27.6.2025 | 16:33
Þegar Mogginn vitnar í bjánatal.
Setur í fyrirsögn að "Langtímalausn felst í tveggja ríkja lausn", þá annars vegar sér maður í rauntíma hve illa tekjuhrap hefur leikið borgaralega fjölmiðla, þannig að fagleg þekking sem er forsenda góðar blaðamennsku, hefur smán saman dagað uppi, í stað reyndrablaðamanna með þekking og reynslu, þá er þeim skipt út fyrir örugglega ágætis fólk, en býr ekki að því sem þeir eldri höfðu, og eru núna flognir í veg, svo vitnað sé í snilldarlag KK.
Hins vegar fær maður um sig allan kjánahroll sem er þannig séð út úr kú í hitanum í dag hér fyrir austan.
Það er hrollurinn.
Það má deila um, og ég ætla ekki að blanda mér í þær deilur, hvort vonin um tveggja ríkja lausn hafi dáið með morði öfgagyðinga, örugglega stýrt af því fjármagni sem græðir á óöld og upplausn, á Isak Rabin, eða þegar Hamas náði völdum á Gasa.
Rabin var drepin því hann trúði innilega að lausnin á sífeldum átökum með gagnkvæmum drápum, væri leiðin sem Sameinuðu þjóðirnar mörkuðu 1948 og kvað um tveggja ríkja lausn, annars vegar ríki Palestínuaraba og hins vegar ríki gyðinga.
Lausn, sem arabaríkin drápu í fæðingu með innrás sinni í hið nýstofnaða ríki gyðinga, árás sem hafði þann eina tilgang að útrýma hinu nýja ríki, þó deilt sé um hvort ásetningurinn hafi líka verið útrýming íbúa þess.
Lausn sem dó eftir ósigur arabaríkjanna, annars vegar yfirtók Egyptaland Gasa og hins vegar hertók Jórdanía Vesturbakka Jórdanárinnar.
Þó heimskir fræðimenn, þar af innlendum er núverandi rektor Háskóla Íslands líklegast sá heimskasti því ekki er hægt að kenna vanþekkingu um fáfræðina, þá var það þetta hernám Egypta og Jórdana á landsvæðum hins nýja Palestínuríkis, það er samkvæmt ályktun Sameinuðu þjóðanna, endir á hugmyndinni um Tveggja ríkja lausn.
Staðreynd sem fáfrótt, heimskt fólk, sem telur sig hafa menntun og þekkingu því það lærði eins og páfagaukurinn, hefur horft framhjá þegar það þjónar auðnum við Persaflóann með tali sínu um að það væri Ísraelsmönnum að kenna að af því varð ekki.
Rabin vildi frið, Nethanyahu tók við, örugglega tengdur þeim öflum sem létu myrða Rabin, og þegar örlaganornirnar byrja að kyrja sinn illsku seið, þá leiðir ein ógæfan að annarri, það segir allavega Macbeth.
Hamas, með miklum fjárstuðningi miðaldafólksins við Persaflóann (Hamas-samtökin vörðu miklum hluta fjár síns til uppbyggingar samfélagsþjónustu í Palestínu samhliða því sem samtökin stóðu fyrir áframhaldandi árásum gegn Ísraelsríki. Áætlað er að frá 1993 til 2009 hafi rúmlega 500 manns látist í um 350 árásum sem Hamas-samtökin stóðu fyrir.), vann kosningarnar á Gasa 2007, þá var ljóst að draumurinn um tveggja ríkja lausn var endanlega draumur sögunnar, horfinn inní rykfallnar geymslur hennar.
Samtök sem stefna að útrýmingu "hins ríkisins", semja ekki um tveggja ríkja lausn.
Að segja eitthvað annað er dæmi um heimsku, fávisku eða þaðan af eitthvað vitsmunalega verra.
Þorgerður Katrín er alls ekki ein um þetta bjánatal, að bulla svona út í eitt.
Hún eltir aðeins langa lest vanhæfra vestrænna stjórnmálaleiðtoga, sem eru afsprengi geldingar hin Pólitíska rétttrúnaðar sem kenndur er við ofsalega Góða fólkið.
Gelding því þegar allt mannlegt atferli og mannlegir brestir eru teknir út, þá má líkja vitsmuni og persónuleika viðkomandi stjórnmálamanna við heilalínurit hjá sjúklingi í Koma, aðeins flöt lína.
Samt er á allri heimsku og fávisku takmörk, nema kannski hjá Dúdú fuglinum í stórvirkinu Ísöld en hann var jú teiknimyndapersóna.
Samt eftir voðaárásir Hamas, sem snérust minnst um dráp, heldur nauðganir, limlestingar, þannig að jafnvel börn voru brennd lifandi, það er þau sem voru ekki svo heppin að vera skotin í bílstólum bifreiða foreldra sinna.
Þá hélt hin óendanlega forheimska og fávitaháttur áfram að tala um að lausnin á átökunum á Gasa, átök sem Hamas beint stofnað til með voðaverkum sínum og gíslatöku, væri hin svokallað Tveggja ríkja lausn.
Hvað er verið að sanna með þessu tali??
Er verið að sanna í gegnum mannlegt atferli, sem eðlisfræðin hefur ekki ennþá getað sannað með tilraunum sínum, að það sé eitthvað til sem heitir óendanlegt.
Það er hin óendanlega heimska.
Og eru hinir lítthæfu blaðamenn Morgunblaðsins að hjálpa til með þessa tilraun um að staðfesta óendanleikann.
Með að vitna í Þorgerði Katrínu í fyrirsögn þessarar fréttar; Langtímalausn felst í tveggja ríkja lausn.
Jæja, það þarf ekkert að ræða það frekar.
Samt þegar maður horfir á myndirnar af rústunum á Gasa, þá spyr maður sig, er þessi rannsókn á tilvist óendanleikans, með vísan í hina óendanlega heimsku, ekki dæmd til að mistakast.
Halda menn virkilega að það sé til einhver í alheiminum, sem er tilbúinn að leggja til fjármagn á uppbyggingu á Gasa, uppbyggingu sem verður að engu næst þegar Hamas, með stuðningi Tyrkja og miðaldalýðsins við Persaflóa, reynir að útrýma nágrönnum sínum í Ísrael??
Viðurkenni samt reyndar að ef sá aðili finnst, þá er vissulega komin viss sönnun á óendanleikanum.
En hann mun aldrei finnast.
Sama hve Mogginn vitnar oft í þær stöllur Þorgerði og Kristrúnu, eða dvergana á meginlandi Evrópu, sem hafa ekkert gáfulegra til málanna að leggja.
Það er nefnilega þannig að bjánar eru út um allt.
En það er samt ekki þannig að borgaralegir fjölmiðlar leggi sig í líma við að elta uppi bjánaskap þeirra og bjánatal.
Allavega í mínu ungdæmi þá var sérstakt tímarit, virkilega merkilegt tímarit sem hét Úrval, og sagði manni ýmsar spennandi sögur í bland við furðulegar sögur.
Til dæmis eins og manninn sem nýtti sér rafkrafta vatnsameinda til að fleyta timbri uppá við, átti þar með að sanna að vatn gæti alveg runnið uppá móti, ekki eðlisfræðilega heldur í huga bjána sem trúðu öllu.
Úrval er liðið, blessuð sé minning þess og skemmtun við að lesa það ágæta tímarit.
En að svo sé svo illa komið fyrir ritstjórn Morgunblaðsins, að hún telji sér satt og skylt að taka upp þessa gleymdu ritstjórnarstefnu, það er eitthvað sem maður átti ekki beint von á um mitt árið 2025.
Einhver réttlætir þetta með kannski að segja að hinir miður hæfir blaðamenn Morgunblaðsins gerðu fátt annað en að vitna í Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra.
En svarið er einfalt, þú vitnar ekki í hvað sem er.
Og ef þú vilt það, þá er meiri húmor í að vitna í mjög svo skemmtilega pistla sem voru skrifaðir reglulega í Morgunblaðið, fyrir um 50 árum síðan, samt aðeins seinna, þar sem einmitt pistlahöfundur trúði því einlæglega að það væri hægt að fleyta trjábolum uppámóti, auk margs annars sem gat alveg gerst, forsendan væri aðeins að trúa því.
En þegar fáráð eru notuð sem rök til að styðja samverkafólk Hamas á Gasa, samtök sem skilvirknislega útveguðu samtökunum matvæli sem þau gátu svo selt með góðum hagnaði til að fjármagna áframhaldandi þjóðarmorð sitt á íbúum Gasa, þá eru slík fáráð dæmi um siðleysi.
Afsökun Þorgerðar er forheimskan, þátttaka hennar í tilraun til að mæla endamörk þess sem hægt er að mæla, en hver er afsökun Morgunblaðsins???
Svona fyrir utan að það er gott að þiggja fé frá Íslamistum Persaflóans við rétta af hallarekstur blaðsins, þó fórnarkostnaðurinn er hroði frá áróðursdeild Hamas sem hefur grafið um sig á ritstjórn blaðsins.
Samt ekki.
Arfleið blaðsins er ekki forheimska og fávitaháttur.
Að gefa henni vægi, er árás á öll þau gildi sem blaðið hefur staðið fyrir í rúm 100 ár.
Sem vekur upp spurninguna;
Hverjum þjónar blaðið í raun?
Trójuhesturinn þjónaði allavega ekki íbúum Tróju.
En þjónar Morgunblaðið í raun borgarlegum gildum og borgarlegu fólki?
Stundum finnst manni það, stundum ekki.
En á það að vera svo.
Það er að efinn.
Moggin er samt betri en ekkert.
Kveðja að austan.
![]() |
Langtímalausnin felst í tveggja ríkja lausn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 678
- Sl. sólarhring: 725
- Sl. viku: 4446
- Frá upphafi: 1452898
Annað
- Innlit í dag: 589
- Innlit sl. viku: 3805
- Gestir í dag: 512
- IP-tölur í dag: 488
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning