ósannindi sín.
Kveðja að austan.
Erfitt að skrifa undir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 590
- Sl. sólarhring: 643
- Sl. viku: 6321
- Frá upphafi: 1399489
Annað
- Innlit í dag: 505
- Innlit sl. viku: 5360
- Gestir í dag: 462
- IP-tölur í dag: 455
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála þér!
Sigurjón, 7.6.2009 kl. 01:03
Takk Sigurjón.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 7.6.2009 kl. 01:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.