Sýknun Páls á að hafa afleiðingar.

 

Páll Vilhjálmsson hefur tvívegis verið sýknaður af Landsrétti í meiðyrðamálum, eftir að héraðsdómur dæmdi hann sekan.

Og sekan fyrir hvað???, að tjá sig á opinberum vettvangi um mál sem varðaði eiturbyrlun á samborgara okkar, skipulagða af ákveðinni elítu blaðamanna þar sem allir vefir köngulóarinnar lágu uppí Efstaleiti, þar sem ríkisfjölmiðill okkar hefur aðsetur.

 

Eðli málsins var Páll mjög harðorður út í þessa blaðamannaklíku sem taldi sig hafna yfir lög bæði manna og guðs, þú skalt ekki mann deyða.

Hvað þá að reyna að drepa hann til að stela síma hans svo hægt væri að afrita gögn úr honum í þeim tilgangi að semja falsfréttir um Samherja og starfsmenn þess. 

 

Sjá menn ekki hvað það er sjúkt að láta sér detta í hug þennan glæp í svona ómerkilegum tilgangi, hvað þá þann andlega sjúkleika að framkvæma glæpinn??

 

Samt var ekkert gert, ekkert sagt fyrr en Páll Vilhjálmsson tók þetta mál uppá sína arma og krafðist réttlætis, sem og að viðkomandi blaðamenn, hinir raunverulegu eiturbyrlarar þó þeir hafi notað sjúka manneskju sem verkfæri sitt, yrðu látnir sæta ábyrgð.

Sæta ábyrgð í stað þess að fá að halda áfram að spúa eitri yfir samfélag okkar.

 

Héraðsdómur sá það allavega ekki en það gerði Landsréttur hins vegar.

Og héraðsdómur hefur lært af hrakförum sínum, að það sé dæmt eftir lögum í Landsrétt en ekki eftir stefnum og straumum á umræðuvettvangi Góða fólksins.

 

Héraðsdómur sýknaði Pál í dag af ákæru um hatursorðræðu, enda vandséð hvernig rökfastur málefnalegur maður getur verið sekur um slíkt þó hann fjalli um umdeild mál á mannamáli.

Skoðanir, að tjá þær, er ekki hatursorðræða, að því gefnu að það sé ekki að hvetja til ofbeldis og morða líkt og borgarstjórn Reykjavíkur er að gera með því að flagga palestínska fánanum til sýna samhygð sína með voðaverkum Hamas og þeim hörmungum sem samtökin hafa kallað yfir íbúa Gasa strandarinnar.

Ekkert slíkt hefur Páll gerst sekur um, hann hefur aðeins tjáð meiningu sín á skýran og rökfastan hátt, reyndar svo að undan sveið, en slíkt er ekki hatursorðræða heldur stílfærni.

 

Og þá er það ríkissaksóknari, af öllum vanhæfum embættismönnum þjóðarinnar, sem ákærir Pál, ræðst þar með gegn einum af hornsteinum lýðræðisins, tjáningarfrelsinu.

Vegna hvers???

Vegna þess að hún er lesbísk, vanhæf, eða vegna þess að hún hatast út í frjálsa orðræðu, að hún ali með sér þann blautlega draum að vera ríkissaksóknari í Íran eða Norður Kóreu, eða kannski saksóknari Hamas á Gasa-ströndinni.

 

Skiptir ekki máli.

Hvort sem þessi atlaga ríkissaksóknara að lýðræðinu stafi af persónulegum tengslum við þau samtök sem kærðu Pál fyrir hatursorðræðu, almennri heimsku eða vanhæfni, eða hvað annað sem skýrir þessa opinbera ákæru á hendur honum, þá er ljóst að þarna lagði ríkissaksóknari allt undir.

Og tapaði, ef hún áfrýjar til Landsréttar, þá mun hún skíttapa.

Því enginn dómsstóll þjóðarinnar mun lýsa því opinberlega yfir að lýðræðið sé dautt á Íslandi, að landið sé komið í flokk með alræðis og ógnarstjórnarríkjum þar sem það varðar við lög að tjá skoðanir sem eru ekki þóknanlegar alræðis eða ógnarstjórninni.

 

Munum svo í þessu samhengi að ríkissaksóknari lagði blessun sína yfir að klíka blaðamanna reyndi að myrða einn af samborgurum okkar, atburðarrás sem lögreglan á Norðurlandi eystra kortlagði en þorði svo ekki þegar á reyndi að hætta sér í slag við hina illvígu blaðamannaklíku og pólitískt bakland hennar, klíku sem virðist telja sig ríki í ríkinu, fyrir ofan lög og rétt, fyrir ofan þá skyldu blaðamanna að segja satt og rétt frá eftir sinni bestu vitund.

Ríkissaksóknara bar allan tímann þá skyldu til að láta reyna á þau lagatæknilegu atriði sem lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra notaði sem afsökun fyrir kjarkleysi sínu, hvort siðspillingin væri orðin slík í samfélaginu að það væri allt í góðu að sýna borgurum þess banatilræði.

 

Nei það gerði hún ekki en homma og lesbíusamtökin ´78 virðast geta notað embætti hennar sem pöntunarvél til að ákæra mann og annan sem beygja sig ekki undir ógnarstjórn samtakanna í opinberi umræðu.

Þar sem hæst ber sú fáráð að það er hægt að ákæra sem hatursorðræðu að benda á þá staðreynd að kyn spendýra eru tvö, og þau geta aldrei annað en verið tvö, því það er forsenda þess getnaðar sem verður að nýju lífi.

 

Vanhæfni, hugmyndafræðileg kredda, skiptir ekki máli, ríkissaksóknara ber að segja af sér embætti, strax á morgun, ekki nema þá að hún treysti sér til að fara með málið lengra, og þegar hún tapar því fyrir Landsrétti, á hún ekki einu sinni að fá tækifæri til að segja af sér.

Heldur á að reka hana með skömm.

Það er ekki hægt að líða svona árás á lýðræðið í þágu einhverra samtaka út í bæ.

Sem þola ekki umræðu um mjög umdeild störf sín.

 

Að líða morðtilræði blaðamanna sem telja sig ríki í ríkinu.

Að líða árás á réttinn til að tjá skoðanir sínar.

Er það sama og að lýsa yfir að íslenska þjóðin býr hvorki yfir réttarfari lýðræðisþjóða eða málfrelsinu sem er forsenda þess sama lýðræðis.

 

Og ég spyr.

Hver vill lýsa slíku yfir??

 

Já hver.

Kveðja að austan.


mbl.is Páll sýknaður vegna ummæla um Samtökin 78
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já hver? Örugglega engin eftir að sjá rök þeirra fíl(stíl)elfdu snjöllu. 

Helga Kristjánsdóttir, 5.7.2025 kl. 00:59

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég styð frelsi fólks til að hafa rangt fyrir sér án þess að þurfa að sæta refsingu fyrir það. Við sem samfélag höfum önnur verkfæri til að fást við slíkt sem sama tjáningarfrelsið tryggir að leyfi til að nota.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.7.2025 kl. 02:31

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og sextán?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.7.): 68
  • Sl. sólarhring: 670
  • Sl. viku: 4623
  • Frá upphafi: 1458113

Annað

  • Innlit í dag: 52
  • Innlit sl. viku: 4010
  • Gestir í dag: 52
  • IP-tölur í dag: 52

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband