9.7.2025 | 16:15
Fullur ráðherra endurtekur Dansinn frá Hruna.
Ég er einn af þeim sem kaus Flokk fólksins á ákveðnum tímapunkti, fyrir mig skipti það ekki öllu máli að meintur flokkur væri skúffa í eldhúsi Ingu Sæland, heldur að Inga andæfði auðnum sem var langt kominn með að breyta lýðræði í auðræði.
Reyndar ekki síðast því einn af Vörðum lýðræðis okkar og sjálfstæðis bauð fram, og að sjálfsögðu kaus ég Arnar Þór Jónsson.
Spekin að baki okkar Hriflungum er ekki flókin, auður og auðmenn eiga ekki að eiga lýðræðið, hvað þá að selja sjálfstæði þjóðarinnar til Brussel, svo þeir fái gengi braskarakróna sinna, brasks sem fá verðmæti voru að baki önnur en innbyrðis viðskipti þeirra, á krónu á móti krónu.
Andspyrna götunnar náði að hindra þann gjörning, þegar Bjarni Ben og Sjálfstæðisflokkurinn náði að sýna sitt rétta andlit í ICESave 2, þá vissulega voru fyrstu skoðanakannanir 66% með auði og auðmönnum, gegn þjóðinni, svo höfðum við þetta bara.
Svo liðu mörg ár og víglínur breyttust, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og VinstriGrænir gegndu lykilatriði í að fórna sjálfstæði þjóðarinnar varðandi nýtingu orku hennar, stríð sem var kennt við Orkupakka eitthvað, man ekki alveg hvað þessi skoffín landsölu leppa auðsins heita.
Þá stóð Inga, og flokkurinn, sem hún stofnaði og geymdi í eldhússkúffu sinni, lappirnar, Inga stóð með fólki gegn auði, þjóð sinni gegn þeim sem vildu selja hana.
Og já, þegar ekkert betra var í boði, þá kaus ég hana, flokk hennar og lista hér fyrir austan.
Svo skemmdi það ekki fyrir að frjósemisafl Stuðmanna komst á þing, Jakop Frímann Magnússon.
Já, já ég veit það, þetta er játning sveitamanns sem trúði fagurgala fólks sem þóttist vera á móti.
Og ég skal vissulega játa að ég var einn af þeim sem taldi Ragnar Ingólfsson heiðarlegan baráttumann fyrir fólk, fyrir alþýðu, fyrir okkur öll sem auðurinn hefur markvisst ákveðið að breyta úr fólki í kostnað, með vísan í Hayek og Friedman.
Og guð minn góður, allir pistlarnir sem ég að vanmætti skrifaði, vanmætti þar sem alvarleg vanheilsa setti strik í sandinn, um aðförina að Ásthildi Lóu.
Manneskju sem ég bar mikla virðingu fyrir, baráttu hennar í þágu Heimilanna, baráttu hennar gegn Hrunverjum, yfirtöku þeirra yfir stjórnsýlunni í gegnum ógæfufólkið, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím Sigfússon, svo var Ásthildur Lóa engu betri.
Sjaldan hef ég eytt eins mikilli orku í að verja það sem seinna brást.
Sem var enn einn leppurinn fyrir auð og auðmenn.
Hún eins og Ragnar höfðu víst aldrei fengið tækifæri til að selja sig, og þegar það gafst, þá var það gripið.
Fólk og þjóð til sölu.
Eftir stendur samt smánin, og hún snýr að mér, að full Inga hafi tekið meintan eggjandi dans til að trufla þá þingmenn sem standa vörð um tilveru fólks á landsbyggðinni.
Hvílíkt skoffín er hún blessunin.
Að ganga svona erinda auðs og auðmanna, gegn Fólkinu sem kaus hana og flokk hennar.
Blindfull og vitlaus.
Hvað á maður að segja, hvernig hefur allt manns vit og skynsemi brugðist manni, og maður hélt að þetta fólk hefði æru, sem og þrátt fyrir alla sína galla, væri einlægt að berjast fyrir tilveru okkar, þjóðarinnar, Fólksins, sem byggir þetta land.
Veit ekki, sjálfsagt er það ellin, vitsmunaleg hrörnun sem fylgir vanheilsu þess sem sækir að líffærinu sem ber víst ábyrgð á hugsun og dómgreind.
Engin afsökun samt, ég trúði og treysti þessu fólki til að andæfa, og sú trú og traust er eldri en ellin sem sækir að.
Sem og að ellin er kannski afsökun þess sem fattar að hann er ekki alveg eins skarpur og hann var áður.
Er þetta afsökun Ingu.
Ég bara spyr.
Alla pistla þarf að enda.
Kveðja að austan.
![]() |
Ráðherra steig eggjandi dansspor í þingsal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:20 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.7.): 769
- Sl. sólarhring: 853
- Sl. viku: 4854
- Frá upphafi: 1461282
Annað
- Innlit í dag: 660
- Innlit sl. viku: 4111
- Gestir í dag: 583
- IP-tölur í dag: 565
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þegar þú vísar til fólks sem er að "ganga erinda auðs og auðmanna", ertu þá ekki örugglega að meina þingmenn hægriflokkanna (sem kenna sig sumir við miðju)? Er að spyrja fyrir vin sem er ekki alveg viss.
Guðmundur Ásgeirsson, 9.7.2025 kl. 19:34
Já Ómar, játning þín er mikilvæg.
Margir geta tekið undir með þér, þar á meðal ég og áreyðanlega Jódís nokkur Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, sem er hætt i flokknum. Það tilkynnti hún á Facebókarsíðu sinni 26. maí s.l.
Jódís sagði ákvörðun sína ekki hafa verið auðvelda. Hún kvað spillingu eina helstu ástæðu þess að hún tók þessa ákvörðun.
Hún sagi jafnframt: Ég leyfi mér að segja að engin stjórnmálasamtök á Íslandi séu undanskilin. Þegar nýir flokkar verða til horfum við bjartsýn fram á nýja og betri tíð, en innan ákveðins tíma, í þessu andrúmslofti, virðist ónæmiskerfi flokkanna vera of veikt og þessi súra gamla pólitíska veira virðist ná að festa sig í líffærum allra flokka, sagði Jódís í færslu sinni.
Guðmundur Örn Ragnarsson, 9.7.2025 kl. 19:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning